Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAUUR 26. FEBRUAR 1977
37
*ww
»7—<55
‘ '< L í i ? í» 1
siliinsl
X5“^+91
= VELVAKANDI
= SVARAR í SÍMA
^0100 KL. 10—11
1 FRÁ MÁNUDEGI
Félagslíf skólanna hefur mjög
aukist og sýnum þakklæti fyrir
þaö. Þó mætti gæzla gagnvart
vímugjöfum stóraukast. Skólinn
kennir okkur ekki aðeins þessi
vanalegu fög heldur einnig stund-
vísi, aga vinnugleði og heilbrigði,
svo eitthvað sé nefnt og sem við
þu4fum ekki síður á að halda úti í
hinu daglega lífi.
Með þökk fyrir birtinguna.
Einar Ingvi Magnússon."
Velvakandi þakkar bréfið og
hér á eftir fer bréf frá Halldóri
Kristjánssyni um það mál sem
virðist ætla að verða að miklu
hitamáli ef marka má skrif um
það og umræður manna á meðal,
en það er um
£ Bjórinn enn
Haraldur Einarsson, sem
sagður er búsettur i Vestur-
Þýzkalandi, gerist svo djarfur að
mótmæla upplýsingum þeim sem
Áfengisvarnaráð hefur látið frá
sér fara um áfengismál í Finn-
landi og Svíþjóð. Þar sem hann
segist vera búsettur í Vestur-
Þýzkalandi telur hann sig þekkja
vel til i Finnlandi.
Þetta eru alvarlegar ásakanir á
opinbera stofnun og hún birti
falsaðar skýrslur, væntanlega i
áróðursskyni.
Nu er Áfengisvarnaráð ekki
mér viðkomandí og getur eflaust
svarað fyrir sig svo sem því þykir
við eiga. Hins vegar hélt ég að
þessar upplýsingar sem Haraldur
mótmælir væru hvorki leyndar-
mál né leyndardómur. Tölur um
áfengisneyslu Finna eru teknar
eftir skýrslum áfengiseinkasölu
finnska ríkisins. Tölur um afbrot,
glæpi og hryðjuverk eru teknar
eftir lögregluskýrslum. Hvernig
getur Haraldur borið brigður á
þær tölur þó hann kunni að dvelja
í Vestur-Þýzkalandi?
1 Svíþjóð starfaði i 10 ár stjórn-
skipuð nefnd til að athuga áfeng-
ismál og gera tillögur um það!
Álit hennar liggur fyrir i bók. Þá
bók hef ég séð og veit að Áfengis-
varnaráð hefur stuðst við þær
upplýsingar sem þar eru svo sem
vænta má og sjálfsagt er. Harald-
ur þykist vita betri skil á sænsk-
um áfengismálum en þessi nefnd.
Hann segir: „í Svíþjóð er mér
sagt að neysla sterkra drykkja
hafi minnkað mjög eftir að bjór-
inn var leyfður og bjórinn hafi
verið mjög til bóta.“ — Allt má
heimskum segja,“ er gamalt orð-
tak. En skyldi sænska þingið hafa
samþykkt með miklum meirihluta
atkvæða að banna milliölið ef það
væri satt sem Haraldur er nú
látinn hlaupa með? Geta nú ekki
flestir vorkennt honum þá
heimsku og þann hroka sem i því
felst að þykjast allt vita? Mér
finnst hann aumkunarverður of-
láti.
Haraldur talar um að tími sé
kominn til ,,að stöðva alla þá
hræsni og þær lygar sem eru i
kringum áfengismál hér á landi."
Hvað á manneskjan við? Þegar
nefnd er hræsni i sambandi við
áfengismál verður mér fyrst
hugsað til þeirra sem gaspra um
að „þróa vínmenningu" og
minnka áfengisböl en eru sjálfir
sífellt að drekka og auka drykkju-
skap. Og þegar þessi maður nefn-
ir lygi er það að nefna snöru í
hengds manns húsi.
Það á ekki að gera sér að góðu
og taka með þögn og þolinmæði
þegar heiðarleg embætti og stofn-
anir eru tilhæfulaust bornar hin-
um verstu sökum.
Ég veit hver hræsnar og hver
lýgur í þessu sambandi. Það er
hvorki ég né Áfengisvarnaráð.
Halldór Krist jánsson.
Þessir hringdu . . .
% Prófað
í því sem
aldrei var lært
Tveir hringdu sama morg-
uninn, ungur piltur og undrandi
faðir, vegna hins samræmda prófs
í stærðfræði, — einhvers konar
arftaka landsprófsins. — „Hluti
þessa prófs var í reikningi, sem
okkur í minum skóla hefur aldrei
verið kenndur," sagði pilturinn
og var eðlilega óhress yfir því.
„Ég hef alltaf verið góður í reikn-
ingi, en nú þurfti ég að skila
prófblaðinu með mörgum óreikn-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á ALÞJÖÐLEGA skákmótinu í
Reggio Emilia á Italíu um sl. ára-
mót kom þessi staða upp í skák
svíans Akvist, sem hafði hvítt og
átti leik, gegn sovézka stórmeist-
aranum Kuzmin:
a b c d • I Q h
21. Dg4! — Bg6, 22. Hxf7!!
(Vegna hótunarinnar 23. Hxg7+
er svartur nú þvingaður tii að
leika 22... Kxf7 en eftir 23. Bc4+
verður hann mát eftir bæði 23...
Kf8, 24. De6 og 23. . . Hd5, 24.
Df3+ — Ke6, 25. Bg3+ — Kd7, 26.
Bxd5 — Da6, 27. Be6. Kuzmin
gafst því upp. Kuzmin tókst samt
að sigra á mótinu, hann hlaut 8 v.
af 11 mögulegum. Næstir komu
Bilek, Ungverjalandi, Toth,
ítaliu, og Haik, Frakklandi, allir
með 7!4 v.
uðum dæmum. Nú langar mig til
þess að fá að vita hvort kennarinn
okkar hefur svikist um að kenna
okkur þennan reikning eða þeir,
sem prófið sömdu, fylgjast svona
illa með, hvað kennt er í stærð-
fræði í skólum."
Faðirinn kvaðst vita að í ýmsum
skólum eða bekkjum væri allur sá
reikningur, sem prófað var i,
kenndur, en í öðrum ekki. Hans
sonur hefði að vísu verið svo
heppinn að hafa lært þessa stærð-
fræði en gagnvart hinum hefði
prófið verið mjög ósanngjarnt.
Hann eins og pilturinn óskar eftir
skýringum réttra aðila á þessu.
Þá kvaðst hann hafa hlustað á
samræmda ensku prófið, þegar
það var lesið í Utvarpinu — og
mikill tími þularins farið í þaó að
leiðrétta mistök, sem áttu sér stað
við geró þess. „Það sýður í krökk-
unum," sagði hann, „og slíkt er að
sjálfsögðu ekki vel failið til þess
að bæta árangur þeirra."
HÖGNI HREKKVISI
c 1977
y McN»ught Synd., Inc.
Dómnefndin ákveður úrslitin!
Frá Timburverslun Árna
Jónssonar & Co hf.
--------------------------------A
Krossviður
- Amerískur -
Venjulegur oregonpine krossviður, vatnsþolinn
Stærð:. 244x1 22 cm.
Þykktir: 3/8.. 1/2.. 5/8,.
Verð pr. plata 2430 - 2950 - 4220 -
verð án söluskatts.
„Concast": húðaðurá aðra hlið: Vatnsþolinn
Þykktir: 3/8„ 1 /2"
Verð pr. plata 3370.- 3890.-
verð án söluskatts.
„Concast" húðaðar báðar hliðar.
(Steypumótakrossviður)
Þykktir: 5/8., 3/4..
Verð pr. plata 5280 - 5840 -
verð án söluskatts
v---Plöturnar fást hjá okkur----J
Timburverslun Árna Jónssonar & Co hf.
Laugavegi 148 símar 11 333 og 1 1420.
Við höfum hafið innflutning á vönduðum léttbyggðum
rafknúnum járnakl.ippum frá V-Þýzkalandi. Hér er um að
ræða tvær gerðir og klippir sú stærri allt að 20 mm
kambstál.
gerB 1/12 gerð1/20
Klippigeta: alltað12mm alltað20mm
stál eða tvö stál eða tvö
8,5 mm samtimis 1 2 mm samtimis
Togþol stáls:
Aflþörf:
Hámarks afköst:
Lengd:
Þyngd:
55 kp/fmm
600 W
35 skurðir/min
470 mm
6.2 kg
55 kp/fmm
1 500 W
30 skurðir/min.
550 mm
1 1,4 kg,
Við leigjum einnig út Mono-skitt járnaklippurnar ásamt
ýmsum öðrum tækjum, sem notuð eru í byggingaiðnað-
inum.
Leitið nánari upplýsinga.
(S»[?lisi hf.
Laugavegi 178
MONO- SKITT
RAFKNÚNAR
JÁRNKLIPPUR