Morgunblaðið - 30.03.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977
25
Niels Pedersen er ekki mikill skákmaður. „Ég kann mannganginn,“ segir hann, „en ég tapa oftast. Ég
tefli aðeins þegar mig langar til að handleika taflmennina mlna, það var miklu skemmtiiegra að búa
þá til heldur en að tefla með þeim.“
Hér sést Niels til hægri tefla við eina af fyrirmyndunum.
+ Þeir eru dálítið frábrugðnir taflmönnum sem Hort
og Spassky nota, þessir talfmenn sem vð sjáum hér á
myndinni. Það er Niels Pedersen, danskur verka-
maður, 66 ára gamall sem hefur skorið þá út í fílabein.
Niels býr í Skanderborg og fyrirmyndirnar af tafl-
mönnunum eru nágrannar hans. í fimm ár hefur hann
eytt öllum sínum frístundum í vinnuherberginu sínu í
kjallaranum við að búa til þessa sérkennilegu tafl-
menn. Hann hefur alla sína ævi verið verkamaður en
flestum frístundum sínum hefur hann varið til að
skera út. Meðal fyrirmyndanna að taflmönnunum eru
pósturinn með pósttöskuna og í einkennisbúningnum.
Smiðurinn við steðjann, verkamaðurinn sem hallar
sér fram á skófluskaftið og bóndinn með hendur f
vösum, horfandi á svínin sín. Engir tveir taflmenn eru
eins og hver um sig er sannkallað listaverk sem hefur
verið metinn á 240 þúsund krónur, en þeir eru ekki til
sölu.
ffclk í
fréttum
nœstukjötbúð
Hakkað ærkjöt
kílóverð kr.550,-
P f'ijrir ffóéan mai
g::ði
@ KJÖTIÐNAÐARSTÖD SAMBANDSINS
— Minning
Guðjón
Framhald af bls. 23
hjá Rannsóknastofnun byggingar-
iönaðarins að Keldnaholti.
Kona Eggerts er ' Eygló
Guðmunddóttir, og eiga þau tvo
syni, Guðjón og Magnús. Báðar
fjölskyldurnar hafa ávallt búið
undir sama þaki og aldrei fallið
skuggi á sambýlið.
Eindregni mikil hefur ávallt
ríkt milli íbúanna að Efstasundi
30, og sár mun söknuður
sveinanna ungu er nú hafa séð á
bak afa sinum.
Foreldrar Guðjóns eignuðust
fjögur börn, og var Guðjón elstur
þeirra. Hin eru Magnús starfs-
maður hjá Eimskip h/f, Elín Þóra
og Ingibjörg. Milli systkinanna
allra rikti ávallt samheldni og
ástúð.
Við orðin vegaskil vil ég þakka
Guðjóni Bj. Guðlaugssyni ánægju-
legar stundir í leik og starfi á
æskustöðvunum i Hnifsdal og vin-
áttu gegnum árin sem aldrei bar
skugga á.
Með Guðjóni er genginn
drengur góður, trúr hverjum
þeim málstað er hann tók tryggð
við.
Eftirlifandi konu hans, syni og
systkinum, tengdadóttur, sonar-
sonum og öðrum ættingjum hans
og vinum flyt ég dýpstu samúðar-
kveðjur. ,
Helgi Hannesson
Ekki hafði ég starfað lengi hjá
Áfengisvarnaráði er aldraður
maður, lágur til hnésins en þéttur
á velli, kom á skrifstofuna til min,
bauð mig velkominn til starfa og
kvaðst fús til liðveislu. Það var
Guðjón Bj. Guðlaugsson sem til
moldar er borinn i dag.
Við nánari kynni af Guðjóni
varð mér ljóst að hann var ekki
einungis þéttur á velli heldur
einnig þéttur i lund. Ungur hafði
hann kynnst Góðtemplara-
reglunni og verið um áratuga-
skeið traustur liðsmaður þar í
sveit. Hann ritaði margt um
bindindismál og flest prýðilega.
Hálfvelgja var eitur i beinum
hans, hálfsannleikur draup aldrei
úr penna hans. Hann vildi reiða
öxina að rótum feyskinna trjáa
fremur en daðra við þann vesal-
dóm sem breytir grænum skógi I
fúna kalkvisti. Hann var einlægur
bannmaður.
Guðjón Bj. Guðlaugsson var
ágætlega hagorður. Mun mörg
snjöll staka hans lifa lengi. —
Siðasta grein hans birtist i
Tímanum að honum látnum:
Greindarleg og sterk hvatning
lifsreynds manns og varnarorð í
tilefni litt grundaðs tillöguflutn-
ings á Alþingi um áfengt öl.
Um leið og ég sendi fjölskyld-
unni, sem jafnan studdi hann og
styrkti í mannbóta- og hugsjóna-
baráttu hans, hugheilar samúðar-
kveðjr bið ég þess að íslensk
bindindishreyfing megi um alla
framtíð eiga í röðum sínum hug-
djarfa menn á borð við Guðjón Bj.
Guðlaugsson.
Olafur Haukur Árnason
Jarðarförin fer fram fá Fossvogs-
kirkju kl. 1.30 i dag.
Dr. Alster
tefldi íVest-
mannaeyjum
TÉKKNESKI skákmeistarinn
dr. Alster tefldi fjöltefli f Vest-
mannaeyjum á laugardaginn.
Tefldi hann 18 skákir, vann 11,
gerði 6 jafntefli og tapaði einni
skák.
Sá sem vann kappann var Jón
Sveinsson bifreiðastjóri, en
jafntefli gerðu Arnar Sigur-
mundsson, Björn Ivar Karls-
son, Björg Ingi Magnússon,
Karl Björnsson, Guðmundur
Guðlaugsson og Sigurgeir Jóns-
son.
Á laugardag'skvöldið skoruðu
10 félagar úr taflfélaginu i
Vestmannaeyjum á dr. Alster
að tefla við þá fjöltefli með
klukkum, sem hann gerði.
Vann Alster 9 skákir en tapaði
einni, fyrir Birni Ivari Karls-
syni lækni.
Sjómenn segja
upp samningum
og boða kjara-
málaráðstefnu
AÐILDARFÉLÖG Sjómanna-
sambands Islands, að undan-
skildum Vestfjarðafélögunum,
hafa sagt upp þeim samningum
um kaup og kjör sjomanna,
sem staðfestir voru með lögum
þann 6. september sfðastliðinn.
Samningarnir falla þvf úr gildi
15. maf næstkomandi.
Með tilliti til góðrar samstöðu
sjómannastéttarinnar hefur
sambandsstjórn Sjómannasam-
bandsins boðað til kjaramála-
ráðstefnu sjómanna, þar sem
endanlega verður gengið frá
þeim kröfum sem sjómenn
munu berjast fyrir og standa
sameiginlega að i næstu samn-
ingaviðræðum, segir i frétt frá
Sjómanasambandi íslands.
Ráðstefnan verður haldin
sunnudaginn 3. april á Hótel
Sögu og hefst kl. 10.00.
ÞÚ AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
ALGI.YSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Meistarakeppni K.S.Í.
í kvöld kl. 8 á Melavelli
VALUR — FRAM
Komið og sjáið spennandi leik.
Valur.