Morgunblaðið - 30.04.1977, Page 1
44 SIÐUR OG LESBÖK
96. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Callaghan ætlar
að stjórna áfram
„Boots“ Hansen gefur mönnum sfnum merki á borpallinum Bravo. simamynd af
Næst reynt að stöðva
olíulekann á sunnudag
London 29. apríl — NTB, Reuter.
Brezka stjórnin er orðin enn
háðari smáflokkum f neðri deild
þingsins eftir að hafa misst eitt
þingsæti í aukakosningunum í
gær. Kosningatapið f iðnaðarbæn-
um Ashfield kom Verkamanna-
flokknum mjög á óvart, en hann
hefur haft þingsætið þar síðan
1918.
Aftur á móti hélt fiokkurinn
þingsæti sínu í Grimsby, en þar
bætti thaldsflokkurinn við fylgi,
um sem nam 7%. James Callaghan
forsætisráðherra vildi á föstudag
ekki gera mikið úr fylgistapi
flokks sfns og sagði, að stjórnin
stæði fast við ákvarðanir sfnar um
að koma f framkvæmd áætlunum
um efnahagslega viðreisn lands-
ins.
Frjálslyndi flokkurinn,
stuðningsflokkur ríkisstjórnarinn-
ar á þingi, tapaði enn meira fylgi
en Verkamannaflokkurinn. Þykir
ljóst, að hann hafi mun minni
áhuga á nýjum kosningum en
Lögreglu-
maðurinn
létlífið
Kaupmannahöfn 29. aprfl — NTB
LÖGREGLUÞJÓNNINN, sem
fékk heilablæðingu eftir átök lög-
reglu og prentara fyrir framan
byggingu dagblaðsins Berlingske
Tidende aðfararnótt fimmtudags,
lézt f sjúkrahúsi f nótt.
Átökin urðu þegar prentarar
reyndu að stöðva dreifingu neyð-
arblaðs Berlingske, sem var ekki
prentað af prenturunum, sem eru
í verkfalli. í gær gekk á fund
verkstjóra, sem prentuðu neyðar-
blaðið, formaður félagsins, sem
hótaði þeim því að birta opinber-
lega nöfn þeirra, heimilisfang og
símanúmer, ef þeir hættu ekki
starfsemi, sem prentarar kalla
verkfallsbrot.
Orla Möller dómsmálaráðherra,
hefur fyrirskipað lögreglurann-
sókn á atburðunum fyrir framan
Berlingske Hus.
Verkamannaflokkurinn. Urslitin
stangast á við úrslit skoðanakann-
ana og spádóma og koma því veru-
lega á óvart. Verkamannaflokkur-
inn var til dæmis svo sigurviss í
Ashfield, að hann rak þar enga
Framhald á bls. 24.
Svíþjóð:
Mælt með
f r jálsum út-
varpsrekstri
Stokkhólmi 29. apríl — Reuter
Stjórnarnefnd mælti með
þvf f dag, að sendingar sænska
útvarpsins og sjónvarpsins
yrðu lengdar, skipulagi sjón-
varpssendinga breytt, þannig
að þær verði frá fleiri stöðum
en nú er og að breytingar verði
gerðar á lögum, sem veita
sænska útvarpinu einkarétt á
útvarpi og sjónvarpi.
Nefndin, sem starfar á veg-
um sænska menntamálaráðu-
neytisins, sagði I áliti sínu, að í
stað tveggja sjónvarpsrása
(TVl og TV 2), sem nú senda
að mestu frá Stokkhólmi um
allt landið, komi ein TV S rás,
sem sendi frá Stokkhólmi um
allt land, og níu TV R rásir
sem sendi um ákveðna lands-
hluta. Nefndin leggur einnig
til að útsendingarstundum
Framhald á bls. 24.
írar
Dublin 29. apríl
— Reuler
ÍRSKI sjóherinn tók í dag hol-
lenzkan togara fyrir ólöglegar
veiðar innan nýju 50 sjómílna
fiskveiðilögsögu Irlands sam-
kvæmt heimildum innan
sjóhersins. Togarinn, Monika er á
leið til hafnar f Cork f fylgd
varðskipsins Deirdre, og er búizt
Stafangri 29. aprfl — NTB
FJÓRÐA tilraunin til að stöðva
útstreymi olfu frá borpallinum
Bravo f Norðursjó fór út um þúf-
ur f dag, en þetta var önnur til-
raunin, sem gerð er á 48 klukku-
stundum. Þegar hefur hafizt und-
irbúningur að nýrri tilraun, en
hún fer líklega fram á sunnudag.
Ætlunin var að loka fyrir út-
streymið með þvf að láta olfuna
fara f gegnum rör, sem fest voru
við op olíuleiðslunnar. Sfðan átti
að þrengja þvermál þeirra úr 12
sentimetrum f fimm. Þvf næst
átti að loka fyrir ventla á enda
röranna. En það liðu ekki nema
tvær mfnútur þar til hætta varð
við fyrri hluta aðgerðarinnar, þar
sem þéttingar þoldu ekki þrýst
inginn. Hraði olfustreymisins tvö-
faldaðist f 400 metra á sekúndu,
þegar þvermál röranna var
þrengt með þrýstibúnaði.
I kvöld var beðið eftir því að
leiguþota kæmi með ný tæki frá
Kaliforníu. Phillips-olíufélagið
útilokaði ekki, að reynt yrði aftur
að stöðva lekann á laugardag, en
álitið er þó að beðið verði eftir
nýju tækjunum þannig að ekki
verði reynt aftur fyrr en á
sunnudag.
Mesti sérfræðingur heims i bar-
áttu gegn oliuslysum, Paul
„rauði“ Adair, en fyrirtæki hans
vinnur að þvi að stöðva olíulek-
ann, kom í dag til Stafangurs frá
Texas. Hann flaug með þyrlu út
að borpallinum, þar sem menn
hans eru að störfum undir stjórn
Asgar „Boots“ Hansen.
„Ég veit að þetta er martröð
fyrir strákana", sagði Adair.
,,Boots“ er orðinn fárveikur. And-
litið er bólgið, hann sér ekki með
öðru auga og eyrun eru stífluð".
Alex Buvik, fulltrúi norsku
olíustjórnarinnar, sem einnig
flaug yfir borpallinn í dag, sagði
að vinnuaðstæður þar væru
„brjálæðislegar". „Mennirnir
standa á pallinum í stöðugu olíu-
og vatnsflóði. Hávaðinn frá olíu-
streyminu er svo ærandi, að þeir
heyra ekki hver til annars og geta
aðeins gefið merki með höndun-
um.“
Adair var bjartsýnn við kom-
una til Stafangurs i dag, um að
mönnum hans tækist að stöðva
olíulekann og taldi hann að það
tæki ekki nema tvo daga. En fram
að þvi halda 4.000 lestir af olíu
áfram að streyma út daglega.
Zaire:
Stödugt und-
anhald upp-
reisnarmanna
Kinshasa 29. apríl — Reuter.
Stjórnarher Zaire og
marokkóskir hermenn sóttu ( dag
að bænum Kasaji, sem hefur ver-
ið i höndum uppreisnarmanna (
Shaba—héraði. Framsókn stjórn-
arhersins hefur fram til þessa
verið án mannfalls að mestu, þar
sem andstæðingarnir hafa hörfað
stöðugt undan ( átt að landamær-
um Angóla. og sprengja þeir allar
brýr að baki sér til að tefja fram-
sókn Zairehersins.
Á fimmtudag var 100 fallhlífar-
hermönnum varpað niður aftan
við víglínu uppreisnarmanna til
að stöðva flótta þeirra til Angóla.
Franihald á bls. 24.
taka togara
við þeim þangað snemma í fyrra-
málið.
Þetta er fyrsti togarinn sem írar
taka siðan einhliða útfærsla þeirra
kom til framkvæmda 11. apríl. Um
það bil 10 hollenzkir togarar voru
að veiðum á svipuðum slóðum og
Monika, 30 mflur frá landi, og
sumir þeirra fylgja á eftir henni
til Cork.
írar tóku sér 50 mílna einkafisk-
veiðilögsögu þrátt fyrir harða and-
stöðu bandamanna sinna innan
Efnahagsbandalagsins. Franskir
og hollenzkir sjómenn hafa lýst
reiði sinni yfir útfærslunni, en
samkvæmt lögum um hana mega
engir erlendir togarar veiða innan
50 milnanna. Heyrzt hefur, að þeir
hafi ætlað sér að láta íra taka skip
til að þeir gætu prófað málið fyrir
Evrópudómstólnum.
Viljum ræða fiskveiðimál
og almenn samskipti
— segir Frank Judd í símtali við Morgunblaðið
„Við komum ekki til tslands
veifandi lurkum eða til að hafa
( hótunum", sagði Frank Judd,
aðstoðarutanríkisráðherra
Breta, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann f gær vegna
fyrirhugaðra viðræðna Efna-
hagsbandalagsins við fslenzku
rfkisstjórina um fiskveiðimál.
„Við komum sem vinir til að
ræða af hreinskilni og einlægni
og málefnalega þau Vandamál,
sem við eigum við að etja
sameiginlega. Þótt tslendingar
séu ekki f Efnahagsbanda-
laginu erum við bandamenn
innan Atlantshafsbandalagsins
og ættum þvf að geta jafnað
ágreining okkar og komið sam-
skiptum okkar á æskilegan og
skynsamlegan grundvöll“,
sagði Judd.
„Þótt fiskveiðimál verði að
sjálfsögðu helzta málið, sem
fjallað verður um, er ætlunin
einnig að ræða samskiptin
almennt. Við komum til íslands
I vinsamlegum tilgangi — Ég
legg megináherzlu á það — og
ég er þess fullviss, að meó því
að ræða vandamálin af hrein-
skilni, mundi takast að finna
lausn, sem er viðunandi fyrir
báða aðila.“
„Á hinn bóginn er ástæða til
að leggja um leið á það áherzlu,
að I húfi eru lifshagsmunir ein-
staklinga og fjölskyldna, og
fyrir þetta fólk erum við um-
bjóðendur. Við þurfum að
standa því reikningsskil gerða
okkar, berum ábyrgð á velferð
þess og hljótum þvi að leita að
lausn með hagsmuni þess i
huga“, sagði ráðherrann.
Judd var að þvi spurður
hvort ráðamönnum Efnahags-
bandalagsins væri ljóst, að
íslendingar yrðu að öllum
líkindum að taka fyrir þorsk-
veiðar sinna eigin skipa á
næstunni, þar sem ástand
þorskstofnsins væri nú enn
alvarlegra en verið hefði fyrir
örfáum mánuðum.
Sagði Frank Judd að stefna
bandalagsins bæri þess vitni, að
það gerði sér fullkomna grein
fyrir mikilvægi fiskverndar og
það væri alþjóðlegt vandamál
sem við væri að etja alls staðar.
Judd kvað ekki tímabært að
ræða kröfur bandalagsins á
hendur íslendingum, það yrði
að biða þar til viðræðunefndin
væri komin til Reykjavikur.
Loks var ráðherrann að þvi
spurður, hvort til þess gæti
komið að Efnahagsbandalagið
setti íslendingúm einhvers
konar frest eða skilyrði, ef svo
kynni að fara að dráttur yrði á
þvi að viðræður hæfust. Sagði
hann, að í þessu sambandi væri
út i hött að tala um slikt —
báðir aðilar vildu koma á
viðræðum hið fyrsta, enda þótt
enn hefði ekki tekizt að finna
þeim tíma vegna ýmissa anna,
og dagsetning yrði áreiðanlega
ákveðin alveg á næstunni.