Morgunblaðið - 30.04.1977, Síða 10

Morgunblaðið - 30.04.1977, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRlL 1977 Sýning í Menningar- stofnun Bandaríkjanna Þessa dagana gefur að líta sýningu á grafískum verkum (Monoprints) i Menningar- stofnun Bandaríkjanna við Nesveg. Listamaðurinn, sem í hlut á, heitir Joseph Goldyne og fer dálítið óvenjulegar leiðir í list sinni. Hannn er læknir að mennt, en mun ekki hafa starfað neitt sem slíkur. Enn- fremur er hann vel verseraður í Listasögu, en fæst heldur ekki við nútímaspekulasjónir á þvi sviði. Það segir um Joseph Goldyne í formála í sýningar- skrá, að hann stundi þessa teg- und grafískrar listar í og með til að hamla við því flóði af vondri grafík, sem hellt sé yfir heiminn þessi árin. Goldyne virðist hafa persónulegar að- ferðir við myndgerð sína, og því nefnir hann afraksturinn Monoprint, en ekki Monotype. Á þessu tvennu er tæknilegur mismunur, sem við skulum al- veg láta liggja milli hluta, en hjá Þessum listamanni mun það reglan að gera aðeins eitt eintak af mynd.' Það eru skemmtilegar hug- dettur, sem koma fram í þess- um myndum. Þær eru tækni- lega gamaldags, ef svo mætti að orði kveða, og hafa svip ætinga, enda ætingar að vissu marki. Listamaðurinn leikur sér að því að setja í einn og sama mynd- heim mismunandi hugmyndir, sem oftlega eru dregnar úr verkum eldri meistara, eins og ráða má til dæmis af titli eins og „Redon’s Sky Coming Up Over Ruysdale“ eða „Ribera Sleeping Above Chagall’s Garden". Þetta eru ekki titlar út í bláinn. Listamðurinn not- færir sér ýmislegt frá þessum gömlu meisturum og gerir það á skemmtilegan og snjallan hátt. Það gæti verið, að fólk héldi, að listamaðurinn væri eingöngu að gamna sér við slíka myndgerð, en svo er ekki. Það er tilgangur í þessari mynd- gerð, og Goldyne tekst að koma þeim skilaboðum áleiðis, er honum liggja á hjarta. Hér er mikil kunnátta og tækni á ferð, og ég er ekki hissa á, að þessi sýning skuli vera á ferð meðal þjóða á vegum þess opinbera í Bandaríkjunum. Allt eru þetta frekar lítil verk og láta ekki mikið yfir sér. En þegar betur er að gáð, kemur i ljós, að lista- maðurinn þarf ekki á veiga- meiri myndgerð að halda. Hann sýnir okkur næmt auga fyrir linu’ og lit, hann hefur vald á myndfletinum, þótt djarft sé teflt á stundum, fellur allt í eina heild og hugmyndirnar komast til skila. Þessi mynd- gerð er ef til vill ekki sérlega frumleg, en hvað um það, þetta hefur ekki verið hér á ferð áður. Þetta er skemmtileg og merkilega vel valin sýning, þar sem listmaðurinn slær á nokk- uð aðra strengi en samtiðar- menn hans. Ég þakka fyrir skemmtilega stund og mæli með þessari sýningu. MYND:No. 34. mynd nr. 19: Portrett Gunnar Örn á Lof tinu Karl T. Sæmundsson í Bogasalnum Það er afar sjaldgæft hér á landi að listamenn haldi sýn- ingu á teikningum einum saman. Hvernig sem á því stendur, er það staðreynd, að varla sést teikning á sýningum með oliumálverki, og það er ekki langt síðan grafík fór að gera sig gildandi hér á sýn- ingum. Auðvitað hefur Alfreð Flóki algera sérstöðu i 'þessu efni, en hann er líka sá einasti af listamönnum okkar, sem ein- göngu stundar teikningu, og þar af leiðir auðvitað. að sýn- ingar hans eru eingöngu byggð- ar upp af teiknuðum myndum. Það hefur verið heldur lítið um að vera á Loftinu hja Helga Einarssyni að undanförnu, en nú hefur hinn kjarkmikli og duglegi ungi listamaður, Gunnar Örn Gunnarsson, kom- ið fyrir sýningu á teikningum sínum þar á staðnum. Hann hefur raunar áður haldið sýn- ingu á teikningum sinum þar á staðnum. Hann hefur raunar áður haldið sýningu á teikn- ingum sínum á sama stað, og ég fullyrði, að hann gengur hér fram fyrir skjöldu með gott for- dæmi. Það er sannarlega kom- inn tími til, að listamenn yfir- leitt sýni teikningar sínar, því að sannleikurinn er sá, að teikning er ekki á nenn hátt siðri listgrein en sjálft málverk- ið og það er gap í listmenningu okkar, að hafa ekki Iagt meiri rækt við teikninguna en raun ber vitni. Kjarval var afburða teiknari, svo að lítið dæmi sé nefnt. Og það má líka geta þess hér, að ekkert olíumálverk verður til án teikningar. Gunnar Örn Gunnarsson er feiknalega duglegur teiknari, sem notar línuna til að koma snöggum viðbrögðum og innri átökum á framfæri í myndum sínum. Það eru mannamyndir og líkamshlutir, sem eru við- fangsefni Gunnars að sinni. Hann er um árabil búinn að helga krafta sinum baráttunni við byggingu líkamsforma í myndflötinn. Það er ekki frá því, að svolítillar þreytu gæti í þessum viðfangsefni hjá Gunn- ari Erni, og það liggur við, að mann langi til að sjá hann spreita sig á nýjum viðfangs- efnum, hver svo sem þau yrðu. Það eru kol og kínablek (Túsk), sem hann notar við þessa myndgeró, og ekki get ég gert það upp við mig, hvort efnið fer betur i höndum hans. Sýningin sem nú er á Loftinu er nokkuð frábrugðin þeirri, er Gunnar Örn hélt þar í fyrra. Þá voru það svokallaðar monotýp- ur, er hann sýndi, en þær geta Framhalri á bls. 24. Karl T. Sæmundsson hélt ný- verið sýningu á verkum sinum i Bogasalnum. Nú hefur hann efnt til annarrar sýningar á sama stað og sýnir þar 26 olíu- málverk og nokkrar olíupastel- myndir. Viðfangsefnin eru gamalkunn: nágrenni Reykja- vikur, Hrafnabjörg, Húsafells- skógur, Þingvellir, Heiðmörk og Kaldidalur. Karl mun lengi hafa haft það fyrir tómstundaiðju að fáit við málverk. Á þessari sýningu er ýmislegt, sem bendir til þess, að Karl hafi mikla ánægju af að Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON sýsla við að koma fyrirmyndum sínum á léreft, en það fer heldur ekki fram hjá neinum þeim, sem brotið hefur heilann um myndbyggingu, að hann gerir minni kröfu til samspils litar og forma en þess að skila fyrirmynd sinni nokkurn veginn óbrenglaðri, enda má efast um listrænt gildi þessarar myndgerðar. Af olíumál- verkum á þessari sýningu þóttu mér nr. 7, Vorþeyr, og nr. 16, Séð til Bessastaða, snotur verk, sem sýna viðkvæmni í litnum og látlaust hugarþel málarans til fyrirmyndarinnar. Annars fannst mér þetta nokkuð þungt og samlita. Málarinn virðist tæpast hafa þau tök á viðfangs- efni sínu, sem nauðsynleg eru til að koma persónulegri tján- ingu þeirra á framfæri. Olíupastelmyndir Karls þóttu mér yfirleitt miklu betri verk en þau, sem hann vinnur með olíulitum á striga. Þar nær hann skemmtilegum tón, sem fellur vel að fyrirmynd og skapar visst andrúmsloft, sem allir þekkja, sem haft hafa opin augu fyrir litamergð náttúr- unnar, til dæmis í vetrarskrúða íslenskrar tilveru. Það virðist nokkuð mikið bil milli þessara olíupastelmynda og annars á sýningu Karls, en þannig getur stundum æxlast til, að einn og sami maður nái árangri í með- ferð eins efnis, en ekki annars. Hér blasir einnig við okkur sú staðreynd, að þeir, sem fást við að mála myndir í frístundum, eru misjafnlega undir það búnir að koma opinberlega fram með verk sín. Það er skemmtileg iðja að mála myndir og fást við listræn vandamál, en það er vandi að sjá og gera sér ljóst, hvenær tími er kominn til að kveðja sér hljóðs á opinberum vettvangi. Ég er viss um, að sama gildir í allri listsköpun, hvort heldur um er að ræða málaralist, skáldskap, hljómlist eða aðrar listgreinar. Þá má einnig á það minna í þessu sambandi, að það er tvennt ólíkt að vera völ- undur í höndunum og að megna að tjá sig listrænt. Góður hagyrðingur er oft litið skáld. í landi, þar sem margir yrkja og kasta fram stöku, held ég, að flestir skilji, hvað ég á við. mynd nr. 27 við Gróttu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.