Morgunblaðið - 30.04.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRlL 1977
17
IÐNAÐAR-
MAÐUR
ÍHU6UNAR
Steindór Steindórsson
fráHlöðum:
Daniel Bruun
—Þorvaldur
Thoroddsen
UNDIR þessari fyrirsögn
birti þýzka blaðið „Die
Welt" fyrir skömmu viðtal
við Rolf Hádrich, sjónvarps-
mann, sem nú er staddur
hér á landi við að kvik-
mynda bókmenntaáhuga
Íslendinga, ef svo má að
orði komast. Þar sem hérer
um stutta kynningu á Rolf
Hádrich að ræða, og Hall-
dór Laxness „kemur inn í
myndina", þykir ástæða til
að birta hér meginefni við-
talsins.
„Eruð þér raunsæismaður, Hall-
dór?" spurði Rolf Hádrich íslenzka
skáldsagnahöfundinn Halldór Lax-
ness, er upptaka var að hefjast á
„Fiskakonsert", en sú mynd var
byggð á skáldsögu Laxness. Hann
bandaði frá sér I ofboði: „Nei, til
þess er lífið of furðulegt." Þessi
sjálfsögðu viðbrögð og tilsvar. segir
Hádrich, voru síðan sem einskonar
einkunnarorð allrar myndarinnar.
Jafnbarnalegt og það væri að draga
þá ályktun af þessu, að Laxness væri
„furðulegur raunsæismaður", eins
fráleitt væri það að llma nokkurt
vörumerki á Hádrich sjálfan. Heitið
sjónvarpsmaður myndi ekki einu
sinni vera rétt. „Ég vinn lika fyrir
sjónvarp" segir hann og leggur
áherzlu á „líka". „Ég vinn líka fyrir
sjónvarp, af þvi að það veitir mikla
möguleika sem menningartæki."
Rolf Hádrich frá Zwickau, Sax-
lendingur sem sagt, árangur 1931,
orti Ijóð með stuttum, meitluðum
setningum (Um Hans Lothar:
„Vertu / það sem þú ert / við
komum / til þín ") Hann skrifaði og
sviðsetti leikrit Frisch og Beckett í
Schillerleikhúsinu i Berlin til dæmis,
Dúrrenmatt i Frankfurt. Hann leik-
stýrði útvarpsleikritum og fékk fern
verðlaun fyrir kvikmyndina „Seink-
un i Marienborn." Verðlaunin, sem
hann hefur fengið, fylla heílan dálk.
„Það má ekki ofmeta þau". segir
hann, en brosir um leið og hristir
Isinn i glasinu sínu: „En svona er
maðurinn, þó að meira að segja
kæmu sjálfkrafa, myndi maður hafa
mjög gaman að þeim "
Hvernig hann komst að sjónvarp-
inu? „Ég er enginn svokallaður sjón-
varpsmaður Fyrir mér er sjónvarpið
einn af möguleikunum Og þegarég
byrjaði, var það hinn mikli, vlðfeðmi
möguleiki án þvingunar vegna pen-
inga. Hefði ég verið marxisti, hefði
ég sagt: Við vorum frjálsir, því að
Rolf Hádrich
við áttum framleiðslutækin Meðan
bíómyndirnar voru háðar aðgöngu-
miðasölunni og sýndar voru Stúlkur
i Svartaskógi og þess háttar hlutir,
unnum við að kvikmyndum Hin
þýzka kvikmyndalist eftir striðið varð
til i sjónvarpinu "
„Hvaðvarðtil þar, Rolf?"
„Við, sem þá vorum ungir, vorum
svo lánsamir að hitta fyrir opinberan
fjölmiðil, sem losaði okkur algerlega
við þær sorpsýningar, sem þá tiðk-
uðust Við gátum þá tekið til við
viðfangsefni. sem þá voru ótæk í
bíómyndum
„Og hver þá?"
„Frið I vorri borg, i kvikmyndinni
snýr Gyðingur aftur til smáborgar
sinnar eftir striðið — það var ekki
efni i biómynd á þeim tima. Alveg
eins fjarri þvi að vera efni i biómynd
eins og „Hinir réttlátu" eftir Albrecht
Goes. Ekkert slikt, ekkert svipað þvi
átti sér stað i kvikmyndum."
Það var upphaf sjónvarpsins. upp-
haf, sem ekki aðeins i minningu
Hádrichs lifir sem bjartur brautryðj-
endatimi Þá var sá. sem hugsaði
eitthvað upp og framkvæmdi það,
einnig um leið húsbóndinn. En nú
hefur hann mikið fyrir þvi einu að
koma saman hlutverkalista. þvi að
stofnanirnar og heimildirnar hafa
greinzt I sundur.
„Sandur í vélinni?"
„Óþarfar málamiðlanir myndi ég
kalla það "
En hvað um það, málamiðlun hér,
hæfni þar. En listinn yfir Hádrich-
myndir er ekki aðeins langur, heldur
ristir hann einnig djúpt alla jafna.
Við teljum ýmsar upp. og svo erum
við allt í einu komnir að áætluninni
„Kvikmyndaðar bókmenntir".
„Hver er tilgangur yðar með þvi?"
Uppeldi, fræðsla, kennsla?"
„Ekkert slikt. Við viljum beita hin-
um nýja milljónamíðli, sjónvarpinu,
sem miðli, miðlara, til miðlunar."
„Bóksalarnir eru ánægðir "
„Það er ekki minn bjór. En þegar
aftur er farið að gefa út bækur eftir
rithöfund, sem við vorum búnir að
gleyma, eins og ijlendinginn Hall-
dór Laxness, og meira en það, þær
seljast og eru lesnar, þá er það nú
þó nokkuð Svo að ekki sé nú
minnzt á Fontane."
Rolf Hádrich, rithöfundur og leik-
stjóri, heimspekingur sjónvarpsins,
hvað er hann eiginlega að gera,
þegar hann skrifar kvikmyndahand-
rit og annast leikstjórn? Hann lætur
hlutina þróast, það er ef til vill
nákvæmasta svarið Hann horfir á
leikarann. hann hristir höfuðið,
hann kallar til hans. leikarinn tekur
sér stöðu aftur. Hádrich gefur bend-
ingu, og sjáið til: Leikarinn nær þvi
núna, allt fer samkvæmt áætlun og
jafnvel ennþá betur vegna hins sér-
staka látbragðs, sem leikarinn lagði
til ósjálfrátt
Hádrich er iðnaðarmaður af guðs
náð. En hann er alltaf mannlegur.
Hvað og hvenær sem þarf að saga,
hefla, sverfa. þá er eitt umfram allt:
Skapið verður að vera gott Húm-
ornum verður að halda uppi Þannig
hugsar hann á venjulegum virkum
leikstjórnardegi I anda djúprar sjón-
varpsheimspeki, sem getur verið
langsótt. Hann vitnar gjarnan i
Bernanos, sem telur heiðarlegt sam-
ræmi hugsunar og ritaðs máls helg-
ustu skyldu rithöfundarins: „Þeir.
sem heldur vilja Ijúga, ættu að velja
sér annað starf Til dæmis stjórn-
mál." Og Hádrich bætir þvi við, að
það sé vissulega réttur hvers manns
að velja sér síðari kostinn. gerast
farandvandlætrar gagnvart með-
bræðrum sinum, bera áhyggjur og
sorgir út af ástandinu hér á jörð á
torg — en: Enginn skyldi þess
vegna ætla sér þann rétt að mega
drepa hláturinn, brosið, gleðina,
hispursleysið
Og talið berst að siðustu mynd
hans, „Stechlin", sem byggð er á
sögu eftir Fontane, en hann dó fyrir
siðustu aldamót Það var djarft fyrir-
tæki Hádrich vitnar I eftirlætishöf-
und sinn, ef einhvern má kalla svo,
Albert Camus: „Það er ekki hlutverk
mitt að breyta heiminum eða mann-
fólkinu. En það er ef tíl vill fólgið í
þvi að vinna á minum stað I þágu
þeirra einföldu verðmæta, sem
breyttur heimur myndi heldur ekki
vera þess virði að lifa E, ef hann væri
án."
Heimspekingur i stöðu leikstjóra?
Bókmenntamaður i upptökusal? En
óneitanlega hugmyndarikur, traust-
ur iðnaðarmaður sýninga og Ihug-
ana, þekkingarog hæversku
— svá — þýddi.
Fjölmiðlar hafa þessa slðustu
daga skýrt frá þvf að Mennta-
málaráð hafi veitþ allverulegan
styrk til kvikmyndagerðar af
ferðum Daniels Bruuns hiifuðs-
manns um háiendi tslands.
Ekki er nema gott eitt um það
að segja. Daniel Bruun fór all-
víða um óbyggðir, kannaði eyði-
býli og rakti fornar slóðir og
vegi, sem voru gleymdir eða að
falla í gleymsku. Auk þessa
kannaði hann marga
menningarþætti ekki sfst f
gamalli húsagerð og hafa
myndir hans og teikningar
bjargað miklum verðmætum
atriðum. Og ekki má gleyma
Steindór Steindórsson
því að hann gaf út fyrstu leiðar-
Jýsingarnar um landið og fyrsta
ferðamannakortið. Allt þetta er
nægilegt til að sýna að vel fer á
þvf, að minningu hans sé fuilur
sómi sýndur.
En um leið og þetta er rifjað
upp, hlýtur hugurinn að
hvarfla til annars manns, sem
leysti af höndum margfalt starf
f könnun landsins og ekki síst
óbyggðanna. En það var dr.
þorvaldur Thoroddsen,
prófessor. Á árunum
1882—1898 ferðaðist hann með
fylgdarmanni sínum og
aðstoðarmanni Ögmundi
Sigurðssyni síðar skólastjóra,
um langmestan hluta landsins,
kannaði náttúrufar þess og
gerði landslýsingar. Fyrir hans
daga mátti kalla að mikill hluti
hálendisins væri lands-
mönnumr hvað þá öðrum,
lokaður heimur. Einnig vissu
menn furðulitið um ýmsar
hinna afskekktustu sveita svo
sem Hornstranda. Með
nokkrum sanni má segja að
hann ,,fyndi‘‘ heil svæði í
hálendinu. t.d. öræfin
suðvestur af Yatnajökli, sem
áður voru sýnd sem hvítar
skellur á hinum ágæta lands-
uppdrætti Bjarnar Gunnlaugs-
sonar. Mestan orðstir gat Þor-
valdur sér þó fyrir eldfjalla-
rannsóknir sínar. Má i þvi sam-
bandi geta þess, að fyrir hans
daga hafði alls um 30 eldstöðva
verið getið i ritum, en er rann-
sóknum Thoroddsens lauk voru
um 130 eldstöðvar kunnar hér á
landi. Hann gerði og fyrstur
manna jarðfræðiuppdrátt af
landinu, sem viðhlítandi var, og
með hæðamælingum sinum
fékk hann gert sæmilega skýra
mynd af hæðahlutföllum
landsins og sett á uppdrátt.
Hann var jafnóþreytandi að
skrifa um landið og fræða bæði
landsmenn sina og útlendinga
um það. Barst hróður hans víða,
en óþarft er hér í stuttri grein
að rekja fleira af störfum hans.
En geta má þess, að meðal vis-
indamanna var hann talinn í
fremstu röð landkönnuða og
eldfjallafræðinga samtíðar
sinnar.
Þegar nú hið ágæta Mennta-
málaráð hefir sýnt Daniel
Bruun verðskuldaðan heiður
með að kosta gerð kvikmyndar
um ferðir hans og störf, hversu
miklu fremur bæri oss þá að
sýna Þorvaldi Thoroddsen sam-
svarandi heiður, er vér litum á
störf hans og ferðir, sem
margar voru hið mesta afrek
þegar gætt er að öllum
kringumstæðum í landi voru á
þeim tíma. Því ætti að gera
kvikmynd af ferðum hans og
Ögmundar ef kleift er. Rúm
hálf öld er liðin frá andláti Þor-
valds Thoroddsens. Satt að
segja hefir mér þótt vera hljóð-
ara um minningu hans en
sæmilegt má kallast um einn
hinn mesta afreksmann þjóðar
vorrar fyrr og siðar.
Steindór Steindórsson
Frá Hlöðum
□ Tvöfalt n Þre □ falt
EINANGRUNARGLER
Við framleiðslu Ispan-einangrunarglers eru notaðar
nýjustu fáanlegar vélar og tæki og jafnan fylgzt með
nýjungum, sem fram koma erlendis viðvíkjandi
gæðum og hagræðingu við framleiðsluna.
PAIMTIÐ TÍMANLEGA
Höfum eigin bll til glerflutninga
ISPAN HF.
FRAMLEITT Á AKUREYRI
FURUVÖLLUM 5 — AKUREYRI
SÍMI (96)21332
■ EIN ANGRUN ARGLER ■