Morgunblaðið - 30.04.1977, Page 20

Morgunblaðið - 30.04.1977, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRlL 1977 20 Mývetningar æðrulausir en uggandi um framtíðina „Kippirnir voru eins og högg” segir Egill Steingrímsson starfsmaður Kísilið junnar „ÉG KOM á vakt hér í Kísil- iðjunni um klukkan hálf- átta á miðvikudagskvöld, og þá var buið að slökkva á öllum tækjum, nema hvað eldur var hafður á brennar- anum," sagði Egill Stein- grfmsson i viðtali við Mbl. Sagði Egill, að mjög snarp- ir kippir hefðu komið af og til og þess á milli hefði verið stanzlaus titringur." „Kippirn- ir voru ems og högg, og eitt sinn er ég stóð við rafmagns- töfluna í verksmiðjuhúsinu, sló hún mig svo, að ég hent- ist frá henni." Egill sagði, að þeir, sem hefðu verið á vaktinni, hefðu beðið aðgerðarlausir, þar til þeim var sagt að yfirgefa verksmiðjuna og þá hefði hann drepið á brennaranum. Síðan var vaktin kölluð út aftur, en fram til þessa hefur lítið verið hægt að gera sök- um vatnsskorts. Hann kvaðst sem minnst vilja tala um frekari náttúru- hamfarir." ,,Það er ef til vill beygur í einhverjum, en við verðum að vona það bezta. Það virtist enginn vera hræddur á meðan lætin voru sem verst, nema hvað ein- staka barn var svolítið ótta- slegið," sagði Egill að lokum. Frá gosstöðvunum norðan Leirhnúks, en umbrot þar hættu snemma f gærmorgun. Ljósm. Mbl. Friðþjófur. „Hugsum ekki um framtíðina, því þá þýddi ekki að vera hér lengur” segir Href na Jónsdóttir, símstödvarst jóri Egill Steingrlmsson, starfsmaður KlsiliSjunnar „Alltaf verið hrædd- ari við mikla jarð- skjálfta en eldgos” MÖRGUM Mývetningum, sérstaklega þeim, sem búa i ReykjahlitSarhverfi, hrýs ef- laust hugur við, er þeir hugsa til þess, að náttúru- hamfarir svipaðar þeim, sem nú eiga sér stað, geti komið aftur eftir nokkra mánuði. Það fólk, sem Mbl. ræddi við í gær, sagði yfir- leitt, að ekkert þýddi að hugsa um, hvað gæti gerzt, því þá þýddi ekkert að hugsa um frekari búsetu á þessum slóðum i bili. ,,Ég get ekki sagt að mér hafi liðið illa á meðan á mestu látunum stóð, enda gerðist ekki annað en það sem ég átti von á," sagði Snæbjörn Pétursson í Reyni- hlíð, er Mbl. ræddi við hann. „Ég hef alltaf verið hræddari við mikla jarðskjálfta en eld- gos, en það þýðir ekkert að óttast. Það verður að taka því sem að höndum ber." Snæbjörn sagðist hafa leg- ið á bekk á meðan mesta skjálftahrinan gekk yfir síðari hluta miðvikudagsins, svona til að finna, hvernig skjálft- arnir komu fram. „Þetta voru frekar snöggir kippir, sem gáfu högg, en oft koma jarð- skjálftakippir eins og alda." ÞEGAR hamagangurinn var sem mestur á miðvikudag hvíldi mikið starf á herðum Hrefnu Jónsdóttur sfm- stöðvarstjóra. Þegar Mbl. ræddi við Hrefnu í gær var hún búin að hvíla sig lítil- lega — „mér leið bara nokkuð vel á meðan mestu ólætin voru, enda var alltof mikið að gera til að vera þreyttur. Þá er maður orð- inn hertur i þessu starfi nú að undanförnu," sagði Hrefna. „Það er nokkuð einkenni- legt," segir Hrefna, „að ég hef alltaf verið á símavakt, þegar eitthvað hefur gerzt hér. Ég var nýflutt hingað og tekin við starfi simstjóra, þegar gaus í Leirhnúk, en hingað kom ég frá Húsavik um mánaðamótin nóvember — desember 1975. Var ég þvi búin að vera hér í einn mánuð þegar gosið kom." Hrefna sagði, að á sím- stöðinm hefði verið gífurlegt álag allan miðvikudaginn og þar til í gær. Stundum hefði álagið verið svo mikið, að ekkert hefði náðst út frá stöð- Hrefna JAnsdóttir, slmstöSvar- stjóri inni. Það hefði því verið þrautalendingin, eins og oft áður, að skora á fólk um útvarpið að nota símann sem minnst og hefði það borið árangur. „Að mínu áliti hefur fólk hér verið mjög rólegt og maður gat ekki merkt hræðslu á neinum manni. Sjálf neita ég því ekki, að það kom óhugur í mig, þegar ég gaf mér tima til að skreppa aðeins upp að Bjarnaflagi í fyrrakvöld og skoða ummerkin þar. Hins vegar hugsa ég ekkert út í hvað framtíðin ber í skauti, því ef ég gerði það, þýddi ekki að vera lengur á þessum stað." Þ.O. Lízt bölvaii- lega á blikuna” r segir Agúst Hilmarsson „ÞETTA var allt ósköp svipað því. sem gerzt hefur í fyrri landsigum. nema að nú er þetta nær okkur," sagði Ágúst Hilmarsson, viðgerð- Rætt vid Snæb jörn Pétursson í Reynihlíd Þá sagðist hann hafa verið staddur af tilviljun í Hvera- gerði 1 948, þegar stóri kipp- urinn kom þar, og enginn kippanna i Reykjahlíðarhverfi hefði komizt neitt í samlík- ingu við þann kipp. „Hér voru allir mjög róleg- ir. Héðan fór enginn, nema ein kona, sem átti heima annars staðar í sveitinni. Ég tel, að því meiri sem umbrot- in verði núna, þeim mun meiri líkur séu á að rólegra verði í næstu umbrotum. En það er ekki ótrúlegt, að eitt- hvað gerist," sagði Snæbjörn að lokum. armaður hjá Klsiliðjunni. „Hins vegar verð ég að játa, að mér lízt bölvanlega á blikuna. ef næstu umbrot verða nær en þessi" . í samtalinu víð Mbl sagði Ágúst, að hann hefði haldið heim tíl sín strax og mönnum var sagt að hætta að vinna á miðvikudaginn Kona hans og börn voru heima og hefði ekki verið hræðslu á þeim að sjá. Sagði hann, að þau væru að byggja einbýlishús í íbúðahverfinu og von- uðust þau til að flytja inn I húsið I haust Hann sagðist hafa búið i þrjú ár I Mývatnssveit og kynni prýðisvel við sig. en áður hefði hann búið I Siglufirði Snæbjörn Pétursson F Reynihllð Reykjahlíðar- hverfi — ekki Reykjahverfi í frásögnum Mbl. af atburðunum I Mývatnssveit var I gær stöðugt talað um Reykjahverfi. þegar átt var við Reykjahlið Meðal annars var sagt i fyrirsögn, að fimm manns hefðu yfirgefið Reykjahverfi, en þar átti auðvitað sem annars staðar að standa Reykjahlíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.