Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Þyrluslysið
Leitarmenn þyrlunnar TF-AGN komnir á slysstaðinn á vélsleðum f
gær.
\
Mælaborð þyrlunnar
var heilt
Fyrirlestur
um þróun
bandarískra
utanríkismála
BANDARlSKI prófessorin n
Robin W.E. Winks mun á mánu-
dag flytja fyrirlestur sem nefnist
Þróun bandarfskra utanríkismála
í boði félagsvísindadeildar
Ifáskóla íslands. Verður fyrir-
lesturinn í stofu 201 í Lögbergi og
hefst kl. 18.00. Er hann öllum
opinn.
Dr. Robin W.E. Winks er
prófessor vió Yale háskólann í
Bandaríkjunum og viökunnur
fræðimaður á sviði stjórnmála og
sögu. Meðal ritverka hans eru
bækurnar Canada and the
US.Civil War Years, Marshall
Plan and American Economy,
British Imperialism, History of
Malaysia, The American
Experience, Myth of American
Frontier og Slavery. Prófessor
Winks hefur auk þess skrifað
fjölda greina í fræðitímarit og
verið ritstjóri Journal of Modern
Hislory.
8 ára dreng-
ur tapaði
launaumslagi
ÁTTA ára drengur var svo
ólánsamur í gær að týna launa-
umslagi með 23 þúsund krónum,
en hann hafði verið sendur eftir
vikuiaunum f fiskiðjuverið að
Kirkjusandi. Þetta gerðist um kl.
11.30 í gærdag og hefur hann tap-
að umslaginu einhvers staðar á
leiðinni frá Kirkjusandi að Berg-
þórugötu 41. Finnandi umslags-
ins er vinsamlega beðinn um að
koma því til skila á lögreglu-
stöðina og er fundarlaunum heit-
ið. _ _____
Dönsk-norsk
dagskrá í Nor-
rænahúsinu
ÞRIÐJUDAGINN 3. maf kl. 20:30
flytur danski leikarinn Jesper
Langberg dansk-norska dagskrá f
samkomusal Norræna hússins.
Jesper Langberg, sem er
þekktur fyrir leik sinn í kvik-
myndum og á leiksviði, les upp úr
verkum eftir Norðmanninn Peter
Dass og eftir Danina Henrik
Hertz, H.C. Andersen, Nis
Petersen og Tove Ditlevsen.
Ennfremur mun hann flytja ljóð
og aríur úr „soargarleiknum"
fræga: „Kærlig hed uden
Strömper" (1772) eftir
Norðmanninn Johan Henrik
Welle. Þorkell Sigurbjörnsson,
tónskáld, leikur undir í aríunum.
Aðgangur að þessari dagskrá er
ókeypis og öllum heimill.
— Gliðnun
íveggjum...
Framhald af bls. 2.
en menn hefðu upphaflega reikn-
að með. Hins vegar væri hér um
annað svæði að ræða, og enginn
gæti búrzt við að umbrotin væru
með sama hætti á mismunandi
svæðum. Þá sagði hann, að miklar
breytingar hefðu orðið á sprungu-
svæðinu frá Námafjalli suður fyr-
ir Hverfjall. Sprunga lægi gegn-
um fjallið og upp á þvi væru um
það bil 40 sm. misgengi. Þá væru
smásprungur i austurhlíðum
fjallsins.
Sigurður var spurður um hver-
ina, sem munduðust beggja vegna
þjóðvegarins, og sagði að á morg-
un kæmi i ljós, hvort þeir yrðu
varanlegir eða ekki, en yfirleitt
væri það svo, að hverir af þessu
tagi hyrfu þegar svæðið jafnaði
sig á ný.
— Suðurveggur
styrktur...
Framhald af bls. 2.
efninu úr Mývatni, í þrær verk-
smiðjunnar. Þaðan dælir prammi
þvi svo inn i verksmiðjuna, þar
sem kisilgúrinn er þurrkaður og
aukaefni brennd burtu. Ársfram-
leiðslan er um 24 þúsund tonn af
kísilgúr, og er langmestur hluti
framleiðslunnar seldur úr landi.
Kísilgúr er notaur i alls kyns síur
í matvæla- og lyfjaiðnaði.
Kísiliðjan hefur verið rekin
með hagnaði síðustu árin, og sagði
Þorsteinn að hagnaður siðasta árs
hefði numið um 25 milljónum
króna, þegar afskriftir höfðu far-
ið fram upp á 90 milljónir króna.
Eins og Mbl. hefur skýrt frá hefur
verið ákveðið að stjórn Kísiliðj-
unnar komi saman til sérstaks
skyndifundar til að ræða framtið
fyrirtækisins, og sagði Þorsteinn
að sá fundur yrði haldinn fljót-
lega upp úr helgina.
— Lífeyrismálin
Framhald af bls. 44
verður hafður þar á. í kröfum
ASÍ er gert ráð fyrir mælingu
vísitöl,uanar frá 1. nóvember
síðastliðnum og er því krafan um
100 þúsund króna laun því nú
tæplega 111 þúsund krónur.
Þau vandamál, hvenær visi-
talan fer í gang, eru þess eðlis að
allt bendir til þess að þau verði
leyst á síðari stigum samningaum-
leitanna eða þegar farið verður að
ræða kauplið samninganna. Þá er
einnig eftir að ákveða, hvort um
prósentuhækkun verður að ræða
upp launakerfið, þegar rætt er
um verðbót á laun. Eins og fram
hefur komið vill ASÍ hafa
ákveðna krónutölu á laun, sem
hærri eru en láglaun. Vinnuveit-
endur hafa enn ekkert látið upp
um skoðanir sínar á þessu atriði,
en benda má á að þeir voru þessu
mótfallnir í siðustu kjara-
samningum, þar sem þeir telja að
semja eigi um ákveðin launabil,
en ekki eigi að láta óviðráðanlega
verðbólgu eða því sem næst ráða
launamismun í þjóðfélaginu.
Einn vinnuveitenda orðaði það
svo í samtali við Morgunblaðið, að
þeir gerðu sér ljóst að slíkt mundi
einungis hafa í för með sér launa-
skrið þar sem launamarkaðurinn
tæki mjög takmarkað við slíkri
reglu um ákveðna krónutölu.
Mundi slík regla því aðeins skapa
þenslu á launamarkaðinum^ yfir-
borganir og launaskrið.
Niðurstöður fundanna í gær
virðast því vera þær, að lifeyris-
máiin eru frágengin að mestu
leyti. Að vísu hafa samninga-
nefndirnar ekki tekið afstöðu til
þeirra, en á mönnum mátti heyra
í gær, að aðeins væru eftir
afgreiðsluatriði. Um er að ræða
aukin útgjöld ríkissjóðs og líf-
eyrissjóðanna, sem ríkisvaldið
hefur enn ekki samþykkt, en
búast má við að það geri það,
þegar hilla fer undir lausn
deilunnar í heild.
— Svíþjóð
Framhald af bls. 1
sjónvarps verði fjölgað úr 80 i
100 á viku, meðal annars með
endurtekningu sjónvarpsefnis
um miðjan dag, svo að fólk,
sem vinnur vaktavinnu, hafi
sama gagn af sjónvarpi og aðr-
ir.
Þá er lagt til að útendingar-
stundum útvarpsins verði
fjölgaó úr 360 í 400 á viku og
dagskrám verði fjölgað úr
þremur í fjórar.
Nefndin gerið það að tillögu
sinni, að lögum um einkarétt á
útvarpi verði breytt þannig, að
sjálfstæóar útvarpsstöðvar,
sem ekki eru reknar með hagn-
aðarsjónarmiði, geti með leyfi
þingsins stundað útvarps og
sjónvarpssendingar. Nefndin
mælti hins vegar ekki með
auglýsingaútvarpi eða sjón-
varpi.
— Myndlist...
Framhald af bls. 10
þó hæglega flokkast undir
teikningar.
Ég hafði skemmtun af að sjá
þessi verk eftir Gunnar Örn.
Það er í þeim viss spenna, sem
gefur ágæta hugmynd um þau
átök, er eiga sér stað með þess-
um unga listamanni. Hann er
að vísu nokkuð misjafn í
sumum þessara verka, en
hvergi svo, að skyggi verulega á
þá hæfileika, er bestu verk á
þessari sýningu gefa til kynna.
Það er enginn ný viska, að
Gunnar Örn Gunnar hafi
óvenjulega hæfileika á sviði
myndlistar, enda eru miklar
vonir við hann bundnar, og ég
held, að ekki þurfi að minna
hann á, að list er vinna og aftur
vinna, axarsköft á axarsköft
ofan, og þá verður árangur.
Hann er vel aó þessari sýningu
kominn og ég óska honum til
hamingju með slíkan áfanga.
Það erkkemmtilegt að líta inn á
Loftið um þessar mundir. Þar
eru átök, og þar getur að líta
hluti, sem ég er ekki í neinum
vafa um, að margir hafi
skemmtun af að sjá.
Valtýr Pétursson.
— Þrær Kísil-
iðjunnar...
Framhald af bls. 44
þó sjálf tjón að 120 millj. kr. í
hverju tilviki.
Þrær Kisiliðjunnar falla því
ekki undir lög um viðlagatrygg-
ingu íslands, en unnt er að kaupa
sérstakar tryggingar gegn nátt-
úruhamförum. Er þá hvert dæmi
metið út af fyrir sig og iðgjöld í
hverju tilviki, en þess má geta, að
áður en Viðlagatrygging íslands
kom til voru iðgjöld af almennum
jarðskjálftatryggingum á bilinu
1—2 prómill af tryggingarupp-
hæðinni. Slíkar sérstakar trygg-
ingar hefur Kisiliðjan ekki tekið
vegna þrónna.
Þorsteinn kvaðst ekki geta sagt
til um verðmæti þrónna, en
kvaðst þó telja, að það kostaði
60—80 milljónir að búa tii eina
slíka.
— Umhorf
Framhald af bls. 28
málin, menntamálin og húsnæðis-
málin.
Nýir tímar —
ný vinnubrögð
Ég minntist áðan á það form,
sem stjórnmálaflokkarnir hafa fyrir
starfsemi sína
í breyttu þjóðfélagi verður að
aðlagast breyttum aðstæðum og
gildir það jafnt um starfsemi stjórn-
málaflokka sem annað Stjórnmála-
flokkarnir hafa ekki fylgzt með
þróuninni sem skyldi og bjóða oft
og tíðum einungis upp á hálfdautt
fundarform Það hlýtur þvi að verða
stórt verkefni á næstu tímum fyrir
stjórn SUS að leita nýrra leiða til að
finna málefnum sínum farveg.
Nú fjallar lokaritgerð þfn í námi
um „íslenzkan skipasmíðaiðn
að". Hvað olli þvf að þú valdir
það verkefni?
í litlu bæjarfélagi eins og hér á
Akranesi alast börn upp almennt
meira í tengslum við atvinnulifið en
í fjölmennari bæjum. í gegnum
atvinnu föður míns, sjómennskuna,
fór ég mjög snemma að fylgjast
með þvi sem að sjávarútvegi laut
og áhuginn vaknaði. Með náminu
vann ég é sumrin hjá skipasmiða-
stöðinni og fór að gera mér grein
fyrir mikilvægi þessarrar greinar í
atvinnulífinu og stórkostlegum
möguleikum hennar í framtíðarupp-
byggingu atvinnuvegana. Það lá
því beinast við að taka þetta efni
fyrir i lokaritgerð og fjalla ég um
það á þann hátt að gera grein fyrir
möguleikum þriggja stærstu skipa-
smíðafyrirtækjanna til eigin stefnu-
mótunar.
Hverng er búið að fslenzkum
skipasmfðaiðnaði f dag?
Svo virðist sem fslenzk stjórnvöld
geri sér litla grein fyrir mikilvægi
þessarar ’atvinnugreinar Má t d
nefna. að stór hluti viðgerða flotans
fer fram erlendis, en islenzkar
skipasmíðastöðvar gætu tekið við
því verkefni að miklu leyti, ef þær
fengju sömu fjármálafyrirgreiðslu.
Það á að vera stefna stjórnvalda
að samkeppnisaðstaða íslenzkra
fyrirtækja sé ekki lakari en hinna
erlendu. Með því að efla þessa
atvinnugrein getum við fært verk-
efni frá erlendum aðilum til ís-
lenzkra og þar með sparað gjaldeyri
og skapað um leið enn fleiri at-
vinnutækifæri fyrir íslendinga.
Að lokum, — hvað er á döfinni
f bæjarmálum Akraneskaup-
staðar?
Nú i vetur varð sú breyting á
bæjarstjórninni. að meirihlutinn,
sem fyrir var, splundraðist og sjálf-
stæðismenn gengu til samstarfs
með Alþýðuflokknum og Alþýðu-
bándalaginu
Eitt það höfuðverkefni, sem fram-
undan er hjá bæjarfélaginu. er
lagning hitaveitu til bæjarins, og er
undirbúningur framkvæmda að
hefjast. Þetta er brýnasta hags-
munamál bæjarins nú, þar sem
langflestir þurfa að hita hús sln
með olíu.
Annað stórt verkefni eru hafnar-
framkvæmdir, en nú er unnið að
gerð stórs varnargarðs til að skapa
meira öryggi i höfninni.
Gatnagerð hefur verið hálfgert
hliðarverkefni um margra ára skeið,
en nú er verið að undirbúa stórátak
i þeim málum.
Að undanförnu hefur verið unnið
að aðalskipulagi bæjarins.
Að lokum vil ég geta þess, að
fyrir dyrum stendur endurskoðun
bæjarmálefnasamþykktar Akraness-
kaupstaðar og verður aðaláherzlan
lögð á nýskipan félagsmála
— Zaire
Framhald af bls. 1
Tilgangurinn var einnig að verja
brýrnar milli landamæra Angóla
og þeirra svæða, sem stjórnarher-
inn ræður yfir. Fallhlifarher-
mennirnir hafa tekið niu fanga og
að sögn Zairemanna hafa upplýs-
ingar þeirra auðveldað sóknina.
Mobuto, forseti Zaire, sagði í
viðtali í dag, að hann hefði marg-
sinnis boðið uppreisnarmönnum,
sem eru hermenn úr Katanga eins
Shaba hét áður, að setjast að í
Zaire. „Nú hafa þeir svikið land
sitt með hjálp annara þjóða, og
við höfum því ekki um annað að
velja en að taka þá til fanga“,
sagði hann.
Fréttastofan í Angóla, Angop,
sagði i dag, að 20 trúboðar hefðu
komið yfir landaærin frá Zaire til
Angóla. Að sögn Angop sögðu trú-
boðarnir, að íbúár Shabahéraðs
hefðu gengið í lið með uppreisn-
armönnum.
— Callaghan
Framhald af bls. 1
teljandi kosningabaráttu enda
tapaði hann þingsæti sínu þar, sem
hann hefur haldið 60 ár, i hendur
íhaldsmanna.
í Grimsby var hins vegar búizt
við því að íhaldsmenn mundu
vinna, ekki sízt vegna fiskveiði-
samninga ríkisstjórnarinnar við
íslendinga, sem sjávarútvegurihn
taldi mjög óhagstæða. Verka-
mannaflokknum tókst þó með að-
eins 520 atkvæða meirihluta aó
halda þingsæti sinu þar.
Verkamannaflokkurinn og
Frjálslyndi fiokkurinn ráða nú yf-
ir 327 þingsætum í neðri deild og
þar af eru 13 frjálslyndir og þar á
meðal eru sæti fjögurra óháðra,
sem venjulega greiða atkvæði með
rikisstjórninni. Sameinuð hefur
stjórnarandstaðan hins vegar 303
af 635 sætum deildarinnar. Þá er
eitt sæti laust, og sæti þingforseta,
sem ekki greiða atkvæði, eru fjög-
ur, enn.
Helztu ástæður, em taldar eru
vera fyrir fylgistapi Verkamanna-
flokksins, eru verðhækkanir,
hækkaðir skattar og andstaða gegn
Efnahagsbandalaginu. Þá er talið
að launamálastefna stjórnarinnar
hafi haft mikil áhrif á úrslitin i
Ashfield.
Kjörsókn var aðeins um 60% I
þessum kosningum en um 75%
fyrir þremur árum.