Morgunblaðið - 30.04.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
31
er rúmlega 50% aukning
frá árinu á undan. 1969
nam útflutningsverðmæti
Álafoss 21% af veltunni en
hefur verið 58 til 64%
1973—76.
Fyrirtækið fjárfesti fyrir um
200 milljónir króna á síðasta ári
bæði í byggingum og vélum auk n
ýrrar verzlunar í Aðalstræti.
Áform eru um að fjárfesta fyrir
um 230 milljónir króna á þessu
ári, að sögn Péturs, en áætlað er
að veltuaukning á þessu ári verði
um 85% og að heildarveltan 1977
verði 2.400 milljónir. Áríðandi er
orðið fyrir fyrirtækið að endur-
nýja húsa- og vélaköst og koma
spunaverksmiðjunni saman i eina
heild. Þá er aðkallandi að byggja
nýtt lagerhúsnæði, en lagerinn er
nú dreifður á marga staði, sem
veldur fyrirtækinu óþarfa kostn-
aði.
Mikill hluti af þeim fatnaði,
sem ber vörumerki Álafoss, er
framleiddur úr Álafoss-hráefni á
prjóna- og saumastofum víða um
land. Nú eru það 16 prjónastofur,
sem framleiða fyrir Álafoss, auk
þriggja, sem kaupa hráefni frá
Álafossi.
Pétur sagði, að meðal helztu
vandamála fyrirtækis eins og Ála-
foss væri það að efnahagsstjórn
landsins væri fyrst og fremst
miðuð við sjávarútveg og gengis-
skraning væri því oft óhagstæð
iðnaðinum. Annað vandamál
sagði hann vera skort á menntuðu
fólki. Það hefði verið vandamál
að fá verksmiðjulært iðnfólk og
tæknimenn, t.d. vantaði algerlega
litunarsérfræðinga. Hefði fyrir-
tækið stundum gripið til þess að
senda menn utan til náms. Þessi
menntunarskortur hefði leitt til
þess að þegar fyrirtækið hefur
ætlað að taka upp nýjungar hefur
verið um eilífa tilraunastarfsemi
að ræða.
Manufactures Hanover Trust:
Sér möguleika á auknum
viðskiptum við Islendinga
PT
Umsjón:
Pétur J. Eiríksson
í VIKUNNI voru hér á ferð menn
frá bandarfska stórbankanum
Manufacturers Hanover Trust til
viðræðna við nokkra viðskipta-
vini sfna hér á íslandi. en
bankinn rekur hér veruleg við-
skipti. William G. Blake, vara-
forseti alþjóðadeildar Mantrust,
eins og bankinn er f daglegu tali
nefndur, og Sig S. Binder,
aðstoðarvaraforseti, sögðu í sam-
tali við Morgunblaðið að bankinn
hefði átt viðskipti við fslenzka
aðila f heilan mannsaldur.
„Mantrust hefur lagt rika
áherzlu á Norðurlöndin þar á
meðal Island í starfsemi sinni í
Vestur-Evrópu. Það stafar bæði
af viðskiptasjónarmiðum bankans
og eins af því, að margir af yfir-
mönnum hans eru af norrænum
ættum, þar á meðal Gabriel
Hauge, forseti bankastjórnar, og
John Waage, varaforseti banka-
stjórnar. Þess vegna höfum við
átt mikil viðskipti við Norður-
löndin og þá sérstaklega Island,"
sagði Blake.
Binder, sem hefur umsjón með
viðskiptum bankans á Norður-
löndum, sagði að starfsmenn
Mantrust kæmu til Islands alltaf
með nokkurra mánaða millibili til
að fylgjast með framvindu efna-
hagsmála og til viðræðna við við-
skiptavini sfna.
„Við eigum hér nokkra stóra
viðskiptavini svo sem Seðla-
bankann, Landsbankann, Lands-
virkjun, Loftleiðir og ísal auk
annarra smærri. Við erum við-
skiptabanki Loftleiða í Banda-
rikjunum og aðstoðuðum þá í
samvinnu við Eximbank við
kaupin á tveimur DC-8 þotum.
Viðskiptin við Loftleiðir hafa
verið mjög ánægjuleg. Við erum
mjög hrifnir af því hvernig þeim
hefur tekist að ná góðri nýtingu
út úr flugvélum sínum, enda er
þetta eitt af fáum flugfélögum i
heiminum, sem stendur fjárhags-
lega undir sér. Okkur væri þess
vegna ánægja að auka viðskipti
okkar við Loftleiðir. Bið önnumst
einnig bankaviðskipti fyrir ísal,
sem stafar aðallega af þvi að við
WHliam G. Blake, varaforseti Mantrust, Sig. S. Binder, aðstoðarvaraforseti, og aðstoðarmaður þeirra,
Lazlo Adams. ijósm. Mbl. Fri«þj«rur
erum helzti viðskiptabanki
móðurfyrirtækis þess, Alusuisse,
í Bandaríkjunum.“.
„Þá höfum við átt viðræður við
litlu viðskiptabankana hér og
reynt að komast í samband við þá.
Þessir bankar verzla ekki með
erlendan gjaldeyri nú, en ef að
því kemur þá þurfa þeir á alþjóð-
legum samböndum að halda og
gætu haft gagn af okkur.“
Blake sagði að Mantrust hefði
ekki lánað jafn mikið fjármagn til
neinnar þjóðar eins og íslend-
inga, ef miðað væri við höfðatölu.
Sagði hann að islendingar hefðu
reynst bankanum áreiðanlegir og
öruggir viðskiptavinir þannig að
þeir nytu fyllsta lánstrausts og
stæðu frekari lán til boða. Hins
vegar væri það annað mál hvað
íslendingar teldu skynsamlegast
um frekari erlendar lántökur og
kvaðst hann í því sambandi vlsa
til ræðu Jóhannesar Nordal á árs-
fundi Seðlabankans.
Mantrust sækir nú allan sinn
vöxt í alþjóðabankastarfsemi, að
sögn Blakes, en litlir vaxtarmögu-
leikar eru nú innan Banda-
ríkjanna. Hefur fyrirtækið meir
Flugfélagid og Loftleiðir
sjóða sólina niður í
Flugfélag íslands og
Loftleiðir hafa tekið upp
all nýstárlega aðferð við að
auglýsa sólarlandaferðir
sínar, sem er þannig að
auglýsingin getur vart far-
ið framhjá þeim sem hún á
að ná til: Félögin ,,sjóða“
sólina niður í dós, þó ekki í
bókastaflegri merkingu, og
senda dósina í pósti til
hugsanlegra viðskiptavina.
Sólídós nefnist auglýsingin,
sem gerð er úr myndskreyttri
niðursuðudós, sem í er lítill kynn-
ingarbæklingur um fjóra sól-
skinsstaði, sem Flugleiðir bjóða
ferðir til.
Það er auglýsingastofan Grafik
og hönnun, sem hefur gert þessa
auglýsingu. Ernst Bachmann,
auglýsingateiknari hjá Grafík og
hönnun, sá um að teikna hana og
útfæra.
Sólídós var send ásamt dósa-
lykli, seinni hluta vetrar i pósti til
3.000 aðila samkvæmt úrtaki, og
þarf vart að gera því skóna að
auglýsingin hafi farið framhjá
nokkrum þeirra.
Sólin f niður-
suðudós. Flug-
félagið og
Loftleiðir
ásamt Grafik
og hönnun
fara ótroðnar
slóðir við
markaðsöflun.
Ljósm. Mbl.
Ól.K.M.
en helming tekna sinna af
erlendum viðskiptum.
Blake sagði að eitt helzta vanda-
málið I alþjóða bankastarfsemi
væri það mikla fjármagn, sem
þróunarlöndin hefðu fengið til að
fjármagna viðskiptahallann eftir
olíuhækkanir. Mörg þessara ríkja
hefðu tekið hundruð milljóna eða
milljarða dollara lán og margir
óttuðust að þau gætu ekki staðið
við skuldbindingar sinar. Bank-
arnir þyrftu að gefa hugsanlegu
gjaldþroti þessara ríkja veruleg-
an gaum. Þvi færi Mantrust var-
lega I að lána löndum, sem svo
stæði á fyrir, neitaði þeim ekki
um lán en veitti þeim aðeins lágar
upphæðir. Sagði hann að þetta
ætti fyrst og fremst við um lönd
eins og Bangladesh, Sri Lanka og
mörg Afríkuriki, en hins vegar
væru önnur þróunarriki, sérstak-
lega þau sem væru lengra á veg
komin, eins og Mexikó, Venezuela
og Brasilia, sem ættú góðan kost á
lánveitinum.
„Viðskiptabankarnir telja það
tímabært að alþjóðlegar stofnanir
eins og Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn og Opec taki meiri þáttT fjár-
mögnun viðskiptahalla þróunar-
rikjanna. Við teljum það enga frá-
gangssök, þó að Opec-rikin noti
uppsafnaðan oliuhagnað sinn
meira til lánveitinga og aðstoðar
við þróunarríkín. Þá teljum við að
þessi riki ættu að snúa sér i rikara
mæli til alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, og vinna með honum að áætl-
un um lausn efnahagsvandamála
sinna áður en þau koma til al-
þjóða viðskiptabanka."
„Annað vandamál i alþjóðleg-
um bankaviðskiptum“, sagði
Blake, „er skortur á upplýsingum
frá mörgum hlutum heimsins,
sem bönkum eru nauðsynlegar
áður en þeir ákveða lánveitingar.
Burns, fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, hefur lagt til að komið
verði á fót stofnun, sem safnaði
upplýsingum, sem gætu legið til
grundvallar mati um lánshæfni
einstakra landa. Slík stofnun gæti
komið okkur að góðum notum,"
sagði hann.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS:
1966 2. flokkur Kaupgengi pr. kr. 100.- 1651.90
1967 -1. flokkur 1552.96
1967 2. flokkur 1542.92
1968 1. flokkur 1348.79
1968 2. flokkur 1268 77
1969 1. flokkur 947.97
1970 1. flokkur 872.36
1970 2. flokkur 641.73
1971 1. flokkur 607.23
1972 1. flokkur 529 28
1972 2. flokkur 456.79
1973 1. flokkur A 354.97
1973 2. flokkur 328.12
1974 1. flokkur 227 89
1975 1. flokkur 186 31
1975 2. flokkur 142.18
1976 1. flokkur 135.32
1976 2. flokkur 109.89
HLUTABREF:
Flugleiðir HF Sölutilboð óskast
Hvalur HF Sölutilboð óskast
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJ0ÐS:
Sölugengi pr. kr. 100.-
254.00 (10% afföll)
1974 D
VEÐSKULDABRÉF:
2ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxt-um (30% afföll)
3ja ára fasteignatryggð verðskuldabréf með hæstu vöxtum (36% afföll)
5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (45% afföll)
HLUTABRÉF:
Árvakur HF
Kauptilboð óskast.
PIÁRPEfTlflCARPCtAC íflflflDf Hft
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 - R (Iðnaðarbankahúsiriu)
Simi20580.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
naissTl