Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Hjónin áBarkar-
stöðum - Minning
Marfa Sigurðardóttir.
Fædd 20.9 1909
Dáin 20.4. 1977.
Sigurður Tótnasson.
Fæddur 19.12 1897.
Dáinn 20.4 1977.
Hjónin á Barkarstöðum, María
Sigurðardóttir og Sigurður
Tómasson, sem létust af slysför-
um að kvöldi dags hinn 20. apríl,
verða í dag kvödd hinstu kveðju
frá kirkju sinni á Hlíðarenda í
Fljótshlíð. Þessi mætu hjón hafa
um svo langan aldur gert garðinn
frægan og veið svo snar þáttur í
samfélagi sínu, að við, sem eftir
stöndum hérna megin móðunnar
miklu, eigum erfitt með að sætta
okkur við að þau séu ekki lengur
á meðal okkar. En við stóran er að
deila og þvl drúpum við höfði á
kveðjustund í auðmýkt, virðingu
og þökk.
Þau María og Sigurður voru
ættuð sitt úr hvorum landsfjórð-
ungi en þau áttu það sameiginlegt
að bæði voru þau fædd og upp
alin í einhverjum fegurstu byggð-
um lands okkar. Hún í Helgafells-
sveit, þar sem sólin stafar geislum
á eyjar og fjöll við bláan Breiða-
fjörð, en hann i Fljótshlíð, þar
sem sagan frá gullöld ómar í eyr-
um og silfurblár Eyjafjallatindur
er það fyrsta, sem augað nemur.
Þau komu sitt úr hvorri áttinni,
en mættust á fögrum degi og urðu
samferða upp frá því í ást og
tryggð og gagnkvæmri virðingu.
Samfylgd þeirra varð bæði löng
og gæfurík. Vitaskuld eru ekki
allir dagar jafnbjartir í erfiði og
erli líðandi stundar. Vera má að
stundum hafi syrt að með éljum á
lífsleið þessara hjóna. En sól-
skinsdagarnir á ferð þeirra urðu
svo óendanlega miklu fleiri en
hínir, að fyrir okkur, sem áttum
því láni að fagna að vera á leið
ekki langt undan, virtist lífsganga
þeirra líkust löngum, björtum og
heiðríkum morgni.
María Sigurðardóttir fæddist
20. sept. 1909 á Kársstöðum 1
Helgafellssveit á Snæfellsnesi,
dóttir hjónanna Ingibjargar
Daðadóttur og Sigurðar Magnús-
sonar, fyrrverandi hreppstjóra i
Stykkishólmi.
Sigurður Tómasson fæddist 19.
des. 1897 á Barkarstöðum í Fljóts-
hlíð í Rangárþingi, sonur hjón-
anna Margrétar Árnadóttur frá
Reynifelli og Tómasar Sigurðs-
sonar, hreppstjóra, á Barkarstöð-
um. Bæði hjónin ólust upp í
föðurhúsum á annáluðum mynd-
ar- og menningarheimilum, vönd-
ust snemma öllum algengum
störfum og fóru i skóla, hún í
kvennaskóla og hann í búnaðar-
skóla. Þau gengu I hjónaband 1.
des. 1935 og tóku frá sama degi
við jörð og búi á Barkarstöðum,
þar sem þau siðan bjuggu með
rausn og sóma upp frá því. Þeim
Mariu og Sigurði varð sjö barna
auðið. Tvær dætur þeirra önduð-
ust í frumbernsku, en þau sem
lifðu og eru nú öll fulltíða og
mesta manndómsfólk, eru: Tómas
Börkur, vegatæknifræðingur,
kvæntur Eddu Emilsdóttur og
eiga þau þrjú börn. Þau eru
búsett í Sviþjóð. Daði, ráðsmaður
á Barkarstöðum, ókvæntur.
Margrét, skrifstofumær í Reykja-
vík, gift Einari Einarssyni, vél-
fræðingi. Inga Sigrún, starfaði
lengi sem flugfreyja, gift Jan
Sandberg oé eru þau búsett í
Svíþjóð. Þau eiga eina dóttur.
Helga, skrifstofumær á Hvols-
velli, gift Rúnari Ólafssyni og búa
þau á Torfastöðum í Fljótshlíð.
Þau María og Sigurður bjuggu
búi sínu á Barkarstöðum i nær-
fellt 42 ár. Heimilið var annálað
fyrir myndarskap og snyrti-
mennsku úti sem inni, svo að öll-
um þótti aðdáunarvert. Þar var
ekkert kynslóðabil i umhirðu og
umgengni og gamalt og nýtt flétt-
að saman i órofa listræna heild,
svo að eindstakt má teljast. Jafn-
an var Barkarstaðaheimilið stórt
og mannmargt, gestkvæmt og
glaðvært. Rikti þvilíkur andblær
gleði, góðvildar og menningar
umhverfis húsráðendur, að öllum
þótti gott til þeirra að koma og
með þeim að dveljast. María tók
mjög þátt í félagsstarfi kvenna og
var lengi formaður í kvenfélagi
Fljótshlíðar. Hún var ljúf kona,
hugkvæm og listræn með afbrigð-
um. En þótt hún starfaði nokkuð
af félagsmálum, þá vann hún þó
jafnan heimili sinu mest og þvi
helgaði hún krafta sina af ein-
stökum myndarskap og fórnfýsi í
stóru sem smáu.
Sigurður var góður og gildur
bóndi og verkmaður ágætur. Naut
hann sín jafnan vel við bústörf,
enda átti jörðin, íslensk mold,
sterk ítök i huga hans. En það fór
svo sem hann sakir hæfileika
sinna og almannatrausts var brátt
kjörinn til forystu meðal sveit-
unga sinna og sýslubúa í margvís-
legu opinberu lifi. Sigurður var
drengur góður í orðsins fyllstu
merkingu, vaskur og ódeigur
félagshyggjumaður, sem ótrauður
fylgdi hverju því máli sem hann
vissi sannast og réttast. Hann
starfaði lengi að ungmennafélags-
málum i heimabyggð sinni. 1
hreppsnefnd Fljótshlíðarhrepps
sat hann frá 1934 til 1974 eða í
samfleytt 40 ár, þar af oddviti tvo
síðari áratugina. í sýslunefnd
Rangárvallasýslu sat hann frá
1946 til æviloka og í stjórn Vatna-
félags Rangæinga var hann í ára-
tugi og formaður lengi hin siðari
ár. Gangnaforingi á Fljótshliðar-
afrétti var hann í þrjá áratugi,
enda alkunnur ferðagarpur. Þá
átti hann lengi sæti í stjórn
Sláturfélags Suðurlands, stjórn
Meitilsins h/f i Þorlákshöfn og
gegndi margvíslegum trúnaðar-
störfum i búnaðarsamtökum,
samvinnuhreyfingu og mörgum
öðrum félögum ög nefndum. Af
opinberum störfum mun honum
hafa verið hugleiknast að vinna
fyrir Vatnafélag Rangæinga, en
sá félagsskapur átti drýgstan þátt
í að bjarga byggðum Rangárþings
frá skemmdum og eyðileggingu af
völdum vatnaágangs. Þá fór það
ekki milli mála að hann naut þess
að leggja fram starfskrafta sina
fyrir málstað bindindis og reglu-
semi. Kom það glöggt fram í orð-
um hans og athöfnum á vegum
félags áfengisvarnanefnda í
Rangárvallasýslu, sem hann var
lengi formaður fyrir.
t
Alúðarþakkir færum við þeim öllum nær og fjær er auðsýndu samúð og
vináttu við andlát og jarðarför
GUÐLAUGS HALLDÓRSSONAR,
Kleppsvegi 32.
Ragnhildur Friðriksdóttir,
börn, tengdaborn,
barnaborn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
INGUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Álftamýri 14.
Ema Matthfasdóttir Matthildur Haraldsdóttir
Þórunn Matthfasdóttir GuBmundur Haraldsson
Brynhildur Matthfasdóttir
og aSrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við fráfall og útför,
HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR,
Mávahlíð 14.
Ingvar Magnússon Haraldur I. Ingvarsson
Þórey Ingvarsdóttir Ásgeir Pétursson
og bamabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS JÓNS GUÐBJÖRNSSONAR.
Nýbýlavegi 96,
Kópavogi.
Ragna Björnsdóttir
Sæunn Ólafsdóttir Kristján Jónsson
Birna Ólafsdóttir Skúli Óskarsson
Guðbjörn Ólafsson Elisabet Kolbeinsdóttir
Þorbjörg Ólafsdóttir
og barnabörn.
Kristín Karólína Sig-
urðardóttir - Minning
Að morgni 9. april s.l. andaðist
á Landspitalanum, Kristín Karó-
lina Sigurðardóttir. Hún ar fædd
19. maí 1911 að Horni i Arnar-
firði.
Foreldrar hennar voru sæmdar-
hjónin Sigurður, bóndi á ýmsum
stöðum í Arnarfirði, síðast í
Innstu-Tungu í Tálknafirði, Jóns-
son bónda að Dynjanda i Arnar-
firði, Bjarnasonar. Sigurður f. 29.
ágúst 1878, d. 15. október 1966 á
Hrafnistu í Reykjavik, og kona
hans Sigríður f. 22. ágúst 1878, d.
14. júlí 1968 á Patreksfirði,
Guðmundsdóttir frá Horni í Mos-
dal i Arnarfirði, Gíslasonar.
Kristín Karólína ólst upp í for-
eldrahúsum meðal systkina sinna
sem voru Þorbjörg, húsfrú hér í
Reykjavík, gift Andrési
Finnbogasyni, skipstjóra, Guð-
mundur f. 22. nóvember 1913, er
lést 2. maí 1928, við mikinn
söknuð foreldra sinna, er tóku sér
fósturson í hans stað, Guðmund
Sigurð Guðmundsson búsettan í
Tálknafirði.
13 ára gömui fór hún til Ágústs
Sigurðssonar og konu hans
Jakobínu Pálsdóttur í Valhöll á
Bíldudal, en þau hjón fórust með
vélskipinu Þormóði frá Bíldudal,
nóttina milli 17. og 18. febrúar
1943. Hjá þeim dvaldi hún í
stórum barnahópi og margmennu
heimili að mestu unz hún giftist
31. okt. 1942, eftirlifandi manni
sínum Theodóri Ólafssyni
afgreiðslumanni hér í
Reykjaþvik.
Þau byrjuðu búskap á Bíldudal
og áttu þar heima til ársins 1945,
er þau fluttu til Reykjavikur.
Börn þeirra eru Ásthildur gíft
Ingimar Magnússyni skipstjóra í
Tálknafirði, Jakobína gift Erlingi
Guðmundssyni skipstjóra í
Tálknafirði, Ólafur tækni-
fræðingur, búsettur í Hnífsdal,
kvæntur Finney Finnbogadóttur,
Hafdís, skrifstofustúlka í Útvegs-
bankanum á Isafirði, Sigurður f.
7. október 1947, d. 24. júlí 1966.
Barnabörnin eru 12. Milli systr-
anna, Línu eins og við kölluðum
hana, og Þorbjargar var alltaf
kærleikur og mikið samband, þótt
í nokkur ár skyldi fjarlægð þær
að, þegar þær á unga aldri fóru úr
foreldrahúsum. En eftir að við
Þorbjörg fórum að búa á Patreks-
firði 1933 fjölgaði þeim stundum
sem þær hittust, en sambandið
var ekki stöðúgt fyrr en við vor-
um orðin búsett i Reykjavík, og
þau höfðu einnig flutt suður, sem
var 1945. Eftir það var mjög náið
samband milli fjölskyldnanna.
Um nokkurt skeið bjuggum við á
Laufásvegi 58, en þau á Skóla-
vörðuholtinu. Þá var dóttir okkar
Elva alltaf með annan fótinn þar.
Börnin þeirra voru á svipuðum
aldri og léku þau sér saman. Lína
var henni alltaf eins og hún væri
eitt af hennar börnum, og
breyttist það ekki þótt árin liðu.
Veraldlegir fjármunir munu oft
hafa verið af skornum skammti i
búi þeirra, einkanlega meðan
börnin voru ung, en allt bjarg-
aðist fyrir atorkusemi heimilis-
föðurins og hagsýni húsmóður-
innar, en þótt þröng væri i búi
kom maður aldrei á heimili þeirra
svo, að hin glaðværa lund hennar
skipaði ekki öndvegi, og þótt við
margs konar örðugleika væri að
glíma var fórnfýsi og hjálpsemi
við aðra mjög virkur þáttur í eðli
hennar.
Það mun hafa verið fyrir um 3
árum sem Lína fór fyrst að finna
fyrir þeim sjúkdómi, sen endan-
lega leiddi hana til síns skapa-
dóms, en það kom þarna fram,
eins og ávallt í lifinu, að hún bar
Það var öllum ljóst, sem til
þekktu, að hvar sem Sigurður
lagði hönd að verki, að þar var
enginn meðalmaður á ferð og
heill hugur fylgdi jafnan máli.
Hann var afreksmaður og einstak-
lega vel til forystu fallinn. Hann
gegndi líka kalli samferðamanna
sinna og þurfi þess vegna mörgu
að sinna utan heimilis. En þrátt
fyrir það bjó hann jafnan vel, þvi
að konan hans góða, María hús-
freyja á Barkarstöðum, stýrði búi
af dugnaði og öryggi í margri fjar-
veru bónda sins, svo að vel var
fyrir öllu séð. Þá dvaldist Árni,
bróðir Sigurðar, jafnan á Barkar-
stöðum og hefur unnið því heimili
giftudrjúgt starf um langa ævi.
Einnig hefur Ólafur Steinsson frá
Barkarkoti, sem ungur kom á
heimilið, dvalist þar siðan og
starfað meðan heilsa entist. Er
það áreiðanlega að vilja hjónanna
á Barkarstöðum að þessara
tveggja manna sér sérstaklega
getið nú þegar leiðir skiljast.
Einnig skal getið Daða, sonar
þeirra, er verið hefur aðalmaður
við bústörfin hin síðari ár.
Það var að kvöldi síðasta vetrar-
dags, sem þau María og Sigurður
voru kölluð brott af þessum
heimi. Við hið sviplega fráfall
þeirra fyllumst við, sem þekktum
þau og vorum vinir þeirra, sárum
trega og söknuði. En við gerum
okkur ljóst að nóttin er stutt, þeg-
ar þessi árstimi er kominn, og að
brátt birtir á ný. Við vitum að
þegar sól hnígur á síðasta vetrar-
dag er aðeins örskammur tími þar
til hún ris að morgni sumardags-
ins fyrsta. Og við trúum þvi, að í
Ijóma þeirrar sólar munu þau
hjónin á Barkarstöðum halda
samfylgd sinni áfram i ást og
tryggð á eilífðarvegum.
Að leiðarlokum vil ég fyrir
mina hönd og fjölskyldu minnar
færa þeim Mariu og Sigurði á
Barkarstöðum innilegar þakkir
fyrir dýrmæt kynni og staðfasta
vináttu um áratuga skeið. Veit ég
að margir taka undir þau þakkar-
orð og gera að sínum. Við vottum
börnum þeirra og tengdabörnum,
öldruðum foreldrum Maríu,
systkinum þeirra og öðrum ást-
vinum dýpstu samúð og biðjum
ekki á torg það sem að henni
sjálfri amaði, svo það duldist jafn-
vel hinum nánustu lengi vel að
hverju stefndi. Tæpt ár var hún
mikið viðloðandi við sjúkrahús,
og síðustu mánuðina rúmföst.
Þótt engum dyldist að hverju
stefndi, og ég held ekki henni
sjálfri heldur. Þá var þó alltaf
sama birtan yfir henni og aldrei
kvartaði hún yfir liðan sinni, en
hugurinn virtist bundinn yfir vel-
ferð annarra.
Slíkrar konu sem Línu er gott
að minnast. Hún sóttist ekki eftir
að láta á sér bera, en henni tókst
að tendra vita góðvildar og kær-
leika sem engum gleymist sem
hana þekktu.
Við hjónin, Elva, Steini og
Andrés litli þökkum henni alla þá
blíðu og góvild sem við urðum
aðnjótandi frá henni. Við viljum
trúa þvi að hún sé nú komin til
fundar við foreldra, bróður,
dótturbörn og elskaðan son sem á
undan voru gengin yfir móðuna
miklu, og að ljós góðvildar og
fórnfýsi sem hún tendraði á
meðal okkar megi lýsa henni á
eilífðarbrautinni.
Eiginmanni, börnum, fóstur-
bróður, tengdafólki og barna-
börnum vottum við okkar inni-
legustu samúð.
Andrés Finnbogason.