Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
41
TT ^
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
I fyrsta lagi má nefna að í mörg
ár höfum við undirritaðir sótt
Sundlaugarnar á hverjum degi og
alltaf mætt mjög kurteislegri
framkomu hjá öllu starfsfólkinu
og því mótmælum við þessari árás
á starfsfólkið.
I öðru lagi er þessi Svava að
tala um sóðaskap í búningsklef-
um og á göngum, þar hefðu verið
sígarettustubbar o.s.frv. Þessu
viljum við mótmæla því það er
stranglega bannað að reykja í
búningsklefunum og á göngunum
og þar fær enginn að reykja. Við
höfum aldrei séð fólk með tóbak f
búningsklefunum, svo þetta pass-
ar ekki alveg hjá henni. Viðvíðkj-
andi sóðaskap er það að segja að
það eru tveir karlmenn, sem gera
ekkert annað en gæta þess, að
gestir fari úr sundskýlum og þvoi
sér vel áður en farið er i laugina
og þess á milli er alltaf verið að
sópa gólfin með gúmmíkústi svo
þau verði ekki skítug, svo það er
ekki hægt að segja að starfsfólkið
svikist um að gera það sem það á
að hugsa um.
1 þriðja lagi er hún að kvarta
um sóðaskap úti í laug og i heitu
kerjunum. Vatnið i kerjunum og i
sjálfri lauginni er alveg dásam-
legt i alla staði og langt frá að það
sé sóðalegt þar úti. Þvert á móti.
Einnig er allt svæðið í kringum
laugina „spúlað" á hverju kvöldi
og allir klefar úti í sólskýlinu,
sem Svava ræðir um eru einnig
vel hreinsaðir á hverju kvöldi
eftir að gestir eru farnir heim.
Þá viljum við þakka öllu starfs-
fólki i Sundlaugunum fyrir góða
framkomu og góða viðkynningu.
Öskar Pétursson
Sigurður Jónsson
Ragnar Jóhannsson
Þorsteinn Löve
Gústaf Þórðarson
örn Herbertsson
Pétur Kr. Jónsson
Halldór Gfslason
Karl Vilhjálmsson
Jóhann Jónsson
Jóhann Pálsson
Sveinbjörn Markússon
Pétur Bjarnason
Ámundi Sveinsson
Ingvi Guðtnundsson
Haraldur Friðriksson
Sturla Snorrason
Ingibergur Vilmundarson.
Frá Fósturskóla íslands
Námskeið fyrir fóstrur verður haldið dagana
1.—4. júní n.k.
Aðalnámsgreinar verða: hagnýt uppeldisfræði
og þróunarsálfræði.
Fóstrur sem brautskráðust fyrir 1972 ganga
fyrir.
Upplýsingar í síma 8381 6, frá kl. 2—4 e.h.
Skólastjóri.
Frá Fósturskóla íslands
Umsóknarfrestur um skólavist fyrir skólaárið
1977 — 78,ertil 10. júní n.k.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um
skólann fást á skrifstofu skólans Skipholti 37,
sími 83816.
Skólastjóri.
Þessir hringdu . . .
£ Lftil gæzla
Sundlaugargestur:
— Ég vil fá að þakka þeirri
konu fyrir, sem skrifaði nýlega
um Sundlaugarnar í Laugardal,
þar sem hún ræðir um hreinlætið
þar og fleira. Það hefur enginn af
karlmönnum lagt orð i belg um
þetta mál, svo vera má að það sé
eitthvað hreinlegra hjá þeim en
okkur konunum. Þá finnst mér að
gæzlan megi vera betri, fólkið
vera meira vakandi fyrir því sem
það er að gera, en það kannski
kemst ekki yfir að gera allt, sem
þarf vegna fámennis. En ef borið
er saman við Sundhöllina þá verð
ég að segja að þrifnaður þar er
mun betri en í Laugardalnum.
Það eru greinilega mjög skiptar
skoðanir um hreinlætið i Sund-
laugunum, svo sem sjá má af þess-
um tveimur umsögnum hér i dag.
Það er alltaf erfitt að gera svo
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti 'Hollandi 1976 kom
þessi staða upp í skák efnilegasta
skákmanns hollendinga í dag,
Johns Van der Wiel sem hafði
hvitt og átti leik, og landa hans
Van Maaren:
19. fxe6!! Dxh6 20. e7! og svartur
gafst upp, þvi hann verður mát
eftir 20. ... Rf6 21. Bc4+, og staða
hans er gjörsamlega vonlaus eftir
20. ... De6 21. e8=D + ! Dxe8 22.
Bc4+ Df7 23. Hxf7.
öllum liki vel og það sem er fyrir
einum hreinlæti getur verið sóða-
skapur í augum annarra.
0 Þakkir fyrir
útvarpsþátt
Kona úr Kópavogi:
— Ég vil koma á framfæri
þakklæti fyrir góðan útvarpsþátt
hjá Valborgu Bentsdóttur, Hin
gömlu kynni. Hann hefur nú ver-
ið í dagskránni um tima og er
alveg. nauðsynlegur fyrir gamla
fólkið. Það situr heima eða er á
sjúkrahúsum og getur ekki verið
á ferð og flugi og því held ég að
það verði að ætla gamla fólkinu
góðan tima fyrir útvarpsefni við
þess hæfi. Það er mjög mikið af
tónlist i útvarpi — sennilega of
mikið — þvi þeir sem vilja mikið
hlusta á tónlist gera það heima
hjá sér í sinum hljómflutnings-
tækjum. Tónlistin má ekki yfir-
gnæfa allt annað og það verður að
mínu mati að gera ráð fyrir mikl-
um tima fyrir gamla fólkið I út-
varpsdagskránni, þetta eru góðir
hlustendur, sem eiga það skilið að
vel sé gert við þá.
HÖGNI HREKKVÍSI
Takið eftir því, frú, hve vel hún nær bansettum
kattarhárunum!
Hann er býsna hörundsár?
Frá Fósturskóla íslands
í samvinnu við Barnavinafélagið Sumargjöf
verður námskeið haldið fyrir fóstrur, sem hafa
áhuga á að starfa á skóladagheimilum. Nám-
skeiðið verður 6. —11. júní. Anders Bech for-
stöðumaður skóladagheimilis í Danmörku
stjórnar námskeiðinu. Upplýsingar verða gefn-
ar í síma 83816, frá kl. 2—4 e.h.
Skjólastjóri.
tfgmtlrlitfrife