Morgunblaðið - 30.04.1977, Síða 42

Morgunblaðið - 30.04.1977, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977 Tony Knapp aðstoðar Jón Pétursson við æfingar á Meiavellinum. (Ljósm. RAX) Göngumeistarinn og Tony Knapp aðstoða Jón P. JÓN Pétursson, fyrirliði 1. deildarliðs Fram I knattspyrnu, hefur æft vel undanfarið og stöðugt hafa æfingarnar orðið erfiðari. Jón hefur þó ekki æft með féiögum sínum I Fram. Heldur hefur hann hlaupið mikið einn, en einnig verið I æfingum undir leiðsögn Haildórs Matthlassonar, íslandsmeistara I 15 km skíðagöngu, og Tony Knapp landsliðsþjálfara. — Ég var skorinn í hné i byrjun marz og teknir báðir lið- þófarnir í hægra hnénu, sagði Jón er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. — Þessa dagana reyni ég að byggja vöðvana upp að nýju og eftir þvi sem aflið vex þyngi ég æfingarnar. Læknar segja mér að það taki 8—10 vikur að fá sig góðan eftir slíka uppskurði ef allt gengur vel. Ég er að vona að ég missi ekki marga leiki með Fram-liðinu í íslandsmót- inu, en það er þó ljóst að ég verð einhern tíma í viðbót að fá mig góðan og komast í æfingu að nýju. — Halldór Matthíasson, skíðagöngumaður og sjúkra- þjálfari, var með mig i æfingum daglega eftir upp- skurðinn, en þegar ég mátti fara að auka álagið á löppinni tók Tony Knapp landsliðsþjálf- ari við. Ég lék mér I fyrsta skipti eftir uppskurðinn með bolta i gær og þetta er allt að smákoma. Ég er bjartsýnn á Framliðið i sumar. Við eigum að geta orðið íslandsmeistarar ef byrjunin verður sæmileg hjá liðinu, a.m.k. ef við miðum við siðasta ár. Nei, ég tek ekki mikið mark á Reykjavíkurmótinu sem við eigum að vera öruggir með. Liðin leggja greinilega ekki eins mikið upp úr þvi nú og hér áður fyrr, sagði Jón Pétursson að lokum. 29 LEIKIR11. DEILD- INNIÁ TÆPLEGA MÁNUÐI Keppnin í 1. deild hefst næsta laugardag ÞAÐ VERÐUR 1 mörgu að snúast fyrir knattspyrnuáhugamenn þegar boltinn fer að rúlla fyrir alvöru. Fyrsti leikurinn 1 1. deild Islandsmótsins fer fram 7. maf næstkomandi eða annan laugardag, og verða hvorki meira né minna en 29 leikir 11. deildinni fram til mánaðamóta mal-júnf. Fyrsti leikurinn i 1. deildinni verður 7. maí og verða þá þrír leikir. Klukkan 14 hefst á Laugar- dalsvellinum leikur Fram og IBV og á sama tíma mætast ÍBK og Þór frá Akureyri í Keflavík. Verða því báðir nýliðarnir í 1. deildinni í eldlínunni á útivöllum í fyrstu tveimur leikjunum. Gömlu „fjendurnir" úr íslenzkri knattspyrnu, IA og KA, mætast á Akranesi klukkan 16 þennan dag og klukkan 16 mætast siðan Breiðabliksmenn og Islandsmeist- arar Vals i Kópavogi. Siðasti leikur 1. umferðarinnar verður sunnudaginn 8. maf og leika þá Víkingur og FH á Laugardals- vellinum klukkan 14. Áfram heldur siðan mótið af fullum krafti til 25. ágúst að siðasti leikur 1. deildarinnar fer fram. Leika þá Víkingur og Valur á Laugardalsvellinum. Nokkur hlé verða gerð á keppninni í 1. deildinni vegna landsleikjanna gegn N-Irum, Norðmönnum og Svfum, en leikirnir gegn Hollandi, Belgíu og N-lrum ytra eru að lokinni keppninni í 1. deild Islandsmótsins. Fyrsti leikurinn í 2. deild verður á milli Reykkjavíkurfélag- anna Þróttar og Ármanns fimmtudaginn 12. maí. Síðasti leikur 2. deildarinnar verður hins vegar 17. september. Slagurinn í þriðju deild hefst 4. júní, en úr- slitakeppni deildarinnar verður 2., 3. og 4. september. Hjá konunum hefst keppnin 22. maí og f yngri flokkunum 2. júní. Þar sem talað er um Laugar- dalsvöllinn og aðra grasvelli hér að framan er með fyrirvara i mótabókinni því ótrúlegt er að grasvellirnir verði allir tilbúnir fyrir knattspyrnumennina viku af mai. Verður því trúlegast að flytja flesta leikina til að byrja með á malarvelli. Sá grasvöllur sem mun vera i beztu ástandi nú, er völlurinn í Kópavogi. Nú leika í fyrsta skipti 10 lið í 1. og 2. deild í knattspyrnunni og verða þvf 90 leikir f 1. deild f sumar og jafnmargir í 2. deild. I' þriðju deild eru hins vegar 36 lið og er þar leikið í sex riðlum. Bikarkeppnin hefst þegar 31. maí og á henni að ljúka með úr- slitaleik á Laugardalsvellinum 11. september. Knattspyrnuunnendur er eflaust þegar farið að dreyma um knattspyrnuviðburði sumarsins og látum við hér í lokin fylgja með töflu, sem birt er i mótabók KSl 1977, og hefur að geyma upplýsingar um meðalfjölda áhorfenda á hverjum stað sfðustu fimm árin. Reykjavíkurmótinu lýkur á mánudaginn REYKJAVIKURMOTINU 1 knattspyrnu lýkur á mánudagskvöldið, en þrfr leikir verða 1 mótinu um helgina. I dag klukkan 14 mætast KR og Fram, Vfkingur og Ármann leika á morgun klukkan 16 og Ioks leika Valur og Þróttur á mánudagskvöld klukkan 19. Framarar standa bezt allra lið- anna í mótinu. Þeir hafa hlotið 8 stig í fjórum leikjum. Hafa þeir gert eitt jafntefli, gegn Víkingi, en bættu upp stigið sem þeir misstu þar með aukastigi gegn Ármenningum. Valsmenn hafa tapað einum leik og gert eitt jafn- tefli og ættu eftir þvf að hafa 5 stig, en aukastig gegn Armanni færði þeim sjötta stigið. Víkingar hafa ekki tapað leik en gert 3 jafntefli og unnið einn leik. Hafa þeir því 5 stig og stefna að auka- stigi gegn Armanni á morgun. Þróttarar hafa jafn mörg stig og Víkingar, hafa unnið 2 leiki, gert 1 jafntefli og tapað einum. KR- ingar hafa aðeins 2 stig og Ármenningar hafa enn ekki hlot- ið stig. Allt virðist því benda til þess að Framarar verði Reykjavíkur- meistarar, en vinni KR-ingar þá í dag er þó möguleiki fyrir Val, Víking og Þrótt á sigri i mótinu. Flest mörk leikmanna hafa þeir skorað Sumarliði Guðbjartsson, Fram, og Ingi Björn Albertsson, Val, 3 hvor. Birgir Guðjónsson, KR, og Ágúst Guðmundsson, Fram, hafa skorað 2 mörk hvor. / • \ aUK þess að vera með æfingar á Akranesi flesta daga vikunnar, þegar ekki hafa verið leikir, hefur George Kirby haft reglulegar æfingar 1 Reykjavlk sfðan hann kom til landsins fyrir rúmum mánuði. 1 Reykjavfk búa þrlr af þeim leikmönnum, sem verða 1 meistaraflokkshöpi Kirbys i sumar og sennilega fastamenn f liðinu. Eru þetta þeir Jón Þorbjörnsson markvörður, Kristinn Björnsson miðherji og Jóhannes Guðjónsson miðvörður. Jón Þorbjörnsson skipti úr Þrótti yfir f ÍA f vetur og kom það sér sérlega vel fyrir Skagamenn, sem misstu markvörð sinn, Davfð Kristjánsson til Svfþjóðar sfðastliðið haust. Jón er mjög vaxandi leikmaður og hefur hann leikið fleiri unglingalandsleiki en nokkur annar knattspyrnumaður fslenzkur. Kristni Björnssyni ætti sömuleiðis að reynast auðvelt að ná stöðu f Skagaliðinu, þvf þeir Teitur og Matthfas skildu eftir sig skarð, sem erfitt hefur verið að fylla. Jóhannes Guðjónsson hefur mörg undanfarin ár verið einn sterkasti miðvörður f knatt- spyrnunni hérlendis og verður það sjálfsagt áfam f sumar. En þó þessir leikmenn séu snjallir þá komast þeir ekki f lið frekar en aðrir nema þeir æfi. Hafa þeir æft nokkrum sinnum með liðinu á Akranesi, en Kirby hefur þess á milli komið f bæinn og verið með æfingu. Er Morgunblaðsmenn áttu leið framhjá Háskólavellinum f vikunni voru Skagamennirnir á æfíngu þar og drógu hvergi af sér en reyndar komst Jón ekki á æfinguna. Þeir eins og Kirby eru sjálfsagt ákveðnir f þvf að Islandsbikarinn flytjist frá Hlfðarenda á Skipaskaga f haust og yrði það þá þriðji Islandsmeistaratitillinn, sem Kirby næði f fyrir IA, en bæði 1974 og 1975 varð IA Islandsmeistari undir hans stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.