Morgunblaðið - 02.06.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNÍ 1977
Varðskipsmenn kanna möskvastærð um borð einum þýzku togaranna.
V-þýzku togararnir
breyta um veiðarfæri
Landhelgisgæzlan hafði af því
spurnir f fyrradag, að v-þýzkir
togarar væru komnir suður
fyrir Karfalínuna svonefndu
úti af Berufjarðarál eða inn
fyrir þau mörk sem togurunum
er heimilt að veiða með vörpum
með 135 mm netamöskvum og
verða í þess stað að vera með
155 mm möskvastærð.
Varðskip var sent á þessar
slóóir til að kanna hvernig
veiðarfærum togaranna væri
háttað, en þegar það kom á
þessar slóðir í fyrrinótt voru
skipin aftur komin norður fyrir
línuna. Engu að síður var farið
um borð í nokkra þeirra og
reyndust þeir þá alUr vera
komnir með vörpur rfteð 155
mm möskvum.
Landhelgisgæzlan hefur
einnig síðustu daga ítrekað við
norsk línuskip sem eru að
veiðum hér við land, aðallega
suður af, að halda tilkynninga-
skylduna gagnvart stjórnstöð
Landhelgisgæzlunnar en
nokkur misbrestur hefur orðið
á því af hálfu Norðmanna.
Guðmundur Einarsson, verkfræðingur:
Nidurstödur Farrelly
fást eftir um 2 vikur
„ÉG vænti þess, að rannsóknir
Farrelly hér á landi liggi fyrir
eftir um 2 vikur,“ sagði
Guðmundur Einarsson, verk-
fræðingur, í samtali við Morgun-
blaðið f gær. Lýsingar konunnar á
svæðinu væru fyrir hendi hér á
landi á segulböndum en eftir
væri að vinna úr þeim.
Vegna blaðaskrifa um komu
Farrelly hingað til lands sagði
Guðmundur að hann vildi leið-
rétta fullyrðingar um að konan
væri ekki raunvísindamanneskja.
Hún væri háskólamenntuð í líf-
efna- og efnafræði, hefði starfað á
rannsóknarstofu í þeirri grein og
þar komizt fyrst í kynni við
radionics-aðferðina, sem hún
hefði beitt við Kröflu. Kvað
Guðmundur konuna nú vera ráð-
gefandi fyrir 70 lækna á sviði
lífefnafræði í Bandaríkjunum,
auk annarra verkefna.
Varðandi ummæli jarðvísinda-
manna hér um aðferðir konunnar
sagði Guðmundur að minni-
máttarkennd þeirra yfir kómu
konunnar væri ástæðulaus, þar eð
aðferðir hennar kæmu ekki í stað
rannsókna þeirra heldur væri
einungis hjálpartæki til viðbótar
þeim. Minnti Guðmundur i þessu
sambandi á orð Göthe um að það
væri háttur sumra að tala
niðrandi um hluti sem þeir væru
Rís Aðalstræti
12 úr öskimni?
LAGT hefur verið fram í
bygginganefnd Reykja-
víkurborgar bréf frá Valdi-
mar Þórðarsyni (Silli &
Valdi), þar sem hann
Góð aðsókn að sýn-
ingu Vagns Jensen
Góð aðsókn hefur verið að
málverkasýningu danska listmál-
arans Hendriks Vagns Jensen í
Bogasal Þjóðminjasafnsins og
hafa þegar selzt nokkrar mvndir.
Jensen sýnir alls 33 myndir, flest-
ar pastel- og grafíkmyndir, mál-
aðar á síðustu árum.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14 tii 22 og lýkur á sunnudags-
kvöld en þetta er í annað skipti
sem Jensen sýnir í Bogasalnum,
en hann hefur oft sýnt í heima-
landi sínu, Danmörku, ennfremur
í Póllandi og á Ítalíu.
spyrst fyrir um hvort hann
muni fá leyfi fyrir breyt-
ingum á húsinu nr. 12 við
Aðalstræti, sem hann
kveðst hafa áhuga á að
endurbyggja í sem uppr-
unarlegustu horfi, en sem
kunnugt er varð húsið elds-
voða aö bráð um áramótin
og hafa brunarústirnar
einar staðið síðan. Til að
uppfylla skilyrði um
brunavarnir þarf Valdimar
hins vegar að fá að reisa
eldtraustan brunastiga aö
baki hússins. Byggingar-
nefnd lýsti sig fremur
hlynta þessu en endanlegt
samþykki verður þó háð
teikningum um frekari út-
færslu áþessari breytingu.
Skuttogarinn Skinn-
ey seldur til Eyja?
Að undanförnu hafa staðið yfir
viðræður milli eigenda skuttogar-
ans Skinneyjar frá Höfn f Horna-
firði og forráðamanna Fiski-
mjölsverksmiðjunnar f Vest-
mannaeyjum um kaup á togaran-
um til Eyja, og nú bendir flest til
þess að togarinn verði keyptur til
Vestmannaeyja á næstunni.
Haraldur Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Fiskimjölsverk-
smiðjunnar í Eyjum, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að í
dag kæmi togarinn til Vestmanna-
eyja og þá yrði hann skoðaður, en
færi síðan f slipp. Ákvörðun um
kaupin yrði væntanlega tekin af
þeirra hálfu alveg á næstunni og
væri Fiskimjölsverksmiðjan þeg-
ar búin að tryggja sér forkaups-
rétt að togaranum.
Skuttogarinn Skinney er 297
rúmlestir að stærð, smíðaður í
Kristiansund í Noregi árið 1975.
Grásleppuhrogn
hækka í verdi
Afleiðing af minni veiði en 1 fyrra
fávisir um. Guðmundur sagði þó,
að sem betur fer væru þó alltaf til
vísindamenn sem vildu auka við
þekkingu sína og vísindalegan
skilning.
Guðmundur sagði, að rann-
sóknaraðferð konunnar —radion-
ics-tæknin — byggðist á réttri
svörun fyrir hendi, þegar (dia-
Framhald á bls. 18
Samningaviðræð-
umar fluttar í MH
SAMNINGAFUNDURINN í gær
var að öllum Ifkindum sfðasti
samningafundurinn á Loftleiða-
hótelinu um sinn að minnsta
kosti. Verða viðræður aðila
vinnumarkaðarins nú fluttar f
húsakynni Menntaskólans f
Hamrahlíð, en skóianum hefur
nú verið slitið.
Ástæður þessa eru þær, að
Kristalsalur Loftleiðahótelsins er
bókaður að minnsta kosti fram
yfir heigi. Sá aðili, sem ieigt hef-
ur salinn er Tékkneskfe bifreiða-
umboðið, sem ætlar að hafa þar
bílasýningu. Hafði umboðið pant-
að salina með löngum fyrirvara.
Nú er allt útlit fyrir að grá-
sleppuveiði á þessu vori ætli að
verða mun minni en á sfðasta ári
og af þeim sökum eru kaupendur
erlendis byrjaðir að bjóða hærra
verð f grásleppuhrognin en opin-
berlega var gefið út sem lág-
marksverð f upphafi vertfðar, en
Hringvegur-
inn opnast
eftir helgina
ÁSTAND á þjóðvegum
landsins hefur mjög
breytzt til hins betra síð-
ustu daga, aurbleytan á
undanhaldi og er vega-
eftirlitið sem óðast að af-
létta þeim þungatakmörk-
unum sem verið hafa í
gildi. í gær var t.d. aflétt
þungatakmörkunum i upp-
sveitum Árnessýslu og
einnig í N-Þingeyjarsýslu,
þannig að nú má heita að
engar þungatakmarkanir
séu á hringleiðinni syðra
og vestra og allar götur
norður í S-Þingeyjarsýslu.
Á Vestfjörðum eru vegir einnig
sem óðast að þorna, en þó er enn 7
tonna þungatakmörkun á veg-
inum úr Barðaströnd og allt til
Flateyrar. Þorskafjarðarheiði er
orðin fær öllum bílum, en þar eru
einnig 7 tonna þungatakmarkanir
ennþá.
Viðgerð hefur staðið yfir
undanfarið á veginum á Möðru-
dalsöræfum, sem skemmdist
mikið i leysingunum og er nú
ágætlega fært frá Grímsstöðum
og austur um. Þá var i gær byrjað
á viðgerð á veginum á Mývatnsör-
æfum, sem einnig varð fyrir
vatnsskemmdum, og er vonazt til
að því verki ljúki nú undir helg-
ina, þannig að í næstu viku verði
hringvegurinn orðinn greiðfær.
Þá er hins vegar eftir að opna
vegi eins og í Vopnafjörð, Hóls-
sand og Axarfjarðarheii, svo og
Lágheiðina miili Ólafsfjarðár og
Fljóta.
Erlent lán til fram-
kvæmda við Sundahöfn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
borgarsjóður taki erlent lán
vegna Reykjavíkurhafnar, að
fengnu leyfi ríkisstjórnarinnar,
sem Citybank f Lundúnum býður.
Verður iánið að upphæð allt að
750.000 dollarar og verður veitt
til 18 mánaða. Eru þetta rúmlega
144 milljónir íslenzkra króna.
Vextir eru 1 1/8 umfram
almenna millibankavexti I
London á hverjum tfma. Felur
borgarráð borgarstjóra að semja
um nánari lánskjör og undirrita
lánssamning og önnur skjöl
vegna lántökunnar. Borgarstjóri
getur veitt öðrum aðila umhoð til
að undirrita lánssamning.
Ólafur B. Thors, formaður
hafnarstjórnar, sagði í gær að lán
þetta ætti að nota til framkvæmda
við Sundahöfn, annars vegar við
nýtt lægi við Sundabakkann, og
hins vegar byrjunarframkvæmdir
á Kleppsbakkanum og sagði Ólaf-
ur jafnframt að þetta væri fyrsti
hluti stærra láns sem ráðgert
væri að fá síðar.
það var 250 dollarar eða röskar 48
þús. kr. fyrir tunnuna.
Óttar Yngvason hjá íslenzku út-
flutningsmiðstöðinni sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
því væri spáð að heildar-
grásleppuveiðin myndi ekki sam-
svara nema um 12—14 þús. tunn-
um af hrognum að þessu sinni, en
í fyrra fengust 21 þús. tunnur af
hrognum, og því væri farin að
koma hærri tilboð í hrognin.
— Kaupendur erlendis hafa
reynt að halda sig við 250 dollara
verðið í lengstu lög, en síðustu
daga hafa komið hærri tilboð.
Þetta er ósköp eðlilegt, því þegar
kaupendur sjá að þeir muni ekki
fá það magn sem þeir höfðu gert
ráð fyrir, þá fara þeir af stað og
bjóða hærra verð. Hvort hækkun-
in verður mikil veit ég ekki, en
kaupendur hafa nú byrjað
óvenjulega snemma að bjóða
hærra verð í hrognin, því fram til
þessa hefur yfirleitt fengizt
hærra verð fyrir hrognin síðla
sumars og á haustin, sagði hann.
Forsetinn
til Uppsala
FORSETI íslands, dr. Kristján
Eidjárn, mun ásamt konu
sinni fara til Svíþjóðar á morg-
un, föstudag, og dveljast þar í
rúma viku. Tilefnið er að
heimspekideild Uppsalahá-
skóla hefur boðið forsetanum
að taka þátt I einum af mörg-
um fræðimannafundum, sem
haldnir verða á þessu ári til
hátíðabrigða vegna fimm alda
afmælis háskóls. Hefur
forsetinn tekið þessu boði.
Var bjórinn
smyglaður?
Morgunblaðinu hefur borizt eftir
farandi yfirlýsing frá tollstjóranum I
Reykjavlk:
í sjónvarpsþættinum ,,Ríkið í ríkinu''
nú nýverið, sýndu stjórnendur þáttar-
ins ungt fólk á dansleik M.a. sýndu
þeir mynd af erlendri bjórdós og sögðu
í skýringartexta að mikið væri þarna
drukkið af smygluðum bjór.
Nú er smygl mikill óþrifnaður og full
þörf að draga úr því eftir mætti Okkur
sem að vörnum gegn smygli störfum
er þökk í þvi að fá upplýst með hvaða
hætti smyglað er, hafi það á annað
borð átt sér stað Þá vitneskju mætti
e t v. nýta til fyrirbyggjandi aðgerða
síðar.
En var bjórinn smygiaður? Hvaða
vitneskju búa stjórnendur þáttarins
yfir, þannig að þeir geti fullyrt að svo
hafi verið ? Er þeim ekki kunnugt um
að nokkrar stéttir manna hafa þau
„forréttindi” að mega flytja inn áfengan
bjór? Gæti þessi bjórdós ekki hafa
verið ein af ca 600 000, sem láta mun
nærri að hafi verið fluttar inn löglega á
s I ári af þessum forréttinda-hópum?
Mér þætti fengur að svörum stjórn-
endanna við hentugleika þeirra og á
þessum vettvangi eða á annan hátt
opinberlega
Björn Hermannsson
tollstjóri