Morgunblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNl 1977 17 íslenzk nytjalist á KjarvaLsstödum ÍSLENZK nytjalist heitir sýning. sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Það er félagiS ListiSn, sem stendur fyrir sýningunni, en þar sýna Helga Björnsson fatahönnuður fyrir Louis Feraud I Parls, Steinn Sigurðsson, sem hannaði rafmagnsbílinn Rafsa, og Einar Þ. Ásgeirsson, arkitekt, sem sýnir þarna Ifkön af ýmsum nýstár- legum hugmyndum f arkitektúr. T.d. sýnir Einar Ifkan af sumarbústað mjög ólfkum þeim, sem nú tiðkast og á að byggja þann fyrsta nú f sumar. Sýningin stendur til 12. júní og sagði Gunnar Snæland, formaður sýn- ingarnefndar, að hún yrði einn liður I áframhaldandi sýningum á listrænni hönnun. verksviði þeirra og vinnu- máta. Þá bað Gunnar Snæland um það, að forráðamönnum Kjarvalsstaða yrðu færðar sérstakar þakkir fyrir lán á húsinu til þessarar sýningar Nokkrar teikningar eftir Helgu Björnsson fatahönnuð. 95 stúdentar frá Verzlimarskólanum Verzlunarskóla íslands var slitið 27. maí sl. og brautskráðust þá 95 stúdentar. Tveir hlutu ágætiseink- unn, 30 fyrstu einkunn, 50 aðra einkunn og 13 þriðju einkunn. Þetta var 32. stúdentaárgangur skólans og hafa nú 1029 stúdentar braut- skráSst frá skólanum. Aðalheiður Karlsdóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi, 9,22, og Brynja Halldórsdóttir hlaut 9,01 Þúsundasti stúdent skólans var Ólaf- ur Sveinsson og fékk hann bók frá skólanum til minningar. Formaður Verzlunarráðs íslands, Gfsli Einarsson, flutti ávarp við skóla- slitin, en verzlunarráðið heiðraði tvo efstu stúdentana. Nokkur peningarverðlaun voru veitt; Margrét Friðriksdóttir fékk verðlaun úr móðurmálssjóði Hjartar kaupmanns Jónssonar og úr raungreinasjóði fengu verðlaun Margrét Auður Pálsdóttir, Margrét Friðriksdóttir, Aðalheiður Karlsdóttir og Brynja Halldórsdóttir. Þá fengu nokkrir nemendur bóka- verðlaun frá skólanum og erlendum sendiráðum fyrir málakunnáttu. Óli Örn Tryggvason, 20 ára stúdent, hafði orð fyrir afmælisstúdentum, sem höfðu sameignazt um að gefa skólan- um tæki til Ijósritunar. 40. sjómannadagurinn nk. sunnudag Hin nýja Hrafnista f HafnarfirSi. Hornsteinn lagður ad Hrafnistu í Hafnarfirði Sjómannadagurinn er nú hald- inn hátíSlegur f 40. sinn og á fundi meS fráttamönnum kynntu for- ráSamenn SjómannadagsráSs dagskrá hátiSahaldanna í Reykja- vfk. Pétur SigurSsson, formaSur SjómannadagsráSs. sagSi aS sjó- mannadagurinn væri bæSi hátfSis- dagur og fjáröflunardagur samtak- anna, en merkja- og blaSasala verSur á svæSi hátfSahaldanna f Nauthólsvfk og vfSar. Laugardaginn 4 júni hefst dag- skrá við Hrafnistu í Hafnarfirði og mun Pétur Sigurðsson flytja þar ávarp og lesa hornsteinsskjal, en Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. mun leggja hornstein að hinni nýju Hrafnistu og flytja ávarp. Hefst dagskráin við Hrafnistu kl 14, en áður mun Lúðrasveit Hafnarfjarðar leika undir stjórn Hans Ploder Franssonar, Eftir að hornsteinn hefur verið lagður mun biskup islands, herra Sigurbjörn Einarsson, flytja vigslu- orð og bæn og að lokinni athöfninni verður húsið til sýnis almenningi til kl. 1 9. Framkvæmdir við Hafnistu f Hafnarfirði hafa nú kostað alls um 340 milljónir króna. en gert er ráð fyrir, að húsið kosti fullbúið riflega 500 milljónír og er búizt við að notkun þess geti hafizt I haust Á þremur hæðum hússins eru ibúðir fyrir um 87 vistmenn, eins og tveggja manna ibúðir, en á 1. hæð og kjallara er ráðgert að hafa eins konar dagheimili og þjónustumið- stöð, svo sem fót- og hársnyrtingu og þvllíkt auk þess sem bráða- birgðaaðstaða er þar fyrir heilsu- gæzlu. Henni er annars ætlaður framtiðarstaður I 3. áfanga bygg- inagarinnar, en ekki er enn vitað hvenær 2. og 3. áfangi verða teknir i notkun í Reykjavlk hefjast hátíðahöld sjó- mannadagsins með þvi að fánar verða dregnir að húni á skipum I Reykjavíkurhöfn kl 8 árdegis og kl 10 leikur Lúðrasveit Reykjavikur létt lög við Hrafnistu. Klukkan 1 1 er sjómannamessa I Dómkirkjunni I Reykjavík, herra Siggrbjörn Einars- son, biskup. messar og minnist drukknaðra sjómanna og sr Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari Magnús Jónsson, Dómkórinn I Reykjavik og Dómkórinn í Gauta- borg syngja, organisti er Ragnar Björnsson. Að messunni lokinni verður lagður blómsveigur að leiði óþekkta sjómannsins I Fossvogs- kirkjugarði. Pétur Sigurðsson sagði, að nú væri gleðilegur munur frá fyrri árum varðandi sjómenn, sem farizt hefðu við störf, þeir væru 7 í ár en hefðu oft verið á annan eða þriðja tug Hátíðahöld i Nauthólsvík hefjast kl. 13:30 með leik Lúðrasveitar Reykjavikur og ávörp flytja Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra, Jónas Haraldsson, skrifstofustj L.I Ú., Pétur Sigurðsson. fulltrúi sjó- manna, og Garðar Þorsteinsson, rit- ari Sjómannadagsráðs, sem einnig heiðrar 5 sjómenn með heiðurs- merki dagsins Að ávörpunum loknum verður m a kappsigling, kappróður, björg- unar- og stakkasund. koddaslagur og þyrla Landhelgisgæzlunnar mun sveima yfir hátiðarsvæðinu Þá verða til sölu merki Sjómannadags- ins og Sjómannadagsblaðið. sem nú kemur út i 40 sinn, á hátiðasvæð- inu, en afhending þeirra til sölu- barna fer fram úr bifreiðum við skóla i Reykjavik og Kópavogi Þá eru sérstakar strætisvagnaferðir frá Hlemmi og Lækjartorgi frá kl 13 á 1 5 minútna fresti. Sjómannadagsráð: frá vinstri: Hilmar Jónsson, Tómas Guðjónsson, Garðar Þorsteinsson, Pétur Sigurðsson og Guðmundur H. Oddsson. Ljósm. Rax. Ljósm. Mbl. RAX. Bjarni Kristjánsson, rektor Tækniskóla fslands. ávarpar nemendur og kennara við slit skólans hinn 27. maf s.l. Fyrsta útgerðartækn- arnir brautskráðir TÆKNISKÓLA íslands var slitið í þrettánda sinn hinn 27. mai sl. Þá voru í fyrsta sinn brautskráðir út- gerðartæknar frá skólanum, nfu tals- ins af tuttugu og einum nema, sem stundar nám í útgerftardeild. Þá voru brautskráðir tólf meinatæknar, nfu véltæknar, tiu raftæknar, nftján byggingartæknifræðmgar, en fyrstu byggingartæknarnir verða braut- skráðir frá skólanum fyrir næstu jól. Almenna námið i undirbúningsdeild skólans Stunduðu sextiu og átta, þar af átta á Akureyri og sex á ísafirði Full- nægjandi prófum luku þrjátíu og fjórir í raungreinadeild stunduðu þrjátiu og sex nemendur námið og fullgildum prófum luku tuttugu. Bjarni Kristjánsson rektor skólans sagði m a við skólaslitin að fátæklegur tækjabúnaður hefði staðið eðlilegri þróun fyrir þrifum Tillögur skólans um áfangakerfi i stað núverandi annakerfis eru til athug- unar í ráðuneytinu, en að þeim tillög- um og fleiri reglugerðarbreytmgum var unnið lengi vetrar af skólastjórn. nem- endaráði og skólanefnd Við skólaslitin sagði rektor enn frem- ur Áætla má að í þessu þjóðfélagi sem breytist með síauknum hraða, verði áður en langt um líður fjöldi útgerðar- tækna orðnir framkvæmdastjórar út- gerðafyrirtækja en einnig eftirlitsmenn og ráðgjafar eða skipuleggjendur á opinberum stöðum Ég tel liklegt að hér með sé brotið blað i atvinnusögu þessarar þjóðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.