Morgunblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNI 1977
31
Leikur
Asgeir 5
landsleiki?
Knattspvrnukappinn kunni,
Ásgeir Sigurvinsson, kom til
landsins á þridjudaginn. Ætl-
ar hann að eyða sumarfrlinu
stnu hér og þá auðvitað mest I
heimabyggðinni Vestmanna-
eyjum.
Ásgeir sagði I samtali við
Mbl. að hann fengi þó ekki
mikla hvlld fyrst um sinn, þvf
hann ætlaði að æfa vel fram að
landsleiknum við Norður-lra
hér heima 11. júnf. Ásgeir
kvaðst búast við þvf að geta
leikið 5 landsleiki I sumar,
alla fjóra leikina I HM gegn
N-lrum, Belgum og HoIIend-
ingum og svo afmælisleikinn
gegn Svfum heima 30. júnf.
Standard Liege, lið Ásgeirs,
stóð sig með mikilli prýði f
vetur og komst I UEFA-
keppnina. Sagði Ásgeir það af-
ráðið að hann yrði áfram hjá
félaginu næsta vetur.
Handboltinn:
4 umferðir
leiknar
fyrir HM?
FORRÁÐAMENN handknatt-
leiksmála munu komnir að þeirri
niðurstöðu, að heppilegast sé að
hefja fslandsmótið í handknatt-
leik innanhúss 25. september n.k.
Á þá að leika 4 umferðir, en gera
síðan hlé á keppninni fram yfir
Heimsmeistarakeppnina í Dan-
mörku, sem lýkur um miðjan
febrúar. Þá mun vera ætlunin að
leika Reykjavfkurmótið án lands-
liðsmanna á meðan landsliðið
verður undirbúið fyrir keppnina
og að allir leiki við alla.
Enn frestað
LEIK ÍBV og KR var enn einu
sinni frestað í gær, þrátt fyrir
gott veður f Eyjum. Uppgefin
ástæða var sú, að KR-ingar hafi
ekki fengið flugvél f bæinn að
leik loknum.
Reykjavíkurmót
í Pþrautum
FYRSTI hluti Reykjavfkurmeist-
aramótsins f frjálsfþróttum hefst
á Laugardalsvellinum kl. 18 í
kvöld, en mótinu verður svo fram-
haldið á morgun. Á þessum hluta
verður keppt f tugþraut karla,
fimmtarþraut kvenna, 4x800 m
boðhlaupi karla, 10 km hlaupi og
3000 m hlaupi kvenna.
ur Valssigur
VALSARAR sóttu tvö stig f greipar
Þórs til Akureyrar á þriSjudag. Vals-
arar sigruSu verSskuldað meS tveim-
ur mörkum gegn engu, og voru
mörkin skoruS hvort I sfnum hðlf-
leiknum.
Það er þó ýmislegt fleira eftirminni-
legt úr þessum leik en úrslitin, þvl tveir
leikmenn, Guðmundur Þorbjörnsson,
Val, og Gunnar Austfjörð, Þór, voru
reknir af velli, og auk þess voru fimm
aðrir leikmenn bókaðir, fengu að sjá
gula spjaldið hjá dómara leiksins.
Kjartani Ólafssyni.
Leikurinn fór annars fram við slæm
ar aðstæður, hávaðarok stóð eftir vell-
inum endilöngum og moldryk þyrlaðist
um völlinn og næsta nágrenni og gerði
leikmönnum erfiðara fyrir en ella Vals-
menn kusu að leika undan vindinum
en varð lltt ágengt I byrjun Það var því
hálfgert reiðarslag þegar Valsarar skor-
uðu sitt fyrra mark Dæmd var auka-
spyrna úti við hliðarlínu, sem Albert
Guðmundsson framkvæmdi. Albert
skaut þéttingsföstu skoti á stöngina
nær, og öllum til undrunar forðaði
Oddur Óskarsson, bakvörður Þórs, sér
undan, hefir llklega haldið að boltinn
færi fram hjá stönginni. en i netið
sigldi boltinn öllum til undrunar og þá
ekki sizt Albert Guðmundssyni. Vals-
pressan hélt áfram út hálfleikinn, en
mark Þórs komst sjaldan í hættu utan
einu sinni þegar Ragnar Þorvaldsson
varði stórvel skot Atla Eðvaldssonar.
Skömmu fyrir leikhlé munaði þó
minnstu að Þórsurum tækist að skora
Jón Lárusson fékk þá nær ótakmark-
aðan tima til að leggja boltann fyrir sig
á vitateig Valsmánna, en skot hans
hafnaði í stöng og út og Valsarar
sluppu með skrekkinn
Margir héldu að Þórsarar sneru vörn
betur. Það var annars einkennilegt hve
illa Valsarar nýttu kantana i fyrri hálf-
leik og varð þvi sennilega eins lítið
ágengt og raun varð. Albert Guð-
mundsson komst einna bezt Valsara frá
þessum leik, en einnig gætti
Guðmundur Kjartansson hættulegasta
sóknarmanns Þórsara, Sigþórs Ómars-
sonar, mjög vel og gekk á stundum
fulllangt. En það má segja góða reglu
að ganga eins langt og dómarinn leyf-
ir.
Það er baráttan sem er aðall Þórs-
liðsins. Þórsarar börðust mjög vel
framan af, en létu mótlætið fara i
taugarnar á sér i siðari hálfleik, tvö
tiltölulega ódýr mörk, og krafturinn fór
á tíðum I ýmislegt annað en knatt-
spyrnuna Þórsarar þurfa annars ekki
að örvænta Þeir hafa komið á óvart,
með frammistöðu sinni til þessa og
andstæðingar þeirra i deildinni hafa
fengið að kenna á þvi að stigin eru ekki
auðsótt i greipar þeirra.
Kjartan Ólafsson dæmdi þennan leik
og gerði það allvel, en var þó helzt til
fljótur að bregða gulu spjöldunum á
loft.
í stuttu máli:
íslandsmót, 1 deild 31. mal —
Þórsvöllur, Akureyri Þór — Valur 0:2
(0:1)
Mörkin: Albert Guðmundsson á 14.
min og Ingi Björn Albertsson á 52.
min.
Rauð spjöld: Guðmundur Þorbjörns-
son, Val, og Gunnar Austfjörð Þór
Gul spjöld: Oddur Óskarsson. Sævar
Jónatansson og Einar Sveinsson, allir
Þór, og Valsmennirnir Guðmundur
Kjartansson og Hörður Hilmarsson.
Áhorfendur 1093.
Athygli vakti sigur Björns Blöndals,
KR, i 100 metra hlaupinu, sem hann
hljóp mjög kröftuglega og vel á 1 1,2
sek. og sigraði Sigurð Sigurðsson,
Ármenning, sem varð annar á T1,3
sek. í 110 metra grindahlaupinu var
hörkukeppni milli Björns og Jóns
Sævars, og lauk henni með þvi að sá
siðarnefndi skauzt framúr á síðustu
metrunum.
Helztu úrslit í mótinu urðu annars
þessi:
110 metra grindahlaup:
Jón S Þórðarson, ÍR 1 5,3
Björn Blöndal. KR 15,3
100 metra grindahlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir, ÍR 14,4
Lára Sveinsdóttir, Á 14,9
Langstökk:
Friðrik Þ Óskarsson, [R 6,94
Kúluvarp:
Hreinn Halldórsson, KR 20,52
Elías Sveinsson, KR 14,57
Hástökk:
Guðmundur R. Guðmundsson.
FH 1,90
Hafsteinn Jóhannesson, UBK 1,90
100 metra hlaup:
Björn Blöndal, KR 1 1,2
Sigurður Sigurðsson, Á 11,3
Kringlukast:
Óskar Jakobsson, ÍR 58,99
Elías Sveinsson, KR 48,16
Ólafur Unnsteinsson HSK 37,02
(Þess má geta til gamans að Ólafur
Unnsteinsson er nú að hefja sitt 26. ár
sem keppnismaður i iþróttum. Geri
aðrir betur!)
100 metra hlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir, ÍR 12.4
Sigurborg Guðmundsdóttir Á, 13,1
Langstökk kvenna:
Lára Sveinsdóttir, Á 5,16
Svanhildur Gunnarsd , Á 4,35
Kúluvarp kvenna:
Gunnþórunn Geirsd . UBK 11,02
Ása Halldórsdóttir, Á 10,95
1500 metra hlaup:
Ágúst Ásgeirsson. ÍR 4:01.7
Sigurður P Sigmundsson. FH 4:14,5
800 metra hlaup kvenna:
Ragnhildur Pálsdóttir, KR 2:27,8
Thelma Björnsdóttir, UBK 2:29,3
— Stjl.
Tveir sterkir, Hreinn Halidórsson
og Guðni Halldórsson.
eftir keppnina í fyrrakvöld, — en ég
vonast þó til þess að ég eigi töluvert
inni, og nái betri árangri á næstunni.
Ekkert vafamál er að Hreinn er nú
mun betri en hann hefur nokkru sinni
verið Bæði er „sprengikrafturinn" I
útskastinu hjá honum orðinn mjög
góður, og eins hefur tækni hans batn-
að til muna Þarf það ekki að koma á
óvart, þótt Hreinn sigrist fljótlega á 21
metra múrnum.
Óskar Jakbosson er einnig í glfur-
legri framför — orðinn enn sterkari en
hann var og líklegt verður að teljast að
hann kasti vel yfir 60 metra í sumar —
jafnvel ógni íslandsmeti Erlends Valdi-
marssonar. Er það sannarlega til-
hlökkunarefni að sjá þá leiða saman
hesta slna, en Erlendur hefur enn ekki
getað hafið keppni vegna meiðsla. En
hann mun vera I ágætri æfingu og til
alls Ifklegur
HREINN Halldórsson, KR og Óskar
Jakobsson, ÍR, unnu langbeztu af-
rekin á EÓP-frjálsIþróttamótinu sem
fram fór á Melavellinum I fyrrakvöld
vi8 hin óhagstæðustu skilyrSi.
VarpaSi Hreinn kúlunni 20,52 metra
og Óskar ná8i slnu bezta I kringlu-
kastinu, kastaSi 58,99 metrS. Bæði
eru þessi afrek stórglæsileg, sérstak-
lega þegar tekiS er miS af þv! a8
rigning var og fremur kalt I veSri er
mótiS fór fram, og atrennuhringir
voru sleipir, og þar ekki nægjanlega
góSa spyrnu a8 fá.
— Ég er eftir atvikum ánægSur
meS þetta. sagSi Hreinn Halldórsson
I sókn I slðari hálfleiknum, en Þórs-
urum tókst aldrei að ná virkilegri
pressu á Valsmarkið Á 52. mlnútu
fengu Þórsarar siðan rothöggið. Atli
Eðvaldsson sendi þá fallegan stungu-
bolta á Inga Björn, sem skoraði af
miklu öryggi Margir töldu Inga Björn
Þór— Valur 0:2
v_________________________________
rangstæðan, þar á meðal varnarmenn
Þórs, en við dómarann varð ekki déilt.
Það sem eftir lifði hljóp aukin harka I
leikinn og upp úr sauð fimm mínútum
fyrir leikslok Guðmundur Þorbjörns-
son sneri þá einu sinni sem oftar á
Gunnar Austfjörð. Gunnar elti Guð-
mund uppi og braut gróflega á honum
svo hann féll við Dómarinn stöðvaði
leikinn og hugðist bóka Gunnar.
Guðmundur spratt þá upp og kastaði
möl í andlit Gunnars og fékk þess í
stað að sjá rautt spjald, brottrekstur.
Við þetta logaði allt í átökum leik-
manna og lyktaði með því að Gunnar
fékk einnig að líta rauða spjaldið og
Einar Sveinbjörnsson það gula.
Ljótt atvik, Gunnar og Guðmundi til
vansæmdar.
Það fór ekki á milli mála að Vals-
menn voru sterkari á vellinum og sigur
þeirra því sanngjarn. Valsarar reyndu
oftast að spila boltanum á milli sín og
tókst það á tíðum allvel, einkum þó í
síðari hálfleik þegar þeir nýttu kantana
STERKU MENNIRNIR
LÉTU AÐ SÉR KVEÐA
Verðskuldað-