Morgunblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNI 1977
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvernig get ég dregizt nær Drottni I bæninni?
Bæn er andleg reynsla, og þekking og kunnátta í
hverri grein fæst með æfingu. Bezta aðferðin til að
læra að biðja er að biðja. Ég finn, að því meir, sem
ég bið, þeim mun eðlilegra er að biðja. Á hliðstæðan
hátt getur líf okkar orðið snautt að bæn. Ef við
iðkum ekki bænina, hnignar bænalífið okkar, og
árangurinn verður sá, að okkur finnst við vera
„fjarri“ Guði. Bíblían segir: „Nálægið yður Guði, og
þá mun hann nálgast yður“ (Jak. 4,8). Hann skund-
ar þeim til hjálpar, sem hefja helgar hendur til hans
í bæn. Þar sem tveir eða þrír eru saman komnir í
nafni hans, þar er hann mitt á meðal þeirra, segir
Biblían.
Gætið að því, að bæn er meira en orð. Hugur
verður að fylgja máli, ef bænin á að ná huga Guðs.
Minnizt þess líka, að bæn er samtal tveggja aðila, og
hér varðar mestu, að við leggjum hlustir við því,
sem Guð vill segja við okkur.
Guðbergur sýnir í Eyjum
— Fredrich
Irving
Framhald af bls. 3
Caeter forseti og Menley, forsætis-
ráðherra Jamaica, eru báðir stað-
ráðnir í að bæta þar um og af
einhverjum ástæðum telja menn í
Washington, að við hjónin getum
átt þátt í því að koma á bættum
samskiptum. Við teljum bæði að í
þessu tilviki hafi sú reynsla, sem við
fengum á íslandi, vegið þungt á
— Niðurstöður
Framhald af bls. 2
elektrísk) breyting yröi á mót-
stöðu milli handar rann-
sakandans og snertiflatar á
ta;kinu, og þegar jákvæð svörun
yrði mætti heyra þessa breytingu.
Kvað Guðmundur þessa aðferð
mikið notaða í lífefnafræði nú á
dögum og tilgangur hans með því
að fá konuna hingað hefði verið á
fá fram betra módel af eðli
Kröflusvæðisins en nú lægi fyrir.
— Boða verkfall
Framhald af bls. 32
ingsaðila án samþykkis þess aðila,
sem samið hefur verið við svo
lengi, enda hljóti verkalýðsfélög
að semja um það sín á milli, ef
þau vilja flytja samningsrétt milli
félaga.
Hjá Reykjavíkurborg vinna nú
8 línumenn, sem eru ekki opin-
berir starfsmenn, og hefur sú
skipan staðiö í áratugi, að línu-
menn, sem ljúka tilteknum nám-
skeiðum, verði fastir starfsmenn
borgarinnar.
Að lokum tóku samningamenn
borgarinnar fram, að ekkert væri
því til fyrirstöðu að ræða öll
samningsatriði við Félag ís-
lenzkra rafvirkja og hefði borgar-
ráð þegar í stað, eftir að kröfur
félagsins bárust, falið þeim aðil-
um, sem um árabil hafa annazt
samninga við félagið, að gera það
í þessum samningum.
Morgunblaðið spurðist fyrir um
þetta mál meðal forystumanna
rafvirkjanna, en þeir vildu ekkert
tjá sig um málið í gær, sögðu að i
dag yrðu fundir um þessa verk-
fallsboðun og áður vildu þeir ekk-
ert segja.
Firmakeppni
Mjölnis
Skákfélagið Mjölnir mun dag-
ana 2., 6. og 9. júní halda fyrstu
firmakeppni félagsins. Teflt verð-
ur í Fellahelli í Breiðholti og
verða þar tefldar stuttar skákir.
Byrjað verður að tefla kl. 7.30
hvern kepnnisdag. Munu margir
af sterkustu skákmönnum Mjöln-
is tefla i mótinu. 50 fyrirtæki hafa
skráð sig til þátttöku, og verður
nánar greint frá úrslitum mótsins
síðar.
metunum og við erum ákaflega
þakklát okkar mörgu vinum þar,
sem gerðu það að verkum að vel
gekk að rækja skyldurnar á íslandi
Þetta nýja starf er mjög mikilvægt
og erfitt og við hlökkum til að takast
á við vandamálin Hér er mjög stórt
sendiráð, alls um 160 manns, og
eru þar með taldir 100 sjálfboða-
liðar úr Friðarsveitunum Þess má
einnig geta, að I sendiráðinu hér
starfar annar maður, sem var á
íslandi, hjá okkur, Eugene Scasa,
hann hefur verið hér i þrjá mánuði
þannig að það virðist vera að menn
fari frá Íslandi til Jamaica ."
Við spurðum sendiherrann hvort
hann teldi að það gæti verið af
veðurfarslegum ástæðum en hann
hló og sagði að þau hjón og öll
fjölskyldan söknuðu íslands og allra
vinanna mjög mikið, dvöl þeirra hér
hefði verið sérstaklega ánægjuleg.
Frú Irving sagði okkur í lokin. að
hún hefði setið hádegisverðarboð
með klúbbi tslenzkra kvenna !
Washington áður en hún fór til
Jamaica og færi í annan hádegis-
verð með tslenzkum konum þar !
borg á morgun. Þá hefðu þau hjón
fengið nöfn Islenzkra hjóna, sem
búsett eru í Kingston, og myndu
þau hafa samband við þau strax og
þau flyttu i júlibyrjun. Sagði frú
Irving að allir i fjölskyldunni væru
við beztu heilsu og bað fyrir kveðjú
til allra vina á íslandi, og mælti þá á
góðri íslenzku.
— Hótelgestir fá
matarpakka
Framhald af bls. 32
arar meðferðar á þeim. Við telj-
um að illa sé farið með þetta fólk,
sem er undirstaða hótelanna og
það ber hvorki ábyrgó né sök á
þessu ástandi.
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri á Hótel Sögu, kvað hótel sitt
mundu bjóða gestum sínum upp á
að nesta sig daginn áður þ.e.a.s. í
dag. Þorvaldur Guðmundsson í
Hótel Holt kvað hótelið mundu
sjá til þess, að enginn gesta þess
yrði að svelta. Við erum til þess að
þjóna gestum okkar, sagði Þor-
valdur, og við munum reyna að
veita eins góða þjónustu og að-
stæður leyfa. Það eru engir erfið-
leikar svo miklir að ekki sé unnt
að yfirstíga þá — sagði hann.
Eins og áður sagði hefur verið
gerður kjarasamningur við þjóna.
Þjónar hafa eins og kunnugt er
15% af seldri þjónustu hótela og
veitingahúsa í þjónustugjald.
Hins vegar hafa þeir haft 30%
þjónustugjald á stórhátíðum, þ.e.
á páskadag, 17. júní, aðfangadags-
kvöld, jóladag og gamlársdag.
Þeir hafa haft 20% þjónustugjald
á nýársdag, skírdag, föstudaginn
langa, annan í páskum, 1. maí,
uppstigningardag, annan í hvíta-
sunnu og annan í jólum. Þær
breytingar, sem nýi kjarasamn-
ingurinn felur í sér, er að þjónar
fá nú 30% þjónustugjald á hvfta-
sunnudag — var 20% áður, og
20% þjónustugjald á sumardag-
inn fyrsta — var 15% áður. Tekið
skal fram, að gjaldskrá veitinga-
húsanna er föst, þannig að hlutur
þjóns i útseldri þjónustu eykst
þessa hátíðisdaga á kostnað
veitingahúsanna.
Þá fengu þjónar ýmsar leiðrétt-
ingar að auki, svo sem aukna fata-
peninga og einnig voru gerðar
orðalagsbreytingar á kjarasamn-
ingi þeirra.
— Fallizt á kröfu
Framhald af bls. 1
sumir hermennirnir nú um það
bil að snúa aftur og hafa þeir með
sér mikið af hergögnum sem þeir
hafa tekið. Meginhluti hersins,
sem tók þátt í fyrstu árásinni á
Mozambique á sunnudag, á þó
enn i bardögum.
Opinberir aðilar í Ródesiu hafa
ekki viljað segja eitt orð um fyrir-
ætlanir eða núverandi stöðu
fallhlífarsveitanna, sem Ródesíu-
menn segja að hafi tekið bæinn
Mapai um 75 kílómetra fyrir
innan mózambisku landamær-
anna, eyðilagt fjórar búðir skæru-
liða og drepið 37* þeirra.
LAUGARDAGINN 4. júnl opnar
Guðbergur Auðunsson málverka-
sýningu í Vestmannaeyjum. Sýn-
ingin verður til húsa í AKÓGES,
og verður hún opin frá kl. 2—10
dagana 4.—7. júní.
Á sýningunni sýnir Guðbergur
rúmlega 25 myndir, málverk og
teikningar. Myndirnar eru allar
til sölu, að undanteknum þrem
myndum sem eru í einkaeign.
Guðbergur Auðunsson stundaði
nám við Kunsthaandværker-
skolen í Kaupmannahöfn
1959—1963, en hefur síðan starf-
— Iðnaðarmenn-
irnir einir eftir
Framhald af bls. 32
á okkur, höfum sett ákveðin
skilyrði fyrir samþykkt sérkrafn-
anna, þannig að standi atvinnu-
rekendur sig ekki gagnvart
þrýstingi þessara hópa, er allt
laust.“
Þegar Iðja hafði lokið við gerð
sérkröfusamkomulagsins í gær
luku kiötiðnaðarmenn einnig
gerð samkomulags á sama grund-
velli. Félagatal þeirra félaga sem
þá hafa lokið sérkröfum er:
Starfsstúlknafélagið Sókn 1.900,
Félag kjötiðnaðarmanna 80,
Landssamband iðnverkafólks
3563, Verkamannasamband
íslands 18,846, Landssamband
íslenzkra verzlunarmanna 8.917
og Félag íslenzkra hljómlistar-
manna 391 félagsmaður. Siðast-
nefnda félagið átti i gær eftir að
skrifa undir sérkröfusamkomu-
lagið.
Samkomulagið, sem vinnuveit-
endur undirrituðu við Landssam-
band iðnverkafólks, fól í sér þær
breytingar, að taxtar allra flokka
eftir 9 mánaða starf hækka um
2.3% og er þessi breyting metin
að sem teiknari bæði hérlendis og
erlendis. Hann hefur m.a. staifað
við auglýsingateiknun í New
York 1964—1965.
Guðbergur stundaði nám i mál-
un í Myndlista og handiðaskóla
íslands síðastliðinn vetur. Kenndi
hann einnig um tima við aug-
lýsingadeild skólans.
Sýning Guðbergs i Vestmanna-
eyjum opnar kl. 2 þann 4. júní, og
vonast listamaðurinn til þess að
sem flestir Eyjabúar komi til að
skoða myndir sínar. Aðgangur er
öllum frjáls og ókeypis, — og öll-
um boðið að koma.
sem 0,4% kauphækkun hjá iðn-
verkafólki. í öðru lagi er gert ráð
fyrir að í samninga komi nýr taxti
eftir 2ja ára starf og verði hann
2.3% hærri en núgildandi taxti
eftir 3 ár og falli sú aldurs-
hækkun niður. Þessi breyting er
metin jafngildi 1,0% kaup-
hækkunar hjá iðnverkafólki. í
stað taxtans eftir 3 ár komi síðan
nýr taxti eftir 4 ára starf, sem
verði 2,1% hærri en taxtar eftir 2
ár. Þessi breyting er metin jafn-
gildi 0,8% kauphækkunar hjá
iðnverkafólki. í fjórða lagi eru
svo ákvæði um að laun bifreiða-
stjóra hjá gosdrykkjaverksmiðj-
um og ölgerðum, sendibílstjóra og
lagermanna verði samræmd
launum félagsmanna i sambæri-
legum störfum hjá öðrum
félögum. Er þessi siðasta breyting
metin jafngildi 0,3%
kauphækkunar hjá iðnverkafólki.
Samkvæmt því sem einn af for-
ystumönnum vinnuveitenda
skýrði Morgunblaðinu frá i gær
er nú allmikið farið að standa á
iðnaðarmönnum við afgreiðslu
sérkrafnanna og var greinilegt að
menn höfðu i röðum beggja
samningsaðila miklar áhyggjur af
framþróun sérkrafna þeirra.
Mikil fundahöld voru á Loftleiða-
hótelinu í gær. Fundur var með
járniðnaðarmönnum, linu-
mönnum, rafvirkjum og Reykja-
víkurborg, matreiðslumönnum,
iðnverkafólki, verzlunarmönnum
vegna hótelafgreiðslufólks, kjöt-
iðnaðarmönnum, verzlunar-
rajjnnum starfsfólki veitingahúsa
og loks klukkan 21 átti að verða
fundur með aðalsamninga-
nefndum vinnuveitenda og
Alþýðusambandsins.
Kjötiðnaðarmenn eru eini
iðnaðarmannahópurinn, sem gert
hefur samkomulag um sérkröfur
til þessa.
— Hörð gagn
gagnrýni
Framhald af bls. 1
Dick Mulder krafðist þess að
skæruliðarnir slepptu veika
manninum og ófrískri konu, svo
að þau kæmust undir læknishend-
ur. Á þessu stigi málsins greip
einn skæruliðanna símann og
hafnaði kröfunni. Mulder ítrekaði
kröfu sina og benti á að skærulið-
arnir stefndu lífi gisla sinna í
hættu, sérstaklega þessara
tveggja. Létu skæruliðarnir það
sem vind um eyru þjóta og skelltu
á. Sjúkrabillinn var látinn koma
til baka og vonir stjórnarinnar
um að fá skæruliðana til eftirgjaf-
ar rýrnuðu verulega.
Þjóðhagsstofnun:
Hækkunartillögur sjó-
manna þýða að meðal-
tali 9,7% nú, 17,7% að ári
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur
reiknað vegna meðalhækkun
eftir veiðarfærum samkvæmt
tillögum Sjómannasambands
Islands og Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands um
hækkun núgildandi grunn-
prósenta frá og með 15. maí nú
í ár og eins eftir eitt ár.
Hækkanirnar eru misjafnar
eftir stærð skipa og er tillaga
um hækkun yfirleitt meiri
þeim mun stærra sem skipið er.
Samtals er hækkunartillagan á
öllum veiðum nú 9,7%, en að
ári 17,7%.
Samkvæmt þessum út-
reikningum Þjóðhagsstofnun-
ar, sem Morgunblaðinu hefur
borizt í fimm töflum, er
hækkunin á línu nú 5.7% en að
ári 12,2%. Á netaveiðum er
hækkunin nú 6,8%, en að ári
13,4%. Á botnvörpuveiðum er
hækkunin nú 6,7% en 12,7% að
ári.Á dragnót er hækkun nú
7.1%, en að ári 13,8%. Hækkun
á þorsknót er nú 5,9%, en að ári
11,8%. Spærling'svarpa hækkar
samkvæmt tillögunum nú um
8,9% en að ári um 12,5%. Til-
laga um hækkun á grunn-
prósentu sé veitt með rækju-
vörpu er 4,9% nú ern að ári
8,3%. Ef um hörpudiskveiðar
er að ræða er hækkunin nú
5,7%, en að ári 11,4%. Humar-
vörpuveiðar gera ráð fyrir
12,3% hækkun nú, en 17,1 % að
ári.
Hækkunartillaga um grunn-
prósentu á síld- og kölmunna-
veiðum með hringnót er nú
13,1 % en að ári 12,1 %.
Hækkunartillaga um rek-
netaveiðar er 7,8% nú, en
13,4% á ári. Vegin meðaltals-
hækkun báta án loðnuveiða
gefur því hækkunina 7,5% nú
en 14,3% að ári.
Ef bátar eru á loðnuveiðum
með hringnót, er gert ráð fyrir
að grunnprósentan hækki nú
um 12,1%, en að ári um 24,0%.
Ef hins vegar loðna er veidd i
fiotvörpu er tillagan nú 6,8%
en 12,9% að ári.
Hækkun grunnprósentu á
minni skuttogurum er nú sam-
kvæmt tillögum Sí og FFSÍ
11,1% en að ári 19,6%. Á stærri
skuttogurunum er tillaga um
hækkun nú 17,0% en 24,4% að
ári.
Sé rætt um prósentuhækkun
aflaverðlauna á togurum, sem
stærri eru en 500 brúttórúm-
lestir er hækkun frá gildandi
samningum hjá skipstjóra
21,9%, hjá 1. stýrimanni 22,0%,
hjá 2. stýrimanni 21,7%, hjá
loftskeytamanni 21,7%, hjá 1.
vélstjóra 22,0%, hjá 2. vélstjóra
21,8%, hjá 3. vélstjóra 21,4%,
hjá bátsmanni 40,6%, hjá mat-
sveinum 40,6%, hjá netamanni
29,7%, hjá háseta 21,9% Meðal-
talshækkun miðað við 24ra
manna áhöfn er 24,4%.