Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977
Upptökur hafnar á leikgerð sögunnar í útvarpi
í ÚTVARPINU eru nú hafnar upptökur á framhaldsleikriti f
fjórum þáttum, sem Guómundur Danielsson rithöfundur hefur
gert eftir skáldsögu sinni, Hrafnhettu. Af þessu tilefni ræddi
hlaóamaður Morgunblaðsins stuttlega við Guðmund.
Guðmundur sagði, að stuttu
eftir að Hrafnhetta kom út, árið
1958, hefði Haraldur Björnsson
leikari komið að máli við sig og
bent sér á, að'sagan væri einkar
vel til þess fallin að verða
endurskrifuð sem leikrit. Það
varð þó ekki af því, að leikgerð
væri skrifuð og fyrir um það bil
tólf árum las Guðmundur sög-
una i útvarp i óbreyttri mynd.
Það var svo fyrir tveimur ár-
um, að hann hóf að velta fyrir
sér þeim möguleika að gera
leikverk eftir sögunni. Guð-
mundur sagði, að sig hefi ekki
langað að vinna leikgerðina á
þann hátt sem leikgerðir verka
Halldórs Laxness hefðu verið
gerðar, þ.e. að breyta sögu i
myndröð fyrir svið. Hann gerði
uppkast að leikgerð og var ekki
ýkja hrifinn af árangrinum.
Verkið var allt of langt til flutn-
ings í leikhúsi. Guðmundur
sýndi þó Gísla Halldórssyni og
Klemensi Jónssyni uppkastið
og var það samdómi álit þeirra
að verkið væri í þessari mynd
sérlega vel fallið til flutnings i
útvarpi.
Guðmundur skrifaði nú ann-
að uppkast og skipti verkinu i
fjóra þætti, hafði engan sögu-
mann i verkinu, aðeins kynni.
Þessi gerð leikritsins var síðan
samþykkt sem framhaldsleikrit
og sem fyrr sagði eru upptökur
þegar hafnar. Verður verkið
væntanlega flutt i byrjun vetr-
ardagskrár um mánaðamótin
október-nóvember.
Þess má geta, að ýmsir sér-
fróðir menn á sviði kvikmynd-
unar hafa lýst áhuga sinum á að
gera kvikmynd eftir Hrafn-
hettu og er það að vonum þar
sem sagan er mjög leikræn og
myndræn.
- UJU3III. uillllld.
Leikendur I hinni nýju leikgerð Hrafnhettu við upphaf upptöku ásamt höfundinum, Guðmundi
Danfelssyni.
Áhugi á að kvikmynda Hrafn-
hettu Guðmundar Daníelssonar
Alþingi greiði allt að 126
þús. kr. á mánuði og síma-
og ferðakostnað þingmanns
ÞINGFARARKAUP, þ.e. laun
þingmanna, eru nú á mánuði
218.050 krónur og hækka um
næstu mánaðamót í 226.772 krón-
ur. Hækkunin, sem verður nemur
Nýfundnaland:
Loðnuveiði
ÍSLENZKU loðnubátunum tveim-
ur, sem nú eru við veiðar við
Nýfundnaland, hefur gengið vel
að undanförnu, og f gærkvöldi,
þegar Morgunblaðið ræddi við
Jens Eysteinsson f Catalina, var
Harpa væntanleg þangað með 480
lestir og vitað var að Grindvfking-
ur var kominn með 350 lestir í
gærmorgun.
Sagði Jens, að í upphafi hefðu
batarnir fengið samtals 300 tonn
skammt undan Catalina, en nú
4% og er f samræmi við hækkun,
sem kjaradómur veitti opinber-
um starfsmönnum. Um sfðastlið-
in mánaðamót hækkuðu laun
þingmanna úr 204.299 krónum.
gengur vel
væru miðin meira en sólarhring í
burtu. Grindvíkingur væri búinn
að landa tvisvar af þeim miðum
samtals 1141 'tonni og 95 tonnum
af loðnuhrognum og Harpa 998
tonnum og 58 lestum af hrognum.
Sagði hann, að Grindvíkingur
hefði fengið heldur meira fyrir
hrognin úr síðasta farmi en loðn-
una sjálfa, eða rösklega 20 þús.
dollara fyrir 47 tonn af hrognum
en 19.600 dollara fyrir 578 tonn af
loðnu.
Var það vegna hækkunar kaup-
greiðsluvfsitölu og nam hækkun-
in 6,7%. Samtals hefur þvf þing-
fararkaupið hækkað um 11% frá
þvf f mafmánuði og þar til nú um
mánaðamótin um 22.473 krónur.
Þingfararkaup fá allir þing-
menn, þar með taldir ráðherrar.
Ráðherralaun eru í dag 261.447
krónur og þau hækka um 4% um
mánaðamótin og verða því
271.905 krónur. Laun forsætisráð-
herra eru nú 288.200 krónur og
hækka um mánaðamótin í 299.728
krónur. Launalega hafa ráðherrar
ekki aðrar tekjur frá rfkissjóði,
en Alþingi greiðir þeim þingfar-
arkaup eins og öðrum þingmönn-
um. Samtals hefur þvf ráðherra
nú 488.219 krónur, en hækkar um
mánaðamótin í 507.748 krónur.
Forsætisráðherra hefur nú í rað-
herralaun og þingfararkaup
Framhald á bls. 30.
Auknar framfarir í skák utan
Evrópu speglast í áhuga á að
færa skrifstofu FH)E um set
ÉG TEL Friðrik Ólafsson tnjög hæfan frambjóðanda
til forsetaembættis AIþjóðaskáksambandsins“, sagði
Kanadamaðurinn J.G. Prentice f samtali við Mbl. f
gær, en hann er einn af varaforsetum FIDE nú.
Prentice kvaðst hafa þekkt
Friðrik persónulega allar götur
síðan 1952 og sér blandaðist
ekki hugur um að hann hefði
með fágaðri framkomu sinni
gegnum árin eignazt marga vini
í hópi skákmanna og þeirra sem
að skákmálum vinna. Því
myndu efalaust margir treysta
honum til að fara með embætti
forseta Alþjóðaskáksambands-
ins.
Hins vegar sagði Prentice, að
enn væri rúmt ár til forseta-
kjörsins og' hefði hann heyrt
um tvo eða fleiri frambjóðend-
ur til e.mbættisins auk Friðriks,
þannig að of snemmt væri að
' spá okkru um framvindu mála.
Skáksamband Kanada myndi
efalaust ekki taka ákvörðun í
málinu fyrr en ljóst væri,
hversu margir byðu sig fram og
hverjir það væru.
Þegar Mbl. spurði Prentice,
hvort þessar kosningar myndu
fyrst og fremst snúast um það,
hvort höfuðstöðvar FIDE ættu
að vera áfram í Evrópulandi
eða ekki, svaraði hann: ,,Það
hafa orðið geysimiklar framfar-
ir í skákinni utan Evrópu á
síðustu árum og mér kæmi ekk-
ert á óvart, þótt þessar framfar-
ir endurspegluðust I áhuga á
því að flytja höfuðstöðvar Al-
þjóðaskáksambandsins um
set."
— 0 —
Niutíu og sjö skáksambönd
munu greiða atkvæði við for-
Framhald á bls. 30.
65 þús. tunnur af
síld til Finnlands
og Sovétríkjanna
Heildarverðmœtið 1400 millj. kr.
Síldarútvegsnefnd hefur nú
gengið frá sölu á samtals 65 þús-
und tunnum af saltaðri Suður-
landssfld til Sovétríkjanna og
Finnlands og er heildarverðmæti
þessara samninga 1400 milljónir
króna. Til þess að fullnægja fram-
angreindum samningum þarf um
9.200 lestir af sfld, en alls hefur
verið heimiluð veiði á 25.000 lest-
um af sfld I haust við Suður- og
Suðausturland.
I fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu barst I gær frá
Síldarútvegsnefnd, segir, að hinn
3. júnf s.l. hafi verið undirritaður
í Moskvu fyrirframsagmningur
um sölu á 45.000 tunnum af salt-
aðri Suðurlandssíld til Sovétrikj-
anna, þar af eigi 35.000 tunnur að
vera hausskorin og slógdregin,
sérverkuð síld eða svokölluð
Þrjú fyrirtæki
hafna tilboði
ráðuneytisins
MORGUNBLAÐINU er kunn-
ugt um þrjú fyrirtæki, sem
hafa haft samstöðu um að
hafna tilboði f jármálaráðu-
neytisins um greiðslur á skuld-
um Þörungavinnslunnar. Hafa
fyrirtækin gert fjármálaráðu-
neytinu Ijóst, að þau vilji fá
vexti á skuldarupphæðirnar,
en bjóðast að öðru leyti til að
fallast á að helmingur skuldar-
innar verði greiddur nú og
hinn helmingurinn á næsta
ári. Fjármálaráðuneytið hefur
enn ekki svarað þessu.
I framhaldi af þessu hafði
Mbl. samband við Jón Magnús-
son, formann Félags islenzkra
stórkaupmanna, og spurði
hann, hvort á döfinni væru
einhvers konar samtök kröfu-
hafa í málinu um viðbrögð við
greiðslutilboðum fjármála-
ráðuneytisins. Kvaðst Jón ekki
vita til þess, að samtök á breið-
um grundvelli væru í bigerð,
en hins vegar væri það svo,
eins og fram hefði komið í
Mbl., að mikill urgur væri í
mönnum yfii tilddddd-
edddddedeoðum fjármálaráöu-
neytisins.
„specialsild“, og 10.000 tunnur
heilsöltuð síld. Segir að nokkur
hækkun hafi orðið á söluverðinu
frá fyrra ári. Heildarsöluverð-
Framhald á bls. 30.
Jón L. Áma-
son keppir
í World open
HINN ungi Íslandsmeistari f
skák, Jón L. Árnason, hélt f gær
til Bandarfkjanna til þátttöku f
skákmóti þar. Hér heima hefur
hann að undanförnu teflt sjö f jöl-
tefli við 92 manns og hlotið 88
vinninga, eða 95,65%. Jón vann
85 skákir, tapaði einni og sex lauk
með jafntefli.
Mótið, sem Jón tekur þátt f
vestra, World open, fer fram í
Philadelphiu og stendur til 4. júli
og 8.—18. setpember tekur Jón
þátt f heimsmeistaramóti ung-
linga innan 17 ára, sem háð verð-
ur i Frakklandi. Bróðir Jóns, Ás-
geir Þ. Árnason, tekur i sama
mánuði þátt i heimsmeistaramóti
unglinga, sem háð verður i
Austurrfki.
Stálvík
með
fullfermi
SiglufirAi 27. júnf
Stálvik landar hér i dag 210—220
lestum af góðum fiski og var tog-
arinn með fullfermi þegar hann
kom að landi. Af þessum afla voru
110—120 tonn grálúða.
Þá kom flutningaskipið Vestur-
land hingað í dag með nýja pressu
í Sfldarverksmiðjur rfkisins, og
ennfremur mjölpoka sem verða
notaðir í sumar.
—mj
—
Eru
þeir að
fá 'ann
■
—
MIÐFJARÐARÁ
Á hádegi i gær voru komnir
um 130 laxar á land úr Mið-
fjarðará, en þar hófst veiði 11.
júnf og er veitt með 9 stöngum.
Una Árnadóttir ráðskona í
Laxahvammi sagði okkur, að
sfðasta holl, sem hætti veiði i
gær hefði fengið 43 laxa á
þremur dögum. Sagði hún að
laxinn væri almennt vænn,
9—11 pund og upp I 17 pund.
Sæmilegt vatn er nú orðið í
'anni og töluverður lax genginn
að sögn veiðimanna, en nokkuð
erfitt að fá hann til að taka.
Nokkuð gott veður var í gær,
þurrt en kalt.
LAXÁí KJÓS
„Hér eru menn i sólskins-
skapi,“ sagði Troel Bendtsen
veióivörður í Laxá í Kjós er við
hringdum í hann í gær. 208
laxar voru þá komnir á land frá
10 júní á 10 stangir. Islendingar
og útlendingar eru nú við veið-
ar í ánni, en 1. júlí koma flugu-
veiðimenn erlendir og verða
fram yfir fyrstu vikuna í ágúst.
Troels sagði að laxinn hefði
sjaldan dreifst svo snemma um
alla á og nú og veiddist fiskur
jafnt í neðsta hyl og efsta, þar
sem yfirleitt var ekki veiðivon
fyrr en um miðjan júlí. Miklar
göngur hefðu verið undanfarna
daga og laxinn vænn og útlitið
þvi einkar glæsilegt hvað sem
verður sagði Troels. Hann sagði
einnig að vatnið í ánni væri
mjög gott eftir að hún ruddi sig
i síðustu viku og væri hún i dag
hvers manns hugljúfi og laxinn
mun vænni en á sl. ári.
VlÐIDALSÁ
Gunnlaug Hannesdóttir ráðs-
kona i Vfðigerði við Vfðidalsá
sagði okkur að þar hefðu i
fyrrakvöld verið komnir á land
120 laxar, yfirleitt 10—12
punda fiskar en sá stærsti 18
pund. Veiðimenn segjast sjá
talsvert af laxi en að hann taki
fremur illa, enda hefur verið
kalt í veðri undanfarið og að-
eins 4 stiga hiti I gærmorgun.
Útlendingatimabilið f Víðidalsá
hefst um mánaðamótin og er
veitt á8 stengur.