Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977
29
Að I garði Þorstetns Erlingssonar.
gafst.
Ingólfur Jðnsson ásamt forsætisráðherrahjónunum f Gunnarshoiti.
félaga velkomna í kjör-
dæmi sitt, en síðan sagði
Gunnar Runólfsson land-
græðslustjóri frá umsvif-
um Landgræðslu ríkisins
á staðnum. Morgunkaffi
var drukkið í hinum
fagra trjágarði í
Gunnarsholti í glamp-
andi sólskini.
Frá Gunnarsholti var
ekið að Skógum þar sem
snæddur var hádegis-
verður og staðurinn skoð-
aður. Minjasafnið að
Skógum vakti verðskuld-
aða athygli ferðafólksins, |
og ekki varð það til að
spilla ánægjunni þegar
Þórður safnvörður sett-
ist við orgelið í litlu stof-
unni í gamla torfbænum
og gestirnir tóku hressi-
lega undir með söng. Frá
Skógum lá leiðin í Fljóts-
hlíðina, sem skartaði sínu
fegursta í sumarsólinni.
Komið var við í garði
Þorsteins Erlingssonar
við Hlíðarendakot, en
þaðan var haldið heim á
leið. Komið var til
Reykjavíkur um áttaleyt-
ið, en síðasti áfanga-
staðurinn var undir
Ingólfsf jalli þar sem
ferðalangarnir fengu sér
kvöldbitann.
Ferðafólkið var á öllum
aldri, eins og sjá má af
myndunum hér á sið-
unni, og stóð kynslóðabil-
ið ekki í vegi fyrir því að
það skemmti sér saman
við söng og leiki. Var það
mál manna að þetta hefði
verið sannkölluð sólar-
ferð og hefði sannazt, að
ekki þyrfti að leita langt
yfir skammt.
Meyvant á Eiði og
Ragnheiður Ásgeirs-
dðttir.
Sólar-
varðar
Landsmálafélagið
Vörður fór sumarferð
sína á sunnudaginn var.
Sumarferðin er árlegur
viðburður, og tóku að
þessu sinni þátt f henni
milli 6 og 7 hundruð
manns. Veður var með
eindæmum gott, enda
hafa máttarvöldin
undantekningalftið séð
vel fyrir þeirri hlið máis-
ins.
Lagt var upp klukkan
átta frá Sjálfstæðishús-
inu við Bolholt, og ekið
sem leið lá í Gunnarsholt
til að skoða starfsemina
sem þar fer fram. Þar
bauð Ingólfur Jónsson al-
þingismaður Varðar-
Elzti ferðalangurinn var Gisli Sigurðsson en hann er 87 ára. Sá
yngsti var Helga Björk Vilhjálmsdðttir, sem er nýorðin 3Ja ára. Hér
eru þau ásamt Geir Hallgrtmssyni forsætisráðherra og Anton Birni
Markússyni.
Þeir báru hitann og þungann af
skipulagningu ferðarinnar:
Björgðlfur Guðmundsson for-
maður Varðar, Örn Bjarnason
læknir, Óskar Friðriksson aðal-
fararstjðri, Geir Haiigrfmsson,
Ottð ö. Pétursson, Eínar Guð-
johnsen leiðsögumaður, Gfsli
Jöhannesson, Jðn Grétar Guð-
mundsson og Guðmundur Guð-
mundsson.