Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1977 HEIMSMET í MÍLUNNI Á FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓTI I Bukarest fyrir skömmu setti rúmenska stúlkan Natalia Pi/ramarescu nýtt heimsmest f ei ki-i mflu er hún hljóp á 4:23.8 mfnútum. Bætti hún fyrra met ftölsku stúlkunnar ?aola C:cchi um 5.8 sekúndur. aola Cacchi er fyrrum heims- methafi f 1500 metra hlaupi (4:02,9) og 3000 metra hlaupi (8:56.6), enn hún varð brons- verðlaunahafi í 1500 m. á Ólympíuleikum f Munchen. 0 Á mótum í Svíþjóð hafa þeir Hans Höglund og Ricky Bruch kastað sæmilega langt. Höglund kastaði kúlu 20.02 og Ricky kringlunni 63,60 metra. 0 Silfurmaðurinn frá Montre- al, Austur-Þjóðverjinn Wolf- gang Schmidt, kastaði um helgina 66.86 metra í kringlu- kasti. 0 Ólympíumeistarinn í kringlukasti 1972 Ludvik Dan- ek, sem rui er 40 ára, sýnir engin ellimörk því hann hóf keppnistímabilið með 64,20 metra kasti. Ætlar hann scr áreiðanlega stóran hlut á Evrópumeistaramótinu í frjáls-íþróttum sem haldið verður í heimaborg hans, Prag, á næsta ári. Danek hefur hlot- ið gull, silfur og bronz á Ólym- I píuleikum og gull og silfur á | EvrópumeistaramótUm. 0 En það eru fleiri sem láta aldurinn ekkert aftra sér. Fjórfaldi Ólympíumeistarinn í kringlukasti, Bandarikjamað- urinn AI Oerter, hefur hafið æfingar og keppni að nýju og um helgina kastaði hann kringlunni 62,20 metra. í vetur greindi Morgunblaðið frá þeirri ætlun Oerters að vera meðal keppenda á Ólympíu- leikunum í Moskvu, þá hátt á fimmtugsaldri, en í þeirri frá- sögn var hermt eftir Oerter að hann gerði 'sig ánægðan með 60 metra kast í sumur. „Sá gamli“ virðist því vera á hrað- ari leið upp á toppinn en hann hafði sjálfur spáð. Erfiður róður hjá sundlands- liðinuíátta landa keppninni LANDSLIÐIÐ f sundi fær erfitt verkefni um næstu helgi, en þá fer fram átta-landa keppni f sundlaugunum f Laugardal. Keppt verður f 26 greinum, eifin keppandi frá hverri þjóð keppir f hverri grein. Auk tslands taka þátt f mótinu Noregur, Spánn, Sviss, Skotland, Wales, Belgfa og tsrael. Landsliðið skipa systkinin Þór- unn, Axel og Hermann Alfreðs- börn, öll úr Ægi, Bjarni Björns- son, Ægi, Hafliði Halldórsson, Ægi, Hulda Jónsdóttir, Ægi, Sig- urður Ólafsson, Ægi, Sonja Hreið- arsdóttir, Ægi. Frá Selfossi kem- ur Ólöf Eggertsdóttir, Vilborg Sverrisdóttir úr Hafnarfirði og Ármenningarnir Árni Eyþórsson og Guðný Guðjónsdóttir. Róðurinn verður eflaust erfiður hjá íslenzka sundfólkinu á þessu móti og líkiega verður það hlut- skipti íslenzka liðsins að berjast á botninum. Hefur íslenzka liðið að- eins einu sinni komist f 7. sæti í þessari keppni, það var árið 1973 og þá munaði ekki nema einu stigi að landinn næði 6. sætinu. ísraelar hafa ævinlega verið við hlið íslendinga á botninum í keppninni. Þrátt fyrir að íslenzka liðið verði tæplega oft í verðlaunasæt- um í keppninni má búast við góð- um árangri í nokkrum greinum og ekki er ólíklegt að einhver íslandsmet falli. Mestar likur á því eru í boðsundunum og hjá þeim Þórunni, Sigurði og Sonju. Er Sigurður Ólafsson reyndastur íslenzka sundfólksins, hann hefur tíu sinnum tekið þátt í lands- keppni fyrir íslands hönd, en fimm nýliðar eru í liðinu Guðný, Ölöf, Hulda, Hermann og Hafliði. Við spurðum Guðmund Þ. Harð- arson landsliðsþjálfara að því á dögunum hvernig hann héldi að röðin yrði á mótinu. — Ég hef trú á að Norðmenn sigri, þeir hafa lagt gífurlega vinnu í unglinga- starfið undanfarin ár og byggt sundíþróttina markvisst upp. Þá hefur landsliðsþjálfari þeirra far- ið vftt og breitt um landið til aðstoðar félögunum. Til nokkurra þeirra fremstu hefur hann ekki komist reglulega vegna fjarlægð- ar, en sinnt þeim í staðinn með bréfaskriftum. Auk þess hafa norskir sundmenn gert talsvert af því að æfa í Bandaríkjunum með góðum árangri. — Ætli Skotar verði ekki í öðru sæti, síðan Spánverjar, Belgar, Walesbúar, Svisslendingar, ísra- elar og við rekum trúlega lestina. Ég geri mér engar gyllivonir. Þó svo að við verðum ekki í fremstu röð á þessu móti, þá verður örugg- lega skemmtileg keppni í flestum greinum. Þarna er mikið af fólki, sem keppt hefur í úrslitum á Evrópumótum og ég geri mér von- ir um góðan sundárangur á mót- inu. — Hvað kostar að halda svona mót? — Ég er ef til vill ekki rétti maðurinn til að svara þessu, en Sundsambandið þarf að greiða allt uppihald fyrir landsliðin sjö í þrjá daga hér á landi og það kost- ar talsvert fé. Mér hefur verið sagt að þegar allt kemur til alls verði kostnaðurinn ekki undir 4 milljónum króna. '— SUNDLANDSLIÐIÐ, sem verður f eldlfnunni f átta—landa keppninni um næstu helgi. Frá vinstri: Ölöf Eggertsdóttir, Selfossi, Hafliði Halldórsson, Ægi, Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi, Hulda Jónsdóttir, Ægi, Guðný Guðjónsdóttir, Ármanni, Bjarni Björnsson, Ægi, Sigurður Ólafsson, Ægi, Vilborg Sverrisdóttir, Sundf. Hafnafjarðar, Axel Al- freðsson, Ægi, Hermann Alfreðsson, Ægi, Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi og Árni Eyþórsson, Ármanni. Fyrir aftan Iiðið eru landsliðsþjálfararn- ir Olafur Gunnlaugsson og Guðmundur Þ. Harðarson. (Ljósm. RÁX). „Meðan viö ekki sam- einum kraftana hjakkar alltí sama farínu hjá okkuK7 ALLS EKKI er hægt að segja að sundíþróttin hafi verið f dvala á íslandi undanfarin ár, stöðugt æfir aiistór hópur ungs fólks sund með keppni fyrir augum. Sá hópur er örugglega stærri nú en fyrir nokkrum árum. Eigi að síður drögumst við aftur úr og sennilega er landsiið íslands í sundi nú það lakasta í Evrópu, en hver er ástæðan? — Ástæðurnar fyrir þessu eru margar, en þó er rétt að það komi fram strax taisverðar framfarir hafa orðið f sundinu hér á landi undanfarin ár og landsliðið núna myndi sigra landsliðið frá 1973 í keppni. Hins vegar hafa framfarirnar ekki orðið eins miklar og æskilegt væri og við höfum dregist talsvert aftur úr upp á síðkastið, segir Guðmundur Þ. Harðarson landsliðsþjálfari í sundi, en hann hefur verið manna ötulastur við uppbyggingu sundfþróttarinnar hér á landi sfðasta áratuginn. — I fyrsta lagi má nefna að við höfum ekki nægilega marga hæfa sundþjálfara og í rauninni ekki nógu marga þjálfara í sundfþrótt- ínni til að fylla upp í æskilegar stöður — hvað þá að þeir séu hæfir til starfsins. Aðstaða sund- fólksins er alls ekki nægilega góð, en til að ná árangri þarf sund- maðurinn að æfa allt árið tvisvar á dag. Slíkt gerir enginn maður í fullri vinnu til lengdar. Það er helzt meðan fólkið er í skóla að slfkt er hægt. Okkar afreksfólk er það ungt að allt önnur sjónarmið eru gildandi hjá okkur en f flest- um öðrum íþróttagreinum. Þetta fólk þarf að fá sína sumarvinnu þegar frf er frá skólanum og ég held það væri ekki vitlaus byrjun í sundkþróttinni, ef hið opinbera myndi fást að styrkja íþróttina meira, að borga sundfólkinu unga kaup fyrir að æfa, sem samsvar- aði kaupi í unglingavinnunni. Slíkt getur varla kallazt atvinnu- mennska, heldur greiðsla á vinnu- tapi. — Vegna fámennisins hjá okk- ur, vegna þjálfaraskorts, vegna skorts á tíma og plássi í laugum er nauðsynlegt að taka upp meiri samvinnu til að fá meira út úr hverju þessara liða. í Reykjavík æfa t.d. ekki fleiri sund en hjá meðalstóru félagi úti í heimi. Það myndi án efa verða til mikilla bóta ef einhver aðili, t.d. Sund- sambandið, sameinaði kraftana í íþróttinni á suð-vestur-horninu til samstarfs, ekki aðeins á félags- lega sviðinu, heldur einnig og miklu frekar á þjálfunar- eða tæknisviðinu. Landsliðsþjálfari gæti þá t.d. farið til félaganna og hefði samræmt „prógramm" alls staðar. Eða þá t.d. í Reykjavík að afreksfólkið í félögunum yrði sameinað undir einn þjálfara. — Eins og málum er nú háttað hjakkar allt i sama farinu og með- an við getum ekki sameinað okk- ur i ákveðnum aðgerðum drög- umst við aðeins enn lengra aftur úr. Bandarikjamenn, sem hafa nú helzt verið orðaðir við einkafram- takið, hafa brotið odd af oflæti sínu innan félaganna og sameina nú sitt bezta fólk ákveðinn tíma á ári við æfingar hjá sínum beztu þjálfurum. Þetta ákvað banda- ríska ólympíunefndin að gera eft- ir að kvennalandsliði þeirra fór svo mjög hnignandi eins og raun bar vitni. — Þá er eitt atriði, sem er alveg fyrir neðan allar hellur og ég verð að minnast á. Undanfarna vetur höfum við ekki fengið tíma í Iaug fyrir unglingana fyrr en klukkan 8 á kvöldin. Það er að segja eftir löglegan útivistartfma þeirra, eðlilega háir þetta ungl- ingastarfinu hjá okkur. — Fjárhagserfiðleikar Sund- sambandsins eru miklir og gera það að verkum að starfið verður minna en æskilegt væri og fólkið fær ekki nóg af hvetjandi verk- efnum. Eins og þetta er f dag, þá höfum við 8—landa keppnina ár- lega og síðan Norðurlandamót, Evrópumót og Ólympíuleika á fjögurra ára fresti. Þessi verkefni takmarkast við alltof þröngan hóp og þarna hefur orðið afturför frá því 1968—1973. Þá kepptum við á móti öðrum þjóðum og háðar voru landskeppni með 16—18 manna landsliði gegn þjóðum eins og ír- um, Skotum og Dönum. — Síðastliðið haust gátum við í rauninni setzt niður og valið 10 af þeim 12, sem verða í landsliðinu f 8—landa keppninni um næstu helgi. Þetta er lítið spennandi fyr- ir hina og of auðvelt fyrir þau, sem ganga að landssætum sínum vísum, segir Guðmundur Þ. Harðarson að lokum. Sjálfsagt mætti lengi telja upp vandamál sundfþróttarinnar og þau eru ugglaust fleiri en hér hefur verið drepið á. Það er bara ekki nóg að rekja raunir sínar, það verður eitthvað að gera. Guð- mundur Harðarson er sér fylli- lega meðvitandi um þetta og einn- ig fleiri sundáhugamenn. En væri ekki rétt að fara að ráðum Guð- mundar og reyna að sameina kraftana f stað þess að hver krúnki í sínu horni og félaga- rígurinn fæli jafnvel frá sund- íþróttinni og dragi kraftinn' úr öðrum? -áij Rætt viö Guðmund Þ. Harðarson um vandamál sundíþróttarinnar BMBHII—WM I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.