Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977 5 Undirbúningur að áframhaldandi uppgræðslu í Vestmannaeyjum byrjaði snemma i vor, en sáning og dreifing áburðar hófst um miðjan mai. Hefur verkið gengið einstaklega vel með miklum dugnaði þess fólks sem lagt hefur hönd á plóg- inn. Búið er að sá og dreifa áburði í stór opin svæði og fjöll, t.d. í allt Helgafellið upp í % af hæð fellsins og einnig er búið að sá upp í miðjar hlíðar Eldfellsins, hraunkantinn við Heima- götu og alla kanta flug- brautanna. 90% af þessu verki hefur verið unnið af handafli, því ekki hefur verið unnt að koma við tækjum á þessu svæði vegna bratta. Einnig hefur verið unnið við viðgerðir á svæðum frá því í fyrra. I fyrra var gerð tilraun með að setja niður melgresi úr Botninum í Eyjum og af Eiðinu á nýja hraunsvæðið og hefur það heppnast mjög vel. 20 þús. slikar plöntur voru settar niður á austustu svæðum Heima- eyjar sem lentu undir ösku og er allt að koma upp þar. Plantað var með þeim hætti að hver planta var gróðursett í bréfpoka þar sem Vs hlutinn var mold og afgangur- inn sandur. í vor og sumar er búið að vinna við svæði sem er alls 200 hektarar og í það hafa farið 110 tonn af áburði, 9 tonn af fræi og 7 tonn af gúanómjöli, sem verksmiðjurnar i Eyjum hafa að mestu gefið. Við þetta verk hafa unnið um 50 manns, unnið af einhug við að klæða öskusvæðin í græna kápu i stil eldri hluta Eyjanna. Yfirvinnubann og skyndiverk- föll hafa tafið verkið nokkuð, en ef fer sem horfir, verður ekki langt þar til unnt verður að nytja þessi ræktunarsvæði, en það er talið nauðsynlegt til þess að halda þeim vel við. M.a. hefur Páll Árnason bóndi í Þorlaugargerði komið með hugmynd um gras- kögglaverksmiðju, en nauðsyn er talin að slaka ekki á ræktuninni fyrr en fullur árangur hefur náðst. — á.j. Meðfylgjandi myndir tók Sigur- geir ljósm; Mbl. I Eyjum. Fyrirlest- ur um Há- skóla SÞ í dag, þriðjudag klukkan 17.15, flytur dr. Walter Manshard, einn af aðstoð- arrektorum hins nýstofn- aða Háskóla Sameinuðu þjóðanna, fyrirlestur á vegum Félags S.Þ. um há- skóla þennan og starfsemi hans hvað snertir hagnýt- ingu og stjórnun náttúru- auðlinda. Fyrirlesturinn verður i stofu 102 I Lögbergi og hefst kl. 17.15. Allt áhugafólk er velkomið. Dr. Manshard, sem er kunnur þýzkur raunvisindamaður, er hingað kominn til viðræðna við Islenzk stjórnvöld um Háskóla S.Þ. og hugsanlega þátttöku ís- lands f skólahaldinu. Háskóli S.Þ. tók til starfa 1975 og eru stjórnstöðvar hans I Tokyo. Ekki er hins vegar ráðgert að háskólinn verði að öllu leyti þar eða á neinum öðrum stað. Skólinn er fremur hugsaður sem rann- sókna- en menntastofnun. Eitt af þremur meginviðfangsefnum Há- skóla S.Þ. fyrst um sinn verður hagnýting og stjórnun náttúru- auðlinda og er dr. Manshard yfir- maður starfsemi skólans á þvf sviði. Kvenfólkið gengur rösklega fram f s&ningunni f hlfðunt Eldfellsins, en Sáð f öskusvæðin ofan við bæinn og búið er að sá f hluta af hraunkant- neðar sjást aðrar konur vinna með hrffur. inum sem teygir sig inn f byggðina miðja. vörubifreióastjórar verólækkun á ^miim hjólbördum - ótrúlegt tilboó, sem enginn ætti aó hafna - pantið strax Framhjólamynstur noo X 20/16 - 56.300 1000 x 20/14 - 52.600 900 x 20/14 - 47. 700 825 x 20/12 -36.600 JÖFUR HF. Afturhjólamynstur 1100 x 20/16 - 57.800 1000 x 20/14 - 54.500 900 x 20/14 - 49.200 825 x 20/14 - 39.600 AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SIMI 42600 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.