Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNI 1977
*
GÓÐIR GOLFGESTIR
í HEIMSÓKN HINGAÐ
HINN 16. júlí n.k. koma hingað til lands 10 bestu
atvinnumenn Skotlands í golfi og keppa 4iér við
heimamenn. Langt er síðan íslenzkir kylfingar
fengu áhuga fyrir að koma slfkri heimsókn á, og
undirbúningur hefur staðið lengi.
Ragnar Olafsson og félagar hans f landsliðlnu f golfi voru ekki
meðal keppenda á Evrópumótinu, en hins vegar fð þeir skemmti-
legt verkefni er skozku atvinnumennfrnir koma hingað til lands
um miðjan næsla mánuð.
Hinn 17. júlf feika skotarnir
og Þorvaidur Ásgeirsson við fs-
lendinga á Grafarholtsvelli
þannig að S hverjum riðli verð-
ur einn atvinnumaður ásamt
þrem íslendingum. Leikið verð-
ur eftir kerfinu „besti bolti“
sem er þannig, að á hverri holu
telur sá sem farið hefur á fæst-
um höggum og hver riðill kepp-
ir sem eitt lið.
Mánudaginn 18. júlf verður
einnig keppt á Grafarholtsvelli
og þá keppa atvinnumennirnir
innbyrðis við íslenzka lands-
liðsmenn. Leiknar verða 18 hol-
ur fyrir hádegi og 18 holur sfð-
ari hluta dags. Góð verðlaun,
verða veitt og eru þar bæði
peningaverðlaun og golfáhöld.
Magir þekktir golfmenn eru að
sjðlfsögðu f þessum tfu manna
hópi skota en þekktastur meðal
fslendinga mun vera David
Huish sem er atvinnugolfleik-
ari og kennari á West Links við
Marine hótelið f Skotlandi, en
þar hafa margir fslenzkir kylf-
ingar dvalið.
Stjórn Golfsambands Islands
og Golfklúbbur Reykjavfkur
hafa sýnt skilning og hjálpsemi
við að koma þessari heimsókn
á, en eftirtalin fyrirtæki standa
að þessu Pro-Am móti: Tak h.f.
á Akureyri.lslenzka útflutn-
ingsmiðstöðin h.f. og Flugleiðir
h.f. Þeir kylfingar sem áhuga
hafa fyrir þátttöku f Pro-Am
keppninni hafi samband við
Einar Guðnason c/o Tak h.f.
Akureyri, Óttar Yngvason,
Islensku útflutningsmiðstöð-
inni h.f. eða Birgi Þorgilsson
Flugleiðum f Reykjavfk.
Skotar
Evrópu-
meistarar
SKOTUM tókst að verja
Evrópumeistaratitil sinn f golfi
áhugamanna en EM lauk að
þessu sinni f Hollandi á sunnu-
daginn. I sfðasta leiknum unnu
Skotarnir lið Svfa 5:2. Frakkar
unnU Dani með sömu tölum og
urðu f þriðja sæti, Englend-
ingar unnu Svisslendinga
S‘/i:í'A f keppninni um fimmta
sætið og Italir enduðu f 6. sæti
með þvf að sigra V-þjóðverja
4:3.
Islendingar voru ekki meðal
keppenda á mótinu að þessu
sinni vegna fjárskorts GSt, en
röð annarra þjóða varð þessi:
Wales, Noregur, Spánn, Irland,
Holland, Beigfa, Austurrfki,
Portúgal.
VEL VARIST,
ENGIN MÖRK
Tveir harðir f baráttu um knöttinn,
Ragnar Gfslason og Einar
Friðþjófsson, Karl Sveinsson og
Theódór Magnússon fyrir aftan þá.
LIÐ VÍKINGS, sem er f þriðja sæti f 1. deildinni, lék sinn lakasta leik á keppnistfmabilinu er liðið mætti
Eyjamönnum á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Lið tBV var mun sterkari aðilinn f leiknum og það
var ekki að undra þó ungur Vfkingur sönglaði „sértu stálheppinn...“ á leið sinni út af leiknum eftir að
Vfkingum hafði tekizt að halda jöfnu, 0:0. Það var ekki rismikil knattspyrna sem liðin sýndu að þessu
sinni, en nær allt það skemmtilega f leiknum kom frá Vestmannaeyingum. Hvað eftir annað náði liðið
góðum sóknarlotum, en Vfkingar vörðust vel eins og oftast og tókst að hrinda öllum sóknaraðgerðum
iBV-liðsins.
Það var helzt í byrjun fyrri
hálfleiksins að Víkingar voru eins
og þeir eiga að sér, en eftir um 20
mfnútna leik fór ekki lengur á
milli mála hvor aðilinn væri
sterkari. Þó svo að leikurinn færi
mest fram á miðjunni, þá voru
það Eyjamenn, sem voru þar mun
atkvæðameiri og réðu gangi leiks-
ins. Tómas og Valþór fóru illa að
ráði sinu i góðum færum og Dið-
rik Ólafsson varði meistaralega
gott langskot frá Einari Friðþjófs-
syni, sem stefndi í samskeytin.
Eitt gott marktækifæri áttu
Víkingar í fyrri hálfleiknum, er
Jóhannes Bárðarson komst einn
innfyrir vörn ÍBV undir lokin.
Missti hann knöttinn of langt frá
sér og Sigurður Haraldsson var á
undan honum að ná til knattarins.
Strax á 1. mínútu seinni hálfleiks-
ins fengu Víkingar sfðan bezta
tækifæri leiksins er Theódór
Magnússon stóð skyndilega einn
og óvaldaður um 1 metra frá
marklinu ÍBV. Náði hann ekki að
skjóta, en knötturinn fór þó í fæt-
ur hans og mátti Sigurður hafa
sig allan við að verja. Varð Eyja-
mönnum þarna hált á annars vel
útfærðri „rangstöðutaktik" og
voru ekki nógu fljótir frá marki
sínu, eftir stutta sendingu Vik-
inga úr horni og sfðan fyrirgjöf.
Það voru þó Eyjamenn sem
voru oftar í sókn, en færi þeirra
voru þó ekki ýkja hættuleg. Er
aðeins ein mfnúta var eftir af
leiknum gerðist umdeild atvik í
vítateig Víkinga og þeir voru
margir, sem vildu þá fá víta-
spyrnu. Sigurlás Þorleifsson og
Helgi Helgason lentu þá f árekstri
og féll Sigurlás. Þorvarður
Björnsson dómari var nærstaddur
er atvik þetta átti sér stað og sá
hann ekkert athugavert við atvik-
ið, en ekki voru allir á sama máli.
Lauk leiknum því án þess að
mark væri skorað og vörpuðu Vfk-
ingar öndinni léttar að leik lokn-
um.
Víkingur-ÍBV 0:0
Texti:
Ágúst I. Jónsson
Mynd:
Ragnar Axelsson
Talsverð harka var í þessum
leik og meiddist Viðar Elfasson í
fyrri hálfleiknum og varð hann að
yfirgefa völlinn. Braut Einar
Friðþjófsson gróflega og algjör-
lega að óþörfu á honum, dæmt var
frfspark, en gjarnan hefði einnig
mátt lyfta rauða spjaldinu. Bæði
lið áttu sök á hörkunni, en þó
einkum 2—3 menn í hvoru liði.
Beztu menn liðanna að þessu
sinni voru þeir Óskar Valtýsson
og Tómas Pálsson hjá ÍBV, en
Ólafur og Þórður stóðu einnig fyr-
ir sfnu. Af Víkingum komst Dið-
rik Ólafsson bezt frá þessari við-
ureign, en Magnús Þorvaldsson
var einnig drjúgur. Það vakti at-
hygli að er Viðar Eliasson meidd-
ist kom Theódór Magnússon inn
á. Stóð hann sig hvorki betur né
verr en aðrir leikmenn liðsins, en
var þó kippt útaf á ný er 15 minút-
ur voru eftir. Hefði þó verið næi
að fjarlægja einhvern annan Vík-
ing, þreyttari og lakari.
Ólafur Lárusson þjálfari 1. og 2.
flokks Vfkings, fyrrum leikmaður
með KR, gerði sér það til dundurs
meðan leikurinn stóð yfir að taka
tfmann, sem knötturinn var í leik.
Fékk Ólafur þá útkomu að f alls
55 af mínútunum 90 hefði knött-
urinn verið f leik, en úr leik i
heilar 35 mínútur! ! !
628 áhorfendur sáu þennan
marklausa leik, engináminning
var gefin, en nokkrir leikmenn
aðvaraðir.
VlKINGUR: Diðrik Ólafsson 3, Ragnar Gfslason 2, Magnús Þor-
valdsson 3, Eirfkur Þorsteinsson 1, Kári Kaaber 2, Helgi Helga-
son 2, Róbert Agnarsson 2, Gunnar örn Kristjánsson 1, Viðar
Elfasson I, Jóhannes Bárðarson 1, Hannes Lárusson 1, Róbert
Agnarsson 2, Theódór Magnússon (vm) 1, Gunnlaugur Krist-
fínnsson (vm) 1.
IBV: Sigurður Haraldsson 2, Ólafur SigurvinssoA 3, Einar Frið-
þjófsson 2, Friðfinnur Finnbogason 2, Þðrður Hallgrfmsson 3,
Snorri Rútsson (vm) 1, Valþór Sigþórsson 2, Óskar Valtýsson 3,
Sveinn Sveinsson 1, Tómas Pálsson 3, Karl Sveinsson 1, Sigurlás
Þorleifsson 2, Þórður Hallgrfmsson 3.
DÓMARI: Þorvarður Björnsson 3.
STAÐAN I 1. DEILD STAÐAN I 2. DEILD:
Akranes 10 7 1 2 17:6 15 KA 7 5 1 1 15:7 11
Valur 10 6 2 2 15i8 14 Þróttur, R 7 5 1 1 12:7 11
Víkingur 10 4 5 1 9:7 13 Haukar 7 3 4 0 9:4 10
ÍBV 10 4 2 4 10:9 10 Ármann 7 4 1 2 12:5 9
Breiðablik 10 4 2 4 13:12 10 Reynir, S 7 3 1 3 11:15 7
Keflavfk 10 4 3 3 12:13 11 tBl 7 2 2 3 7:10 6
Fram 10 2 4 4 12:14 8 Selfoss 7 2 1 4 6:8 5
FH 10 3 1 6 12:16 7 Völsungur 7 2 1 4 7:10 5
KR 10 2 2 6 15:18 6 Þróttur, N 7 1 3 3 6:9 5
^ Þór 10 2 2 6 11:21 6 Reynir, Á 7 0 2 5 3:14 1
Lið vikunna
Ómar Guðmundsson, UBK
Óskar Færseth, IBK Jón Gunnlaugsson, lA Þórður Hallgrfmsson, IBV Magnús Þorvaldsson, Vfkingi
Óskar Valtýsson, IBV Þór Hreiðarsson, UBK Atli Eðvaldsson, Val
Karl Þórðarson, IA Gunnar Blondal, KA Tómas Pálsson, IBV