Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977 3 Ferðamennirnir banda- rísku, talið frá vinstri: Cathy Sternberg, Bar- bara Reidhaar, Mark Wolpa og Joan Ciark. komst, þar eð hann er afgreiðslu- maður þar og getur ekki hlaupið langt og þar sem fáir voru í verzl- unarerindum kaus hann að standa á þröskuldi búðarinnar til að ná sér í smá sólarglætu ,,Það er drepleiðin- legt að hanga inni í svona góðu 'veöri," sagði Rúnar A Ingvarsson, sem er átján ára gamall. „Annars hef ég fengið minn sumarauka. því ég er nýkominn frá Spáni." Rúnar kvaðst selja hljómplötur í Karnabæ Þar væru tvær plötur vin- sælastar, önnur með hljómsveitinni Abba og hin með Manhattan Trans- fei\ sem syngja lagið „Chanson d amour" og væru viðskiptavinirnir aðallega á aldrinum fjórtán til tvitugs. P P Reykjavík erengulíkj | FÁTT breytir eins mikið um svip og fólk í miðbænum þegar sólin lætur sjá sig þar eftir þó nokkra fjarvist eins og undanfarið. Á sunnudagsmorgun kom hún upp óvenju broshýr og enn skein hun skært í gær og skulum við vona að á því verði framhald, þvl fáir hafa eins mikla þörf fyrir sólina, sem fjörefnisgjafa eftir langan vetur og einmitt fólkið í miðbæ Reykjavíkur. því einangraðari verður mannssálin i lifsgæðakapphlaupinu. Á írlandi er fólkið enn þá fátækt og broshýrt. Nei, ég hyggst ekki búa á írlandi til langframa — hyggst hvergi búa til langframa á þessari plánetu" — bætti hún við hlæjandi. Og síðan: ..Þessi setning er ekki trúarlegs eðlis og ekkert i þá áttina að himnariki sé eini staðurinn, þar sem ég ætli að búa til langframa, þvi ég hef enga skoðun myndað mér á þvi hvort til sé llf eftir þetta lif og það hefur heldur ekkert að gera með sálar- fræðina, þvl hún er I engu sambandi við trú eins og margir virðast þó álita. þvi i upphafi þessarar aldar hugðust einhverjir sálfræðingar gera hana að þeim visindum, sem hún er ekki." Við fórum að hugleiða þau orð Sue Aylwin, að landarnir góndu beint fram fyrir sig án þess að gefa náunganum nokkurn gaum eftir að Ijósmyndarinn hafði itrekað reynt að festa vegfarendur á filmu, sem hið skjótasta litu undan og gengu m.a.s. svo langt að hlaupa yfir Lækjargót- una á rauðu Ijósi, þegar þeir sáu myndavélinni bregða fyrir. Fyrir utan verzlunina Karnabæ stóð þó ungur maður. sem hvergi Ljósm. Hax. Fátt er vinsælla myndefna en broshýrar blómarósir að spóka sig i góða veðrinu og þær fyrstu sem urðu á vegi Rax Ijósmyndara Morgunblaðsins i gær, voru einmitt tvær slikar, sem kváðust vera að koma úr sundlaug Vesturbæjar. Þær heita Margrét ísdal og Herdís Sveinsdóttir. Sú fyrrnefnda er flug- freyja hjá Flugfélagi íslands og hin er sjúkraliði. „Þegar vel viðrar er ágætt að skella sér i laugarnar Þar er lika nóg af sætum strákum. brún- um og aðlaðandi. En við förum að sjálfsögðu i laugarnar til að ná sama takmarki. ekki bara þeirra vegna." bættu þær við hlæjandi ..Það er blessuð blíðan," tautaði gamall maður með mikið skegg um leið og hann gekk yfir Austurvöllinn. Hann heitir Sígurður Guðmundsson og tjáði okkur að nú væri fremur illt I ári hjá sér, þrátt fyrir bliðvirðið, þar sem hann væri atvinnulaus. „Það er búiðað segja mér upp hjá Eimskipa- félaginu en þar vann ég i þrjátiu og fjögur ár sem vaktmaður Ég verð nú sjötugur i ágúst og þeir hjá Eimskip sögðu mér, að það væri hagræðing fyrir þá ef ég færi. Þannig að nú verðum við hjónin að lifa á ellilifeyr- inum einum saman, sem er tuttugu og þrjú þúsund á mánuði Þá hef ég einnig verið slæmur til heilsunnar hin siðari ár. þjást af vöðvarýrnun og ekki bætti það úr skák að ég varð fyrir árás á vakt I fyrra." Sagði Sigurður siðan, að nú væri hann að leita sér að atvinnu við vaktmanns- störf til að geta séð sér og konu sinni farboða og skulum við vona að honum vegni vel I þeirri leit. í Austurstrætinu stóð kona dökk yfirlitum og broshýr, og alls ófeimin við Ijósmyndarann. þannig að við reiknuðum með að hún væri fremur gestkomandi hér á landi en íbúi Og sú ágizkun reyndist rétt. Konan er ensk að ætt og uppruna, heitir Sue Aylwin og er sáifræðiprófessor við háskólann I Cork á írlandi. Kom hún til íslands i fyrradag ein sins liðs og hyggst staldra hér við í þrjár vikur Sagðist hún vera sérlega hrifin af húsþökum hér i bæ. þ.e. bárujárnsþökunum, og hvernig lit- um þau væru máluð i. Ástæðuna fyrir þvi að hún valdi ísland til að ferðast um I sumarleyfi sinu, sagði Sue vera þá sömu og að hún hefði valið írland til búsetu. „islenzku fornsögurnar hafa heillað mig alla tið og sú sérkennilega menning, sem fylgir sögu landsins. Ég hef hugsað mér að fara og sjá almenna ferðamannastaði eins og Gullfoss og Geysi og ganga mikið um, þvl skemmtilegasti ferðamátinn er að nota fæturna." Sue Aylwin kvaðst hafa kennt sálarfræði við Cork- háskóla siðastliðin fjögur ár. en þangað hefði hún komið frá New- castle ( Englandi, þar sem hún ólst upp og stundaði nám. „Já. ég kann mjög vel við mig á írlandi og kann vel við fólkið, sem er vingjarnlegt og gott við náungann Það skynjar og veit að náungakærleikurinn borgar sig, þvl maður er manns gaman og sá greiði, sem maður gerir náungan- um er yfirleitt endurgoldinn. Það hafa verið mér ofurlitil von- brigði að sjá hversu ólikir islending- ar erum írum á þann veg, að þeir lita ekki á mann á götu, heldur horfa beint fram fyrir sig án þess að gefa náunganum gaum Kannski er munurinn fólginn i almennari vel- megun hér en þvl meiri, sem hún er. Herdls Sveinsdóttir og Margrét tsdal. Sigurður Guðmundsson. Sue Aylwin. m,m If m „Sést það á okkur að við erum túristar?" spurðu þrjár stúlkur og einn maður, sem svar við spurningu okkar. Við þurftum þó ekki að spyrja hvaðan þvi hreinurinn var auð- heyranlega upprunninn vestan frá Brandarlkjunum. Þau kváðust þvi miður ekki staldra lengur við hér á Islandi en einn sólarhring á leið sinni til Evrópu, nánar tiltekið til Luxembourgar og London og þaðan áfram yfir eins mörg lönd megin- landsins og tækifæri leyfir. Stúlkurnar eru allar frá Idahofylki en maðurinn læknir frá San Francisco. Kváðust þau hafa kynnzt I flugvélinni á leiðinni frá New Vork. „Reykjavik er engu lik. svo yndis- lega hrein og skemmtileg borg." sagði ein stúlknanna sem er Ijós- myndari og hin tóku undir. w Rúnar A. Ingvarsson. RABBAÐ VIÐ FÓLK Á FÖRN- UM VEGI í SÓLINNI í GÆR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.