Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977
7
r
„Söguleg
yfirlýsing”
Þjóðviljinn segir í upp-
hafi leiðara sl. laugardag:
„Aðalmálgagn ríkisstjórn-
arinnar, Morgunblaðið,
birti í gær sögulega yfir-
lýsingu. Það tilkynnir að
rlkisstjómin hafi i reynd
gefizt upp í baráttunni við
verðbólguna..... Hvert
mannsbarn veit, að hækk-
un tilkostnaðar i fram-
leiðslu leiðir til hærra
verðs framleiðslunnar; að
nýgerðir kjarasamningar
eru verðbólguhvetjandi og
þýða óhjákvæmilega
meiri verðbólgu i landinu
en verið hefur um sinn.
Þetta er viðblasandi stað-
reynd. Það að eygja stað-
reyndir og þora að horfast
i augu við þær er hins
vegar ekki það sama og
að gefast upp fyrir þeim.
Þvert á móti. Þeir sem
loka augunum fyrir við-
blasandi staðreyndum
efnahagslífsins eru nær
I________________________
uppgjöfinni. Raunsæi er
betra en blinda þegar
framundan er torfær leið
og erfið yfirferðar.
Samningarnir
77 og 74
Alþýðubandalagið var i
ríkisstjórn árið 1 974 þeg-
ar hinir frægu febrúar-
samningar voru gerðir.
Hverjir gáfust þá upp fyrir
óraunhæfum kjarasamn-
ingum? E.t.v. mundi verð-
lagsmálaráðherra Alþýðu-
bandalagsins i vinstri
stjórninni siðari vilja upp-
lýsa, hvers vegna visitala
kaupgjalds i landinu var
tekin úr sambandi i kjölfar
þeirra samninga? Afnám
kaupgjaldsvisitölu var þó
bein afskipti af gjörðum
kjarasamningi á frjálsum
vinnumarkaði, þann veg
að kaup hækkaði ekki
lengur til samræmis við
verðlag, óðaverðbólguna.
sem vinstri stjómin hafði
leitt yfir þjóðina. - Máske
þessi sami Alþýðubanda-
lagsráðherra vilji jafn-
framt upplýsa, hvers
vegna hann sem yfirmað-
ur bankamála stóð með
samráðherrum sinum að
gengislækkun i vinstri
stjórn, að söluskatts-
hækkun, að verðjöfnunar-
gjaldi á raforku, sem allt
leiddi til rýrnunar kaup-
máttar launa og — ásamt
afnámi visitölunnar —
tók nýgerðan kjarasamn-
ing „úr sambandi"? Slíkar
gjörðir vinstri stjórnar,
með aðild Alþýðubanda-
lagsins, voru sennilega
ekki „uppgjafartilkynn-
n
« SIÐA — ÞJÓDVILJINN U«|irfcp» t». jtri mi
MOÐVIUINN
UPPGJAFAR-
TILKYNNING
Aðalmálgagn rikisstjómarinnar, Morg-
unblaðið, birti i gær sögulega yfirlýsingu.
Það tilkynnir að rikisstjómin hafi i reynd
gefist upp i baráttunni við veröbólguna.
Rikisstjómin hafi ekki lengur nein ráö við
ingar"? Ekki heldur þá er
vinstri stjómin gafst
endanlega upp fyrir verð-
bólguvandanum, sem hún
hafði vakið upp. og sagði
hreinlega af sér?
Hörundsflúr
Alþýðubanda-
lagsins
Alþýðubandalagið stóð
einnig að hinni fyrri
vinstri stjórn. Sú stjóm
sat heldur ekki út sitt
kjörtimabil. heldur gafst
upp á miðri leið! Það er
eftirtektarvert, hvar
„ uppgjaf a rtilky nning"
þeirrar ríkisstjórnar var
upp lesin. Það var á þingi
Alþýðusambands jslands,
heildarsamtaka verka-
lýðsins i landinu. Sú
stjórn taldi sig ekki geta
lifað kjörtimabilið á enda.
nema að til kæmu kjara-
■-i»ncir« efnahaes-
legar fómir verkafólks til
að leysa þeirrar tiðar verð-
bólguvanda. Verkalýðs-
hreyfingin neitaði. Og
vinstri stjórnin, með Al-
þýðubandalagið innan-
borðs, gafst upp. Það var
hin fyrri „uppgjafartil-
kynning" Alþýðubanda-
lagsins. Þessar umræddu
vinstri stjómir héldu ekki
heilsu nema nærast á
„kjaraskerðingu". sem þá
hét að sjálfsögðu ein-
hverju öðru og geðþekk-
ara nafni.
Það sýnir hins vegar
seinheppni Þjóðviljans að
velja leiðara sinum ein-
mitt þetta nafn: „Upp-
gjafartilkynning".
Reynslan sýnir nefnilega
að sú stjóm, sem hefur
Alþýðubandalagið innan-
borðs, hefur „uppgjafar-
tilkynninguna" einnig til
staðar. Hún er hörunds-
flúruð á bakhluta Alþýðu-
bandalagsins!
Meó stærra og rúmbetra húsnæói er okkur unnt aö veita mun betri
þjónustu en áóur.
Verió velkomin, lítió inn eóa hringió, símanúmerin eru þau sömu
24460 & 28810
Bílaleigan GEYSIR
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
AÐSTOÐ VIÐ INNFLUTNING
Get aðstoðað innflytjendur við að innleysa
vörusendingar — þóknun er lögleg heildsölu-
álaging á hverjum tíma.
Þeir sem áhuga hafa á framangreindu vinsam-
legast sendi tilboð til Morgunblaðsins merkt:
Beggja hagur No. 6063.
KOMMÓÐUR
4 SKÚFFUR BREIDD 60 CM OG 75 CM
6 SKÚFFUR BREIDD 60 CM. OG 75 CM
Ólituð fura, Brúnbæsaðar, Hvítlakkaðar.
HAGSTÆTT VERÐ.
V
© Vörumarkaðurinn hf.
|| Ármúla 1 A, húsgagnadeild sími 86112.
J
\
I