Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1977
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1977
SJÓNARMIÐ
SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA
Menningarmál
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
höfuðáherzlu á fastheldni við þjóð-
legan menningararf ásamt frelsi til
alls menningarauka, hvort sem hans
er aflað utan lands eða innan
Aðeins með þessu tvennu verður
menningarlegt sjálfstæði íslenzku
þjóðarinnar tryggt. en tilvist ís-
lenzkrar menningar veitir Islenzku
þjóðinni framar öllu tilverurétt i
landi sínu nú og um ókomna tíð
í önnum hversdagslffsins verður
að gæta þess, að einstaklingurinn
eigi kost á þeirri lífsnautn, sem fólg-
in er í auðugu og frjóu menningarlffi
og frjálsri listsköpun.
Menningarlegt valdboð hins opin-
bera samræmist ekki stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Rfkisvaldið getur
styrkt einstaklinga. samtök og
sveitarfélög til menningarstarfsemi.
en á ekki sjálft að standa að henni.
nema í skýrlega afmörkuðum
undantekningum Gæta verður
þess, að einhliða menningarstraum-
ar berist ekki um hina ríkisreknu
fjölmiðla eða aðrar stofnanir á veg-
um ríkisins, svo sem t d skóla og
útgáfufyrirtæki.
Bent skal á eftirfarandi verkefni í
menningarmálum
1. Sett verði heildarlöggjöf um
stuðning við listir í landinu, sem
miði m.a. að því að greiða fyrir
útgáfu hugverka og stuðli að því, að
listamönnum sé gert kleift að koma
verkum sfnum til almennings
2. Komið verði á alhliða list-
fræðslu í skólum. Almenn söngiðk-
un verði aukin og rík áherzla lögð á
að glæða sjálfstæða listsköpun nem-
enda
3. Búið verði svo að Sinfóníu-
hljómsveit íslands, að hún geti
gegnt hlutverki sínu fyrir tónlistarlff
landsmanna, hliðstætt því. sem
Þjóðleikhúsinu er ætlað að vinna
fyrir leiklistina.
4. Skattalöggjöf verði með þeim
hætti, að fjárframlög til menningar-
mála verði ekki skattlögð
5. Framlag ríkisins til fornminja-
rannsókna verði stóraukið Kapp
verði lagt á að varðveita minjar, sem
hafa listrænt og menningarsögulegt
gildi
6. Sett verði lög um raunhæfan
stuðning við kvikmyndagerð í land-
inu.
7. Búið verði svo að bókaút-
gáfu, að hún geti gegnt hlutverki
sfnu í þágu íslenzkrar menningar
Sérstakiega verði athuguð erfið
samkeppnisaðstaða fslenzkrar
barnabókaútgáfu gagnvart innflutt-
um fjölþjóðaútgáfum Bókaútgáfa
njóti sömu lánamöguleika. lánakjara
og skattskyldu og aðrar hliðstæðar
atvinnugreinar Auknar verði
greiðslur til rithöfunda fyrir afnot
verka þeirra í almenningsbókasöfn-
um
Kanna skal hvort sjálfstæð útgáfu-
fyrirtæki einstaklinga geti annazt þá
útgáfu skólabóka. sem Rfkisútgáfa
námsbóka hefur hingað til haft með
höndum
Alþingi kjósi nefnd. er starfi með
fræðsluyfirvöldum að vali á náms-
efni grunnskólans.
8. Sjálfstæðisflokkurinn skal
ætfð leitast við að tryggja óhindraða
og heiðarlega blaðamennsku og
frjálsa útgáfu á bókum, tímaritum,
blöðum, hljómplötum. segulbönd-
um og öðru fjölmiðlaefni.
Rfkisvaldið skal ekki kaupa árlega
visst magn af málgögnum stjórn-
málaflokka eða styrkja þau á annan
veg með fjárveitingum af almanna-
fé. þótt það geti á ýmsan hátt auð-
veldað útgáfu blaða og tfmarita.
9. Einkaréttur ríkisvaldsins á
rekstri útvarps verði afnuminn.
Tryggja verður vandlega, að ríkis-
fjölmiðlar, — hljóðvarp og sjónvarp
—. gæti jafnan fyllstu óhlutdrægni í
vali og túlkun á öllu efni.
Gæta verður þess vandlega, að
fslenzka ríkisútvarpið verði ekki háð
erlendum ríkisfjölmiðlum um flutn-
ingsefni vegna milliríkjasamninga
Umhverfismál
íslenzka þjóðin á að geta notið
umhverfis sfns, án þess að auðlindir
landsins séu ofnýttar, þannig að
varðveitt séu auðæfi lands, lofts og
lagar
Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn
1. Vernda og bæta landið og
stuðla að því, að ekki sé gengið á
höfuðstól gróðurs og dýralffs, sem
eru sérlega viðkvæm fyrir ýmsum
áhrifum nútfma tækni vegna lofts-
lags og legu landsins.
2. Efla uppgræðslu lands og
auka sjávarnytjar með ræktun og
verndunarráðstöfunum, þar sem
þess er þörf.
3. Vernda umhverfi íbúa lands-
ins þannig, að hver kynslóð skili
landinu hreinu og óspjölluðu Skal
því lögð áherzla á að forðast hvers
konar mengun á landi, í lofti og í
sjó
4. Að tryggt sé, að ítarlegar
undirbúningsrannsóknir fari fram á
áhrifum iðjurekstrar á umhverfið,
áður en starfsleyfi eru veitt. Sér-
stakrar varúðar sé gætt vegna
mengunaráhrifa. Jafnframt sé þess
gætt. að ekki sé um of raskað vist-
kerfi lands við virkjunarframkvæmd-
ir.
5. Efla virðingu þjóðarinnar fyrir
fslenzkri náttúru með jákvæðri upp-
fræðslu um vistkerfið í landinu, er
stuðli að umgengnismenningu. með
fræðslu fremur en með bönnum og
skerðingu á athafnafrelsi. í þvf skyni
verði aukin að mun, frá því sem nú
er, fræðsla um umhverfismál f
unglinga- og framhaldsskólum
6. Vinna að varðveizlu forn-
minja og menningarverðmæta í
húsagerð, sem núverandi kynslóð
hefur tekið f arf, og að vönduðu
skipulagi og mannvirkjagerð. en
mannvirki verða sérstaklega áber-
andi f svo beru og gróðursnauðu
landi sem ísland er.
7. Stuðla að því, að landsmenn
fái notið útivistar f hinu sérkennilega
og fagra umhverfi íslands með
bættri aðstöðu á útivistarsvæðum,
um leið og örtröð sé afstýrt á þeim
svæðum, sem viðkvæm eru fyrir
náttúruspjöllum. Jafnframt sé miðað
að því að hefta sem minnst athafnir
og eignarrétt einstaklingsins að
nauðsynjalausu. Stefnt sé að því að
auka fjölbreythi í bæjarhverfum og
forðast myndun þéttbýlishverfa,
sem eru Ifflaus á vissum tímum
sólarhringsins og aðgreind í vinnu-
hverfi og svefnhverfi.
8. Sjálfstæðisflokkurinn vill
sýna, hve mikla áherzlu beri að
leggja á umhverfismál, með því að
sameina stjórn umhverfismála f eitt
ráðuneyti. og setja heildarlöggjöf
um umhverfismál, sem m a taki til
náttúruverndar, útivistar, mengunar-
varna, fræðslu- og kynningarstarfs á
sviði umhverfismála
Utsýnisskífa sett upp á Hélgafell
Stykkishólmi, 21. júnl.
ROTARY1<lúbbur Stykkishólms hefir
gefið vandaða útsýnissklfu sem sett
hefur verið upp á Helgafell hér fyrir
ofan Stykkishólm Hefur þetta verið
áhugamál klúbbsins um nokkurt skeið,
en upphafsmaður þessarar hugmyndar
var Guðmundur Guðjónsson, kennari
frá Saurum, sem var lengi I Rotary-
klúbbnum en látinn er fyrir nokkru. Er
sklfah gefín I minningu hans.
Eins og kunnugt er, er ákaflega
vlðsýnt frá Helgafelli I allar áttir Þetta
er frægur staður og fjöldi ferðamanna
kemur þarna árlega og þá er gott að
hafa svona skifu til að sklra helztu staði
I nágrenninu
Skífan er teiknuð af Jóni
Víðis og var hún sett upp fyrr I þessum
mánuði Skifan er úr kopar og hin
vandaðasta
Fréttaritari
JASSKJALLARINN OPINN í SUMAR
FÉLAGSSKAPURINN Jassvakning hefur ákveðið að vera með vikulegar samkomur
f litlu kjallarahúsnæði í sumar, og hefur fengist inni fyrir þessa starfsemi hjá
Æskulýðsráði Reykjavíkur að Frfkirkjuvegi 11. Jasskjallarinn opnaði í gærkvöldi og
léku þá Viðar Alfreðsson og félagar.
V estur-Islending-
ar í heimsókn hér
IIÓPUR Vestur-íslendingankom
hingað I heimsókn 14. júnl með
flugvél frá Winnipeg. — Listi yf-
ir þátttakendur I ferðinni fer hér
á eftir:
Árnason, Frank, Maria, Roy,
Lynne. Winnipeg, Man.
Árnason, Ronald. Dauphin. Man.
Árnason, Valdemar Magnús,
Gimli. Árnason, Björn & Jónina.
Gimli, Man.
Árnason, Tryggvi Winnipeg, Man.
Árnason, Kristján & Marjorie.
Gimli, Man.
Bernhöft, Orville & Judy
Mountain, North Dakota
Bjarnason, Carl & Edna M. 406
Admar Rd., Winnipeg, Man.
Bjarnason, Hansina. Winnepeg,
Man.
Bjarnason, Ingólfur, Brandon,
Man.
Bjarnason, Arnþrúður. Brandon,
Man.
Björnson, Mrs. S. Wynyard, Sask.
Björnson. Haraldur & Elísabet.
Man. Robert.
Björnson, Roy & Pauline,
Calgary, Alta.
Brandson, Huldi St. Rose, Man.
Britton, Jonina & Normann.
Winnipeg, Man.
Böðvarson, Emil & Linda. Spruce
View, Alberta.
Barrieu, Þórunn J. Kenora, Ont.
Corbin, Elva & Jacquline. Winni-
peg, Man.
Chatwin, Bertha. Winnipeg, Man.
Cornish Bruce & Beverley.
Cuqutlam, B.C.
Craig William & Runa. Oakville,
Man.
Danielson Leo & Ingibjörg
Lundar, Man.
Dielh Garth & Ruth, Garcea.
Winnepeg, Man.
Einarson John, Flin Flon, Man.
Eylands Val, Juanita & Kurt Eric
Grand Forks, Bak.
Eylands Valdimar. Grand Forks,
N.-Dak.
Eaton Mae, Moline, 111.
Eyjolfson Eysteinu, Arborg, Man.
Finnson Friðrik & Helga Arborg,
Man.
Frederickson Eunice. Winnipeg,
Man.
Gisladóttir Gunnþóra. Winnipeg,
Man.
Gislason Einar & Lilja. Arborg,
Man.
Goddman Davið & Pauline,
Revelstoke, B.C.
Gorrie Martha. N. Vancouver,
B.C.
Grimson Vilhjálmur. Sidney, B.C.
Guðmundsson Laufey D. Winne-
peg, Man.
Isfeld. Arilius & Steinunn. Winni-
peg, Man.
Jakobson Brian & Vivienne. Tara
& Tami. Winnipeg, Man.
Johnson Steinunn, Gimli, Man.
Johnson Jón & Rósa. Winnipeg,
Man.
Johnson Jóhanna. Winnipeg,
Man.
Johnson Johanna. Vancouver,
B.C.
Johnson Ruth. Winnipeg, Man.
Johnson Guðmundur & Dorothy.
Sylvan Lake, Alta.
Johnson Johannes & Guðrún.
Gimmi, Man.
Johnson Leo. & Guðrún. Gimli,
Man.
Johnson Leo. & Jónina. Winni-
peg, Man.
Johnson Lincoln. Brampton, Ont.
Johnson Tryggvi. & Hulda.
Riverton, Man.
Jonsson Jón & Margaret. Galiano
Island, B.C.
Jósephson Þorfinnur & Margaret.
Mozart, Sask.
Johannson Ina. L:ngdon, North
Dak.
Kilogour Arthur & Grace. Winni-
peg, Man.
Kissick Sigrun. Winnipeg, Man.
Kjartanson Bruce & Kelly. Winni-
peg, Man.
Kristjansen Jon. Mountain, Dak.
Kristjanson Hannes & Elisabet.
Grand Forks, Dak.
Kristjanson Gustaf & Lenorah.
Winnipeg, Man.
Kristjanson Willhelm & Jóna.
Winnipeg, Man.
Kristjanson Rubina. Winnipeg,
Man.
Larham Janice, Gimli, Man.
Laxdal Johanna. Kelowna, B.C.
Lindal Ólafur & Anna, Arborg,
Man.
Mabb Wilhelmina. Winnipeg,
Man.
Maceachern Agusta Jónína.
Winnipeg, Man.
MacDonald Þóra. Winnipeg, Man.
Mashowski Columbine.
Vancouver, B.C.
Mason Sylvia. Winnipeg, Man.
Markuson Albert & Margaret
Gimli, Man.
Magnuson Magnús & Júlía.
Selkjrk, Man.
Magnuson Ellen. Gimli, Man.
Mills Stella. N. Vancouver, B.C.
Mossis Stefania. Vancouver, B.C.
Nelson Allan L. & Clarice. Winni-
peg, Man.
Nicholls Joena. Winnipeg, Man.
Nordal Helgi. Winnipeg, Man.
Nordal Einar, Lundar, Man.
Norman Gísli & Lilja. Flin Flon,
Man.
Nygaard Patricia. Brandon, Man.
Nygaard Paula. Brandon, Man.
Olafson Einar & Harriette. Grand
Forks, Dak.
Olson Margaret. Winnipeg, Man.
Palson Steingrimur & Ingibjörg.
Riverton, Man.
Roscoe Cora. Winnipeg, Man.
Sexsmith Inga. Winnipeg, Man.
Skarphéðinsdóttir Björg. Winni-
peg, Man.
Sigurdson Elaine, Eric &
Kristine. Winnipeg, Man.
Sigurdson Franklin &Dora.
Oakpoint. Man.
Sigurdson Kristján & Björg.
Winnipeg, Man.
Sigurdson Johannes & Bergljót.
W. Vancouver, B.C.
Sigurdson Olafia, Gimli, Man.
Sigmundsdóttir Alda. Kingston,
Ont.
Sigvaldason Ingvar & Sigþrúður.
Arborg, Man.
Simpson Charles & Ólöf. Winni-
peg, Man.
Snorrason Alice, Gimli, Man.
Sólmundson Bára. Winnipeg,
Man.
Stefanson Stefán & Olafía. Winni-
peg, Man.
Stefánson Ernest, Gimli, Man.
Carollyn
Stefanson Skúli & Effie, Grand
Forks, Dak.
Stevenson Herdis. Vancouver,
B.C.
Spurnway Sigrid, Dauphin, Man.
Tergesen Terence, Lorna, Johann
& Lristin. Winnipeg, Man.
Tergesen Hans. Guðbjörg &
Becky. Gimli, Man.
Thordarson Tom & Alice,
Onanole, Man.
Thorlacius Helen, Ashern. Man.
Thorlacius Ásthildur. Winnipeg,
Man.
Thordarson Johannes Gimli, Man.
Thorvaldsson Albert & Ásta.
Piney, Man.
Timlick Sigrún. Winnipeg, Man.
Tryggvadottir Vala. Winnipeg,
Man.
Ullyot Laura Helga. Winnipeg,
Man.
Vann Kenneth. Winnipeg, Man.
Washburn Arthur & Sigriður.
Gimli, Man.
Wetten Hilmar. Burnaby, B.C.
Wilson Gordon & Lilja. Thunder
Bay, Ont.
Wilson Emil & Þórdis. Surrey,
B.C.Upplýsingaskrifstofa verður
opin i Hljómskálanum frá kl. 2—5
daglega, sími 15035.