Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNI 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
teigi við Rangá og það má með
þessu dæmi áminna ferðafólk um
að ganga betur frá tjaldstæðum
og áningarstöðum sínum en þetta.
Hvort þetta er hrein gleymska
viðkomandi eða ásetningur að
skilja þetta svona eftir, skal ósagt
látið, en það hefði í það minnsta
ekki verið svo mikið verk að grafa
þetta niður, eða brenna og grafa
öskuna, þvf þarna rétt hjá var
smá melur sem var vel til þess
fallinn að fela þetta. Það væri
fremur óvistlegt að koma að
hótelherbergi, sem þyrfti að þrífa
áður en fólk gæti komið sér fyrir
og það gildir einnig um ferðalög
úti í sveitum, þar verður einnig að
skilja vel við. Með þessum orðum
fylgja svo óskir um góða ferð f
sumarfríið.
% Um andatrú
„Nytsami Velvakandi.
Það er bláköld staðreynd að hér
á landi og hjá mörgum öðrum
þjóðum er rfkjanda ógnvekjandi
geysisterk trú sem er nokkurs
konar sambland kristinnar trúar
og andatrúar, og það er sorglegt
að heyra mjög fullorðið fólk, og
gamalt, sem vill þjóna þeim
drottni sem Biblían talar um, tala
um lifið eftir dauðann og þá látnu
'stvini, sem andatrúin segir að
bíði þeirra. Því staðreyndin er sú
að ekkert þannig er til í því formi,
sem spfritisminn kennir.
Ekki það? segir þú kannski. En
þar sem ég geri ráð fyrir þvf að
þú, lesandi góður, sért innan
kirkjunnar þá bannar kirkjuvald-
ið að fólk trúi á þetta illa afl, sem
spíritisminn kennir um, þvf það
stendur skýrum stöfum í hinni
helgu bók, innblásinni leið-
beiningarbók til mannkynsins,
frá Guði. Þær algengu syndir,
sem andatrúarmenn drýgja móti
vilja Guðs, eru m.a.: Trú á
drauma, trú á spákonur, trú á
stjörnuspár, trú á helgimyndir og
miðla sem eru dregnir á tálar af
þessum illu öndum Satans og um
leið draga þeir á tálar mörg
hundruð manns sem sitja fundi
þeirra og þá oft óafvitandi.
Það gætir mikils misskilnings
eða hugsunarleysis hjá stórum
hópi fólks að lesa ekki Bibliuna
fyrr en á efri árum og finnst þvf
þá einmitt tfmi til kominn að lesa
bókina. En þetta fólk myndi virki-
lega þjóna Guði sinum ef það læsi
hana á sinum unglingsárum þvf
þá vissi það hvernig breyta ætti
rétt í gegnum allt lffið. Bókin,
Sannleikurinn, sem leiðir til eilífs
lffs, er mjög góð útdráttarbók fyr-
ir helztu megin boð og bönn þau
er Biblían setur. Hún er á góðu
máli og stóru letri og leiðir þann
mann eða konu vissulega á rétta
braut, til lffsins. Þessa bók hafa
Vottar Jehóva gefið út en þeir
hafa gegnt miklu starfi í þágu
Guðs eins og kunnugt er.
Um leið og ég vildi koma á
framfæri þökkum fyrir þessa bók
vottanna vil ég hvetja fólk til að
athuga hana því á meðan það leit-
ar eða er sælt f andatrú sinni sem
margir eru í dag vita þeir ekki
hvers þeir fara á mis.
Hvers vegna leitar fólk ekki
með sín vandamál til Guðs, skap-
ara sfns almáttugs heldur en að
leita til hinna dauðu vegna hinna
lifandi? Allt sem þú þarft að vita
finnurðu f bók Guðs, Biblíunni,
þar er vikilega hamingjuna að
finna.
Með þakklæti fyrir birtinguna,
Einar I. Magnússon.**
Það er ekki ólfklegt að einhverj-
ir vilji út frá þessu bréfi hugleiða
einhver atriði varðandi þessi mál
og ef svo er stendur rúm Velvak-
anda opið eftir þvf ástæða er til.
Þessir hringdu . . .
• Of léttar
refsingar?
Móðir:
—Ég vil byrja á því að
þakka fyrir bréf i Velvakanda ný-
lega um fíkniefnamálin og ég vil
taka undir þessa umræðu. Það er
ljöst að við verðum að þyngja
þessar refsingar að mun, þetta
eru nærri því hlægilegir dómar að
minu mati og þetta er ekki bara
mál nokkurra fárra manna, þetta
skiptir okkur öll máli, ekki sizt
unglingana okkar og það er voða-
legt ef æskan á eftir að hrynja
niður í þessu siðleysi. Svo er ann-
að sem mig langar að spyrja um
en það er hvar menn fái þennan
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti f Quito í
Equador i desember í fyrra kom
þessi staða upp f skák stórmeistar-
anna Vasjukovs, Sovétrikjunum,
og Panno, Argentínu, sem hafði
svart og átti leik:
• b c d • fgh
33. ,.Rg5l, 34. Hgfl (Eftir 34.
hxg5 — Dxg5, 35. Hel — Hg6+,
36. Kgl — f3, 37. Dfl — Dh5
verður hvítur mát) — Rf3, 35.
Bcl — Hh6, 36. Bdl — Hxh4+ og
hvftur gafst upp, því mát verður
ekki umflúið.
Röð efstu manna á mótinu varð
þessi: 1. Panno 13‘/4v. af 17 mögu-
legum. 2 Tarjan (Bandarfkjun-
um) 1214 v. 3. Vasjukov 11V6 v.
4—5. Grefe (Bandaríkjunum) og
Rubinetti (Argentínu) 10XA v
gjaldeyri til að flytja inn nektar-
dansmeyjar? Hver gefur leyfi fyr-
ir þessum innflutnangi og hversu
mikill gjaldeyrir fer í þetta? Fólk
sem ferðast til útlanda getur
varla keypt sér nokkurn hlut, sem
það langar í en svo er þetta leyft.
Þetta finnst mér líka allt að því
hlægilegur atvinnuvegur og hver
skyldi hafa ánægju af þessu? En
það væri fróðlegt að vita hvað fer
mikill gjaideyrir í þetta „húllum-
hæ.“ Og varðandi fákniefnin þá
vil ég minna á að það er þörf á því
að taka upp strangari refsingar og
við verðum að vera velvakandi
þarna og það er ekki nóg að lesa
greinar eftir fólk í blöðum, við
verðum að styðja við það i verki.
Byrgjum brunninn áður en barn-
ið er dottið ofan í hann, það á við í
þessum efnum.
Kattavinafélagið gefur út
kort með teikningu Ríkarðs
KATTAVINAFÉLAG íslands hefur gefið út kort til styrktar félaginu
og á þvf er mynd af sofandi ketti eftir teikningu Rfkarðs Jónssonar, en
listamaðurinn ákvað á sfnum tíma að gefa Kattavinafélaginu birting-
arrétt á þessari teikningu.
Teikningin sýnir heimiliskött Rfkarðs sofandi, en eins og segir í
fréttatilkynningu frá Kattavinafélaginu, þá getur hún jafnframt verið
táknmynd fyrir félagið.
Kortin verða til sölu f öllum helztu bókaverzlunum.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
I Hverfísgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu