Morgunblaðið - 28.06.1977, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNl 1977
Nóg jarðgas í heila öld
Cleveland — 27. idnl — AP
Talið er, að i níu af
austurríkjum Bandarikj-
anna sé að finna nóg gas í
jarðlögum og megi með því
fullnægja gasþörf Banda-
ríkjanna næstu 100 ár.
hægt að vinna nema 10 af hundr-
aði heildargasmagnsins, þá muni
það bæta mjög úr gasþörfinni.
Laföi Baden-
Powell látin
Lundúnum — 27. júnf — AP
LAFÐI Olave Baden-Powell
lézt f Lundúnum s.l. sunnudag,
88 ára að aidri. Útförin verður
gerð f kyrrþey f Lundúnum, en
jarðneskar leifar kvenskáta-
höfðingjans verða fluttar til
Kenya, þar sem þær verða sett-
ar f grafreit Baden-Powells
lávarðar f Nyeri.
Lávarðurinn var stofnandi
skátahreyfingarinnar og æðsti
leiðtogi hennar til dauðadags.
Kona hans, sem var 32 árum
yngri en hann, var æðsti kven-
skátahöfðingi, en kvenskátar
eru nú 20 milljónir að tölu i
yfir 100 löndum.
Lafði Baden Powell
Brendan kominn til Nýfundnalands:
„Okkur tókst það sem
við ætluðum okkur”
— sagói Tim Severin — Ráðgerir aóra ferd
Brendan nálgast strönd Nýfundnalands.
námunda við St. Johns. Kanad-
ískt varðskip dró bátinn siðasta
spölinn, en þá höfðu Brendans-
menn beðið klukkustundum
saman undan ströndinni eftir
byr, sem átti að fleyta þeim að
landi. Um 400 manns fögnuðu
bátnum við lok ferðarinnar,
sem tók alls 13 mánuði.
Brendans-menn höfðu sem
kunnugt er vetursetu á íslandi,
en lögðu af stað héðan 1. maí
s.l. Gekk ferðin vestur ágæt-
lega, að öðru leyti en þvi, að
veður gerðust válynd þegar bát-
urinn var á milli Islands og
Grænlands og stórsjór gekk yfir
bátinn. Þá lentu leiðangurs-
menn i ís við strönd Labradors
og rifnaði þá gat á bátinn. Var
skjótlega gert við lekann með
því að sauma á hann leðurbót.
í simtalinu við Morgunblaðið
sagðist Tim Severin vonast til
þess að hann gæfi fljótlega
byrjað að skrifa bók um leið-
angurinn, enda þyrfti hún að
koma sem fyrst út því að ferðin
hefði verið kostnaðarsöm.
„VIÐ ERUM bráðhressir, en þó
þreyttir eftir ferðina," sagði
Tim Severin þegar Morgun-
blaðið náði sfmasambandi við
hann f gærkvöldi. „Við verðum
hér f viku að minnsta kosti,
svona til að kasta mæðinni, en
sfðan förum við með bátinn til
Boston. Það er ýmislegt, sem
þarf að athuga f sambandi við
bátinn, en okkur hefur tekizt
það, sem við ætluðum okkur f
upphafi, — að sanna að hægt er
að komast á skinnbáti frá tr-
landi að strönd Kanada, þannig
að Brendan munkur gæti hafa
verið fyrsti Evrópumaðurinn
sem sigldi vestur um haf,“
sagði hann ennfremur.
Þegar Severin var að því
spurður hvað hann ætlaðist
fyrir á næstunni sagðist hann
fyrst og fremst vilja ljúka við
þær rannsóknir, sem fyrirhug-
aðar væru á bátnum, en síðan
sagðist hann ætla að snúa sér að
þvi að undirbúa næstu ferð.
Báturinn i þeirri ferð yrði frá-
brugðinn Brendan, en hvorki
Tim Severin
vildi hann upplýsa hvert halda
ætti og hvenær, né hvernig far-
kosturinn yrði úr garði geróur.
„Þetta er leyndarmál,“ sagði
hann.
Brendan kom að landi I gær i
Musgrave, sem er smáþorp i
Orlov sakaður um
„lygar og óhróður,,
Moskvu — 27. júní — Reuter
EIGINKONA sovézka andófs-
mannsins Yuri Orlovs sagði f dag,
að maður hennar ætti yfir höfði
sér að verða ákærður fyrir að
hafa ófrægt Sovétrfkin og mætti
búast við þvf a hann yrði dæmdur
f allt að þriggja ára fangelsi fyrir
þær sakir. Irina Orlov tjáði vest-
rænum fréttamönnum, að hún
hefði verið kölluð til yfirheyrslu f
aðalstöðvum KGB f Lubyanka-
fangelsinu, þar sem sér hefði
meðal annars verið greint frá því,
að maður hennar hefði „af yfir-
lögðu ráði dreift lygum og
óhróðri um Sovétríkin og þjóð-
skipulagið, sem þar er við lýði“.
Yuri Orlov, sem er 52 ára eðlis-
fræðingur, var handtekinn i
febrúar-mánuði s.l. Hann var upp-
hafsmaður Helsinkinefndarinnar,
sem hefur það markmið að fylgj-
ast með efndum á Helsinkisátt-
málanum. Hingað til hafa niu
meðlimir Helsinkinefndarinnar
verið handteknir, en ekki er vitað
til að ákærur hafi komið fram
nema á hendur Orlov og Anatoly
Scharanski, sem handtekinn var i
marz. Ákæran á hendur Orlov er
talin vægari en þær sem í flestum
tilvikum hafa verið birtar á hend-
ur andófsmönnum. Þannig var
Scharanski til dæmis sakaður um
Ráðherra flýr
frá Úganda
Lundúnum — 27. júní — Reuter
BREZKA innanríkisráðuneytið
hefur skýrt frá því, að Semei
Nyanzi, ráðherra í stjórn Idi
Amins, hafi flúið frá Uganda og
dveljist nú i Bretlandi. Hafa þá
þrír ráðherrar Amins leitað hælis
í Bretlandi á skömmum tima, og
hafa þeir allir fengið leyfi til að
dveljast þar fyrst um sinn.
landráð, en refsing fyrir slíkt brot
er mun þyngri en sú, sem liklega
bíður Orlovs.
Irina Orlov sagði að i yfirheyrsl-
unni hjá KGB hefði ekki verið
minnzt á Helsinki-nefndina, held-
ur hefðu allar spurníngarnar ver-
ið viðkomandi hjónabandi hennar
og einkahögum. Hún neitaði að
svara öllum spurningum.
John Macdonald, brezkur lög-
fræðingur, sem óskað hefur eftir
að fá að verja Orlov, var í siðasta
mánuði neitað um vegabréfsárit-
un til Sovétríkjanna.
Hafréttarráðstefna SÞ:
Kynntu sér
mengunar-
rannsóknír
neðansjávar
Sameinuðu þjóðunum
— 27. júní — AP.
FULLTRÚUM á hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna var um helgina boðið
í siglingu með bandarísku
hafrannsóknaskipi i þeim
tiigangi að kynna þeim
mengunarrannsóknir
neðansjávar og eyða grun-
semdum um að slikar rann-
sóknir færu fram i annar-
legum tilgangi.
54 þjóðir, sem þátt taka í
hafréttarráðstefnunni,
áttu fulltrúa um boð, þar á
meðal íslendingar.
Sadat sakar Vinstri flokk-
inn um njósnir í þágu Sovét
Kalrí — 27. júnl — Reuter.
ANWAR Sadat forseti
Egyptalands sakar stjórn-
málasamtök vinstri manna
í landinu um að vera hand-
bendi Sovétríkjanna, og
Fanga-
flótti
Asli, Itallu. 27. júni. AP.
TtU fangar flúðu úr fangelsi í
Asti á Ítalíu f dag og þar með hafa
um 1.000 fangar flúið úr ftölskum
fangelsum á undanförnum þrem-
ur árum.
Fangarnir söguðu í sundur
rimlana í klefum sínum og yfir-
buguðu fjóra verði sem voru í
byggingunni.
Skömmu siðar rændu tveir
menn 1.5 milljónum líra af gam-
alli konu sem hafði tekið út eftir-
laun sin. Talið er að þar hafi tveir
fanganna verið að verki.
segir að þeir hafi gerzt sek-
ir um landráð. Vinstri
flokkurinn var einn
þriggja stjórnmálaflokka,
sem stofnaðir voru þegar
egypzka stjórnin sam-
þykkti að koma á fjöl-
flokkakerfi í landinu i
fyrra.
í byrjun júní hittust
utanríkisráðherra Egypta-
lands og Sovétríkjanna í
Moskvu til að reyna að
koma á bættum samskipt-
um ríkjanna, en upplýs-
ingamálaráðuneytið í
Karíó skýrði frá því fyrir
nokkrum dögum, að sú til-
raun hefði mistekizt.
Er talið að þessi ummæli Sadats
um vinstri flokkinn staðfesti að
bætt sambúð ríkjanna sé úr sög-
unni að sinni. Forsetinn tók fram,
að hann væri ekki andvígur
marxisma, og benti á framkvæmd
hans í Kína í því sambandi. Hann
hældi Kínverjum og sagði, að þeir
reyndu ekki að hlutast til um
innanrikismál annarra ríkja.
Samskipti Egypta og Sovét-
manna hafa verið afar stirð frá
því í fyrra að Sadat vísaði sovézk-
um ráðgjöfum úr landi og nam úr
gildi vináttusamning ríkjanna.
SEXTAN ára gamall unglingur
truflaður á geðsmunum hefur
verið ákærður fyrir að hafa
kveikt f klefa sfnum f fangelsi
skammt frá Nashville í Tenn-
essee með þeim afleiðingum að
42 biðu bana.
Unglingurinn Andy Zimmer,
liggur sjálfur þungt haldinn f
sjúkrahúsi með brunasár. Hann
hefur tvisvar sinnum áður verið
Niðurstöður rannsókna
benda til þess, að í jarðlög-
unum séu um 2.400
trilljónir rúmfeta af gasi,
en ársnotkun í Bandaríkj-
unum nemur nú um 21
trilljón rúmfeta. (í trilljón
eru þúsund milljarðar).
Forstöðumaður gasstofnunar
Bandarikjanna, William J. Over-
bey, segir, að hingað til hafi
vinnsla þessa gass talizt of kostn-
aðarsöm, en nú hafi verið ákveðið
að hefja vinnslutilraunir. Heldur
Overby þvi fram, að þótt ekki sé
ákærður fyrir ikveikju eða hótun
um fkveikju.
34 þeirra sem biðu bana voru
lokaðir inni í klefum sinum en
hinir sem fórust voru gestir.
Reykmökkurinn var svo mikill að
slökkviliðsmenn með gasgrimur
komust ekki inn.
Það tafði björgunarstarfið að
lögreglumaður týndi lyklunum að
klefunum þegar hann rakst á
gesti sem flúðu. Að lokum fund-
ust aðrir lyklar.
Ikveikja orsök
fangelsisbruna
Columbia, Tennessee,
27. júní. Reuter. AP.