Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.06.1977, Qupperneq 48
u;<;lYsin<;asími\n eh: 22480 al<;lysin(;asímíN'n er.- 22480 JKorennliInöit) 139. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. JtJNl 1977 Boris Spassky: íslendingur í Kínaferð kyrrsettur í Moskvu SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, var tslendingur kyrrsettur f Moskvu nýlega, er hann ásamt fieiri Kfnaförum átti þar leið um. Komst maðurinn ekki frá Moskvu í tvo sólarhringa, þar sem skilrfki hans voru ekki f lagi. Ferðamannahópurinn, sem maðurinn var með og var á vegum Kfnavinafélagsins, varð þvf að fara á undan manninum frá Moskvu. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun Islendingurinn hafa týnt úr vegabréfi sfnu blað- inu, sem vegabréfsáritunin til Sovétríkjanna var letruð á. Ann- an mann í ferðamannahópnum vantaði einnig þessa vegabréfs- áritun og tafðist hann frá morgni til kvölds af þessum sökum, en síðan var honum sleppt. Ekki er ljóst, hvers vegna hinum mannin- um var haldið svo lengi, sem raun ver vitni. Það þótti mörgum gott að fá sér ís í góða veðrinu f gær. Ljósm. MbL: RAX Eg er sterkari núna en ég var í Reykjavík „fiti TEL að mér hafi nýtzt vel tfminn sfðan ég kom heim frá Islandi til að hvfla mig eftir einvfgið við Hort og undirbúa mig fyrir átökin við Portish. Eg held að ég sé betur undirbúinn nú, en þegar ég kom til Reykjavfkur og þess vegna geri ég mér góðar vonir um árangurinn f Genf. Og konan mfn verður minn aðstoðarmaður," sagði Boris Spassky, stórmeistari f skák, er Mbl. ræddi við hann f gær, en 3ja júlf setjast þeir Portish að taflborðinu f Sviss. Sem kunnugt er var sovézki stórmeistarinn og fyrrverandi heimsmeistari í skák, Smyslov, aðstoðarmaður Spasskys f ein- vígi hans við Hort. Eftir sigur Spasskys í því einvígi bauðst skáksamband Sovétríkjanna til að styðja Spassky enn frekar og útvega honura aðstoðarmann í einvígið við Portish. „Þetta er auðvitað ákaflega vel boðið og ég er þakklátur fyrir það,“ sagði Spassky. „En eins og sak- ir standa held ég, að mér sé fyrir beztu að treysta á sjálfan mig. Ég hef því ekki þegið boð- ið um aðstoðarmann í einvígið við Portish, en eiginkonan verður minn aðstoðarmaður." ekkert geta látið uppi um, hvað þeim fór á milli. Þá spurði Mbl. Spassky, hvaða augum hann Iiti á fram- boð Friðriks Ölafssonar til for- Framhald á bls. 30. 80% dýrara að landa tog- arafiskinum í Reykjavík en bæði á Akureyri og ísafirði SAMKVÆMT þeim upp-l lýsingum sem Morgun- blaðið hefur aflað sér, þá| er um það bil 80% dýrara pr. tonn að landa afla úr togurum í Reykjavík en á ísafirði og Akureyri. Á ísa- firði og Akureyri kostar að meðaltali 1700 kr. að landa hverju tonni en í Reykja- vík 3070 kr. i þessum töl- um eru hvorki talin með bryggjugjöld, ístaka, vakt- menn né annar kostnaður sem fylgir óhjákvæmilega. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar hjá útgerðarfélaginu Ögur- vik að fyrstu fimm mánuði þessa árs hefði það þurft að greiða kr. 3070 að meðaltali fyrir að Ianda hverju tonni af fiski úr togaran- um Ögra. Unnið væri við löndun i Reykjavík í tímavinnu og gengi misjafnlega hratt að landa aflan- um, og færi það nokkuð eftir hvaða fisktegundir togarinn væri með og hve margir menn í lönd- un. Mest hefði fyrirtækið þurft að greiða kr. 4460 fyrir að landa hverju tonni úr veiðiferð, en minnst kr. 2720 á tonn en meóal- kostnaðurinn væri eins og fyrr segir kr. 3070. Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Jón Pál Halldórsson framkvæmdastjóra Norðurtanga á ísafirði sagði hann, að þar væri greitt ákveðið verð fyrir að ianda hverju tonni kr. 1703 og skipti engu hvort um dag- eða nætur- vinnu væri að ræða. Vilhelm Þor- steinsson, framkvæmdastjóri ÚA, sagði Morgunblaðinu að löndun- arkostnaður úr Akureyrartogur- unum hefði á síðasta ári verið kr. 1700 á hvert tonn og hefðu þessar tölur litt eða ekkert breytzt á þessu ári fyrr en þá nú með nýj- um kjarasamningum. Þegar Mbl. spurði Spassky, hvort hann hefði eitthvað heyrt frá Fischer síðan sá síðarnefndi hringdi í hann í Reykjavík, svaraði hann játandi, en kvaðst Spassky og Marina sitja að morgunverði á Hótel Loftleiðum meðan á einvfgi hans og Horts stóð. Nú er Spassky aftur að ganga f slaginn og Marina verður aðstoðarmaður hans f einvfginu gegn Portish. Banaslys und- ir Eyjafjöllum BANASL’"S varð við bæ einn undir Eyjafjöllum í gær, en þá lézt 4 ára gamalt piltur af völdum bifreiðaslyss. Slysið átti st-r stað rétl um kl. 15 í gær, en þá var pilturinn að leik ásamt fleiri unglingum og börn- um heima við bæinn, en foreldrar hans voru ekki heima. 12 ára Óheimilt að flytja inn nautakjöt — KEIDNI um innflutning á nautakjöti hefur ekki komið til mín en mér er kunnugt um, að það hefur gengið verulega á birgðir af nautakjöti að undan- förnu. Ég er líka ekki viss nema óheimilt sé að flytja til landsins kjöt vegna laga um gin- og klaufaveiki en sé ákvörðun um þennan innflutn- ing í mínu valdi þarf að taka til skoðunar fjölmörg atriði og þá t.d. hvað miklar birgðir væru til og hvort kjöt væri væntanlegt á markað, sagði Halldór E. Sigurðsson, land- búnaðarráðherra, er hann var spurður, hvort leyfður yrði innflutningur á nautakjöti, ef til þess kæmi að nautakjöts- birgðir þryti hérlendis en eins og fram kom f frétl í Morgun- blaðinu sl. laugardag eru Ifkur á að lítið verði um nautakjöt f verzlunum f sumar. Páll A. Pálsson, yfírdýra- læknir, sagði að í lögum væri lagt bann við innflutningi á nautakjöti sem öðrum sláturaf- urðum, hráum eða lítt sölt- uðum. Væri ákvæði um þetta að finna í Iögum um gin- og klaufaveiki. Páll sagði að einu sinni eða á árinu 1952 hefði Framhald á bls. 30. drengur sem þarna var fór inn í fólksbíl, sem var á hlaðinu, og setti í gang en pilturinn sem beið bana sat aftan á kistuloki bíslsins. Skyndilega rykkti drengurinn, sem sat undir stýri, bílnum af stað með þeim afleiðingum að pilturinn kastaðist aftan af kistu- lokinu og féll í götuna og mun hann hafa látizt svo til samstund- is. Ekki er hægt að greina frá nafni piltsins, þar sem ekki hafði náðst í alla ættinga hans í gær- kvöldi. Tóku rækju- bát á alfrið- uðu svæði VARÐSKIPIÐ Óðinn stóð djúp- rækjubátinn Sigrúnu ÍS 113 frá Súðavfk að veiðum á alfriðaða svæðinu úti af Kögri f fyrrakvöld og hófust réttarhöld f málinu f gær hjá bæjarfógetaembættinu á ísafirði og verður framhaldið f dag. Þegar varðskipsmenn komu að bátnum, var hann 5,2 sjómílur inni á friðaða svæðinu. Skips- menn bátsins sýndu varðskips- mönnum leyfisbréf fyrir rækju- veiðunum og f því stóð, að þeir mættu veiða útí fyrir öilum Vest- fjörðum og Norðurlandi, nema á tveimur tilteknum stöðum, hvergi var minnzt á friðaða svæðið á Kögri. Varðskipsmenn vitnuðu hins vegar til reglugerðar um al- gjört bann við öllum veiðum á þessu svæði. Jón B. Jónasson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði er Framhald á bls. 30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.