Morgunblaðið - 31.07.1977, Síða 1

Morgunblaðið - 31.07.1977, Síða 1
44 SÍÐUR 167. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 31. JULÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. t>jálfudu Nord- menn Finna til njósna í Sovét? Getur brugðið til beggja vona með friðaráætlun EINN Á BÁT — Eins og fram kemur f baksfðufrétt okkar f dag átti ökusprettur fcrðalanganna útúr borginni einkanlega að hefjast upp úr hádeginu f gær. En svona var umhorfs f Austurstræti um tfuleytið í gærmorgun. Oslö —30.1011—AP. GREIN f norska biaðinu Ny tid hefur valdið miklu fjaðrafoki í Noregi, en þar segir fyrrverandi yfirmaður í norska hernum, Sven Blindheim, sem hlaut fjölda heið- ursmerkja fyrir frækilega fram- göngu f strfðinu, að á árinu 1953 hafi hann tvfvegis farið til Ilel- sinki þeirra erinda að þjálfa finnska borgara f njósnum og skemmdarverkum f Sovétrfkjun- um. Vegna þessa máls komu Hvar er stóri, guli sparibauk- urinn? Paris — 30 júli — AP FRAKKAR veltast um af hlátri þessa dagana yfir „stærsta sparibauk i heimi", en þaS er reyndar 17 tonna trukkur, gulur að lit, fullur af nýsleginni skiptimynt, en verðmætið nálgast hálfan milljarð islenzkra króna. Fjórir vopnaðir menn rændu trukknum í Paris s.l. mið- vikudagskvöld, og síðan hefur farið fram viðtæk en árangurslaus leit. Frakklandsbanki, sem er eigandi myntarinnar, tók á leigu flutninga- vagn til að flytja farminn til að vekja ekki athygli á honum, og hafði bifreiðastjórinn ekki einu sinni hug- mynd um hvað hann var að flytja Skömmu eftir að hann var lagður af Stað varð á vegi hans maður, sem §tóð í stimabraki með bílinn sinn Þar sem bifreiðarstjórinn mun vera maður hjálpsamur að eðlisfari fannst honum ástæða til að rétta hjálparhönd. en eftir drykklanga stund komu á vettvang fjórir viga- legir menn og miðuðu byssum um leið og þeir stjökuðu bilstjórunum tveimur inn i bifreið, sem komin var á vettvang Einn ræningjanna sett- ist undir stýri „sparibauksins ', en hinir þrir óku á eftir með gisla sina. Klukkustundu siðar var þeim sleppt i útjaðri borgarinnar, en „spari- baukurinn" var á bak og burt þegar þeim hafði tekizt að ná i lögregl- una Þessi atburður er eftirlætisefni blaðanna i Frakklandi, og almenn- ingur gerir sér ekki siður mat úr Menn láta þá athugasemd fylgja er þeir inna af hendi greiðslur með smámynt að hún sé „spánný úr sparibauknum", og blaðið L'Aurore hefur ritað ræningjunum opið bréf þar sem þeir eru beðnir að skýra frá hugmyndum sinum um hvernig þeír ætli að fara að þvi að koma peningunum i lóg. Þeim er bent á i fullri vinsemd að þeir geti ekki keypt sér höll, ekki bil — ekki einsu sinni skó úr krókódilaskinni fyrir skiptimynd, og detti þeim i hug að fá sér að borða til hátiðar- brigða, þá muni grunsemdir hvers einasta veitingamanns vakna þegar túskildingarnir fari að tinast fram á veitingaborðið Le Matin rifjar upp framburð tveggja manna, sem komust yfir vænan skammt af smámynt í fyrra, en þeir sáu ekki aðra leið til að losa sig við peningana en að stinga þeim i spilakassa, einum i einu. helztu ráðherrar norsku stjórnar- innar saman til skyndifundar f fyrrakvöld. Eftir ráðherrafundinn sagði Rolf Hansen varnarmálaráðherra að þess yrði farið á leit við dóms- málaráðherra, að hann léti fara fram rannsókn með það fyrir aug- um að gefin yrði út ákæra fyrir meint trúnaðarbrot ef ástæða þætti til. Þá hefur ráðherrann birt yfirlýsingu þar sem segir, að það sé mjög alvarlegt hvernig' ákveðnir menn séu reiðubúnir til að leika sér með mikilvæga þjóð- arhagsmuni og stofna þeim í hættu, þ.e. núverandi samskipti við nágrannariki, eins og segir orðrétt, en að öðru leyti hefur varnarmálaráðuneytið ekki viljað tjá sig um málið. t greininni, sem birtist i Ny tid 27. júli s.l., segir Blindheim m.a. að njósnastarfsemin hafi fyrst og fremst beinzt að hernaðarmann- virkjum Sovétmanna og hafi þeir Finnar, sem við söguna koma, fengið í hendur njósnamyndavél- ar, auk þess sem þeir hafi fengið tilsögn í skemmdarverkum, hvaða upplýsinga þeim væri ætlað að afla og hvernig þeir ættu að nálg- ast þær. Þá hefðu Finnarnir verið fluttir til tiltekinna afskekktra svæða við landamæri Sovétrikj- anna og Finnlands og fengið þar lokaþjálfun áður en þeir fóru yfir landamærin. Eftir að greinin birt- ist kom Blindheim fram í norska sjónvarpinu þar sem hann endur- tók fyrri frásögn og kvaðst ekki samvizku sinnar vegna getað þag- að lengur. Framhald á bls. 43 Líbýa-Egyptaland: Kaíró — 30. júlf — Reuter. OPINBER fréttastofa í Kaíró hafði það I gærkvöldi eftir ónafn- greindum talsmanni egypzku stjórnarinnar, að enginn sátta- fundur leiðtoga Líbýu og Egypta- lands væri á næsta leiti. Ilafa þessi ummæli vakið undrun, en aðeins aólarhring áður höfðu Eg- yptar fallizt á friðaráætlun, sem meðal annars felur í sér fund deiluaðila f byrjun ágúst. Áður hafði fréttastofan skýrt frá þvi að Gaddafhi ofursti i Lib- Gaddafhi ýu og Sadat Egyptalandsforseti hefu fallizt á að áróðursstríði rikj- anna skyldi hætt 1. ágúst, leið- togafundur yrði haldinn í Alsír eða Kuwajt einhverntima fyrir 10. ágúst og að herstjórnir rikj- anna kæmu saman til fundar. Illskeyttar árásir blaða í Kairó á hendur Gaddafhi halda áfram og segir Al-Ahram, að fáránlegar staðhæfingar hans megi rekja til þess að hann sé orðinn uppi- skroppa með þvætting og lygi. Gaddafhi sé að leika sér að eldin- Sadat um, sem Komi ekki á óvart, þar sem hann hafi hvorki samvizku né vitsmuni. Utanríkisráðherra Libýu sagði i gær, að stjórn hans væri reiðubú- in til að jafna ágreininginn við Egypta, og sagði, að átökum á landamærum ríkjanna væri lokið, en tók fram um leið að Egyptar hefðu átt upptökin. Yfirlýsingin í Kairó um að eng- inn leiðtogafundur sé á döfinni veldur þvi að í Mið-Austurlöndum óttast ýmsir um afdrif friðaráætl- unarinnar. Spánn: 11 handtekn- ir fyrir ETA-aðild San Sebastian — 30. júlí — Reuter LÖGREGLAN á Spáni hef- ur handtekið 11 manns, sem grunaðir eru um aðid að skæruliðasamtökunum ETA, en þau starfa í Baska- landi. Að sögn lögreglunnar tóku tveir mannanna þátt i því að sprengja í loft upp endurvarpsstöð sjónvarps á sínum tíma, auk fleiri hryðjuverka,'og hafi fund- izt mikið magn sprengiefn- is og vopna í vörzlu ETA skammt frá San Sebastian. Um fimmtán þúsund manns söfnuðust saman í borginni í gærkvöldi í minningu ETA-foringjans Bergereche, sem hvarf Frakklandsmegin landa- mæranna fyrir ári, og talið er að hægri sinnaðir öfga- menn hafi ráðið af dögum. Gæzlusveit- ir við búðir Palestínu- araba Beirút — 30. júlí — Reuter FRIÐARGÆZLUSVEITIR Arababandalagsins hafa tekið sér stöðu við búðir Palestínuaraba í Beirút til að sjá til þess að nýjum reglum, sem meðal nann- ars kveða á um að Palestínuarabar megi ekki yfirgefa búðir sínar vopn- aðir eða einkennisklæddir, verði framfylgt. Reglurnar gengu í gildi á miðnætti s.l. og hafa þær enn sem komið er ekki valdið erjum. Áframhald varð á bardögum stórskota- liða í Suður-Líbanon ínótt og í morgun, og segja Palestínuarabar, að hægri sinnar með tilstyrk ísraels- manna geri harða hrið að þorpum, sem eru í höndum vinstri sinna og Palestínu- araba. Sleppt gegn lausnargjaldi Novara, ttalfu. 30. júlí. AP. ANGELO Galli, kaup- sýslumanni frá Mílanó, sem rænt var í maímán- uði s.l., var í dag sleppt gegn lausnargjaldi. Að sögn lögreglunnar er Galli við góða heilsu og greiddi fjölskylda hans lausnargjaldið, en hefur ekki viljað skýra frá þvi hver upphæðin var. Yfirvöld á Ítalíu segja, að á þessu ári hafi 47 manns verið rænt, og er 15 enn saknað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.