Morgunblaðið - 31.07.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. JULl 1977
Kanadamaður leitar
nýrnaveikisbakteríu að
Laxalóni og Elliðaám
Rannsókna hans á Kollafjarðarstöðinni ekki óskað
KAXADAMAÐUR að
nafni Trevor Ewellin
dvaldist hér á landi á dög-
unum á vegum veiði- og
fiskimálaráðs Reykjavíkur-
borgr. Rannsakaði hann
stöðvarnar að Laxalóni og
við Elliðaárnar og heim-
sótti Kollafjarðarstöðina.
A síðasttalda staðnum
gerði hann engar rann-
sóknir og sagði Einar
Hannesson hjá veiðimála-
stofnuninni í samtali við
Mbl. í gær, að ekki hefði
verið talin ástæða til að
hann framkvæmdi neinar
rannsóknir. þar sem stöðin
væri undir stöðugu eftirliti
rannsóknarstöðvarinnar
„FARIÐ í róður kl. 6.30. Vjð
fyrstu hauju fer Binni í spilið og
slasast. Farið út aftur kl. 9.30.“
þessa færslu getur m.a. að lesa í
nýútkominni skýrslu rannsóknar-
nefndar sjóslya og er hún tekin
upp f skýrsluna til að sýna hve
dagbókarfærslur eru oft illa unn-
ar af skipstjórnarmönnum.
Þórhallur Hálfdánarson, starfs-
maður Sjóslysanefndar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
það væri skylt samkvæmt sigl-
að Keldum. Mbl. tókst ekki
í gær að ná tali af Jakobi
Hafstein, hjá veiði- og
fiskimálaráði Reykjavíkur-
borgar.
„Hann sagði nú í samtali við
mig þessi Kanadamaður, Trevor
Ewellin, að hann teldi sig ekki
geta sagt af eða á fyrr en hann
væri búinn aö ganga frá og rann-
saka þau sýni, sem hann tók hér“,
sagði Skúli Pálsson á Laxalóni i
samtali við Mbl. í gær.
„Þessi maður fullyrti í min
eyru og annarra, að þessi nýrna-
veikibaktería væri í öllum ám og
vötnum í Bandaríkjunum og hana
væri Ifka að finna i Skotlandi,
írlandi og Bretlandi. Og svo sagði
hann, að ef þessi baktería væri
hér að Laxalóni, þá gæti hún allt
eins verið í öllum ám á íslandi.
ingalögum, að tilkynna næsta
yfirvaldi um slys, er orðið hefði
um borð í skipi strax og kostur
væri og því fyrr sem sjópróf færu
fram þeim mun líklegra væri að
þau kölluð fram rétta mynd af
atburðinum.
Um þá færslu sem sjóslysa-
nefnd birtir í skýrsiunni, sagði
Þórhallur, að í því tilviki hefði
verið um alvarlegt slys að ræða og
maðurinn hefði tvfhandleggs-
brotnað.
Ég spurði manninn um laxveið-
ina á vésturströndinni. Hann
kvaðst ekki vita um magnið, en
hitt hefði hann heyrt að fiski-
menn hefðu fengið 200 milljónir
dollara fyrir lax á síðasta ári og
þessi fiskur gengur nú niður úr
þessum ám, sem hann sagði
bakteríuna vera i.
Ég vil taka það fram, að það er
ég sem hef sent grunsamlegan lax
utan til rannsókna og þvf er það
mér að þakka, ef upp um þennan
sjúkdóm kemst hér á landi. Þessi
svokallaða fisksjúkdómanefnd
hefur nú starfað í sjö ár, en allan
þann tíma hefur starfsmaður
hennar, Guðmundur Pétursson,
aldrei komið hingað í Laxalón til
rannsókna. Það er ekki fyrr en ég
sendi fisk í rannsókn til útlanda
að allt fer af stað.
Ég hef margoft undanfarin ár
skrifað þessari fisksjúkdóma-
nefnd og beðið um rannsóknir og
útflutningsvottorð fyrir regn-
bogasilunginn minn; sem rann-
sóknir erlendis hafa aldrei fundið
neitt athugavert við, en ég hef
ekki fengið svo mikið sem svar.
Svo er mér sagt, að þessi
Kanadamaður hafi ekki fengið
leyfi til að rannsaka eldisstöðina i
Kollafirði. Það er eftir öðru í
þessu öllu saman. Mér er nú næst
að halda þess vegna, að það sé
bara allt eins líklegt og hvað ann-
að að þessi nýrnavitleysa sé upp-
runninn þaðan, ef hún á annað
borð er til á íslandi.“
100 færri
hvalir veidd-
ir en í fyrra
í GÆR höfðu veiðzt 120 hvalir frá
upphafi vertíðar, 92 langreyðar
og 28 búrhvalir. í fyrra höfðu
veiðzt á sama tíma 219 hvalir.
Vertíðin byrjaði að þessu sinní
tæpum mánuði seinna en venju-
lega og auk þess hefur veiði verið
dræm vegna veðurs. I gær voru
tveir hvalbátar væntanlegir til
Hvalfjarðar með samtals 6 hvali.
íri í heimsókn
ÍRSKA birgðaskipið „L.E.
Setanta" verður í heimsókn hér i
Reykjavík dagana 1. til 5. ágúst og
mun liggja við Ingólfsgarð. Það
verður til sýnis almenningi frá kl.
14 til 17 þann 3. og 4. ágúst.
Skipið er tæp tólf hundruð tonn
og með sextíu og þriggja manna
áhöfn.
-----
Miles með
vinnings
forskot
BREZKI stórmeistarinn Miles er í
efsta sæti skákmótsins i Bienne í
Sviss eftir 10 umferðir með l'A
vinning. Næstir eru Anderson og
Torre með 6H vinning og Kavalek
og Hernandez eru með sex vinn-
inga hvor.
í tíundu umferð sömdu Miles og
Anderson um jafntefli eftir 14
leiki og Miles vann biðskák sína
úr níundu umferð við
Wirthensohn.
Önnur úrslit í tíundu umferð;
Kavalek vann Flesch, Pann og
Hug sömdu um jafntefli eftir 41
leik, Partos og Huss sömdu um
jafntefli eftir 44 leiki, Torre sigr-
aöi Kestler í 26 leikjum, Vukic
vann Lombard í 28 leikjum og
Robatsch og Wierthenson sömdu
um jafntefli eftir 38 leiki.
Þegar Morgunhlaðsmenn litu við f Fossnesti á Selfossi sl. föstudag
var starfsfólk hins nýja veitingastaðar að leggja síðustu hönd á
undirbúning að opnuninni. (Ijósm. Mbl. RAX).
Nýr veitingastað-
ur á Selfossi
NVR grill-staður, Fossnesti,
hefur verið opnaður á Selfossi.
Er hann i húsnæði Bifreiða-
stöðvar Selfoss hf. við Austur-
veg og er það bifreiðastöðin
sem á og rekur hinn nýja veit-
ingastað, en áður hefur verið
rekin benzínstöð og ferða-
mannaverzlun i minna húsnæði
á sama stað.
I spjalli við Gunnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra
staðarins, var Morgunblaðs-
mönnum tjáð að i hinum nýja
grill-stað yrði boðið upp á fjöl-
breyttan matseðil svo og rétt
dagsins, en einnig yrði boðið
upj) á þá þjónustu að matur
yrði sendur i hús. Þá er í bígerð
að Fossnesti búi út veiz.lur í
heimahús, og einnig verður
lögð áherzla á smurbrauðs- og
samlokuþjónustu. „Við munum
að öllu leyti leggja áherzlu á að
veita góða og fjölbreytta þjón-
ustu“, sagði Gunnar.
Hið nýja húsnæði Bifreiða-
stöðvar Selfoss er teiknað af
Arkó í Reykjavík, og starfs-
menn sömu teiknistofu hafa
jafnframt teiknað allar innrétt-
ingar. Byggingaverktakinn Sel-
ás sf. á Selfossi byggði húsið og
smíðaði allar innréttingar, en
smíði grillstaðarins hófst fyrir
um ár-i síðan. Starfsmenn þjón-
ustustöðvarinnar í heild verða
um 20 manns með tilkoinu mat-
sölunnar. Ekki hefur verið end-
anlega ákveðið hvér opnunar-
tími-Fossnestis verður. Á næst-
unni mun staðurinn þreifa fyr-
ir sér í þeim efnum, en Gunnar
sagði að fyrst um sinn yrði opið
frá 9 á morgnana og til a rn.k.
10 á kvöklin.
Rannsóknarnefnd sjóslysa;
Skipst j órnarmenn
trassa dagbókarfærslur
Beygjan tekin með svingi. Ljósm. Friðþjófur.
„Gefa karlmönn-
um ekkert eftir
nema síður sé ”
TELJA má fullvfst að fyrirj
nokkrum árum hefði fólk rekið
upp stór augu hefði það séð
kvenfólk við stýri strætisvagna
borgarinnar. En tfmarnir hafa
breytzt og Ifklega kippa fáir sér
upp við það nú að sjá kven-
strætisvagnastjóra í dag, en sú
sjón virðist verða æ algengari.
Morgunblaðið hafði samband
við Strætisvagna Reykjavíkur
og Kópavogs og innti nánar
eftir fjölda kvenna f þessu
starfi.
Karl Árnason forstöðumaður
Strætisvagna Kópavogs sagði
að tvær konur störfuðu við
akstur hjá þeim núna. Önnur
þeirra, Aðalheiður Arnljóts-
dóttir, væri fastráðin, hefði
keyrt Kópavogsvagnana s.l. tvö
ár, og hin, Kristín Árnadóttir,
væri i þann mund að verða fast-
ráðin, en hún hefði verið við-
loðandi starfið s.l. tvö ár.
Fastakaup þeirra er i kring-
um 108 þúsund að viðbættu
vaktaálagi. Hver vakt er sex
stundir og einn frídagur í viku.
Sagði Karl að báðar konurnar
stæðu sig prýðilega og gæfu
karlmönnunum ekkert eftir,
nema síður væri. Hefði hann
t.d. rekið sig á það að karlmenn
væru mjög hressir yfir því að
ferðast með kvenstrætóstjóra.
Og öruggt væri að farþegafjöld-
inn minnkaði ekki við tilkomu
þeirra. Skilyrði til starfans eru
meirabilpróf og svokallað rútu-
próf. Keyra báðar konurnar
Kópavogsvagnana frá Hlemmi,
sem fara þaðan fimmtán minút-
ur fyrir heila timann. Á sumrin
eru fjórir til fimm strætisvagn-
ar í gangi en á veturna tveimur
fleiri. Hjá strætisvögnum Kópa-
vogs eru starfandi sextán til
sautján bilstjórar að meðaltali.
í sumar voru ráðnir þar til
afleysinga sex bílstjórar og
voru það allt karlmenn.
Jakob Sigurðsson, vaktfor-
maður hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur, sagði að sex stúlk-
ur störfuðu við strætisvagna-
akstur i sumarafleysingum.
Tvær þeirra hefðu starfað i
fyrrasumar einnig, þær Guðný
Maria Guðmundsdóttir nemi Qg
Margrét Þorvaldsdóttir. Sagði
hann að ásókn kvenna í starfið
hefði aukizt mjög samanber
umsóknir og hefðu allar þær
sem sóttu um starfið í sumar
verið ráðnar. Eru þær á byrjun-
arlaunum, sem er 9. launaflokk-
ur að viðbættu 33 prósent
vaktaálagi.
Jakob kvað undirtektir far-
þega gagnvart kvenbílstjórun-
um mjög góðar og hefði svo til
engin kvörtun borizt, enda
sýndi það sig að þær væru
rólegar og yfirvegaðar við akst-
urinn. Þá sagði Jakob að enn
sem komið væri hefði engin
kvenbílstjóri starfaö hjá Stræt-
isvögnum Reykjavíkur yfir vet-
urinn, þegar færð væri öll
verri, en með hliðsjón af
frammistöðu þeirra á sumrin
sæi hann ekkert þvi til fyrir-
stöðu að þær ækju einnig i
ófærð og hálku.