Morgunblaðið - 12.08.1977, Síða 22

Morgunblaðið - 12.08.1977, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 12. AGUST 1977 radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar ÚTBOÐ Tilboð óskast í 1 5 þúsund fiskikassa fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuð á sama stað, mið- vikudaginn 1 4. september n.k. kl. 11.00 f.h. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR ! | Fríkirkjuvegi é — Sími 25800 ) j Útsala — Útsala Mikil verðlækkun. Glugginn, Laugaveg 49. Frá gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki Enn getur skólinn tekið við nemendum í framhaldsnám næsta vetur, í eftirtöldum brautum: Almennt bóknám, iðnbraut, viðskipta- braut, uppeldisbraut og fornám. Heima- vist er fyrir hendi. Umsóknir sendist sem fyrst til skólastjóra, Friðriks Margeirsson- ar, Hólavegi 4, Sauðárkróki. Skólanefnd. Til sölu Chevrolet Nova árgerð 1974 ekinn 46 þús. km. Philips kassettu útvarpstæki fylgir. Vel með farinn. BHkk og stá/ h. f. Bíldshöfða 12 Sími 86666. Akranes Til sölu er 5 herbergja íbúð. íbúðin var byggð til útrýmingar heilsuspillandi hús- næði og skal við ráðstöfun slíkra íbúða láta þær fjölskyldur sitja fyrir sem í lök- ustu húsnæði búa og mesta ómegð hafa eða eiga samkvæmt vottorði læknis við verulega vanheilsu að stríða. Umsóknir þar sem greint er frá ástæðum viðkom- andi sé skilað til undirritaðs sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. ágúst n.k. Akranesi 12. ágúst 1977 Bæjarritari Garðabær- skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði óskast í Garðabæ fyrir fræðsluskrifstofur Reykjanesumdæmis. Tilboð sendist í pósthólf 133 Garðabæ fyrir 1 8. ágúst 1977. Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis Iðnaðarhúsnæði Til leigu 240 fm. iðnaðarhúsnæði á jarð- hæð við Vesturvör í Kópavogi. Góð loft- hæð og góð aðkeyrsla. Upplýsingar í síma: 4327 7. Vestfjarðarkjördæmi Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðis- flokksins í Vestfjarðarkjördæmi, verður haldinn í Félagsheimilinu, Hnífsdal, sunnudaginn 4. sept. kl. 1 0 f.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Sumarferð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri Farið verður frá ferðaskrifstofu Akureyrar Ráðhústorgi kl. 9.30, sunnudaginn 14. ágúst. Farið verður um Skagafjörð og til baka yfir Lágheiði — Ólafsfjörð. Komið við á Hólahátíð. Fararstjóri: Halldór Blön- dal. Þátttökugjald 2000 kr. Matur innifalinn. Þátttaka tilkynnist fyrir föstudagskvöld. Nánari uppl. og tilkynning þátttöku hjá Halldóri Blöndal sími 11202, Gunnlaugi Jóhannssyni sími 23670, Sólveigu Dag- bjartsdóttur sími 21678 og Sverrir Leó- syni 22841. Sjálfstæðisfélögin Akureyri. Kveðja — Guðný Maren Valsdóttir Tíð og átakanleg hafa slysin verið á þessu sumri. Margt hjarta helsært við sviplegan missi ást- vinar, og ekki ofsagt — þjóðin í heild harmi lostin æ ofan i æ. — Eitt þessara hörmulegu slysa varð að kvöldi hins 17. júií, er tvær stúlkur í blóma lifs létu lífið í bilslysi vestur í Dölum — og al- þjóð veit. — Önnur þeirra, Guðný Maren Valsdóttir var aðeins 15 ára gömul, fædd á Akranesi hinn 28. september 1961 — og var nafn ömmu sinnar. Hún átti til góðra að telja. Foreldrar hennar eru Sigríður Garðarsdóttir og Valur •Jónsson húsasmiður. Afar hennar og ömmur: Garðar Fínnsson, kunnur skipstjóri og aflamaður, og kona hans Guðný Maren Matthíasdóttir og Jón Guðmunds- son húsasmíðameistari frá Guðna- bæ á Akranesi, og kona hans Sig- urrós Guðmundsdóttir. Guðný Maren ólst upp í skjóli ástríkrar móður, við mikla umhyggju ömmu sinnar og nöfnu og Garðars afa síns, en var frá bernsku löng- um hjá föður sínum og Rósu ömmu á Akranesi, sem hún unni mjög, og föðursystkinum þar, svo og á Arnbjargarlæk, hjá Guð- rúnu, föðursystur sinni og hennar fjölskyldu. í þessum vina- og frændahópi átti hún sínar yndis- stundir, og öllum þeim var hún einkar hugljúf og kær. Maren var mikið náttúrubarn og kunni vel að meta það, sem sveitin er og á með öllu sinu, gróðri og grösum og skepnunum — i fegurð sinni og frjálsræði, sem borgarlífið hefur ekki uppá að bjóða. — Þó að árin hennar yrðu ekki mörg, lét hún eftír sig þau spor, sem af lýsir og ljómar, og varðveitast i hugum og hjört- um ástvina hennar og vina. Þar er vissulega bjart yfir — enginn skuggi, ekkert ljótt, allt fagurt og tært. Maren var falleg stúlka, svip- hrein — með skæru augun sín, sem sögðu það, er inni fyrir bjó. Blíðlynd var hún og ástúðleg og tiilitsöm enda átti hún hlýjan streng í allra brjósti, sem henni kynntust. Dul var hún nokkuð og bar ekki tilfinningar sínar á torg, eigi að síður glaðlynd og naut þess að vera í hópi jafnaldra sinna. Er nú stórt skarð opið og ófyllt í þeirra röðum — og sár tregi. En dýpst er sárið að sjálf- sögðu i hjörtum ástvina hennar, móður hennar og föður. — Við mannanna börn erum undur lítil og vanmegna, ekki síst þegar stóru og þungu höggin dynja yfir. Geislinn bjarti i sortanum mikla er okkar kristna trú, trúin, að góður Guð standi að baki, leiði lífið á hverri stund — og einnig í sárustu sporunum, af visdómi sín- um. Með hjartans þökk fyrir allt hið unaðslega, sem við eigum og geymum um okkar blessuðu Mar- en, brosið hennar, einlægnina og ástúðina, feium við hana hand- leiðslu föður lífsins og Freslar- ans. Guð græði sár móður hennar og föður — og okkar allra, sem urtnum henni, og þerri tárin höfgu, er fylgja henni. Föðursystkinin. Ivan H. Rasmus- son — Minning Fæddur 21. sept. 1903. Dáinn 3. ágúst 1977. 3Í dag kveðjum við góðan vin og félaga, ívan H. Rasmusson. Hann var fæddur í Kaupmannahöfn 21. sept. 1903, foreldrar hans voru sænsk en voru búsett i Kaup- mannahöfn. Innan við fermingu missti hann móður sína og nokkr- um árum síöar föður sinn. Þetta var þung raun fyrir ungan dreng að missa sína nánustu og standa einn eftir á eigin fótum, en hann var ákveðinn og hafði dugnað og kjark tíl að bjarga sér. 14 ára gamall réði hann sig á skip, sem sigldi til Austurlanda, en einnig þar varð hann fyrir mótlæti, því hann veiktist og dvaldi þar á sjúkrahúsi um tíma. Siðan hélt hann aftur heim til Danmerkur. Árið 1921 kvaddi Ivan aftur fósturjörð sína og héit i þétta skipti til norðurs og 2. febr. sama ár steig hann á land í Reykjavík og átti hér heima til dauðadags. Hér held ég að hafi orðið mikil umskipti í lífi hans. Fljótt eftir komu hans hingað byrjaði hann að læra rennismíði hjá h/f Hamri, þar sem hann vann síðan alla æfi meðan þrek og heilsa leifði, sem mjög tryggur og traustur vinnu- kraftur. Þar rétti hann mörgúm hjálparhönd, svo og víðar annars staðar. Hann steig hér líka mesta gæfu- spor lífs síns, er hann kvæntist eftiriifandi eiginkonu sinni, Ölínu Bjarnadóttur, (Pétursson- ar) 14. jan. 1928. Þau eignuðust 2 syni; Werner lyfsala og Carl Flug- vélstjóra. í félagslifi lét hann til sín taka, hann sat i mörg ár í stjórn Det Danske Selskab í Reykjavík, hann var þar sem alltaf reiðubúinn til að hjálpa. Þannig var Ivan. A hlýlegt heimili Ivans og Ölinu var mjög ánægjulegt að koma og gestrisni mikil, þó ekki sé þar hátt til lofts né vítt til veggja. Mér var sjálfum tekið sem væri ég einn af sonum þeirra frá því ég kom fyrst hingað til lands, þau vildu allt fyrir mig gera. Ég mun minnast stundanna, er við Ivan sátum og töluðum um Kaup- mannahöfn og margt annað, því hann var mjög minnugur og gat frá mörgu sagt. Ekki er langt síðan Ivan talaði um að hann hlakkaði til að halda hátiðlegt gullbrúðkaup þeirra hjóna, sem orðið hefði á næsta ári, en enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Nú er Ivan horfinn, og er sárt saknað af fjölskyldu hans, sem hann var stoð og stytta, en minn- ingarnar geymast um góðan mann. Konan min og ég þökkum fyrir góða vináttu og ógleymanlegar stundir á heimili Ivans og Ólínu. Við hjónin vottum Ölinu, sonun- um og öðrum aðstandendum inni- lega samúð. O. L.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.