Morgunblaðið - 04.10.1977, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1977
43
Karpov
(Eftir 15. Rxe5 — Rxe5 kemur
svartur fljótlega riddara á d4) h6
16. Rfl — Bd4! (Yfirráð svarts
yfir d4 reitnum eiga eftir að reyn-
ast hvítum dýrkeypt). 17.Bf4 —
e5 18. Bel — Rb8 19. Rh4 — Rc6
20. a3 — a6 21. Rf5 — b5! (Svart-
ur er nú í sókn á öllum vígstöv-
um).
22. Bd2 — b4 23. axb4? (Eins og
sést á framvindu skákarinnar var
23. a4 mun betri leikur í stöð-
unni) Rxb4 24. Bxb4 — cxb4 25.
Rle3 — Bc3 26. Hedl — a5 27.
Rd5 — Bxd5 28. exd5 — Kh8 29.
Hd3 — a4.
30. d6? (Nauðsynlegt var 30. bxa4
— Dxc4 31. Re3. Friðrik var hins
vegar kominn í tímahrak og lék af
sér) De5 (Nú verður hvítur að
gefa skiptamun, því að svartur
hótar 31. . . . e4 og 31. . . . a3 ) 31.
Hxc3 — bxc3 32. Dxc3 — axb3 33.
Hxb3 — Hb8 34. De3 (Hvað
annað. Svartur hótaði 34. ... e4)
Dxc4 35. Hd3 (Mun betri tilraun
var 35. Hxb8 — Hxb8 36. Dxe5.
T.d. ekki 36... Hcl+ 37. Kh2 —
Dcl 37. g4 — Dgl+ 39. Kg3 —
Hb3+ 40. Re3 og hvítur er
sloppinn) Hfd8 36. Re7 — e4 37.
Hd4 — I)o6 38. Df4 — Hb6 39. Rf5
— g5 40. Dcl — Dxf5 og hvítur
gafst upp.
Miles, aðalkeppinautur
Karpovs tefldi í gær við Kavalek,
með svörtu. Skák þeirra var
rólegt jafntefli. Sama er að segja
um skákirnar Hilbner — Sosonko
og Andersson — Hort. Skák
þeirra Gligories og Timmans var
hins vegar öllu meira spennandi.
Gligoric fórnaði snemma manni
fyrir betri stöðu og þrátt fyrir að
Timman gæfi manninn til baka
átti hann greinilega í vök að
verjast er skákin fór í bið. í gær-
kvöldi var skákin tefld áfram i 16
leiki. Að sögn Barry Withuis,
fréttaritara Morgunblaðsins i
Tilsburg, sá Timman alla 16
leikina fyrir í biðstöðurannsókn-
um sínum og mun skákin er hún
fór aftur í bið hafa verið talin
jafnteflisleg.
Skák rússanna Smyslovs og
Balashovs var einnig mikil bar-
átta. Er skákin fór aftur i bið i
gærkvöldi hafði Balashov ein-
hverja vinningsmöguleika.
Afstaða Egypta til nýrr-
ar Genfarráðstefnu óljós
Kaíró — 3 október
— Reuter — AP
ANWAR Sadat Egyptalands-
forseti átti í dag viðræSur við
Yasser Arafat leiðtoga
Palestíuaraba um áskorun
stjórna Bandarikjanna og
Sovét um að Genfarráðstefn-
an um Miðausturlönd verði
kölluð saman að nýju i
desembermánuði n.k. Ekkert
hefur verið látið uppi um það
sem Sadat og Arafat fór á
milli, en varaforseti Egypta-
Fritz Naschitz
Ræðismaður ís-
lands í Tel Aviv;
Of mikið
gert úr
gremju
r
Israela
„ÞAÐ ER rétt að tsraelar eru
gramir vegna bandarísk-
sovézku yfirlýsingarinnar
varðandi Genfarráðstefnu um
IVIiðausturlönd", sagði Fritz
Naschitz, aðalræðismaður ís-
lands í Tei Aviv, í stuttu sfm-
taii við Morgunblaðið f gær.
„Aftur á móti heyrist mér,
aö erlendar fréttastofnanir
geri of mikið úr málinu. Við
höfnum þessum áskorunum
eða hvað á að kalla þetta og
þar með er málinu lokið af
okkar hálfu. Það er vitleysa að
búast við aö hér verði lýst yfir
neyðarástandi til að stjórnin
geti gert sérstakar ráðstafanir
til að að forðast þrýsting af
háflu Bandaríkjamanna, eins
og einhvers staðar var sagt.
Ástandið er ósköp eðlilegt hér
og ekki meiri spenna en geng-
ur og gerist. Og við eigum ekki
von á því að nein stórtíðindi
verði, ekki að svo stöddu að
minnsta kosti."
lands, Hosni Mubarak, lagði
síðdegis af stað í ferðalag til
nokkurra Arabalanda til að
freista þess að samræma
stefnu Araba vegna nýrra
viðhorfa í sambandi við lausn
deilunnar í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Stjórn Egyptalands hefur enn sem
komið er ekki látið hafa neitt eftir sér
um áskorun Bandaríkjamanna og
Sovétmanna opinberlega, en PLO hefur
hins vegar lýst því yfir að áskorunin sé
„spor i rétta átt" í sameiginlegri yfir-
lýsingu stjórna Sovét og Bandarikjanna,
þar sem áskorunin um nýja Genfarráð-
stefnu er birt, er aðeins farið almennum
orðum um þátttöku PLO
Skömmu áður en yfirlýsingin var birt
var Öryggisráð Egyptalands kallað
saman, og hélt sérstakur sendiboði
siðan til Bandarikjanna til fundar við
Ismail Fahmi utanrikisráðherra, en hann
mun hitta Carter forseta að máli þar
siðar i vikunni. Sú bið sem orðið hefur á
því að stjórnin i Kaíró láti i Ijós álit sitt á
yfirlýsingu Bandarikjamanna og Sovét-
manna þykir gefa til kynna að Banda-
rikjastjórn hafi krafizt undanlátssemi
Egypta varðandi skilyrði þeirra fyrir þvi
að Genfarráðstefnan komi saman, og
séu þeir ekki reiðubúnir til að verða við
slíkum kröfum að svo stöddu Þá telja
stjórnmálaskýrendur að Egyptar felli sig
ekki við að í yfirlýsingunni komi ekkert
skýrt fram sú skoðun, að PLO eigi að
taka beinan þátt í fundum ráðstefnunn-
ar, heldur aðeins að við lausn deilunnar
verði að tryggja rétt palestínsku þjóðar-
innar til búsetu á eigin landsvæði
ísraelsmenn brugðust hinir verstu við
yfirlýsingunni, og Menachem Begin for-
sætisráðherra hefur lýst því yfir að
ísraelsmenn geti ekki fallizt á efni
hennar Sagði Begin ennfremur að svo
kynni að fara að ísraelsstjórn sæi sig
tilneydda til að lýsa yfir neyðarástandi
og koma á fót þjóðstjórn til að standa
gegn þrýstingi utan frá
Haft var eftir Cyrus Vance utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna í dag að
stuðningur Bandaríkjanna við þau
réttindi Palestínuaraba sem minnzt er á
í yfirlýsingunni sé engin ný bóla, og
kvaðst hann þvi undrandi á hinum
harkalegu viðbrögðum sem fram hafa
komið í ísrael Vance lét þó i Ijós von
um að þessi harða afstaða kynni að
breytast innan tiðar, og sagði að náið
samráð yrði haft við ísraelsstjórn um
málið
Sadat
Arafat
Olga og óeirð-
ir á Ítalíu
Róniahorg .*{. «kt. Reuter.
ÓEIRÐALÖGREGLA varpaði
táragassprengjum til að dreifa
þúsundum vinstrisinna sem
reyndu að ráðast til atlögu við
hægrimenn að lokinni útfiir ungs
vistrimanns sem hafði látizt eftir
árás nýfasista.
Vinstrisinnarnir höfðu vafið
vasaklútum um andlit sér tl að
búa sig undir atlögu lögreglunn-
ar. Héldu þeir rakleitt frá jarðar-
för unga mannsins sem hét Walt-
er Rossi og til hæðar einnar i
Rómaborg þar sem hægrimenn
halda iðulega útifundi sína. Sex
brynvarðir bílar, skipaðir lög-
reglumönnum, voru þar þá fyrir
og vörnuðu þeim vegarins og
óeirðalögregla kastaði táragas-
sprengjum inn í hópinn. Nokkru
fyrr höfðu þúsundir vinstri-
manna, sem báru rauða fána, far-
ið um götur Rómaborgar og látið
óspart í ljós gremju og reiði vegna
láts Rossis, sem var jarðsettur við
mikla viðhöfn og á kostnað rikis-
ins. Hann var skotinn á föstudag
og hefur verið mjög ókyrrt i
mörgum ítölskum borgum. Sam-
tímis þvi að vinstrisinnar fylgdu
Rossi til grafar sýndu þúsundir
verkamanna samstöðu með þeim
gegn nýfasistum með þvi að
leggja miður vinnu i eina klukku-
stund.
Rossi var félagi i Lotta
Continua, sem eru öfgasamtök til
vinstri. Margir hafa orðið til að
lýsa reiði sinni vegna morðs hans
og Giulio Argan, borgarstjóri í
Róm, sem er stuðningsmaður
kommúnista, sagði að Rossi hefði
verið fórnarlamb fasistiskar
heiftar.
í óeirðunum hafa alls um tólf
manns orðið fyrir meiðslum. I dag
skutu tveir óþekktir byssumenn á
unga stúlku þegar hún var að
leggja af stað til vinnu. Stúlkan er
kommúnisti og skoðanabræður
hennar sögðu að þetta væri ber-
sýnilega atlaga af hálfu nýfasista
en á þvi hefur engin staðfesting
fengizt.
Kyrrt í Dacca eftir að upp-
reisn var brotin á bak aftur
Oacca. BanKladosh.
3. okt. AP. Routor.
AÐ MINNSTA kosti 86 menn úr
her Bangladesh voru felldir í
uppreisnartilrauninni þar um
helgina og sumir þcirra voru for-
ingjar í flugher landsins, að því
er óstaðfestar heiinildir vildu
hafa fyrir satt. Allt bendir til
þess, að vakað hafi fyrir upp-
reisnarinönnunum að ráða af dög-
um Ziah Rahmann, forseta lands-
ins, og A.G. Mahmoud, flugmar-
skálk, sem var helzti milligöngu-
maðurinn f samningaviðræðun-
um við japönsku flugræningjana.
í fréttum frá Dacca i dag, mánu-
dag, sagði að um sextíu manns
hefðu verið handteknir fyrir að-
ild að uppreinartilrauninni og
myndi herréttur fjalla um mál
þeirra innan fát ra daga.
Rahman forseti ræddi í dag við
helztu leiðtoga hersins til að
ganga úr skugga um að allt væri
með kyrrum kjörum i landinu.
Hann sagði í útvarpsávarpi til
þjóðarinnar að herlög giltu áfram
í landinu eins og undanfarna 23
mánuði, útgöngubann væri frá
sólsetri til sólarupprásar, og að ró
By ggj a nýjan píramída!
Kairó 3. okt. AP
HÓPUR fornleifafræðinga
lagði um helgina fram áætlanir
sfnar um byggingu nýs píra-
mfda í Egyptalandi og verður
það sá fyrsti sem reistur er í
landi faraóanna f nær þvf fjög-
ur þúsund og fimm hundruð ár.
Yfirmaður hópsins, Sakuji
Yoshimura, japanskur forn-
leifafræðingur, sagði að enginn
vissi svo að örúggt væri hvernig
piramídar væru byggðir, enda
þótt ýmsar kenningar hefðu i
aldanna rás verið settar fram
um það. Hann sagði að eina
leiðin til að komast að þessu
væri að ráðast í byggingu píra-
rnída og mun undirbúnings-
vinna hefjast í janúar. Við
byggingarvinnuna sjálfa þarf
að likindum 10 þúsund verka-
menn. Japanski píramidinn
mun verða um það bil einn sjö-
undi af stærð Keopspíramíd-
ans, sem er meöal sjö undra
veraldar.
Ekki hefur verið endanlega
ákveðið hvar píramídanum
verður valinn staður. Verður
haft samráð við egypzku stjórn-
ina um það, en hún hefur í
meginatriðum fallizt á áætlun
visindamannanna en sett
nokkrar skorður við verkinu að
því er fréttir herma. Meðal
þeirra er að piramídinn verði
ekki byggður i sjónmáli við
píramidana i Giza og vel getur
verið að þess verði krafizt að
píramídinn verði fjarlægður
eftir að hann hefur verið
byggður, rannsakaður og mynd-
aður.
Talið er að kostnaður verði
um ein milljón dollara og mun
japanska sjónvarpsstöðin NTV
standa straum af þeirri hlið
nálsins.
og kyrrð væru komin á. Hann
sagði að ótilgreindir, óánægðir og
agalausir foringjar í hernum
hefðu gert byltingartilraunina. en
þeim hefði ekki tekizt að koma
fram ætlun sinni.
Enda þótt fréttir af uppreisnar-
tilrauninni séu ekki alls kostar
ljósar virðist þó sem uppreisnar-
mennirnir hafi gripið tækifærið
þegar allir helztu valdamenn
landsins höfðu hugann við að
miðla málum i flugránsmálinu.
Fyrir helgina hafði komið til
átaka i borg í norðurhluta lands-
ins og er ekki vitað hvort óánægj-
an breiddist þaðan út og til Dacca.
Þeir foringjar sem voru nokkuð
hátt settir i flughernum létu til
skarar skriða þegar japanska vél-
in með gísla og lausnarfé var ný-
lent á flugvellinum í Dacca. Náðu
þeir m.a. utvarpsstöð borgarinnar
á vald sitt um hrið og sendu þaðan
út ávörp. Forsetinn og fleiri sam-
starfsmenn hans létu þá flugráns-
málið lönd og leið um sinn og fóru
að berja á uppreisnarmönnum að
sögn Reuters. Gekk það svo greið-
lega fyrir sig að nokkrum klukku-
stundum síðar var ljóst að upp-
reisnin var farin út um þúfur.
Það var þó ekki ljóst strax að svo
margir hefðu látizt, þvi að fyrstu
fréttir hermdu að uppreisnar-
menn hefðu gefizt upp án þess að
veita mótspyrnu og reyndist það
ekkí rétt.