Morgunblaðið - 06.11.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977
3
Páll Gfslason skátahöfðingi veitir Borghildi Fenger æðsta heiðurs-
merki skátahreyfingarinnar, „Silfurúlfinn".
65 ára skátastarfs
á Islandi minnzt
Hótel Reynihlíð opið
þriðja veturinn í röð
Nýtingin allt frá Oog uppí 100% á veturna
TIL AÐ minnast 70 ára
skátastarfs í heiminum og
þá einnig 65 ára skáta-
starfs á íslandi héldu skát-
ar sl. miðvikudagskvöld
Fjárlaga-
ræðan á
þridjudag?
FYRSTA uinræða fjárlaga fer
fram í Alþingi á þriðjudag og
mun Matthías A Mathiesen,
fjármálaráðherra, þá flytja
fjárlagaræðu sfna. Að lokinni
ræðu ráðherrans munu full-
trúar annarra þingflokka að
venju fjalla um fjárlagafrum-
varpið.
fjölmenna kjöldvöku í
Iþróttahúsi Hagaskoðla.
Það var árið 1907 að Baden
Powell, stofnandi skáta-
hreyfingarinnar, fór með
hóp drengja í útilegu á
Brownsee-eyju.
Fer því vel á því á þessum tíma-
mótum aö næsta starfsár Banda-
lags fslenzkra skáta ber yfirskrift-
ina „Skátalíf er útilíf
A kvöldvökunni var Borghildi
Fenger varaskátahöfðingja veitt-
ur „Silfurúlfurinn“, æösta heiö-
ursmerki skáta. Fyrir kvöldvök-
una á miövikudag var stofnaö
skátafélag á Seltjarnarnesi og
fóru skátar úr hinu nýja félagi í
blysför til kvöldvökunnar.
Nú um helgina stendur yfir
skátaþing á Hrafnagili i Eyjafiröi
og var reiknaö meö aö þátttakend-
ur yröu 80—90 talsins.
Reynihlíð 4 nóv.
frá Ágústi I. Jónssyni,
blm Mbl.
HÓTELIÐ í Reynihlið verður opið í
vetur 3. veturinn í röð en það er
fátitt að hótel í sveitum landsins séu
opin yfir vetrartímann. Ástæðan fyrir
því að opin verður i vetur í Reynihlíð
er ekki sízt hinn mikli erill sem fylgt
hefur framkvæmdum við Kröflu og
sú óvissa sem verið hefur oft undan-
farin ár er gos eða hættuástand
hefur verið yfirvofandi.
Fyrir um 10 árum er unnið var að
byggingum Kisiliðjunnar var þó einnig
opið í Hótel Reynihlíð að vetrarlagi, en
frá 1 969 var lokað þar til 1 975 Hafði
hótelinu verið lokað tveimur dögum
áður en gosið varið í Leirhnúk í
desember það ár en opnað þá og síðan
ekki verið lokað Mbl spurði i dag
Arnþór Björnsson hótelstjóra i Reyni-
hlið, hvort ekki væri erfitt að hafa hótel
opið yfir vetrarmánuðina
— Vissulega er hæpinn fjárhags-
legur ávinningur að þvi en nauðsynlegt
vegna hins mikla erils sem alltaf verður
annað slagið, sagði Arnþór. — Hótelið
STJÓRNUNARFÉLAG íslands hefur
hafið vetrarstarf sitt, en félagið er
fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
inga, sem vilja efla áhuga á og stuðla
að bættri stjórnun með fundum, ráð-
stefnum, námskeiðum og útgáfu efn-
is á sviði stjórnunarmála.
í frétt frá félaginu segir að haldin
verði um 30 námskeið í vetur á vegum
félagsins og af nýjum efnum eru
nefnd: Arðsemi og áætlanagerð þar
sem Eggert Ágúst Sverrisson viðskipta-
fræðingur leiðbeinir, félagaréttur þar
sem Páll Skúlason lögfræðingur leið-
beinir, toll- og verðútreikningar þar
sem Karl Garðarson viðskiptafræðing-
ur er leiðbeinandi Þá er nefnt nám-
skeið er nefnist Fyrirtækið i óstöðugu
hefur 28 herbergi og gistiaðstöðu fyrir
45 manns í þeim en yfir vetrar-
mánuðina er nýtingin allt frá 0 og uppi
100%
Áhætta er við tímann frá lokum
september og fram í mai, en þá hefst
ferðamannastraumur á ný Eru út-
lendingar stór hluti þessa hóps sem
notar þjónustuna hér en veitingasala er
ævinlega-mikil yfir sumarmánuðina og
ekki óalgengt að hér séu að meðaltali
milli 1 00 og 200 manns i mat í júli- og
ágústmánuði, sagði Arnþór Björnsson
Upphaflega var veitingasala i gamlcí
bænum í Reynihlið en smátt og smáh
hefur hotelið fært út kviarnar og er nú
mjög vistlegt i nýtízkulegum húsa
kynnum þess Þess má geta að hóteliÚ
tók við rekstri mötuneytisins í Kröflu-
búðum 1 júlí s.l. og nota það nú um
50 manns Sagði Arnþór að reiknað
væri með að það yrði lagt niður um
áramót, en þá er áformað ð virkjunin
verði komin i gang og aðeins fastir
starfsmenn þar efra, en ekki vinnu-
flokkar eins og verið hefur undanfarin
ár Þá má geta þess að hótelið í Reyni-
hlið rekur bílaleigu i sambandi við
hótelið á Húsavik og fleiri aðila
umhverfi og á þvi mun leiðbeina John
Winkler framkvæmdastjóri frá Bret-
landi
í janúarmánuði næstkomandi efnir
félagið til ráðstefnu í Munaðarnesi þar
sem fjallað verður um efnið „Þjóðfé-
lagsleg markmið og afkoma íslend-
inga", og meðal fyrirlesara þar verða
dr Gylfi Þ Gislason, alþm., Jónas H
Haralz, bankastjóri, og dr Guðmundur
K Magnússon prófessor
Einnig er i frétt frá félaginu greint frá
klúbbi starfsmannastjóra, en þar geta
þeir borið saman bækur sinar óg var
þessi klúbbur stofnaður á s.l. vetri.
Framkvæmdastjóri SFÍ er Friðrik Sóf-
usson.
Ljósm. Kristinn
Frá einu atriði skenimtunar
Sjálfsbjargar.
Skemmtun
leikaranna
endurtekin
SJALFSBJÖRG, Landssamband
fatlaðra, efndi í fyrrakvöld til
miðnæturskemmtunar í Háskóla-
bíói ug að sögn Trausta Sigur-
laugssonar, franikvænidastjóra,
tókst hún í alla staði vel og var
fulit hús.
Nú hefur verið ákveðið að
enduitaka þessa skennntun og
verður hún í HáskóLabíói í dag kl.
14. Það eru leikarar frá Leik-
félagi Reykjavíkur og er efnið
einkum sótt í gamlar revíur, söng-
leiki og gamanleiki. Sigriður
Hagalín og Guðrún Asmundsdótt-
ir stjórná dagskránni, og í henni
taka þátt fjölmargir leikarar frá
Iðnó.
Trausti Sigurlaugsson sem jafn-
framt er formaður byggingar-
nefndar húss Sjálfsbjargar sagði
að allur ágóði af þessum skemmt-
unum rynni til framkvæmda við
hús landssambandsins.
Vetrarstarf Stjóm-
unarfélagsins hafið
Munið Útsýnarkvöldið — Ítalfuhátíðina
________að Hótel Sögu í kvöld_______