Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977 Umsjón: Erna Ragnarsdóttir. „Fólk sem hefur áhuga á lífinu hlýtur að vilja búa upp á eigin spýtur og bjarga sér sjálft.,, Spjallað við Jóa og Guðnýju ÞAÐ virðist rík tilhneiging f okkar þjóðfélagi að fiokka allt, ekki sfst manneskjur, á allan hugsanlegan máta, svo sem börn, unglinga, verkafólk, námsmenn, geðsjúka, fatlaða, aldraða, og reisa síðan stofnan- ir fyrir hven hóp um sig til kyrfilegrar varðveislu. Árangur þessarar þróunar er m.a. sá að fólk hefur fjar- Igæst hvert annað og einangrast hvert á sínum stað. Samfélag okkar virðist með hverjum deginum sem líður vera að glata tækifærum til auðugs og margbreytilegs umhverfis, til mannlegrar reynslu og upplifunar. Ef til vill má skýra þessa þróun á þann veg að flokkunin og stofnanirnar séu dæmi- gerðar afleiðingar ákvarðana sem verða til í 10—15 manna nefndum, þar sem f sitja menn sem eiga sæti í öðrum nefndum og allt snýst um að finna lausn sem hljómar sann- færandi f ræðu og Iftur vel út á teikningu, útkoma sem gengur upp og má taka til afgreiðslu — þökk fyrir fundi slitið. Undirrituð á stundum leið fram hjá einni stofnun, Hátúni 12 og hefur velt því fyrir sér hvað færi þar fram, hvernig líf þess fólks væri sem þar byggi og hver væru viðhorf þeirra til umheimsins. Um- horfssíðan mælir sér mót við tvö ungmenni, þau Guðnýju Guðnadóttur og Jóhann Pétursson til að spjalla við þau um starfsemi Sjálfsbjargar um þau sjálf og lífsviðhorf þeirra. Þar sem þau hafa það m.a. sameiginlegt að notast við hjólastóla til þess að hreyfa sig af einum stað á annan snerist umræðuefnið að töluverðu leyti um fötlun, hvernig gengi að bjarga sér, komast leiðar sinnar inni og úti, skemmta sér, hitta fólk, menntast o.s.frv. Jóhann eða Jói eins og hann er oftast kallaður, býr í Hátúni 12 en Guðný í íbúð í Kópavogi. Guðný sem er bóndadóttir úr Hvalfirði lenti í bílslysi fyrir fjórum árum og lamaðist við það upp að höndum. Hún hefur af átorku þjálfað sig og stælt og ekur nú aftur sínum bíl og býr í eigin íbúð. Fast starf Uppalinn á Landspítala Jói sem hafði fram að þessu setið þögull að mestu' en sposkur og rekið inn eitt og eitt stríðnisorð til vinkonu sinnar lét nú til leiðast að segja okkur stutta ævisögu sem byrjaði: „Það var rigning þegar ég fæddist í Skagafirði." Hann fékk liðagit á unga aldri og eftir að hafa verið sendur suður og norður í lækniserindum hafnaði hann miklu. Hér ræður maður ferðum sínum, getur haft gesti, komið og farið að vild, þarf aðeins að láta vita.“ „Höfum okkar hentisemi“ Við höfðum veitt því athygli að opið var inn á flest herberg- in á ganginum og talsverð um- ferð var af fólki mest á hjóla- stólum, sem jafnvel gægðist i gættina og bauð góða kvöldið Jói teflir hraðtafl ásamt skólafélaga úr Hamrahlíð Ég gat ekki lengur búið heima — allir vildu allt fyrir mann gera og það var í raun og veru vel þegið en ég vildi bjarga mér alveg sjálf. Ég fór til Reykjavíkur og fór að vinna á kassa hjá Hagkaup. Ég hélt það út í Vá ár en þá varð ég a hætta. Þrátt fyrir að vinna bara *4 daginn var þetta of erfitt og ég var of mikið uppá aðra komin. Síðan var ég tæpt ár atvinnulaus, sama hvar sótt var um, þar til loksins í sumar að ég fékk vinnu í’afleysingum hjá Reykjavíkurborg og er nú- ráðin í fast starf vió síma og skrifstofuvinnu frá kl. 8,25—16,45 án þess að finna fyrir því. Það er búið að breyta klósettum, stækka hurðir, taka burt þröskulda og fylla uppí útitröppur svo stóllinn komist um allt.“ heyra, hvernig þau verja tóm- stundum sínum. „Það fer eiginlega mestur tími í að þrífa íbúðina," segir Guðný, „heill dagur oft, nú maður horfir á sjónvarp, tekur í handavinnu, les — mest ást- arsögur og er alltaf kominn snemma í háttinn. Ég fer oft heim til Akraness um helgar og ek þá sjálf.“ Hefurðu talstöð? „Ég læt nú útvarpið og segulband duga,“ segir Guðný og hlær, „hef ekki efni á hinu. Annars er það talsvert mál ef eitthvað kemur fyrir á leið- inni, t.d. springur dekk eða hvað sem er — maður gæti lagst á flautuna og fólk mundi hugsa: Hún er laglega skrítin þessi — fólki dettur líklega síðast af öllu í hug að í bílnum sitji manneskja sem getur sig lítið hreyft." Að svara í síma Hvernig ferðu til og frá vinnu? „Ég kem mér sjálf í framsæt- ið en svo þarf einhver að hjálpa mér að taka hjólastól- inn saman og skella honum í skottið. Heima bíður mín ann- ar stóll á bílastæðinu sem er yfirbyggt. Jú, jú, stóllinn hverfur stundum og eitt sinn vantaði á hann annað hjólið en ég talaði bara við krakkana þarna og útskýrði fyrir þeim, hvers vegna ég þyrfti að hafa stólinn þarna o.s.frv. Þau tóku vel í að passa stólinn fyrir mig og hefur allt gengið vel síðan.“ Við töluðum um aðbúnað í híbýlum fatlaðra, hvernig væri að svara dyrabjöllu þegar mað- ur hefur komið sér notalega fyrir uppi i sófa, komast á hjólastjól inn um þungar úti- hurðir með stífri hurðaloku og Guðný sagði okkur hlæjandi sögu af baráttu sinni við sím- ann, þrátt fyrir 7 metra snúr- una. „Ég hlusta gífurlega mikið á pop-músik en finnst dásamlegt að fá inn á milli nokkur lög með 14 fóstbræðrum, jafnvel sinfóníur — ég tala nú ekki um þá fjórðu eftir Beethoven,“ upplýsir Guðný. „Það væri vel hægt að láta sér nægja að læra og sofa í tómstundum“ sagði Jói, „En ég bæti nú samt við bíóferðum og taflmennsku.“ Framhald á bls. 47. Saltkjötið bragðast vel 1 matsalnum að Hátúni 12 Vélamiðstöð góðan daginn loks á barnadeild Land- spítalans og bjó þar frá 5 fram til 16 ára aldurs, me u.þ.b. 3ja mánaða sumarfrium í Skaga- firðinum hjá fjölskyldu sinni. Hann tók landspróf í Vörðu- skóla og fór í Menntaskólann i Hamrahlíð og er nú á 3ja ári. Hann fluttist að Hátúni þegar hann byrjaði í Hamrahlið og við spyrjum hvernig honum líki nýja heimilið. „Þetta er gott, betra en á Landspítalanum. Þar voru alls kyns boð og bönn. Ég var þar á þriggja manna stofu og alltaf voru að koma nýir og nýir krakkar, maður var rétt farinn að kynnast þegar krakkinn var farinn. Ein stelpa var þó kyrr eins og ég og bjargaði það sumir sátu me bók eða handa- vinnu fyrir framan herbergi sin. Það heyrðist popptónlist úr einuherberginu og háklassísk úr öðru og af þessu varð frekar heimilislegur kliður inni i herbergi Jóa þar sem við sátúm og átum vinber. „Við höfum alveg okkar henti- semi með samband við fólkið hér, ef ég vil hafa næði þá hendi ég öllum út,“ segir Jói kankvís, „það er t.d. einn maður hér á ganginum sem aldrei sést, lokar sig alltaf inni. Flestir horfa þó á sjónvarpið, hér eru haldin böll, basarar, bingó og opin hús og spiluð félagsvist á veg- um Sjálfsbjargar." Mfnar bestu stundir „Ég vil ekki hafa fatlað fólk fyrir augunum alla daga, þá fer ég að hugsa of mikið um það og verð niðurdregin“ — skaut Guðný inní, enda bý ég út af fyrir mig og á mínar bestu stundir heima hjá sjálfri mér. Þar get ég gert allt sem mig langar til — borðað það sem ég nenni og þegar ég nenni.“ Jói mótmælti þessu með að umgangast aðra fatlaða: „Þetta er ágætt hér, m.a.s. búð í næsta húsi, þar sem hægt er að kaupa flesta nauðsynja- vöru, kók, sælgæti og slíkt þó að ísinn vanti.“ „Það er alla vega bráðnauð- synlegt að hafa sína kunningja úti í bæ, ekki bara hér,“ hélt Guðný áfram. Við spurðum Jóa um MH. „Það er prýðilegt í skólan- um, tröppurnar eru að vísu vandamál og þó, maður kynn- ist krökkunum, þegar þau kippa manni upp.“ „Já, þó að maður sé í því að bjarga sér sjálfur þá er nú notalegt stundum að láta halda á sér útúr bíí,“ sagði Guðný. Hvað kostar talstöð Okkur lék forvitni á að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.