Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977 43 aö gestsauganu þætti moldarkof- arnir ljótir, bjó þar aldrei óhrein sál. Einniitt þar varð hetjusagan til. I þessum lítlu moldarþúfum fæddust börn Jófrfóar. Þegar gestinn bar aftur að garði eftir tuttugu og tveggja ára fjarveru, var afreksverkinu lokið. Nýbyggð hús og ræktuð tún blöstu Við, flest börnin orðin stálpuð, sum fullorð- inogdrógu björgibú. Á heimilinu ríkti ávallt sam- heldni, sem engan skugga bar á. Allir voru sem einn maður og lögðu hönd á plóginn, jafnt börn sem fullorðnir. Upp úr fermingar- aldri fóru sum börnin að vinna fyrir sér annars staðar. Er þau fóru ung úr föðurgarði, fylgdi þeim móðurhugurinn, var án efa þeirra verndarengill og besti skjöldur, sú bjarta brynja sem þau varði. Móðirin vakti sífellt yfir þeim í bænum sínum og skildi hjartans þagnarmái. Jófriður var að upplagi harð- geró, barói aldrei lóminn, ósér- hlífin meó eindæmum, ávallt létt i máli, hreinskilin og djörf. Hispurslaust sagði hún álit sitt við hvern sem var. Húh var alltaf eins, haggaðist aldrei. Engan hef ég þekkt, sem sýndi meiri snilld og þolinmæði við uppeldi barna. Sagði hún mér oft, að aldrei hafi sér liðið betur en þegar hún sinnti börnum sinum og hugsaði um þau. Börnin áttú hug hennar óskiptan. Hún fór aldrei langt, var heima og rækti sín störf af kostgæfni. Ekkert var henni fjær en að láta berast á og ryðja sjálfri sér braut, öllum hógværari. Jón var virkur starfsmaður í safnaðarmálum. Sóknarnefndar- formaður og meðhjálpari Sióu- múlasóknar var hann um langt skeið. Gunnlaugsstaðahjónin nutu óskiptra vinsælda sveitunga sinna og annarra, sem þeim kynntust. Yfir heimilinu hvíldi heiðrikja og heyrði ég hjónin aldrei hnýta í nokkurn mann. Var heimilið ætíð umvafið kærleik góðra nágranna á alla vegu. Mig brestur orð til að lýsa þeim anda er þar sveif yfir vötnum og svífur enn. Þegar síminn var ekki kom- inn, var nágranninn heimsóttur og náin samskipti mynduðust milli heimila. Ekki alls fyrir löngu heyrði ég einn son Jófriðar segja, að nágrennið þarna hefði verið margfatt meira virði en allt tryggingarkerfið er í dag. Hinn lífsglaði systkinahópur sýndi ætið foreldrum sinum og gamla heimilinu miklá ræktar- semi. Var því oft gestkvæmt og glatt á hjalla á Gunnlaugsstöðum. Til dæmis má geta þess, að fyrir mörgum árum létu 6 systkinanna ferma börn sin saman í Síðumúla- kirkju og héldu fermingarveisl- una á Gunnlaugsstöðum. Á einu merkisafmæli foreldra sinna komu systkinin að Gunnlaugs- stöóum með girðingarefni og trjáplöntur og hófu skógrækt við túnfótinn. Vex nú fallegur skóg- arlundur skammt frá bænum. Barn að aldri átti ég þvi láni að fagna að dvelja þarna í tíu sumur samfleytt. Fæ ég það aldrei full- þakkað. Hamingjusamara heimili hef ég aldrei kynnst, sem ekki er undarlegt, þegar á er litið, hve heilsteyptir húsráðendur voru. Ógleymanlegar eru þær stundir er öll systkinin, barnabörn og sveitungar komu sanian á Gunn- laugsstöðum. Var þá tekið lagið, svo að undir tók í húsinu og dans- að fram á nótt, þótt baðstofugólfið svignaði. Já, þar var oft sam- komustaður fólks, enda óvíóa betra að koma, þvi aldrei virtist Jóni og Jófriði liða betur en innan um ungmenni aó leik og tóku full- an þátt í glaðværð þeirra. Sumar- ið 1964 stofnuðu systkinin og fjöl- skyldur þeirra niðja samtök. Nú munu afkomendurnir vera orðnir 165 að tölu. Þrátt fyrir háan aldur og lang- an vinnudag var Jöfríði hlíft við langvarandi veikindum. Hún var alla tið hrausl, sívinnandi og kvik í hreyfingum fram á síðustu ár, augun skýr og full af lífsþrótti. Minnið gott og hafði hún vakandi auga með öllu, sem fram fór, fylgdist vel með til hinstu stund- ar, Hafði hún fótavist þar til nú sióla sumars, en þá var stutt eftir. Um leið og ég þakka þér, amma mín af alhug okkar dýrmætu sam- verustundir, sendi ég og fjöl- skylda mín kveðju til niðja þinna, sérstaklega til hjónanna og barna- barnanna á Gunnlaugsstöðum, sem voru þér svo hjartfólgin. Heima vildir þú vera og hvergi annarsstaðar. Vió eigum öll á bak að sjá ástkærri ættmóður, sem öðlaðist sina lifshamingju i hin- um einfalda sannleik: að gle.vma sjálfri sér og lifa fyrir aðra. Hún kom öllum til nokkurs þroska. Svanfríður S. Óskarsdóttir. Steinunn Símonar- dóttir Zoega - Minning Fædd 7. október 1883. Dáin 10. september 1977. Það var að kvöldi dags. hinn 11. sept s.l., að ég var stödd i húsi á Karmo.v i Noregi. Var lesið upp fyrir mig skeyti lil okkar Stein- unnar systur minnar, þess efnis að amma okkar hefði látisl nótt- ina áður. Elsku ainnia. sem við höfðum kvatt tæpum fjórum vik- um áður. Ekki datt okkur þá í hug, að við ættum ekki eftir að hitta hana aftur. Þvi þrátt f.vrir háan aldur var hún alltaf svo hress og kát, og aldrei kvarlaði hún, þó svo hún væri við rúmið mest allan daginn, og sjónleysi og léleg heyrn háði henni nvikið. Og alltaf var hún jafn ánægð þegar við komum í heimsókn, og vel fylgdist hún með þvi sem gerðist hjá barnabörnunum og þeirra fjölskyldum. En margs er að minnast. Amma var fædd i Bakkakoti i Skorradal hinn 7. okt. 1883, og var því á 94. aldursári er hún Iést. Hún kom til Norófjarðar 1911, og vann við verzlun Konráðs Hjálmarssonar, þar sem hún kynntist afa mínum Tórnasi Zoéga, sem síðar varð sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norð- fjarðar. Þau giftust 17. jan. 1914. Þeim varð 3ja barna auðið. Unnar móður minnar, gift Jóni Sigurðs- syni skipstjóra, Jóhannesar kv. Guðrúnu Benediktsdóltur og Reynis kv. Sigríði Jóhannsdóttur. Amma og afi bjuggu á Sæbóli í Neskaupstað, og var gott að koma þangað til þeirra. Amma var mikilhæf kona og hafði mörg áhugamál, hún var vel lesin, hafði gaman af ljóðurn, og las mikið meðan hún hafði sjón til. Mikið prjónaði hún um dagana, og eru óteljandi þau plögg sem hún prjónaði á börn, barnabörn og barnabarnabörn. Hún hafði mik- inn áhuga á blómarækt, og átti alltaf mikið af fallegum blómurn. Og lítinn blómagarð hafði hún fyrir framan eldhúsgluggann sinn. Þegar við systufnar misstum föður okkar, þá allar kornungar, var gott að eiga þau að, ömmu og afa, en hjá þeim áttum við okkar annað heimili. Og engum eigum við mæðgurnar meira að þakka en þeim. Þegar ég var 10 ára gömul, kom amma mér i sveit hjá þeinv bræðr- um sínum. Jóni og Magnúsi, bændunv á Stóru-Fellsöxl í Borg- arfirði. Þar var ég í fjögur sunvur. og höfðunv við amnva unv nvargt aö spjalla. er ég bjó lvjá henni þegar afi var til lækninga í Reykjavik. Á kvöldtn þegar þún hafði lesið nveö mér f.vrir skólann, en hún las allt- af með nvér ensku og dönsku, þá var farið að spjalla og þá mesl um búskapnvn á Stóru-Fellsöxl og frændfólkið, en nveð þeinv s.vst- kinunv öllúnv voru jafnan miklir kærleikar. Eftir að afi lést árió 1956, fluttist amnta lil Reynis son- ar síns og Sigríðar konu bans, og bjó þar við gott allæti til æviloka. Og verður Sigrfði aldrei full- þakkaö hve lvún var henni önvmu góð. Hér er stiklað á stóru, því það er svo margs að minnast, en aldrei gleynvast þær góðu nvinningar. sem við eigunv öll unv þau ömmu og afa. Við Steinunn systír mín gátum ekki fylgt öinmu sföasta spölinn, en þökkunv góðunv guði öll árin sem við áttum með henni. Marjss ur minnasl marKl cr liúr a<) þakka. (inrti só lol fyrir lirtna lírt. •Marss «*r art iiiinnasl maifís i*r a<) sakna. <iu<> þorri lr<‘f>alárin slrí<>. Halhlóra Jónsdótlir. Vinningsnúmer í gestahappdrætti Litsjónvarpstæki í gestahappdrætti sýningarinnar Heimilið 77 féllu á eftirfarandi nr: 1693 - 3511 - 5066 - 14760 - 17552 - 22926 - 27501 - 29814 - 32558 - 43661 - 45983 - 50644 - 54074 - 57732 - 61287 - 68609 - 73143 Aðalvinningurinn, ferð til Florida fyrir fjögurra manna fjölskyldu féll á miða nr. 51417 Eftirtaldir aðilar unnu Bamixa „galdraprik" í aug- lýsingagetraun sýningarinnar ,,Hver er maðurinn"? Kristján Þór Sveinsson Eyjabakka 2, Reykjavik. Elsa D. Gestsdóttir, Hraunsveg 2, Njarðvík. Hrefna Bjarnadóttir Tunguvegi 48, Reykjavík. María Sigurðardóttir Sólheimum 25, Reykjavik. Guðmunda Guðmundsd. Hraunbæ 54, Reykjavík. Harpa Heimisdóttir Fornastekk 1, Reykjavik Vinningshafar snúi sér til skrifstofu Kaupstefnunnar, sími 11517. Vinninga ber að vitja fyrir 11. nóvember 77 ella falla þeir úr gildi. HEHKJ077&

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.