Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 29
28 AKUREYRARBLAÐ, SUNNUDAGUR 6. NOVEMBER 1977 „Óður steinsins” — með mynd- um Ágústs Jónssonar og ljóð- um Kristjáns frá Djúpalæk Óvenjuleg bók kemur út um næstu mánaðamót, þar sem er bókin „Óður steins- ins" með litmyndum Ágústs Jónssonar af innri gerð ís- lenzkra steina og Ijóðum Kristjáns frá Djúpalæk. Út- gefandi er Galleri Háhóll á Akureyri, en eigendur þess fyrirtækis eru hjónin Lilja Sigurðardóttir og Óli G. Jóhannsson listmálari. Jón Geir Ágústsson hefur annast hönnun bókarinnar. Ágúst Jónsson bygginga- meistari á Akureyri er löngu landskunnur fyrir Ijósmyndir sínar af íslenzkum steinum og i bókinni verða 30 heilsiðu- myndir í litum úr þeim furðu- heimi. Ágúst hefur sjálfur leitað steinana uppi, unnið þá, slipað og sagað og tekið Ijósmyndirn- ar með sérstakri tækni. Myndirnar verða á annarri hverri siðu, en á móti hverri mynd verður i sömu opnu Ijóð eftir Kristján frá Djúpalæk, sem hann hefur ort um þau áhrif og hughrif, sem hann hefur orðið fyrir af myndinni. Einnig er á sömu siðu ensk þýðing Ijóðsins eftir Hallberg Hallmundsson rit- höfund i New York. Ljóðaflokk- ur Kristjáns er i frjálsu irímuðu máli. Litgreining myndanna var gerð i Kaupmannahöfn, en að öðru leyti mun Prentverk Odds i Kristján frá Djúpalæk. Björnssonar h.f. annast prent- un og annan frágang bókarinn- ar. Hún verður i stærðinni A-4, prentuð á mjög vandaðan pappir, sem var sérstaklega keyptur i þessu skyni og yfir- leitt er allt efni í bókinni sér- pantað úrvalsefni. Upplag hennar verður 1000 eintök, þar af verða 99 eintök tölusett og árituð Steindór Steindórsson fyrr- verandi skólameistari, ritar eft- irmála bókarinnar og þar segir hann m.a.: ..Segja má, að hverju sinni er vér lítum á myndir þessar og gefum oss tóm ti! að virða þær fyrir oss og sleppum beizlinu fram af ímyndunaraflinu sjáum vér alltaf ný litbrigði og nýjar myndir." Og ennfremur segir Steindór Steindórsson: „Ég hygg að ekki sé farið þar með nokkrar ýkjur, þótt sagt sé að Óður steinssins sé sérkennileg- asta og um leið frumlegasta bók, sem gefin hefur verið út á voru landi og ef til vill í öllum heiminum." <3 jú mm. Bændur athugið Að gefnu tilefni viljum vér upplýsa að verð það, sem auglýst er í Sambandsfréttum og aftur í Fóðurmöppu KEA, sem verð á fóðurvörum, frá KFK, er verð, sem gilti hjá oss fyrir 20 október sl. Annað í plöggum þessum tökum vér ekki til oss. Verð á fóðurvörum hjá oss er nú þetta: Laus heim komin Sekkjað í húsi A-blanda 14/98 A-blanda 14/100/4% feit B-blanda 12/102/4% feit C blanda 9/92 Sóló heilfóður Becona sláturgrísafóður kr. kr. 40.300 - J<r. 40.300 - kr. kr. 45.900 - kr. 45.800 - kr. 42.900 - kr. 43.100 - kr. 43.100 - kr. 43.000 - kr. 48.500 - kr. 47.500 - Bændur verzlið þar sem saman fer lágt verð, 1. flokks vara og góð þjónusta BÚSTÓLPI FYRIR BÆNDUR Strandgötu 63, sími 96-22320

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.