Morgunblaðið - 06.11.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1977
7
Yfirskrift þessa forna minn-
ingardags framliðinna er á
gömlu kirkjumáli: Memento
mori, minnstu dauðans.
Svo virðist sem málverk
Einars Jónssonar mynd-
höggvara séu að vekja meiri
athygli listdómara, eftir bréf-
um erlendum að dæma, en
fyrr hefur verið. Eitt málverka
hans heitir: Andlátsstundin.
Barnung stúlka liggurá
banabeði, rís upp í rúminu,
teygir fagnandi hendurfram
mót dýrðlegri veru, sem
nálgast, veggir sjúkrastof-
unnar eru deyjandi stúlkunni
horfnir, en umhverfið er vafið
blómskrúði og fegurstu sum-
ardýrð.
Er dauðinn þetta, eða er
hann skuggalegi, dökk-
klæddi sláttumaðurinn með
Ijáinn, „ægilegasta staðreynd
nálgaðist var harmkvæla-
maðurinn ekki einmana vesa-
lingur lengur. Hann var „bor-
inn af englum" burt af sínu
sorgarbeði. Varð dauðinn
honum „ægilegasta stað-
reynd tilverunnar"?
Jesús segir sögu þessa
manns út yfir landamærin,
en eftir staðreyndum er ekki
skilyrðislaus nauðsyn að leita
út yfir gröf og dauða. Við
sjúkra- og dánarbeð gerast
margir þeir atburðir, sem
mikið er af að læra. Frá ein-
um merkasta presti með
Bretum á þessari öld hef ég
sögu, sem hann tekur ábyrgð
á og ég treysti þessvegna:
Kona lá fyrir dauðanum og
var ákaflega erfiður sjúkl-
ingur. Hún vartrúlaus, kald-
lynd og eigingjörn, og hugs-
Hver er dauðinn, örlög
þeirra, sem á Allra sálna
messu skal minnzt, örlaga-
stundin, sem bíður þín og
mín? Hefur það orðið blessun
ein, að hræddir menn og
hrelldir hafa sungið í hinum
mikla sálmi sra Hallgríms um
„dauðans grimmar greipur"
og hans „beizka heiptarþel"?
Skáldleg tilþrif, skáldlegar
myndir, skáldleg orð, en er
dauðinn svona ægilegur,
dauðastundin?
„Borinn af englum", sagði
Kristur. Hann talaði líka um
vini, sem við okkur taki I
hinar „eilífu tjaldbúðir".
Frumkristnin var sannfærð
um nálægð slíkra þjóna og
kirkjufeðurnir bera þeim
vitni. Guð er daglega að sýna
þér merki þeirrar náðar, sem
yfir þér veikum vakir. Hann
Borinn
af englum
tilverunnar", eins og enn er
haldið fram, bölvaldur lífs,
valdur sárustu sorga og tára?
Jesús segir sögu af tveim
mönnum, sem deyja. Annar
hlaut að lúta lögmáli réttlætis
vegna gjörða sinna, en um
hinn segir Jesús, að hann
verið „borinn af englum"
burt af dapurlegu dánarbeði.
Lítt skiljanleg er sú ástríða,
að mála sem dekkstum litum
angist dauðans og kvalastríð.
Þó hljóta menn á öllum öld-
um að hafa
séð, hver blessun dauðinn er
í ótal tilvikum, og hve andlát-
ið er oft friðsælt, þjáninga-
laust að því er bezt verður
séð. Samt hefur vægðarlaust
verið blásið að glóðum óttans
við dauðann i kristnum bók-
menntum og list. Hverju
markmiði færslíkt þjónað? í
góðum tilgangi var og er
þetta gert: Að hræða menn
til siðlátrar breytni. Þá vafa-
sömu dyggð nefndi einn af
höfundum fornbókmennta
okkar „hræðslugæði", og er
háðið auðlesið í því orði.
Hvað sagði Jesús um ævi-
lok fátæka mannsins, eins
umkomulausasta smælingja
þjóðfélagsins? Um þann
vesaling höfðu menn litt hirt
og flestir ekkert. Flestum
gleymdur hafðist hann holds-
veikur við í hreysi. En Drott-
inn mundi hann, og englar
Guðs höfðu ekki gleymt hon-
um. Þegar lausnarstundin
unin um dauðann var henni
hrelling og andstyggð. í
þessu hörmulega ástandi
„dó" konan. Hjúkrunarkonar
gekk að glugganum
og lauk honum upp,
en henni brá, þegar hún kom
að „líkinu" aftur: Konan lauk
upp augunum og eftir nokkra
stund sagði hún sögu sina:
Sjúkrastofan hafði horfið
henni, yndislegar Ijósverur
höfðu komiðtil hennar,
ósegjanlegur friður hafði
fylgt þeim, sæluþrungin til-
finning öryggis og ástúðar,
sem hún hafði aldrei áður
þekkt. „Aldrei hef ég hugsað
að slíkt væri til — sagði hún
— nú veit ég, hvernig er að
deyja". Gjörbreytt, full Ijúf-
lyndis og ástúðar, sátt við
örlög sín, Guð og dauðann,
lifði hún í 24 klukkustundir,
unz hún fékk friðsælt andlát.
Hún hafði verið trúlaus og
kaldlynd, en Guð hafði ekki
gleymt henni og hann gaf
henni þessa stórkostlegu gjöf
áður en hún dó.
Hér í blaðinu hafa fyrir
skömmu birtzt athyglisverðar
frásagnirfólks, sem dáið
hafði svonefndum „klín-
ískum dauða" en vaknað til
lífsins aftur og sagði frá því,
sem fyrir það hafði borið í
dauðadáinu. Þærfrásagnir
og ýmsar aðrar sem ég hef
lesið eða trúverðugt fólk hef-
ur sagt mér, votta hið sama
um andlátsstundina.
lætur þig fæðast hingað til
samfélags, og þess nýtur þú
á þúsund vegu, allt frá því er
mildar hendur Ijósmóðurinn-
ar greiða þér för inn í jarð-
neskan heim. Mun Guð
svipta þig blessun samfélags-
ins við dýrmæta vini þegar
þú stendur á þeim vega-
mótum að fæðast í annað
sinn og fæðast inn í aðra
veröld?
„Borinn af englum" eru orð
Jesú, sem ég gerði að yfir-
skrift þessara hugleiðinga á
Allra sálna messu. Guðspjöll,
helgar bækur og atburðir við
dánarbeði enn í dag bera
vitni þess, aðaugu manna
hafi opnazt á dánarstund fyr-
ir návist helgra þjóna, hvar
sem andlátið ber að, hvort
sem var í kyrrð sjúkrastof-
unnar, í orustugný vígvall-
anna, í stormum lofts eða
æðandi ölduróti hafs, já,
hafsins einnig. í hamslausu
óveðri á hafi um myrka nótt
vitraðist Páli postula engil-
vera, sem bar honum óvænt
boð um atburð, sem varð á
næsta degi.
Treystu því að slík vernd
vaki yfirvinunum, sem þú
minnist í dag, og mun vaka
yfir þér á dánardægri. Vernd
hans, sem mundi vesaling-
inn, sem mönnunum hafði
gleymzt, og lét engla sína
bera hann af ömurlegu dán-
arbeði burt, — burt og
heim.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfísgötu 18 • Gegni Þjóóleikhúsinu
Spóna-
plotur
af ýmsum
gerðum og
þykktum
Timburverzlunin
Yölundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Sölumannadeild
V.R.
KVÖLD-
VERÐAR-
FUNDUR
Fundur verður haldinn þ 10 nóv. n k kl.
19.15 i Leifsbúð Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Haraldur Steinþórsson, framkvstj. BSRB mun skýra
út samninga BSRB.
2. Umræður um launamál, og þá sérstaklega i Ijósi nýrra
samninga BSRB og bankamanna.
3. Önnur mál.
Sölumenn og aðrir verzlunarmenn, takið virkan
þátt í launamálum ykkar.
Stjórn sölumannad. V.R.
Haraldur
Steinþórsson
Úttaliö:
Eldhúsmyndir, bakkabönd, dagatöl, punthand-
klæði.
Áteiknað:
Punthandklæði, vöggusett, kaffidúkar.
Saumað:
Rokkókóstólar, píanóbekkir, rennibrautir, púð-
ar, klukkustrengir.
^anngrðattrrzhunit
Eria
Snorrabraut 44.