Morgunblaðið - 06.11.1977, Blaðsíða 32
AKUREYRARBLAÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977
31
skipinu Le Chateaurenault. sem lá á
höfninni
Hin litskrúðuga fylking nam staðar á
hátíðasvæðinu norðarlega á Oddeyri,
þar sem reistar höfðu verið tjaldborgir.
ræðustóll og danspallur. þar fóru fram
ýmiss skemmtiatriði, ræður. glimur
knattleikir o.fl En það sem vakti mesta
athygli var sjónleikurinn Helgi magri.
Leikið var i vöruskemmu Gránufélags-
ins á Oddeyrartanga Séra Jónas á
Hrafnagili málaði öll leiktjöld. Jón Chr
Stephanson sá um alla smiði og kona
hans Kristjana Magnúsdóttir saumaði
búningana Framkvæmdastjóri sjýn-
ingarinnar var Jakob V Havsteen og
lék hann einnig eitt aðalhlutverkið
Hámund heljarskinn, Páll Árdal lék
Helga magra, Frú Anna Stephensen
lék konu hans, Þórunni hyrnu, dætur
Helga magra voru leiknar af Olgu
Schiöth. Mariu og Gottfredu Jensen.
Af öðrum leikendum skulu nefndir,
Hallgrímur á Rifkelsstöðum. Bjarni
Hjaltalín, Magnús Einarsson organisti,
Davíð Sigurðsson, Páll Magnússon.
Sigtýr Jónsson, Valdimar Hall-
grinsson.og frúrnar Soffia Havsteen
Johnsen og Rannveig Laxdal Siðast
en ekki sizt skal nefna tvítugan prent-
svein Friðfinn Guðjónsson sem lék Vifil
þræl, og loks 10 ára telpuhnátu Mar-
gréti Valdimarsdóttur, sem léku þarna
sin fyrstu hlutverk og urðu siðar lands-
kunnir leikarar.
Þrátt fyrir hin dönsku bernskuár leik-
starfsins hér i bænum er það þó
ánægjuleg staðreynd og ef til vill vott-
ur um þjóðlega kennd, að þau leikrit,
sem mesta lofið hlutu voru bæði is-
lenzk, Utilegumennirnir og Helgi
magri, eftir þjóðskáldið Matthias
Jochumsson, sem var hið andlega
stórmenni þessa litla bæjarfélags
Erlend leikheimsókn —
Áhugaalda —
Byggt leikhús
Eftir þetta myndarlega átak virðist
leiklistin nú færast allmjög i aukana og
fjölmörg leikrit eru tekin til sýninga
næstu árin, t d Hrekkir-Scapins. Ævin-
týri á gönguför, Andbýlingarnir, Her-
mannaglettur o fI
Aðsókn var venjulega mjög mikil og
öll tilbreyting kærkomin Árið 1895 er
merkisár í sögu leiklistar hér i bæ. þvi
þá kom hingað í fyrsta skipti erlendur
leikflokkur, sem áður hafði sýnt i
Reykjavík og á ísafirði Þetta var leik-
flokkur dönsku hjónanna Edv og Olgu
Jensen, ásamt C E Petersen, Þóru Hal-
berg o.fl og sýndu þau hér m a För
Glerdýrin 1976, Sigurveig og
Saga
Daggry, Elskovsdrikken, Lille Nitouche
o.fl við mikla hrifningu
Þegar hér var komið sögu höfðu
leikendur bæjarins í þriðjung aldar
leikið við hinar verstu aðstæður, m a í
vöruskemmum, skólastofu. i veitinga-
stofu Madömu Vilhelminu Lever, salt-
húsi og sláturhúsi
Nú var loks hafist handa um úrbætur
og árið 1896 hófst bygging leikhúss
sem vígt var þ 3. jan 1897 með
viðhöfn Eigendur hússms voru
Comediufélag Havsteens að Vi á móti
Goodtemplurum. söngfélaginu Gigjan
og bindindisfélaginu Björgin í þessu
húsi var siðan leikið næstu 10 árin, og
þóttu margar leiksýningar þar takast
vel, svo sem Aldamótin, Drengurinn
minn, og Heimkoman Síðar var hús
þetta notað sem pósthús til ársins
1920, en siðar íbúðarhús unz það
brann árið 1952 Leikhús þetta sem
þótti hið veglegasta á sinum tima, og
tók 200 manns i sæti, stóð örskammt
frá núverandi leikhúsi bæjarins, norð-
an og austan við götuna
Hinn mikla áhuga almennings fyrir
leiksýningunum má vel merkja i blaða-
skrifum frá þessum tima, t d , segir svo
í Stefni 11 /2 1898 „ þeir sem
ekki hafa peninga mega borga inn-
göngumiða með íslenzkum vörum,
sem hjer eru teknar í verzlunarbúðum.
svo sem prjónasaum, ull, smjöri og
fleiru Forstöðunefnd sjónleikanna
Þi5 munið hann Jörund, 1969—'70, Sigmundur Örn Arngrímsson, Arnar Jónsson og
Þráinn Karlsson.
verðugra og þjóðlegra viðfangsefni,
því þá voru Útilegumenn séra
Matthíasar settir á svið og gleðst blað-
ið Norðlingur yfir...frónsku leikend-
anna, að þeir kusu þetta þjóðlega leik-
rit vort til að byrja á, og hæna menn að
þessari saklausu, menntandi skemmt-
an ' Leiksýning þessi var hin veg-
legasta hér í bæ fram til þess tíma og
vakti mikla athygli, enda auglýst á
kröftugan og frumlegan hátt, með því
að skjóta úr fallbyssu Höphnersverzl-
unar. Skothvellurinn heyrðist um allan
bæinn og þustu menn nú til að ná sér i
miða sem kostuðu 50 aura fyrir börn
en 1 kr fyrir fullorðna
Aðalhlutverkið, Skugga Svein, leik
Hallgrímur Hallgrímsson frá Rifkels-
stöðum, unga parið léku þau Jakob V
Havsteen og Guðrún Jónsdóttir
Thorlacius, Eggert Laxdal kaupmaður
lék Jón sterka, en Ketill skrækur var
leikinn af Andrési Árnasyni, systursyni
Bólu-Hjálmars H: nn varð síðar
verzlunarstjóri á Skagaströnd. Arn-
grimur Gislason var fenginn til að mála
leiktjöldin, og þóttu þau hin fegurstu.
Leiksviðið var lýst upp með kertaljós-
um og kór söng milli þátta
Ýmiss leikfélög —
Harðindaár
Ýmsir fleiri taka nú að fást við leik-
sýningar og má þar nefna skemmti-
félagið „Gaman og alvara" sem var
leikklúbbur og málfundafélag stofnað
af skólafélögum úr Möðruvallaskóla,
m a af Hannesi Blöndal, Ásgeir Sig-
urðssyni og Páli Árdal sem mikið kom
við sögu leiklistar í bænum Félag
þetta starfaði frá 1883 -— 1886 Eftir
að fyrstu góðtemplarastúkan er stofn-
uð hér í bæ árið 1884, hefja templar
ar leikstarsemi sína, oft undir hand-
leiðslu Páls Árdals En á harðindaárum
varð þó hið uppljómaða leiksvið oft að
þoka fyrir erfiðleikum hins daglega
brauðstrits, og Norðurljósið (P J Ár-
dal) segir svo 20 des. 1886
ráðgerir félagið (Gaman og alvara) að
leika Skugga Svein milli jóla og nýárs
Það mun ekki laust við að sumum
virðist það heldur óráðlegt að leika nú,
þegar megmþorri manna er i vandræð-
um með, sökum fátæktar, að veita sér
helztu lífsnauðsynjar sínar'
Hátíðasýningin árið 1890 vegna
1000 ára landnáms Eyjafjarðar, var
ein merkasta sýningin fyrir aldamót Þá
var sýndur nýr sjónleikur eftir séra
Matthias og hét hann að sjálfsögðu
Helgi magri. Hátíðin stóð í 3 daga og
er talið að á 4 þúsund manns hafi sótt
hátíðina hvaðanæva að Hún hófst
með mikilli skrúðgöngu, processiu, og
gekk söngflokkur Eyfirðinga fremst,
síðan kom forstöðunefndin, Jakob B
Havsteen, séra Matthias, Kristinn Hav-
steen, Eggert Laxdal og Friðbjörn
Steinsson, þá gengu amtmaður Hav-
steen sýslumaður Thorarensen og yfir-
menn af hinum útlehdu skipum sem
hér lágu, lokst komu hinir ýmsu hrepp-
ar og var borinn sérstakur fáni fyrir
Margrét Valdimarsdóttir leik-
kona, sem setti mikinn svip á
leikhúslif Akureyringa á
fyrstu árum þessarar aldar.
hverrri fylkingu En yfir öllum finheit-
unum drundu fallbyssuskot og
sprengiskot (flugeldar) frá franska her-
KIPULAGÐAR HÓPFERÐIR
Öll almenn
ferðaþjónusta
EINSTAKLINGSFERÐIR
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077