Morgunblaðið - 03.01.1978, Page 1
40 SIÐUR
1. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANUAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Flokkur Indiru
Gandhi klofnar
Nýju Drlhi. 2. janúar. Reuter.
KONGRESSFLOKKURINN, elzti
st jórnmálaflokkur Indlands,
klofnaði I dag þegar stuðning-
menn frú Indiru Gandhi ákváðu á
iandsfundi, sem þeir boðuðu til f
óþökk opinberrar stjórnar flokks-
ins, að lýsa því yfir að þeir væru
hinir sönnu fulltrúar flokksins og
kjósa hana flokksforseta.
Hin opinbera stjórn Kongress-
flokksins kom saman til skyndi-
fundar nokkrum klukkutimum
síðar og sagði að sú staðhæfing
stuðningsmanna frú Gandhis að
þeir mynduðu hinn raunverulega
Kongressflokk væri fáránleg.
Flokksstjórnin sagði að þeir sem
eitthvað hefðu saman við flokk
hennar að sælda yrðu látnir sæta
aga og ættu yfir höfði sér brottvís-
un úr flokknum.
Klofningurinn fylgir í kjölfar
margra mánaða innbyrðis vær-
inga í flokknum, aðallega vegna
tilrauna frú Gandhis til að ná
aftur undir sig völdum í flokkn-
Framhald á bls. 24.
Ecevit hlýtur
þingstuðning
Ankara. 2. janúar. AP.
BULENT Ecevit, leiðtogi lýð-
veldisflokks alþýðu, náði í dag
samkomulagi við óháða þing-
menn og lítinn miðflokk um
myndun nýrrar stjórnar í Tyrk-
landi.
Ecevit sagði að Ioknum viðræð-
um við þingmennina að hann
væri þess fullviss að hann gæti
myndað nýja stjórn á skömmun
tíma og að samstarfið innan
st jórnarinnar yrði gott.
Óháðu þingmennirnir sem lýstu
yfir stuðningi við Ecevit eru 11
taisins og tiu þeirra voru áður i
Bulent Ecevit
Réttlætisflokki Suleyman Demir-
els fráfarandi forsætisráðherra.
Smáflokkurinn sem lýsti yfir
stuðningi við hann heitir Lýð-
ræðisflokkurinn og hefur eitt
sæti af 450 á þingi.
Ecevit lét auk þess i ljós von um
að ná samkomulagi við annan
smáflokk sem hefur tvo fulltrúa á
iþingi. Lýðveldisflokkur Ecevits
hefur 214 þingsæti og er stærsti
flokkurinn á þingi.
Framhald á bls. 22.
Indverskur þjónn veiðir flugu meðan Uarter forseti talar við Desai
forsætisráðherra I Nýju Delhi.
Carter kemst enn
í bobba í ferðinni
Liðhlaupi
tók 8 gísla
Prag, 2. jan. Reuter.
LIÐHLAUPI úr hernum
skaut tvo menn til bana og
hélt átta mönnum í gísl-
ingu í Prag á gamlárskvöld
unz lögreglan skaut hann
til bana að sögn frétta-
stofunnar Ceteka í dag.
Nýju Delhi, 2. janúar. Reuter.
ÓGÆTILEG ummæli sem
fréttamenn heimsblað-
anna heyrðu komu Carter
forseta aftur í bobba á
ferðalagi hans í dag en
bandarískir og indverskir
embættismenn reyndu að
gera gott úr öllu.
Þegar Uarter hafði rætt
við Morarji Desai, for-
sætisráðherra Indlands,
um eftirlit með úraníum
sem Indverjar sækjast eft-
ir heyrðist forsetinn tala í
lágum hljóðum við Cyrus
Vance utanríkisráðherra
og segja meðal annars:
„Hann er býsna ósveigjanlegur
í kjarnorkumálinu ... Þegar við
komum heim held ég að við ætt-
um að skrifa honum annað bréf,
kuldalegt og mjög ákveðið."
Samræðurnar fóru fram í ind-
versku forsetahöllinni þar serr
Carter sat andspænis Desai við
ráðstefnuborð. Carter hélt að orð
hans heyrðust ekki, en starfs-
menn bandarískrar útvarpsstöðv-
ar hljóðrituðu þau. Þeir voru í
herberginu meðan ljósmyndarar
tóku myndir þegar hlé var gert á
viðræðum forsetans og Desai.
Jody Powell, blaðafulltrúi for-
setans, neitaði þvi seinna að for-
Framhald á bls. 22.
Croissant
fyrir rétt
Stuttgart. 2. jan. Reutpr. \
VINSTRISINÍVAÐI lög-
fræðingurinn .. Klaus
Croissant, \selm Frakkar
framseldu Íí móvember,
verður leidaur fvrir rétt í
Stuttgart 9. marz ákærður
f.vrir að hjálpa Baader-
Meinhof-hópnum að því er
frá var skýrt í dag.
Croissant verður ákærð-
ur fyrir að styðja glæpa-
samtök og að koma á fót og
viðhalda upplýsinganeti
sem hafi gert Baader-
Meinhof-félögum kleift að
hafa samband sín í milli í
fangelsi og við stuðnings-
menn sína utan múranna.
Síðan Croissant var
framseldur hefur hann set-
ið í Stammheim fangelsi
þar sem Baader-
Meinhof-leiðtogarnir
Andreas Baader, Gudrun
Ensslin og Jan Carl Raspe
fundust látin í október.
Sadat vill fá stuðning
Carters við Palestínu
Heppni afstýrði
stórsprengingu
Runn. 2. janúar. Reuter.
TÍMASPRENGJU var komið
fyrir við egypzka sendiráðið í
Bonn í dag, en einn starfs-
manna þess gerði hana óvirka
aðeins tveimur mínútum áður
en hún átti að springa að sögn
lögreglunnar.
Scndiráösmaöurinn rakst af
tilviljun á pakka með tvcimur
kílóum af sprengiefni þar sem
honum hafði verið komið fyrir
nokkrum metrum frá olíu-
geymi.
Sprengjan var svo kröftug að
sendiráðsbyggingin hefði
sprungið í loft upp ef sendi-
ráðsmaðurinn hefði ekki fund-
ið sprengjuna og gert hana
óvirka.
Byggingar í næsta nágrenni
hefðu eyðilagzt en elliheimili í
100 metra fjarlægð nefði þó lík
iegt sloppið að sögn lögreglunn-
ar.
Lögreglan segir að heppni
hafi átt mikinn þátt í því að
sprengjan fannst. Sendiráðs,-
maðurinn sá sprengjuna þegar
hann fór í bíl sinn að ná í blað.
Þegar lögreglan var að því
spurð hvort maðurinn hefði
reynslu af sprengiefni sagði
hún að hún gæti ekki nefnt
nafn mannsins.
Rússneskar áletranir voru á
sprengiefninu en lögreglan
kveðst ekki vita hverjir hafi
staðið á bak við tilræðið. Leit
var gerð að sprengjum á heimil-
um egypzkra diplómata í örygg-
isskyni en engin fannst. Vörður
við sendiráðið hefur verið efld-
ur.
K: író, 2. jan. Reuter.
CARTER forseti mun
skýra Anwar Sadat forseta
frá því þegar þeir ræðast
við í Aswan í Egyptalandi
á miðvikudaginn að hann
telji heimaland Palestínu-
manna f.vrsta skrefið í átt
til stofnunar Palestínurík-
is að því er Kairo-hlaðið
Al-Messa hafði eftir dipló-
matískum heimildum í
dag.
Blaðið segir að Carter telji að
ibúar vesturbakka Jórdan og
Gaza-svæðisins eigi að ákveða
framtíð Palestínuríkis og tengsl
þess við Jórdaniu. Sadat mun
leggja áherslu á að fá stuðning
Carters við Palestínuríki. Alþjóð-
leg nefnd ætti að hafa eftirlit með
þjóðaratkvæðinu og utanríkisráð-
herrar Egyptalands, Israels og
Bandaríkjanna að ákveða á fundi
sínum í Jerúsalem síðar í þessum
mánuði hvenær þjóðaratkvæðið
skuli fara fram að sögn blaðsins.
Utanríkisráðherrarnir koma
saman um leið og stjórnmála-
nefnd Kaíró-fundarins kemur til
fundar. Al-Messa hefur eftir opin-
berum heimildum að Aswan-
fundurinn muni hafa mjög hvetj-
andi áhrifa á störf stjórnmála-
nefndarinnar og hermálanefndar
Kairó-fundarins. Þessar nefndir
voru settar á fót á Ismailia-fundi
Sadats og Menachems Begins for-
sætisráðherra ísraels.
Egypzkir embættismenn segja
að Palestinumálið verði efst á
baugi á Aswan-fundinum og að
Sadat forseti muni ítreka þá
kröfu Egypta að Palestínumenn á
vesturbakkanum og í Gaza fái
sjálfsákvörðunarrétt. Þeir segja
að fundurinn standi kannski ekki
lengur en eina klukkustund.
Blaðið A1 Ahram segir að Sadat
muni sýna Carter gagntilboð
Egypta vegna friðaráætlunar
Begins. Þar er að finna tímaáætl-
un um brottflutning ísraels-
manna frá Sinai og gert ráð fyrir
tryggingum svo að hvorugur aðili
Framhald á bls. 22.
Onnur loftárás
á bæ í Sómalíu
Nairobi. 2. jan. AP.
EÞIOPIUMENN gerðu loftárás á
bæinn Tug Wajale í Norðvestur-
Sómaliu á tosludaginn og 13 féllu
og 35 særðust að því er útvarpiö í
Sómalíu tilkynnti < dag.
Þetta er fjórða loftárás Eþíó-
pfumanna á Sómaliu á tæpum
mánuði og sjöunda loftárásin síð-
an Ogaden-stríðið hófst f júli.
Að sögn Sómalíu-útvarpsins
tóku tvær þotur af gerðinni F-5
þátt í árásinni á Tug Wajale, en
nánari upplýsingar voru ekki
veittar.
Tug Wajale er um 65 km vestur
af Hergeisa, stærstu borg Norð-
vestur-Sómaliu sem loftarasir
Eþiópiumanna hafa aðallega
beinzt gegn.
Fjórar eþíópískar herþotur réð-
ust á Hergeisa i siðustu viku.
Fjórar aðrar fiugvélar réðust á
hafnarborgina Berbera um svipað
leyti.
Hergeisa er aðalbirgðastöð
Sómalíumanna í Ogaden-stríðinu.
Sérfræðingar segja að striðið hafi
komizt í sjálfheldu og Sómaliu-
menn reyni að treysta stöðu sína
með þvi að hertaka hernaðarlega
mikiivæga bæi í austanverðum
Ahmar-fjöllum.