Morgunblaðið - 20.01.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82. S. 31330.
Konur—heimasaumur
Óskum eftir konum í heima-
saum, helst í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 51 942.
Matreiðslumaður
óskar eftir atvinnu. Margt
kemur til greina. Tilboð
sendist Mbl. merkt: ,.M —
4091. '
Bíll — staðgreiðsla
Óska eftir Chevrolet Nova 2ja
dyra SS eða Hatchback ár-
gerð 1 974. Lítið ekinn og vel
með farinn bill Vil stað-
greiða. Upplýsingar i sima
35194
Skattframtöl
Látið lögmenn telja frain fyrir
yður. Lögmenn, Garðastræti
1 6, sími 2941 1.
Jón Magnússon, Sigurður
Sigurjónsson.
Arin- og múrsteins-
hleðslur
Einnig flísalagnir. Geri tilboð.
Magnús, simi 84736.
Skattframtöl
Veitum aðstoð og ráðgjöf við
gerð skattframtala.
Benedikt Ólafsson lögfr. Hall-
grimur Ólafsson viðskiptafr.
Grensásvegi 22, simi
82744.
Öll Skattaþjónusta
Annast skattframtöl og
skýrslugerðir, útreikning
skatta 1978. Skattaþjónusta
allt árið.
Sigfinnur Sigurðsson. hagfr.
símar 85930 og 1 7938
IOOF 12 = 1 591 208 Vi =
Sp kv.
IOOF 1 = 1 591 208Vi =
E.I.
Frá Guðspekifélaginu
Áskrifta rsími
Ganglera er
17520
i kvöld kl. 9 erindi Guðjóns
8. Baldvinssonar ..Askurygg-
drasils" Reykjavikurstúkan.
Fræðsluflokkur Einars Aðal-
steinssonar um sjálfsrækt
hefst miðvikudaginn 2 5. 1.
kl. 9 á vegum sömu stúku.
AINíLVSINCASÍMINN KR:
22*80 kjí
JRarjjunblflöib
| raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Til leigu
1 30 fm skrifstofuhúsnæði í austurborg-
inni Húsnæðið er fullfrágengið. Hér er um
að ræða 5 herbergi, sem leigjast t einu
lagi eða hvert um sig. Hentugt fyrir
endurskoðunar- eða verkfræðistofu.
Tilboð óskast lögð inn á auglýsingadeild
Morgunblaðsins fyrir 25. janúar, merkt:
„F-888".
Skrifstofu og
lagerhúsnæði
óskast, um 100 ferm., fyrir heildverzlun
með hreinlegar vörur. Upplýsingar í síma
18860 og 26327
Garðar FUS
Ólafsfirði
Aðalfundur Garðars FUS Ólafsfirði
verður haldinn i Tjarnarborg sunnu-
daginn 22. janúar kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Jón Magnússon formaður ungra
sjálfstæðismanna kemur á fgndinn
og ræðir stjórnmálav^ðhorfið og
Anders Hansen framkvæmdarstjóri
SUS ræðir um starsemi og baráttu-
mál ungra sjálfstæðismanna í vetur:
Ungt sjálfstæðisfólk á Ólafsfirði er
eindregið hvatt til að fjölmenna og
taka með sér gesti.
Stjórnin.
Keflavík
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Keflavik, heldur áriðandi
fund í Sjálfstæðishúsinu. Keflavík, sunnudaginn 22. janúar kl.
2 e h. stundvíslega.
Fundarefni:
1 Prófkjör vegna bæjarstjórnarkosnmga.
2. Hugsanleg skipting á framkvæmdafé bæjarins, milli verk-
þátta.
Stjórnin.
Landsmálafélagið Vörður.
Skoðanakannanir —
Fjöimiðlar,
Sjálfstæði alþingis
Landsmálafélagið Vörður, samband félaga sjálfstæðismanna í
hverfum Reykjavikur, efnir til fundar þriðjudaginn 24. janúar
kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður
flytur framsöguræðu um efnið:
Skoðanakannanir — Fjölmiðlar —
Sjálfstæði alþingis.
Á eftir framsöguræðu fara fram frjálsar
umræður og fyrirspurnir.
Varðarfélagar og annað sjálfstæðisfólk
er hvatt til að fjölrnenna á fundinn.
Fundarstjóri: Edgar Guðmundsson,
formaður Varðar.
Þriðjudagur 24. janúar kl. 20:30 — Valhöll.
Stjórn Varðar.
Kosning kjörnefndar
vegna borgarstjórnar-
kosninga
Til meðlima Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík.
Þegar kosningar til Alþingis eða borgarstjórnar standa fyrir
dyrum i Reykjavík, skal sérstök kjörnefnd starfa innan Fulltrúa-
ráðsins. í kjörnefnd eiga sæti 15 menn, þannig valdir: 7
tilnefndir af stjórnum sjálfstæðisfélaganna og stjórn Fulltrúa-
ráðsins í Reykjavík og 8 kjörnir í skriflegri kosningu meðal
Fulltrúaráðsmeðlima, að undangengnum framboðum. Stjórn
Fulltrúaráðsins hefur ákveðið að velja kjörnefnd v/ borgar-
stjórnarkosninga nú í janúarmánuði.
Ár • reglugerð Fulltrúaráðsins segir m.a.:
,,Með hæfilegum fyrirvara skal með auglýsingu í fjölmiðlum,
leitað eftir framboðum til kjörnefndar. Kjörgengir eru allir
fulltrúar, sem eru á kjörskrá í Reykjavik.
Framboðsfrestur skal vera a.m.k. ein vika. Framboð telst gilt,
ef það berst kosningastjórn fyrir lok framboðsfrests, enda sé
gerð um það skrifleg tillaga af fimm fulltrúum hið fæsta og af
ekki fleiri en tíu fulltrúum, og frambjóðandi hafi skriflega gefið
kost á sér tif starfans.
Berist ekki fyrir lok framboðsfrests tillögur um fleiri kjörnefnd-
armenn en kjósa á, teljast þeir sjálfkjörnir, sem tillögur hafa
verið gerðar um, en komi ekki fram tillögur um fulla tölu
kjörnefndarmanna. skal stjórn Fulltrúaráðsins skipa svo marga
til viðbótar, að kjörnefnd verði fullskipuð."
Skv. framangreindu auglýsist hér með eftir framboðum til
kjörnefndar v/ framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik
við næstu borgarstjórnarkosningar. Frestur til að skila framboð
um er til kl. 1 2 á hádegi fimmtudaginn 26. janúar n.k. og ber
að skila framboðum. persónulega. fyrir þann tíma á skrifstofu
Fulltrúaráðsins i Valhöll. Háaleitisbraut 1, en eigi senda i
pósti.
^ Berist fleiri framboð en kjósa á, og komi til kosningu
kjörnefndar, fer sú kosning fram i siðari hluta janúarmánaðar
og i byrjun febrúarmánaðar.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Launþegaráð
Reykjanes-
kjördæmis
Launþegaráð Reykjaneskjördæmis
heldur fund að Hlégarði. Mosfellssveit,
mánudaginn 23. janúar 1978, kl.
20.30.
Dagskrá:
Stjórnmálaviðhorfið.
Ræður flýtja: Oddur Ólafsson, alþm ,
og frú Salome Þorkelsdóttir.
Frjálsar umræður og fyrirspurnir.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið á meðan
húsrúm teyfir. Stjórnin
Hlégarður Mosfellssveit
Mánudaginn 23. janúar
kl. 20.30.
Vörður FUS Akureyri
Vörður FUS Akureyri boðar til almenns fundar að Kaupvangs-
stræti 4 föstudaginn 20. janúar kl. 20.30. Jón Magnússon
formaður sambands ungra sjálfstæðismanna kemur á fundinn
og ræðir stjórnmálaviðhorfið og Anders Hansen framkvæmd-
arstjóri SUS ræðir um starfsemi og baráttumál ungra sjálf-
stæðismanna í vetur.
Varðarfélagar eru eindregið hvattir til að fjölmenna og taka
með sér gesti.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði
Fundur verður haldinn mánudag
inn 23. janúar n.k. í Sjálfstæðis-
húsinu og hefst kl. 20.30
Fundarefni.
Matthías Á. Mathiesen fjármálaráð-
herra flytur ræðu og svarar fyrirspurn-
um.
Kaffiveitingar.
Félagsvist.
Vorboðakonur mætum vel og stundvis-
lega.
Stjórnin.
Húsvíkingar
Ungir sjálfstæðismenn á Húsavik boða til almenns fundar i
Hótel Húsavik laugardaginn 21 janúar kl. 15.30 Jón Magn-
ússon formaður ungra sjálfstæðismanna kemur á fundinn og
ræðir stjórnmálaviðhorfið og Anders Hansen framkvæmda-
stjóri SUS ræðir um starfsemi og baráttumál ungra sjálfstæð-
ismanna i vetur
Sjálfstæðisfólk á Húsavik er eindregið hvatt til að fjölmenna og
taka með sér gesti.
Stjórnin.
Salome
Kristján Skaftason
Minningarorð
Vinir mfnir fara fjöld.
Feigöin þessa heimtar köid.
Ég kem eftír kannske f kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld.
brynju slitna, sundrað verð og syndagjöld.
Bólu-Hjálmar.
Mánudaginn 16. jan. s.l. and-
aðist eftir hetjulega baráttu við
ólæknandi sjúkdóm Kristján
Skaftason trésmíðameistari, Soga-
vegi 142. Þar féll í valinn ein af
hetjum íslenskrar alþýðustéttar
sem vel þekkti harðræði á æsku-
og ungdómsárum, eins og margir
sem ólust upp á fyrstu áratugum
þessarar aldar. Hann lærði ungur
trésmíði, sem varð hans Iífsstarf
og lengst af i Rúllu- og Hleragerð
Reykjavíkur. Ekki lét Kristján
ginnast af verðbólgukapphlaupi
eða uppmælingartöxtum stéttar-
bræðra sinna, heldur vann sitt
verk eftir uppskriftum fornrar
dyggðar, heiðarleika,
trúmennsku, nýtni og vandvirkni.
Og umfram allt heiðarleika.
Hann safnaði þvi aldrei auði á
veraldarvisu, en sá vel fyrir sinu
heimili og börnum sem alls urðu
tólf í tveimur hjónaböndum. Það
kom líka af sjálfu sér að ekki var
slegið slöku við og staðið meðan
stætt var. Sjaldan farið i sumarfri
og skemmtistaðir ekki stundaðir.
Kristján var maður dulur og bar
ekki tilfinningar sínar utan á sér,
eða trú sina á torg. En þar sem
góðir menn fara eru guðsvegir.
Börn hans öll erfa kannski ekki
margar einskis nýtar islenskar
krónur eftir hann, en þau erfa
það sem meira virði er, það vega-
nesti sem hann með lífi sínu og
starfi skildi eftir þeim til handa.
Eftir næstum þrjátíu ára nábýli
er margs að minnast og margt að
þakka. Ég þakka hlýhug og vinar-
þel þó orðin væru ekki alltaf
mörg. Ég þakka öll hans góðu
handtök sem betri þóttu en
nokkurs annars manns. Ég sendi
öllum hans nánustu samúðar-
kveðju, og þá fyrst og fremst vin-
konu minni, Stellu. Blessuð veri
minning mins góða granna,
Kristjáns Skaftasonar.
Rósa Sveinbjörnsdóttir.