Morgunblaðið - 26.01.1978, Page 11

Morgunblaðið - 26.01.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1978 \\ Frá undankeppni Reykjavfkurmóts í sveita- keppni. Alls tóku 18 sveitir þátt í keppninni. Brldge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Akur- eyrar. 1 fyrradag lauk aðalsveita- keppni félagsins með þátttöku 12 sveita. Mjög hröð keppni varð' um Akure.vrarmeistara- titilinn milli sveita Alfreðs Pálssonar og Páls Pálssonar, sem lauk með sigri hins fyrr- nefnda, sem fékk 175 stig en sveit Páls hlaut 174 stig. í sveit Alfreðs voru ásamt honum: Guðmundur Þorsteins- son, en hann er nýlega iátinn, Ármann Helgason, Jóhann Helgason og Baldvin Ólafsson. Röð sveitanna varð þessi: Alfreðs Pálssonar 175 Páls Pálssonar 174 Páls H. Jónssonar 135 Ingimundar Árnasonar 133 Hermanns Tómassonar (MA) 124 Stefáns Vilhjálmssonar 108 Arnar Einarssonar 103 Hauks Margeirssonar 95 Sigurðar Viglundssonar 84 Trausta Haraldssonar 77 Arnars Danleslssonar 50 Jóns Arna Jónssonar 13 Næsta keppni félagsins er firmakeppni, sem jafnframt er einmenningskeppni félagsins. Eru keppnirnar spilaðar þann- ig, að þrjú fyrstu kvöldin er einmenningskeppnin, en aðeins spilað í eitt kvöld fyrir hvert firma. Stendur keppnin yfir eins lengi og þarf, þ.e. þar til spilað hefir verið fyrir öll firm- un. Spilarar eru hvattir til að fjölmenna í þessa keppni. Undankeppni Reykjavíkurmóts. S.l. þriðjudag lauk undan- keppni Revkjavfkurmóts 1 sveitakeppni. Spilað var I þremur riðlum og spila tvær efstu sveitir i hverjum riðli ásamt sveit Hjalta Elfassonar til úrslita í Reykjavíkurmót- inu. Sveit Hjalta er núverandi Reykjavikur- og Islandsmeist- ari. Þær sveitir sem urðu i 3. og 4 sæti í riðlunum spila um laus saeti f Islandsmótinu, en keppni þessi var jafnframt undan- keppni Islandsmóts. Spila þvi sex sveitir um fjögur laus sæti í Islandsmóti — en Reykjavík á 10 sveitir alls i undankeppni Islandsmóts. Urslit í riðlunum urðu þessi: A-riðill: Stig. Sigurjón Tryggvason 81 Jón Hjaltason 78 Páll Valdimarsson 57- Steingrimur Jónasson 36 Gunnlaugur Karlsson 24 Sverrir Kristinsson 11 B-riðill: Stefán Guðjohnsen 78 Guðmundur Hermansson 65 Guðmundur T. Gfslason 64 Sigurjón Helgason 31 Ester Jakobsdóttir 31 Vigfús Pálsson 27 C-riðill: Jón Ásbjörnsson 77 Dagbjartur Grimsson 74 Sigurður B. Þorsteinsson 55 Eiður Guðjohnsen 40 Ragnar Oskarsson , 33 Reynir Jónsson 22 I upphafi undankeppninnar var dregið í riðlana þrjá^og urðu þeir mjög missterkir. Má það sjá i uppröðun B-riðilsins. I honum spiluðu þrjár sterkar sveitir. Varð sveit Guðmundar T. Gislasonar að sætta sig við þriðja sætið eftir harða baráttu við sveit Guðmundar Hermans- sonar en hana skipa ungir spil- arar. Auk Guðmundar eru í sveitinni: Sævar Þorbjörnsson, Guðmundur P. Arnarsson. Egill Guðjohnsen, Skúli Einarsson og Sigurður Sverrisson. Senni- lega koma þessir ungu menn allir til með að banka á dyr unglingalandsliðsins fyrir Norðurlandamótið í vor. (Jrslitakeppnin hefst 7. febrúar. Spilað verður í Hreyf- ilshúsinu við Grensásveg. HVAÐASTÆRÐ? Spurning sem allir litsjónvarpskaupendur spyrja. Mjög mikilvægt er, að fullt samræmi sé milli vegalengdar frá litsjónvarpi og stærðar þess. Hver skermastærð er framleidd fyrir ákveðna vegalengd _REGLA:________________________________ f bezta Brevtinqar ut fra pessum STÆRÐ: BEZTA VEGALENGD: 3f0 metrar 2f5 metrar 2,0 metrar 1,5 metrar 1,0 metrar ÞAR SEMf STÆRÐ TÆKJA ER MÆLD HORN í HORN, ÞÁ MUNAR MIKLU UM HVERJA TOMMU. er 20% minni en 22" er 30% minni en 26" er 50% minni en 26" Upplýsingar sem hjálpa þér að velja rétta skermastærð. ■ ## Skipholti 19, R. BUÐIN s«mi 29800 (5 línur) A H§ r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.