Morgunblaðið - 26.01.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1978
31
— Þankabrot
Framhald af bls. 23
að tína rækjupödduna úr ruslinu. og
eiga svo á kvöldin eftir að skælast
gegnum rokið ofan úr Skörðunum út-
yfir Vigurálinn eins og hann er lika
geðslegur með brotfaldinn úr hverri
báru, og andskotaganginn útfyrir
Arnarnesið Já, ég þekki hana báruna í
Vigurálnum. sem leggur vestur, frá
háarokinu úr landssteinunum við
Hraunin, maður hefur svosem séð
skrattann á henni, og þó að þessi
kallagrey skríði svo með um 200 þús
á mánuði, með því að sækja þetta í
rauðan dauðann, þá er nú svona stöku
sinnum að hvarfli í huga sumra
manna, að bölvans mismunur sé það
nú oft á tíðum að afla sér viðurværis
Eg nefni ekki hina i þetta sinn, sem
lengra á hafið sækja. það hefur svosem
komið fyrir, að ylgjað hafi i kringum
þá, og ég held að flestir þeirra fengjust
til að vera í land« fyiit-b—700 þús. kr
á mánuð*. /afnvel þó 13. mánuðurinn
bættist ekki við
En manni fyndist nú rétt si sona, —
um leið og verið er að brýna þessa stétt
okkar þjóðar um skattsvik og undan-
drátt á öllum sviðum, til hinna sam-
eiginlegu þarfa þjóðarheimilisins. að
þá mættu hinir sömu, og þá ekki síst
húsbændurnir á þjóðarbúinu, nú og þá
ekki síður bankaráðs-höfuðsmaðurinn
reyna að gera einhverja smágrein fyrir
þvi, hvað hafi orðið af öllum minus-
vöxtunum sem að framan er getið, —
eða hvort þeir vitandi vits fyrir augum
allra landsmanna geta horft uppá aðra
eins óhemju ránsaðferð árum saman,
og áratugum saman, af alsaklausu
fólki, sem trúað hefir þeim fyrir eigum
sínum til góðrar geymslu.
hað er lítil afsökun að hafa ætlað að
gera betur Það ætla allir að fiska vel,
sem á sjóinn sækja Skipstjóri sem
tekur bát til stjórnar ætlar að fiska vel
En það er bara vel að merkja, að þar er
enga miskunn hjá Magnúsi að fá Þá er
ekki ólikt að farið og gert var við suma
þá, er dottuðu á hálsþóftunni í andóf-
inu i gamla daga, að sjóblautum vettl-
ingnum var slett framani andlitið. og
þeir sem ekki fiska eru látnir hætta
Það gengur n I ekki að gera út nema
að fiska. En bankaráðsmaður getur sá
sami verið í starfi alla ævi, þó helmingi
af fjármunum fólks sé rænt frá þvi á 5
árum, það er n.l ekki honum að
kenna
Nú má sjálfsagt svo um hér dæma,
-— að gagnrýni sem hér um ræðir, sé
illa, — af vissum aðilum séð En væri
réttara að lofa og vegsama þá „stjórn-
vizku", sem á bak við býr Það eru til á
landi hér fyrirtæki og einstaklingar.
sem allt kalla róg og níð, ef hreyft er
gagnrýni á hendur þeim, og af sumum
jafnvel svo langt til hefnda hallað, að
útrýma þeim úr stöðu og starfi, —
sem bera gera sig að þvi, að sættast
ekki á allar þær aðferðir, sem sumir
telja sér til gildis að rétta á milli handa
sér Eri þá færi lika að styttast i það
einveldi sem forðum fjötraði svo lifs-
þrótt og mannhelgi þessa lands. — að
betur væri snúið við á réttri stundu
En mitt í ölduróti jarðlífs okkar. og
ekki síður í svifflugi á bólstursskýjum
himinhjúpsins skulum við ekki gleyma
þeim ógæfusömu meðbræðrum.okkar,
sem svo hafa hrasað á lifsbraut sinni.
að nú séu þeir sem fugl i búri, sem
ekki að lengur eigi þeir flugsvon í
viðan geim. Það ár sem nú er nýliðið
verður lengi þeim í huga meitlað. sem
svo hafa reikað á helhjamj
hvergi sjá þeir p*i«afiak1h þeirrar náðar-
sólffr. oií hjörtu yljar, skina til sin
um hina minnstu glufu Sú raun er
Þyngri en svo, að nokkur geti þar um
lýst, sem ekki hefir i ratað Ég heyrði
fátt um fyrirbænir frá forystumönnum
þjóðar okkar til þessara okkar minnstu
bræðra, en um verðbólguvandann sem
öllum virðist þó vera það eitt og sama í
huga með haltu mér, haltu mér.
slepptu mér, slepptu mér, urðu heldur
fleiri þenkingar, enda sem ekki vanþörf
var, jafnvel þótt flestar detti þær mátt-
lausar útí sorpið
En eigum við þá ekkert jákvætt i
öllum þeim afvegaþrengingum. sem
hrjá hér land og lýð Jú, vissulega Við
eigum allt til þeirra. ef við aðeins
kunnum með það að fara í fyrsta lagi
eigum við þá óhemju gullkistu, sem
sjórinn er, fiskinn af öllum stærðum og
gerðum- Við eigum alla þá ómælisvidd
hafsins sem ávannst í hinni gifturiku
landhelgisbaráttu okkar, og innan fárra
ára verður allur þessi hafsjór krapaður
af fiski Við eigum svo stórmikil og
glæsileg atvinnutæki til lands og
sjávar, að aldrei höfum við önnur eins
gersemi nokkru sinni haft umhendis til
lifsins bjargar Við eigum lika svo
hörkuduglega menn og konur til allra
starfa. að eindæmi er Margt af þessu
fólki vinnur alltof mikið, bæði i sveit og
við sjávarafla, vissan iðnað og eitt og
annað En svo eigum við lika, þvi
miður, alltof stóran hóp af óarðbæru
fólki, bæði í ýmsum svokölluðum þjón-
ustugreinum o fl sem engin nauðsyn-
leg þörf er fyrir, mætti þar margt til
nefna Þetta fólk vantar útí framleiðslu-
vinnumarkaðinn, til arðbærra verka, en
verst er þó nærri þvi af öllu, hvað við
erum ósínkir á að henda okkar svo
dýrmæta gjaldeyri, sem svo er kallað-
ur. minnsta kosti þegar á að kaupa fyrir
hann fóðurbæti, i allra handa útlend
vinnulaun, á svo ótrúlegum sviðum. að
forsmán er að Og síðast en ekki sist
eigum við fólk sem engan veginn gerir
sér grein fyrir, að við búum í harðbýlu
landi þar sem hver og einn gæti orðið
á sínu greyi að taka svo bjargast mætti
frá kvöl og dauða Þá ekki síður alltof
mikið af því fólki, sem ekkert kann með
velsæld að fara, og það er eitt af okkar
stóru meinum. Fátæktin hefur löngum
þjálfað okkur íslendinga til bjargar og
dáða. velsældina höfum við aldrei
kunnað með að fara, en þó aldw síður
en nú
Gleðilegt nýár
Jens í Kaldalóni.
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavik þriðjudaginn
31. þ.m. vestur um land til Akur-
eyrar. Vörumóttaka: alla vjrka
daga nema laugardag til 30.
þ.m. til Vestfjarðahafna. Norður-
fjarðar, Siglufjarðar og Akureyr-
ar.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
stimplar,
slífar og
hringir
■
Ford 4-6-8 strokka
benzín og díesel vélar
Austin Minl
Bedford
B.M.W.
■
■
I
Buick
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Datsun benzín
og díese>
oodge — Plymouth
Fiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzín og diesel
Mazda
Mercedes Benz
benzin og diesel
Opel
Peugout
Pontiac
Rambler
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Slmca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
I
ÞJOIMSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
- Seljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum lax í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax
til reykingar.
Sendum i póstkröfu —
Vakúm pakkað ef óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hafnarlírði Sími: 51455
fyrir drengi og stúlkur
hefst 1 . febrúar. Japanski þjálfarinn Yoshihiko
lura kennir. Innritun og upplýsingar í síma
83295 alla virka daga frá kl. 1 3 00 til 22 00
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
ÁRMÚLA 32.
Urvals
startkaplar
ÚRVALS STARTKAPLAR
LENGD 4,0 M KR. 7406-
LENGD 5,5 M KR. 8976-
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3
dilkakjöt
áhagstæóu
verói
Nýtt \ i ovuA Okkar
Hgj i c'i<*^oKNcirs • <
I veröflokkur 842 /kg.
Heilskrokkar II veröflokkur 77 S /kg.
Súpukjöt í>s^l 875 /kg.
Læri 998 /kg.
Hryggir 1.021 /kg.
Lærisneiðar 1.238 /kg.
Kótelettur 1.121 /kg.
Saltkjöt 1.022 /kg.
Slög 600 /kg.
SENN LÝKUR lÍTSÖLXJNNI
ATH. BREYTTAN
VERSLUNARTÍMA:
OPIÐ TIL KT.S ANNADKVÖLD
LOKAÐ Á LAUGAKDAG.
HAGKAUP