Morgunblaðið - 02.02.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978
23
Hvergi urrnt að leigja
loðnuveiðiskip í ná-
grannalöndum íslands
Morgunblaðið hafði i
gær samband við Gísla
Jóhannesson skipstjóra á
Jóni Finnssyni og spurði
frétta af stöðunni varðandi
Jón, en vélarbilun varð í
bátnum í síðustu viku er
sveifarásinn brotnaði þar
sem skipið var á leið á
loðnumiðin úti af Sléttu.
Gísli sagði að Jón Finns-
son yrði frá veiðum í þrjá
0
INNLENT
mánuði og kostnaður við
viðgerð vélarinnar væri
um 90—100 millj. kr. Kvað
hann verið að athuga á
Akureyri hvort unnt væri
að gera við skipið þar. Jón
Finnsson var kominn með
um 650 tonn af loðnu þegar
vélarbilunin varð.
Gísli kvað útgerðina hafa
reynt að fá leigt skip frá
öðrum löndum til loðnu-
veiðanna þar sem Jón er
búinn að missa af þessari
loðnuvertíð og þeir hefðu
haft tvær nætur klárar og
úrvals mannskap, en
hvergi hefði verið mögu-
leiki að fá leigðan bát,
hvorki á Norðurlöndum né
í öðrum nágrannalöndum
íslands.
Lögbannskröfu
S.í. synjað
Kröfu Skáksambands ís-
lands um að lögbann yrði
sett á framkvæmdir hús-
eiganda Laugavegs 71 til
breytinga á inngangi að
skrifstofum sambandsins
var hafnað í gær.
Guðmundur Axelsson í
Klausturhólum, sem
byggði húsið, sagði í sam-
tali við Mbl. í gær, að inn-
gangur sá, sem nú væri að
skrifstofum S.í. hefði að-
eins verið bráðabirgðainn-
gangur, en sá serr> nú yrði
settur, væru upphaflegu
dyrnar samkvæmt sam-
þykktri teikningu að hús-
inu.
Guðmundur sagði, að
upphaflega hefði Lauga-
vegur 71 átt að vera aðeins
3 hæðir, en síðan fékkst
leyfi fyrir fjórðu hæðinni
og var þá hluti af 3ju hæð
þinglýst sem eign 4rðu
hæðarinnar til uppgangs,
en á þeim hluta væri ein-
mitt inngangurinn að
bráðabirgðadyrum Skák-
sambandsins.
Sementsverksmiðjan:
138.000 tonn af sem-
enti framleidd 1977
Flytja varð inn 26.171 tonn af sementsgjalli
ARIÐ 1977 voru framleidd 99.000
tonn af sementsgjalli hjá
Sementsverksmiðju rfkisins og
138.000 tonn af sementi segir í
frétt frá Sementsverksmiðjunni.
Skiptist framleiðsla sements
þannig, að framleidd voru 118.000
tonn af portlandsementi og 20.000
tonn af hraðsementi. Þar sem
notkun sements innanlands er
verulega meiri en afkastageta
ofnsins á Akranesi, varð að flytja
inn 26.171 tonn af sementsgjalli
erlendis frá. Erlenda gjallið var
Gunnar Kvaran cellóleikari verð-
ur einleikari á fyrstu tónleikum
þessa starfsmisseris Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Dr. Victor Urbancic.
Friðrikssonar og á óperutónleik-
unum 16. marz Karlakór Reykja-
víkur.
Þá segir í frétt frá hljómsveit-
inni:
Sérstök ástæða er til að geta
óperutónleikanna h. 16. mars
undir stjórn Wilhelms Briickner-
Riiggeberg, sem er einn af aðal-
hljómsveitarstjórum óperunnar í
Hamborg.
A þessum tónleikum
koma fram tveir þýskir söngvar-
ar, sópransöngkonan Astrid
Schirmer og tenórsöngvarinn
Heribert Steinbach. Þessir söngv-
arar eru meðal eftirsóttustu
söngvurum í Þýskaiandi í dag og
syngja sem gestir við öll stærstu
óperuhús i Evrópu. Það sem flutt
verður á þessum óperutónleikum
eru forleikir, aríur og dúettar úr
óperunum Fidelio eftir Beethov-
en, Meistarasöngvurunum, Trist-
an og Isolde, Hollendingnum
Sinfóníuhljómsveitin af
stað aftur á fimmtudag
Sinfóníuhljómsveit tslands hef-
ur sfðara messcri þessa starfsárs
með hljómleikum næsta fimmtu-
dag. Á tónleikunum næsta
fimmtudag mun bandaríski
hljómsveitarstjórinn George
Trautwein stjórna en einleikari
verður Gunnar Kvaran cellóleik-
ari. Tónleikarnir hefjast á fs-
lenzku verki, Gamanforleik eftir
Victor Urbanic, þá er ccllókon-
sert eftir Schumann og að lokum
tvö bandarísk verk, Sonata eftir
Stokes og Sinfónía nr. 2 eftir
Howard Hansen.
Aðrir stjórnendur á þessu miss-
eri verða þessir: Páll P. Pálsson,
Adam Fischer, Wilhelm Bruckn-
er-Ruggeberg, Karsten Andersen
og Martin Hunger Friðriksson.
Einleikarar verða þessir: Anna
Áslaug Ragnarsdóttir, György
Pauk, Hans Richter-Haaser, Unn-
ur Sveinbjarnardóttir og á loka-
tónleikunum 18. maí n.k. rúss-
neski píanósnillingurinn Emil
Gilels.
Á tónleikunum 27. apríl kemur
Söngsveitin Filharmónfa fram
undir stjórn Marteins Hunger
fljúgandi og Valkyrjunum eftir
Wagner. Karlakór Reykjavíkur
mun syngja tvo kóra úr óperunni
Fidelio og Hollendingnum fljúg-
andi.
Að lokum skal þess getið, að á
þessu misseri verða flutt verk eft-
ir fjögur íslensk tónskáld auk
Victors Úrbancics: Jón Nordal,
Snorra Birgisson, Sigursvein D.
Kristinsson og Guðmund Haf-
steinsson, og er það frumflutning-
ur á verkum hinna þriggja sfðast-
nefndu.
Samstarf vegna sjúkdóms í
meltingar- og þvagfærum
síðan malað og úr því framleitt
sement í verksmiðjunni á Akra-
nesi, aðallega hraðsement.
Sala sements varð alls 136.795
tonn, þar af voru 114.322 tonn
portlandsement, 21.016 tonn hrað-
sement, 1.412 tonn faxasement og
45 tonn af hvitu og lituðu
sementi.
Eins og undanfarin ár verða
reikningar Sementsverksmiðj-
unnar birtir, þegar þeir Iiggja
fyrir segir í fréttinni.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
starfshópi um málefni fólks sem
gengizt hefur undir svonefndar
„stomy“ aðgerðir:’
Hér á landi mun vera allstór
hópur fólks á ýmsum aldri sem
þurft hefur að gangast undir svo-
nefndar „colostomy", „ileo-
stomy“ og „urostomy" skurðað-
gerðir vegna sjúkdóma í melting-
arfærum og þvagfærum. Nokkrir
einstaklingar sem eiga beinna
hagsmuna að gæta í þessu sam-
bandi, eða vilja stuðla að velferð
þessa fólks, mynduðu starfshóp í
haust sem hefur haldið nokkra
umræðufundi í Reykjavík. Unnið
er að því að auðvelda útvegun
þeirra hjálpartækja sem þessu
fólki eru nauðsynleg og kanna
þörfina fyrir þau í landinu. Auk
þess er m.a. áformað að koma á
fræðslu- og upplýsingastarfsemi
um þessi efni í samráði við starfs-
fólk heilbrigðismála, en mikill
skortur er á henni.
Við skipulagningu slíkrar starf-
semi, sem e.t.v. gæti leitt til fé-
lagsstofnunar, er nauðsynlegt að
komast í samband við sem flesta
er hafa gengist undir ofangreind-
ar aðgerðir, bæði hér á landi og á
erlendum spitölum, eða aðstand-
endur, t.d. þegar um börn er að
ræða. Þeir sem áhuga hafa á
þessu þarflega máli eru vinsam-
legast beðnir að gefa sig fram
skriflega, þ.e.a.s. senda nafn,
heimilisfang og simanúmer og
geta um tegund aðgerðar. Utan-
áskriftin er:
Starfshópur CIU
(trúnaðarmál)
Pósthólf 523
101 Reykjavík.
Hans og Gréta á
fjalirnar í Eyjum
LEIKFÉLAG Vest-
mannaeyja frumsýnir í
kvöld, fimmtudagskvöld,
leikritið Hans og Grétu eft-
ir Willy Krúger. Þetta er
annað verkefni Leikfélags
Vestmannaeyja í vetur, en
í haust sýndi leikfélagið
gamanleikritið Allir í verk-
fall.
Sigurgeir Scheving er leikstjóri
Hans og Grétu, en leikritið er
Eilífðarvandamálin
í „Fjölskyldunni,,
Lovfsa og Kristján í hlutverkum sínum.
MIÐVIKUDAG 1. febr. kl.
21.00 frumsýndi Leikfélag Dal-
víkur finnska sjónleikinn
„FJÖLSKYLDAN“ eftir Claes
Andersson í Samkomuhúsinu á
Dalvík. Leikstjóri er Saga Jóns-
dóttir. Leikmynd er eftir Jón
Þórisson og Magnús Axelsson
annaðist lýsingu. I hlutverkum
eru: Dagný Kjartansdóttir,
Theódór Júlíusson, Inga
Matthíasdóttir, Kristján
Hjartarson, Lovísa Sigurgeirs-
dóttir, Sólveig Hjálmarsdóttir
og Rúnar Lund.
Æfingar hafa staðið yfir síð-
an fyrir jól og gengið vel eftir
atvikum. í
„FJÖLSKYLDUNNI" er gerð
úttekt á ýmsum vandamálum,
svo sem drykkjuskap, sambúð
hjóna, samskiptum barna og
foréldra og sýnd er þar þörfin
f.vrir blóraböggul, svo að allt
gangi vel fyrir meirihlutanum.
Leikritið var sýnt árið 1975
hjá Leikfélagi Reykjavikur við
mjög góðar undirtektir.
Næstu sýningar verða föstu-
daginn 3. febr. og þriðjudaginn
7. febr. Fyrirhugað er að ferð-
ast með leikritið.
ævintýraleikur fyrir börn og
unglinga á öllum aldri. Leikmynd
gerði Magnús Magnússon og Sig-
urður Rúnar Jónsson æfði. upp
söng og hljómlist, en Auðberg Óli
Valtýsson er sviðsstjóri og sér um
tækniatriði á sýningu. I leikritinu
eru um 20 leikarar, en helztu
hlutverk, Hans og Grétu, leika
Sigurpáll Scheving og Elfa Ölafs-
dóttir og pabbann og mömmuna
leika Sigurður Rúnar og Halla
Sverrisdóttir. Þá má nefna einnig
Eirík Guðnason sem leikur skóg-
arbjörn, Hjálmar Brynjólfsson
sem leikur Tobías og galdranorn-
ina leikur Halldóra Magnúsdóttir.
Kolbrún Hálfdánardóttir leikur
skógardts, Jóhannes Agúst Sig-
urðsson leikur bangsa, Guðrún
Kolbeinsdóttir leikur Mjallhviti
og ýmsir aðrir leika héra, dverga
og fleiri hlutverk.
Næstu sýningar verða á laugar-
dag og sunnudag klukkan 4 í bæði
skiptin, en miðasala verður á allar
sýningar í Bæjarleikhúsinu eftir
kl. 4 í dag.
Þegar sýningum á Hans og
Grétu lýkur hefjast æfingar hjá
Leikfélagi Vestmannaeyja á
þriðja verkefninu í vetur, að sögn
Sigurgeirs Schevings, formanns
Leikfélags Vestmannaeyja, og
einnig er áformað að taka aftur
upp sýningar á Verkfallinu og
jafnvel skjótast með það til fasta-
landsins.