Morgunblaðið - 02.02.1978, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978
41
Æmték mbítisls
<1 ! >
z'.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRA MÁNUDEGI
UJJ'/J II
bréfið, sem hér birtist i dálkunum
og vildi bæta við sitt tillegg:
Hún kvaðst hafa séð í blaði eftir
að hún skrifaði sitt bréf, viðtal við
Sigurð Sigurðsson, dýralækni á
Keldum, þar sem hann segir að
auk þess sem spóluormar eru
algengir í hundum, þá sé sullur
ekki útdauður á Islandi. Nú I
haust hafði fundizt Igulsullur
austur á Breiðdalsvfk í kind, sem
var slátrað þar. Fyrir tveimur ár-
um hafi fundizt sullur i kind i
Vopnafirði og að frá 1968 hafi af
og til fundizt sullur í sláturhúsinu
á Breiðdalsvík. Fram að þeim
tima hafi ekki fundizt sullur á
tslandi i 15 ár. Segir Sigurður, að
ef ekki sé höfð fyllsta aðgæzla i
þessum málum, gæti svo farið að
sullaveiki breiddist út aftur.
En fyrir það unga fólk, sem
ekki er kunnug. þeim skelfilega
sjúkdómi sullaveiki og tilurð
hans, er rétt að útskýra hvernig
hann berst. Grmurinn lifir í
hundum. Eggin ganga niður af
honum með saur. Eggin geta svo
komizt í sauðfé og jafnvel menn.
Ef eggið kemst ofan f t.d. menn,
kiekst það út og lifran berst út I
blóðið. Hún getur svo setzt að og
myndað sull, t.d. i lifur og
lungum.
En haft er eftir dýralækninum
að til lítils hafi verið barizt langri
og erfiðri baráttu, ef sullaveiki
breiðist nú út að nýju.
Vildi konan á Rauðalæknum
koma þessu á framfæri.
Þessir hringdu . . .
9 Vankunnátta
í notkun
stefnusljósa
Ökumaður skrifar:
Er ekki hægt að kenna Is-
lendingum að nota stefnuljós
réttilega. Greinilega er þarna
skortur á kennslu á þessum þætti,
því varla nokkur maður gefur
stefnuljós fyrr en svo seint að það
kemur að engu gagni fyrir þá sem
eru i kringum hann. Stefnuljósin
eru til þess að gefa bllstjórum og
öðrum vegfarendum til kynna við
hverju megi búast og veita þeim
svigrúm til réttra viðbragða.
Einkum er það áberandi hve
mikil hætta slafar af þvi, þegar
menn gefa ekki merki með nægi-
legum fyrirvara nú þegar snjór er
og hálka. Bíllinn á eftir hefur
ekkert gagn af þ\í, þó merki sé
gefið um að sá sem á undan fer
ætli að beygja eða draga úr ferð
um leið og hann gerir það. Þá
hefur hann enga möguleika á að
hemla hægt, eins og verður að
gera á hálku eða sveigja til.
Ég sá í blöðunum frétt um að á
steyptu brautinni í Kópavogi hafi
11 bilar lent saman i einum
árekstri vegna hálku. Þetta
kemur mér ekki á óvart. Bilarnir
aka svo nálægt hver öðrum, og
gefa svo seint merki að bókstaf-
lega ekkert er hægt að gera, ef
eitthvað út af bregður hjá einum
bíl.
Ég legg þvi til að ökukennarar
hefji nú herferð og reyni að gera
nemendum sínum ljóst til hvers
stefnuljós eru. Þau séu ekki bara
til þess að maður lendi ekki i
lögreglunni ef maður gefur þau
ekki. Eins að lögreglan taki hart á
þvi, ef stefnuljós eru ekki gefin
nægilega snemma. Ljós sem gefin
eru um eða eftir að menn fara að
draga úr ferð til að beygja eru
einskis virði.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A skákþingi Ungverjalands í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Vadasz og Lukacz, sem
hafði svart og átti leik. Lukacz
gerði sér nú litið fyrir gegn stór-
meistaranum og þvingaði fram
óverjandi mát.
30. ...Hf4! og hvitur gafst sam-
stundis upp. Eftir 31. gxf4 — g4+,
32. Kg3 — Rf5 er hann mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
Óþolandi þegar hann er að elta mann á röndum.
ST.0R-
UTSALA
DÖMUDEILD
Flónel
300 kr. m.
Köflótt denim
300 kr. m.
Köflótt bómullarefni
400 kr. m.
Kjólaefni
500 kr m
Terylene kjólaefni
600 kr m.
Svart rifflað flauel
800 kr m
Diolin efni
br. 1 .50, 1 000 kr. m.
Denimefni br. 1.50
1 000 kr. m.
U11- og teryleneefni
br. 1.50; 1 200 kr. m.
Kvenbuxur 300 kr.
Handklæði frá 400 kr.
Ullargarn margar teg
Borðdúkarfrá 500 kr.
HERRADEILD
Herraskyrtur
2000 kr.
Peysur frá
2000 kr.
Náttföt
1 700 kr.
Hlírabolir
675 kr.
Stuttar buxur
675 kr.
Hálfermabolir
900 kr.
Síðar buxur
1100 kr.
Stuttar
drengjabuxur
475 kr.
Drenqjaskyrtur
1700 kr.
AIK selst fyrir
ótrúlega lágt verð
OPIÐ TIL 12 LAUGARDAG
Egill Sacobsen
Austurstræti 9
dilkákjöt
áhagstæóu
verói
Nýtt Okkar
verð verð
Heilskrokkar
I verðflokkur 842 /kg.
Heilskrokkar
II verðflokkur 779 /Kg.
Súpukjöt 1>B^. 875 /kg.
Læri f>3Síg 998 /kg.
Hryggir 1.021 /kg.
Lærisneiðar 1.238 /Lg.
Kötelettur 1.121 /Kg.
Saltkjöt í>ts^ 1.022 /kg.
Slög ■>50, 600 /Kg.
OPIÐ TIL KL8 ANNADKVÖLD
LOKAÐ Á L AUGARDAG.
HAGKAUP