Morgunblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK 35. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Enn barizt þrátt fyrir vopnahlé Beirút 10. feb. AP. Reuter. ÁTÖKUM sýrlenzkra gæzluliða og kristinna Líbana slotaði nokkuð á föstudag en þó bar enn á suttum, snörpum skærum, er stefna í hættu þeim fallvalta friðarsáttmála, sem gerður var í því skyni að binda end á versta öngþveiti í Líbanon síðan á tímum borgarastríðsins. Líbanskur framámaður skellti í dag skuldinni á friðargæzlusveit- ir Arababandalagsins og sagði: „Sýrlendingar eru enn einu sinni farnir að haga sér eins og setulið hér um slóðir.“ Vopnahlé það, er samið var um á miðvikudag hélzt til hádegis í dag, er sýrlenzkir gæzluliðar hófu skotárásir á heri kristinna á tveimur svæðum í austurhluta Framhald á bls. 33. Sómalar hvattir tíl að gefast upp Washington, Nairobi, 10. feb. Reuter. AP. BANDARlSKA stjórnin skoraði í dag á Sómali að draga til baka herlið sitt í Ogaden- eyðimörkinni. Einnig hvatti bandariski utanríkisráðherrann, Cyrus Vance, Sovétmenn til að kalla hernaðarráðgjafa sína aftur frá Eþíópíu. Þá hafa Eþíópiu- menn, sem nú eru í mikilli sókn á vígstöðvunum, beint þeim tilmæl- um til Sómala að þeir gæfust upp til að þyrma mannslífum. „Stríðið í Ogaden er okkur mik- ið áhyggjuefni,“ sagði Vance á fundi með blaðamönnum i dag. „Átökin verða sífellt snarpari og vopn streyma utanfrá inn á svæð- ið,“ bætti hann við. Var það álit Vance að reyna ætti að komast að samkomulagi um vopnahlé, að Sómalar drægju sig í hlé og kúbanskir og sovézkir sérfræðing- ar hyrfu tafarlaust á brott. Kom fram hjá honum að á líðandi stund væru um 3000 kúbanskir ráðgjafar í Eþíópíu, þar af 2000 við sjálfa víglínuna. Sagði hann að mannafli Sovétmanna í Eþíópíu væri á bilinu frá 800 til 1000. Lét Vance í ljós ótta um að fleiri kúbanskir hermenn væru á leið til Eþíópíu frá Angóla og Kúbu. Sagði hann að Bandaríkin héldu fast við þá stefnu sína að veita hvorugum stríðsaðila her- stuðning í deilunni en benti jafn- framt á að sú stefna kynni að verða endurskoðuð seildust Eþíópíumenn yfir Jandamærin. „Við höfum heit Eþíópíumanna fyrir því að þeir muni ekki ryðj- ast yfir landamærin," sagði Vance. I tilkynningu frá Eþíópiustjórn í dag, sem birt- var í Rómaborg, sagði að yfirvöld í höfuðborginni Addis Abeba væru reiðubúin til að búa í friði við Sómala. Kom þar fram að Eþíópar myndu misk- Framhald á bls. 33. Don Jamieson, utanrfkisráðherra Kanada, sýnir kort sem sýnir hvar foringi úr K:nadísku riddaralög- reglunni fékk fyrirmæli frá sovézkum leyniþjónustuforingja um 10 km norður af Ottawa. Svartur blettur á sambúð ríkjanna segir Trudéau um njósnamálið Ottawa, 10. feb. Reuter. AP. FORS/ETISRAÐHERRA Kan- ada, Pierre Trudeau, lét svo um mælt á blaðamannafundi f dag að sovézka njósnamálið væri svartur blettur á samskiptum Kanada og Sovétrfkjanna. Hann sagði að það gerði óhjákvæmilega sambúðina erfiðari en ætti ekki að gera að verkum að upp úr henni slitnaði. Norska krónan felld um 8% Kemur ekki til með að hafa veruleg áhrif hérlendis, segir Jónas Haralz einmg norska Kaupmannahöfn, 10. feb. AP. FJÁRMALARAÐHERRAR og aðalbankastjórar Evrópulanda, er aðild eiga að samningi um sam- hentar aðgerðir í gjaldeyrismál- um, „Snákinum" eins og hann er kallaður, hafa ákveðið að fella gengi norsku krónunnar um átta prósent, að því er danski Aðal- bankinn tilkynnti í kvöld. Var ákvörðun þessi tekin að beiðni norskra yfirvalda og speglar hún óhagstæðan viðskiptajöfnuð þjóðarinnar að þvf er sagði í til- kynningunni. Að sögn forstöðumanna 31 fórst í flugslysi Montevideo, 10. febrúar AP ÞRJÁTlU og einn beið bana þegar flugvél flughers Uruguays steyptist til jarðar í dag. Þetta er mesta flugslys í sögu landsins. Slysstaðurinn er um 600 km norðvestur af höfuðborginni Montevideo. Stjórn landsins lýsti hann bannsvæði og neitaði að veita fjölmiðlum upplýsingar um slysið. Þó fréttist að flugstjórinn hefði tilkynnt um bilun í öðrum hreyfli vélarinnar skömmu eftir flugtak frá Artigas skammt frá landa- mærum Argentínu. Flutvélin var af gerðinni DC-3 og var á leið til Montevideo. danskra viðskiptabanka er mikil- vægasti þáttur ákvörðunarinnar sá að með henni hafa Norðmenn ákveðið að láta gjaldmiðil sinn vera á sama báti og gjaldmiðill annarra aðildarlanda „Snáksins“ frekar en að láta hann fljóta ein- an sér eins og Svíar. Hafa fjár- málasérfræðingar látið í veðri vaka að kljúfi enn eitt land sig út úr samtökunum um fljótandi gengi, geti það riðið þeim að fullu. Það kom einnig fram hjá dönsk- um bankamönnum í kvöld að ein helzta ástæðan fyrir því að ákvörðunin var tekin muni hafa verið hve hófleg áhrif olíuvinnsl- an úr Norðursjó hefur enn haft á efnahag norsku þjóðarinnar. Eru nefndir örðugleikar skipaiðnaðarins, sem munu vera harðvítugri en hjá flestum þjóðum öðrum. Þá má geta þess að gamalgrónar útflutn- ingsgreinar Norðmanna líkt og skógarhögg hafa orðið illa fyrir barðinu vegna falls sænska gjald- miðilsins á síðasta ári, en Svíar eru helztu keppinautar Norð- manna á þessum vettvangi. Telja menn að þessi gengisfell- ing norsku krónunnar geti haft áhrif á dönsku krónuna. Einnig er talið að hún geti orðið til þess að austurrísk stjórnvöld endur- skoði frekar þá stefnu sína að tengja shillinginn á óbeinan hátt þýzka markinu. Mbl. náði í gærkvöldi tali af Jónasi Haralz, bankastjóra, og spurði hann hvort þessar ráðstaf- anir norsku stjórnarinnar kæmu til með að hafa áhrif hér á landi. Framhald á bls. 33. 1 Moskvu var því hins vegar lýst yfir að brottrekstur sendimann- anna 13 væri út I hött og sprottin af andróðri afla, sem legðu fæð á Sovétríkin. A blaðamannafundinum í dag kom fram hjá Trudeau að hann teldi að sovézka hneykslismálið, er upplýstist í gær með þeim af- leiðingum að 13 sovézkum borgur- um var vísað úr landi, þar af tveimur ævilangt, ætti ekki að hafa langvarandi áhrif á sam- skipti ríkjanna. „Það þarf ekki að valda vinslitum þótt sletzt hafi upp á kunningsskapinn með tveimur aðilum einu sinni,“ sagði hann. Eins og fram hefur komið var 13-menningunum gefið að sök að hafa reynt að múta félögum kanadísku riddaralögreglunn- ar og hafa njósnir af kana- dísku upplýsingaþjónustunni. I hópi þeirra, sem sakaðir voru um njósnir voru m.a. fyrsti ritari sovézka sendiráðsins í Ottawa og tveir aðstoðarritarar hans. Alls eru í sendiráðinu 64 starfsmenn. Utanríkisráðherra Kanada Don Jamieson kunngerði á fimmtudag hvað á seyði var í neðri deild kanadíska þingsins og sagði þá að tækju Sovétmenn upp á að vísa kanadískum sendimönnum í Moskvu úr landi i hefndarskyni myndi kanadíska stjórhin svara fyrir sig með því að gjalda þeiml tönn fyrir tönn. Hann sagði að fjórum af sovézku sendiráðs- mönnunum 13 hefði verið gert að hverfa á brott fyrir næstkomandi mánudag, sjö hefði verið gefinn frestur til 23. febrúar, en tveimur fjarstöddum hefði verið meinað að snúa aftur. Framhald á bls. 33. 7,3 stiga skjálfti Wellington, 10. feb. Reuter. AP SNARPUR jarðskjálfti mældist i morgun á S- Kyrrahafi naérri Kermadec- eyjum norðaustur af Nýja- Sjálandi. Að sögn jarðfræðinga var ekki um neinar alvarlegar skemmdir eða slys á mönnum að ræða. Skjálftinn mældist 7,3 stig á Richtermæli. Kermadec-eyjar liggja um 1200 kilómetra n-austur af Nýja-Sjálandi og eru í eyði ef frá er talið að þar er útvarps- og veðurathugunarstöð, sem u.þ.b. tiu manns starfa við. Þá hefur verið skýrt frá, að mælzt hafi jarðskjálfti í Júgó- slavíu um 315 kílómetra vestur af Belgrad. Var hann um 6 stig á Richter og mun ekki hafa orðið tjón af völdum hans. ísraelsleiðtogar spá nýjum friðarfundum New York, Washington, Berchtesgaden, Jerúsalem, 10. feb. AP. Reuter. FRIÐARVIÐRÆÐUR í M- Austurlöndum, er upp úr slitnaði í síðasta mánuði, munu hefjast að nýju á næstunni að því er utan- ríkisráðherra Israels, Moshe Day- an, skýrði fréttamönnum frá í dag. Einnig eru uppi raddir með- al ráðamanna vestanhafs að Cart- er Bandaríkjaforseti hyggist bjóða Begin og Sadat að koma til Washington til viðræðna í apríl nk. Sadat, sem í dag hvfldi sig í ferð sinni á dvalarstað sínum í Bavaríu í V-Þýzkalandi, mun á morgun eiga viðræður við Bruno Kreisky, kanslara Austurríkis. í Vfn en öllum á óvart mun Kreisky hafa búið svo um hnút- ana að Sadat hitti einnig að máli Shimon Peres. leiðtoga stjórnar- andstöðunnar í Israel. Begin, forsætisráðherra ísraels, mun í dag hafa snúið heim eftir fjáröflunarferð til Sviss ogjcvaðst hann bjartsýnn um að friðarvið- ræðurnar byrjuðu á nýjan leik. Utanríkisráðherra Bandarikj- anna, Cirus Vance, lýsti því hins vegar yfir í dag að bústaðir ísra- ela í Sinai ættu ekki rétt á sér og kvað þetta atriði skipta sköpum i áformuðum friðarviðræðum. Það var eftir fund hans með bandaríska aðstoðarutanríkisráð- herranum Alfred Atherton i gær að Dayan kvaðst vongóður um að friðarviðræðurnar færu aftur í gang. Aðspurður kvaðst Dayan. hins vegar ekki áiíta að bústaðir Framhald á bls. 33.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.