Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
5
Tónleikar í
Bústaðakirkju
A LAUGARDAG kl. 16 verða
haldnir tónleikar í Bústaða-
kirkju. Flytjendur eru Camilla
Söderberg sem leikur á blokk-
flautur og Snorri Örn Snorrason
sem leikur á lútu og gítar. Flutt
verður tónlist eftir 20. aldar tón-
skáldin Britten, Stokes og Hans
Martin Linde svo og frá renaiss-
ance- og barrokk-timabilinu.
Camilla Söderberg lauk burt-
fararprófi í flautuleik frá tónlist-
arháskólanum í Vínarborg og
stundaði síðan framhaldsnám við
sama skóla. Snorri Örn Snorrason
lauk einnig burtfararprófi frá
tónlistarháskólanum í Vínarborg
og hafði þá stundað gítarnám í 5
ár og hefur hann s.l. tvo vetur
stundað framhaldsnám í Basel í
Sviss.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og
fást aðgöngumiðar við inngang-
inn.
Camilla Söderberg
og Snorri Örn Snorrason.
Röng fyrirsögn
RÖNG fyrirsögn birtist í gær á
blaðsíðu 2 yfir frétt um að blaða-
menn hefðu boðað verkfall frá og
með föstudeginum 17. febrúar.
Fyrirsögnin var um að blaðamenn
hefðu sagt upp samningum. All-
nokkuð er síðan það gerðist, en
fyrirsögn fréttarinnar í gær átti
að sjálfsögðu að vera „Blaðamenn
boða verkfall".
Kökubasar og
flóamarkaður
vélskólanema
Vélskólanemar halda í dag,
laugardag, kökubasar og flóa-
markað í Sjómannaskólanum.
Hefst hann kl. 14 og verður boðið
uppá kökur og ýmsan varning.
Afraksturinn á að ganga til
námsferðar 4. stigs vélskólanema
en það eru þeir sem standa fyrir
flóamarkaðnum.
Ein
af
myndum
Guðbergs
Auðuns-
sonar.
*
Guðbergur og Omar á Kjarvalsstöðum:
Málverkatúlkun með
trommum og mynda-
raðir úr lífsleiknum
TVEIR listmálarar,
Guðbergur Auðunsson og
Ómar Skúlason, eru með
einkasýningar á Kjarvals-
stöðum og er síðasta
sýningarhelgin nú í viku-
lokin.
Guðbergur sýnir liðlega 20
myndir og hafa 5 myndir
þegar selzt. Þar af hefur
Listasafn íslands keypt eina
og Listasafn SÍS eina, en
sömu aðilar keyptu einnig
myndir af Ómari Skúlasyni
A sýningu Guðbergs í dag
kl. 4 mun Sigurður Karlsson
trommuleikari .leika trommu-
konsert með aðstoðartækjum
og ætlar hljóðfæraleikarinn
að túlka verk listmálarans.
Agæt aðsókn hefur verið að
sýningu Guðbergs
Ómar Skúlason sýnir
nokkrar myndraðir á sinni
sýningu. Viðfangsefni i eina
Ömar Skúlason við hluta úr
myndröð. Ljósmynd Mbl. kee.
röðina er sótt í Njálu, önnur
er um lífið eftir dauðann,
þriðja er um hund og kött og
fjórða er gömul frá 1971
Ein röðin er um hlutverk
konunnar í nútimaþjóðfélagi,
t.d. konan í auglýsingunni og
konan í lögreglunni. Ómar
hefur selt nokkrar myndir og
gefið nokkrar sagði hann i
viðtali við Morgunblaðið i
gær. Ágæt aðsókn hefur
verið að sýningunni
Línuveiðar bannað-
ar úti af Malarrifi
SJAVARÚTVEGSRAÐUNEYT-
IÐ hefur nú bannað allar línu-
veiðar frá línu réttvísandi suður
af Malarrifsvita, að línu réttvís-
andi vestur frá Öndverðarnesi og
innan línu, sem dregin er 4 sjó-
mílur utan viðmiðunarlínu.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt tillögum Hafrannsókna-
stofnunarinnar, en við athugun á
afla línubáta af þessu svæði kom í
ljós, að smáþorskur var verulegur
hluti aflans.
Bann þetta tekur gildi frá og
með 13. febrúar n.k. og gildir þar
til annað verður ákveðið, en Haf-
rannsóknarstofnunin mun fylgj-
ast með þessu svæði.
Meðfylgjandi kort sýnir bann-
svæðið.
LINUVEIOAR
BANNAOAR
ÖÁKV
\
5 hlutu styrki úr
Rannsóknasjóði IBM
FYRIR stuttu var úthlutað styrkj-
um úr Rannsóknasjóði IBM
vegna Reiknistofnunar Háskóla
tslands. Er þetta í þriðja sinn sem
úthlutað er úr sjóðnum. og bárust
alls 7 umsóknir. Fimm umsækj-
endur hlutu styrk, samtals
1.567.553 kr., og voru það þessir:
Rannsóknarnefnd félags lækna-
nema, 150 þúsund krónur, til
áframhalds könnunar á ofnæmis-
sjúkdómum á Islandi.
Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, 400 þúsund krónur,
til úrvinnslu gagna er varða
gróðurfar, gróðurskilyrði og beit-
arþol íslenskra gróðurlenda.
Dr. Þorkell Helgason dósent
400 þúsund krónur, til að koma
upp forritasafni til kennslu og
rannsókna á sviði bestunar og
fleiri þáttum tölulegrar greining-
ar.
Baldur Jónsson léktor 300 þús-
und krónur, til rannsókna á sviði
máltölvunar.
Dr. Stefán Aðalsteinsson,
317.553 krónur, til rannsókna á
því, hvernig skipuleggja megi
jöfnun heyforða milli lands-
svæða.
' /lipn ra 1 nafr'/ur/ fJj/rnuJ.') /irifja’) JJi’/[rij ójfci)
or/ J.rrr)fu/ í fifrfni 50 r'na afmarJij JrJarpim
Jinn 55■ ianám j. (. - CJJ :>ú rniJJa vcJri/rJ,
oa vináffa, n Jrfiarpnu vm jýnrJ á /ic.num
mri/cu firnantó/urn. mun vc’túrt Ji vi fivaf-ning, fiJ
auJíinna jfmja á urffvanrp :/i/.ia ra ? na - or/
(fötr/u na l rnáf a.
StjÓrn S V F í.
ÚTSALA
T orgsins
í Iðnaóarmannahúsinu,
Hallveigarstíg 1
Allra síðasti dagur