Morgunblaðið - 11.02.1978, Síða 5

Morgunblaðið - 11.02.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 5 Tónleikar í Bústaðakirkju A LAUGARDAG kl. 16 verða haldnir tónleikar í Bústaða- kirkju. Flytjendur eru Camilla Söderberg sem leikur á blokk- flautur og Snorri Örn Snorrason sem leikur á lútu og gítar. Flutt verður tónlist eftir 20. aldar tón- skáldin Britten, Stokes og Hans Martin Linde svo og frá renaiss- ance- og barrokk-timabilinu. Camilla Söderberg lauk burt- fararprófi í flautuleik frá tónlist- arháskólanum í Vínarborg og stundaði síðan framhaldsnám við sama skóla. Snorri Örn Snorrason lauk einnig burtfararprófi frá tónlistarháskólanum í Vínarborg og hafði þá stundað gítarnám í 5 ár og hefur hann s.l. tvo vetur stundað framhaldsnám í Basel í Sviss. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og fást aðgöngumiðar við inngang- inn. Camilla Söderberg og Snorri Örn Snorrason. Röng fyrirsögn RÖNG fyrirsögn birtist í gær á blaðsíðu 2 yfir frétt um að blaða- menn hefðu boðað verkfall frá og með föstudeginum 17. febrúar. Fyrirsögnin var um að blaðamenn hefðu sagt upp samningum. All- nokkuð er síðan það gerðist, en fyrirsögn fréttarinnar í gær átti að sjálfsögðu að vera „Blaðamenn boða verkfall". Kökubasar og flóamarkaður vélskólanema Vélskólanemar halda í dag, laugardag, kökubasar og flóa- markað í Sjómannaskólanum. Hefst hann kl. 14 og verður boðið uppá kökur og ýmsan varning. Afraksturinn á að ganga til námsferðar 4. stigs vélskólanema en það eru þeir sem standa fyrir flóamarkaðnum. Ein af myndum Guðbergs Auðuns- sonar. * Guðbergur og Omar á Kjarvalsstöðum: Málverkatúlkun með trommum og mynda- raðir úr lífsleiknum TVEIR listmálarar, Guðbergur Auðunsson og Ómar Skúlason, eru með einkasýningar á Kjarvals- stöðum og er síðasta sýningarhelgin nú í viku- lokin. Guðbergur sýnir liðlega 20 myndir og hafa 5 myndir þegar selzt. Þar af hefur Listasafn íslands keypt eina og Listasafn SÍS eina, en sömu aðilar keyptu einnig myndir af Ómari Skúlasyni A sýningu Guðbergs í dag kl. 4 mun Sigurður Karlsson trommuleikari .leika trommu- konsert með aðstoðartækjum og ætlar hljóðfæraleikarinn að túlka verk listmálarans. Agæt aðsókn hefur verið að sýningu Guðbergs Ómar Skúlason sýnir nokkrar myndraðir á sinni sýningu. Viðfangsefni i eina Ömar Skúlason við hluta úr myndröð. Ljósmynd Mbl. kee. röðina er sótt í Njálu, önnur er um lífið eftir dauðann, þriðja er um hund og kött og fjórða er gömul frá 1971 Ein röðin er um hlutverk konunnar í nútimaþjóðfélagi, t.d. konan í auglýsingunni og konan í lögreglunni. Ómar hefur selt nokkrar myndir og gefið nokkrar sagði hann i viðtali við Morgunblaðið i gær. Ágæt aðsókn hefur verið að sýningunni Línuveiðar bannað- ar úti af Malarrifi SJAVARÚTVEGSRAÐUNEYT- IÐ hefur nú bannað allar línu- veiðar frá línu réttvísandi suður af Malarrifsvita, að línu réttvís- andi vestur frá Öndverðarnesi og innan línu, sem dregin er 4 sjó- mílur utan viðmiðunarlínu. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt tillögum Hafrannsókna- stofnunarinnar, en við athugun á afla línubáta af þessu svæði kom í ljós, að smáþorskur var verulegur hluti aflans. Bann þetta tekur gildi frá og með 13. febrúar n.k. og gildir þar til annað verður ákveðið, en Haf- rannsóknarstofnunin mun fylgj- ast með þessu svæði. Meðfylgjandi kort sýnir bann- svæðið. LINUVEIOAR BANNAOAR ÖÁKV \ 5 hlutu styrki úr Rannsóknasjóði IBM FYRIR stuttu var úthlutað styrkj- um úr Rannsóknasjóði IBM vegna Reiknistofnunar Háskóla tslands. Er þetta í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. og bárust alls 7 umsóknir. Fimm umsækj- endur hlutu styrk, samtals 1.567.553 kr., og voru það þessir: Rannsóknarnefnd félags lækna- nema, 150 þúsund krónur, til áframhalds könnunar á ofnæmis- sjúkdómum á Islandi. Rannsóknastofnun land- búnaðarins, 400 þúsund krónur, til úrvinnslu gagna er varða gróðurfar, gróðurskilyrði og beit- arþol íslenskra gróðurlenda. Dr. Þorkell Helgason dósent 400 þúsund krónur, til að koma upp forritasafni til kennslu og rannsókna á sviði bestunar og fleiri þáttum tölulegrar greining- ar. Baldur Jónsson léktor 300 þús- und krónur, til rannsókna á sviði máltölvunar. Dr. Stefán Aðalsteinsson, 317.553 krónur, til rannsókna á því, hvernig skipuleggja megi jöfnun heyforða milli lands- svæða. ' /lipn ra 1 nafr'/ur/ fJj/rnuJ.') /irifja’) JJi’/[rij ójfci) or/ J.rrr)fu/ í fifrfni 50 r'na afmarJij JrJarpim Jinn 55■ ianám j. (. - CJJ :>ú rniJJa vcJri/rJ, oa vináffa, n Jrfiarpnu vm jýnrJ á /ic.num mri/cu firnantó/urn. mun vc’túrt Ji vi fivaf-ning, fiJ auJíinna jfmja á urffvanrp :/i/.ia ra ? na - or/ (fötr/u na l rnáf a. StjÓrn S V F í. ÚTSALA T orgsins í Iðnaóarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1 Allra síðasti dagur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.