Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 13

Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 13 BLÚM VIKUNNAR \ W * - * UMSJÓN: ÁB. ® Sáning sumarblóma Enn sem komið er hef- ur lítið sem ekkert verið fjallað um sumarblóm í þessum þáttum að öðru leyti en því að vorið 1976 voru gefnar all ítarlegar leiðbeiningar um sáningu, dreifplöntun og útplöntun sumarblóma og matjurta. Nokkrir lesenda þessara þátta hafa látið í ljós ósk um að áðurnefndir þættir verið birtir aftur en þar sem um talsvert langt mál er að ræða er þess ekki kost- ur. Til þess að veita svo- ið og er í í því tilfelli hentugast að sá í smá- potta eða plastílát og nauðsynlegt er að göt séu á botni þeirra. Gætið þess að sá ekki of þétt og vökvið varlega svo að fræið skolist ekki til. Best er að sá í hæfi- lega raka mold og breiða plast yfir til þess að koma í veg fyrir of öra uppguf- un. Dreifplantið áður en smáplönturnar fara að teygja úr sér að ráði. Fyrst í stað má hafa nokkrar plöntur saman í Breiða af sumarblónium. litla úrlausn mun nú í stuttu máli verða drepið á nokkur atriði sem vert er aö hafa í huga þegar sáð er: „Nauðsynlegt er að sá snemma fyrir þeim tegundum sem seinvaxn- ar eru. I byrjun febrúar er kominn tími til að sá t.d. Petuníu, ljónsmunna, eilífðarblómi (Helichrys- um), hádegisblómi o.fl. Fljótvaxnar tegundir svo sem levkoj, sumarchrys- anthemum, kornblóm, morgunfrú o.m.fl. geta beðið enn um sinn. Þegar sáð er snemma er mikilvægt að moldin sé gljúp og hlý, helzt þarf hún að vera sótthreins- uð: soðin eða bökuð, eða a.m.k. blönduð sveppa- eyðandi efni t.d. Brassi- col eða Benlate. Hættast er við hinni hvimleiðu svartrót meðan birta er lítil. Þungur og þéttur jarðvegur gerir smá- plöntunum erfitt fyrir. Margir þurfa að nota gluggana sína og þá e.t.v. fyrst og fremst eldhús- gluggann fyrir plöntueld- íláti og fná þá nota sömu moldarb'öndu og sáð var í. En þegar að því kemur að planta hverri plöntu fyrir sig í pott má hafa moldarblönduna kröft- ugri. Strax og orðið er nægi- lega hlýtt í veðri skal koma plöntunum fyrir í sólreit og herða vel áður en þær eru gróðursettar þar sem þeim er ætlað að vera til frambúðar. Að öðru leyti er gott að minna á gamla góða „hús- ráðið“ en það er að fletta upp í Skrúðgarðabókinni því þar má finna hagnýt- ar upplýsingar um þetta efni eins og svo margt fleira. H.L. í 2—3 næstu greinum verður sagt frá ýmsum tegundum sumarblóma bæði algengum og eins nokkrum sem minna eru þekkt, enda er nú rétti tíminn að fara að huga að fræi og öðru sem málinu viðkemur. Um starfsemi Mynt- saf naraf élags íslands Ætlunin var að halda áfram með undirstöðuatriði myntsöfn- unar i þessum þætti, en í þess stað mun ég minnast á starf- semi Myntsafnarafélags Is- lands. Aðalfundur félagsins var haldinn á sunnudaginn var i Norræna Húsinu. Það kom fram í skýrslu formanns, Ragn- ars Fjalars Lárussonar, eins og vitað var, að starfsemi félagsins stendur með miklum blóma. Haídnir eru 2 fundir í hverjum mánuöi og hafa verið afar vel sóttir í vetur. Það eru um 50 til 60 manns á hverjum fundi. Virðist áhugi manna á mynt- söfnun fara vaxandi og hafa gengið nýir menn í félagið á hverjum fundi. I félaginu eru nú um 360 manns. Blað félags- ins, Mynt, kemur út mánaðar- lega. 1 því eru alltaf einhverjar fróðlegar greinar frá félögun- mm. Auk þess eru birtar upp- boðsskrár og tilkynningar varð- andi starfsemi félagsins. Fjár- hagur félagsins er einnig i góðu lagi þrátt fyrir vaxandi dýrtíð. A næsta ári verður félagið 10 Mynt eftir RAGNAR BORG ára og er þegar farið að huga að stórri myntsýningu og slátt minnispenings í tilefni afmæl- isins. Það er fundur hjá Myntsafn- arafélaginu í Templarahöllinni klukkan hálf þrjú í dag. A upp- boðinu eru mörg númer, sem örugglega verður mikið keppt um. Má þar nefna meðal ann- arra: Öll árssett Seðlabankans, mjög góð eintök af 10 og 25 ára peningum, krónumynt, þar á meðal eru öll þau ártöl, sem erfiðast er á ná í. Svo eru marg- ir gamlir danskir peningar og norskir. Eg hef óljósan grún um að þarna séu komnir pen- ingar, sem komið hafa í leitirn- ar hér á landi úr ýmsum dánar- búum o.s.frv. Að þetta séu allt peningar sem notaðir hafa ver- ið hér á landi á sínum tíma. Þetta gefur auðvitað peningun- um miklu meira gildi. Elzti pen- ingurinn er frá 1608 og er það 8 skildinga silfurmynt. Svo eru peningar frá 1700, 1771, 1805, 1809, 1812, 1842, 1857 o.fl. Elzti norski peningurinn er áttskild- ingur frá 1694 og sá yngsti er 50 aura peningur frá 1911. Alls eru norsku peningarnir 20. Af öðrum númerum á uppboðinu má nefna sænska, ameríska, arabíska, austurríska og danska mynt. Nokkrir seðlar verða einnig boðnir upp bæði úr ann- arri og þriðju útgáfu Lands- bankans svo og nokkrir krónu- seðlar frá 1941. Ég læt hér fylgja meó grein- inni kort sem sýnir hvar félag- ar í Myntsafnarafélaginu eiga heima á landinu. Það er Anton O’Brian Holt, sem hefir gert þetta kort. Ég þarf varla að taka það fram að stjórn Myntsafnarafé- lagsins var öll endurkosin á aðalfúndinum, enda varla von á öðru svo vel sem starfsemin gengur. REYKJAVÍK Herradeild JMJ VIÐ HLEAAM MASTI 9ACA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.