Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 14

Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 ÆJT4AIM „Eru Alþýðubandalagsmenn ekki menn til þess að gefa skýringar á mistökunum í Ráðstjórnarríkjunum og gera reikningsskil við fortíð sína sem ráðstjórnarvina?" Eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Enn trúa Alþýdubanda- lagsmenn Alþýðubandalagið fékk i síðustu þing- kosningum 18,3% atkvæða. Það munar um þennan flokk á stjórnmálavettvangn- um, full ástæða er þvi til að rannsaka stefnu hans og rökræða. Ég ætla í þess- ari grein að fara fáeinum orðum um Stefnuskrá Alþýðubandalagsins, sem var samþykkt 1974 og gefin út 1975. Efni hennar er athyglisvert: Enn trúa Al- þýðubandalagsmenn þvi, að Karl Marx hafi sagt lausnarorðið á nítjándu öld- inni. Enn halda þeir, að rikið (einnig islenzka lýðræðisríkið) sé kúgunartæki i höndum ,,borgarastéttarinnar“, að hagnaður atvinnurekenda sé fenginn með arðráni verkamanna, að reynslan af sameignarrekstrinum í austri gefi ekki tilefni til neinna skýringa. Hugsun þeirra er steypt í mót hóphyggjunn- ar.Þeir ræða mjög um „alþýðuna“ hafa dulrænt umboð frá henni. Dæmigert um hóphyggju þeirra er niðurlag kaflans um spillingu í stefnuskránni: „Pólitískri stöðu borgarastéttarinnar í landinu væri það mjög til hagsbóta að spillingarein- kenni hennar sjálfrar slævðu siðgæðis-. vitund og þrek alþýðu í þessum efnum“. Þessi kenning Alþýðubandalagsmanna er ósiðleg og órökstudd. Hún minnir á þá, sem nasistar höfðu um ,,Das Herrenvolk“, yfirþjóðina. Enginn hópur manna hvorki ,,alþýðan“ né „borgararn- ir“, er að mati frjálshyggjumanna öðrum betri, þótt breytni eins einstaklings sé stundum betri en annars. Hitt er annað mál, að hagkerfið getur freistað manna með boðum og bönnum, aukið á spillingu með þeim. Dr. Þráinn Eggertsson lektor leidÖi nýlega rök að þvi í vísisgrein, að' spilling væri algengari i miðstjórnar- ig hagnaðarvoninni, sem er í eðli sinu eigingjörn hvöt, innir hann af hendi þjóðhagslega mikilvægt starf“. Sá, sem selur, og hinn, sem kaupir, hagnast báðir á viðskiptum í fullkomnu markaðskerfi, þvi að þeir fullnægja þörfum hvor ann- ars, hvort sem þörfin er vinnuafl, fjár- magn eða eitthvað annað. (Róttæklingar segja, að „manngildi sé breytt í peninga- gildi", þegar vinnuafl sé gert að sölu- vöru. Það er rangt: Vinnuafl er auðvitað vara frá sjónarmiði hagfræðingsins, það er með öðrum orðum verðlagt, en það felur ekkert i sér um gildi mannsins, sem selur vinnuafl sitt. A heiminn má horfa frá mörgum sjónarmiðum. Sjónar- mið hagfræðingsins er rökrétt í viðskipt- um, en ekki á öðrum sviðum mannlifs- ins. Gróðahyggja þeirra, sem samsama lifið og viðskiptin, er ekki röksemd gegn viðskiptum. Rónarnir koma óorði á brennivínið, eins og Arni Pálsson prófessor sagði, braskararnir á viðskipt- in). Skýring Al- þýðubandalagsmanna á þjóðernissamhyggju Karl Marx var skarpskyggn áhorfandi breytinganna miklu í atvinnumálum á átjándu og nítjándu öld. En hann sá hvorki farsældarrikið né þjóðernissam- hyggjuna fyrir. (Á slæmri íslenzku er farsældarríkið nefnt „velferðarríkið". Ég nefni sósíalisma oftast ,,samhyggju“, orðið er stutt og laggott, og sósíalistar geta vel við það unað.) Rökrétt íslenzk- un alþjóðaorðsins ,,nasjónalsósíalismi“ er ,,þjóðernissamhyggja“.) Þeir, sem kenna sig við Marx, sjá þjóðernissam- hyggju ekki í réttu sögulegu ljósi. Hvaða skýring er gefin á þjóðernissamhyggju i stefnuskrá Alþýðubandalagsins? „Þar i sem verulega hefur kreppt að valdastöðu lyndra manna, eru fylgismenn skipu- lagshyggju og hóphyggju. Annar t<;lur stéttina gegna aðalhlutverki á leiksviði Sögunnar, hinn telur þjóðina gera það. Enginn eðlismunur var heldur á hag- kerfinu i Þýzkalandi Hitlers og hagkerf- inu í Ráðstjórnarríkjunum: séreignar- réttur var i orði kveðnu í Þýzkalandi, en allur umráðaréttur var rikisins, bæði rikin ráku víðtækan áætlunarbúskap, þau voru alræðisríki, eins og hag- fræðingurinn Friedrich von Hayek benti á í bókinni Leiðinni til ánauðar (The Road to Serfdom) árið 1944. Skýring „venjulegra" samhyggjumanna á þjóð- ernissamhyggju er ekki einungis röng frá fræðilegu sjónarmiði, heldur einnig hættuleg í stjórnmálum. Hún dró úr þeim allan mátt í baráttunni víð Hitler og Mússólini á árunum 1930—1935, rót- tæklingarnir þrættu við lýðræðislega samhyggjumenn (sósíaldemókrata, sem þeir kölluðu „sósíal — fasista“), en sinntu stjórnmálum „borgarastéttarinn- ar“ ekki. Og það nefna stefnuskrár- höfundarnir hvergi, að „mannkynið hefur orðið að þola ólýsanlegar hörmungar" /vegna þeirrar hugmynda- fræði Marx, sem reynt var að fram- kvæma. í Ráðstjórnarríkjunum. Þeir, sem kalla sig ,,kommúnista“, hafa verið miklu afkastameiri morðingjar en hinir, sem kalla sig „fasista" eða „nasista“. Farsældarríkin vanmetin Alþýðubandalagsmenn vanmeta far- sældarríkin, sem lýðræðissinnum ^ Norðurálfu, samhyggjumönnum og frjálshyggjumönnum, tókst að reisa úr rústum siðari heimsstyrjaldarinnar með aðstoð Bandaríkjamanna. „Hér er á ferð- inni hreinræktuð borgaraleg hugmynda- fræði sem ætlað er að réttlæta markaðs- kerfi gróðaaflanna en stangast óþyrmi- lega á við reynslu launafólks af hinu svonefnda velferðarþjóðfélagi". Hver eru rökin fyrir þessari fullyrðingu? Ekki leikurinn er sá, að stefnuskrár- höfundarnir hafa hitt á eina sterkustu röksemd frjálshyggjumanna gegn rikis- afskiptum til lifskjarajöfnunar: þau mis- takast oftast! Skattborgararnir greiða að lokum kostnaðinn af einskis nýtu ríkis- bákninu. Um hitt deila frjálshyggju- menn og samhyggjumenn vonandi ekki, að rikinu ber að tryggja öllum þeim, sem geta það ekki sjálfir, mannsæmandi lífs- kjör. Barátta verkalýðshreyfingarinnar síðustu áratugina hefur ekki heldur valdið lifskjarabótinni. Stefnuskrár- höfundarnir vita það, blekking þeirra er ekki sjáifsblekking, þvi að þeir segja: „Sjávarútveginum eiga því islendingar öðru fremur lifskjör sin að þakka". Aukning rauntekna almennings fæst með aukningu þjóðartekna, en ekki með óraunhæfum kjarasamningum verklýðs- rekenda og atvinnurekenda eða ríkisaf- skiptum. En það kemur upp um kreddu- trú Alþýðubandalagsmanna, að þeir hafna lífskjaratryggingu farsældarrikis- ins, vegna þess að hún er ekki lifskjara- jöfnun nema að vissu marki. Takmark þeirra er lífskjarajöfnun, en ekki al- menn lífskjarabót. Er stefna Al- þýðubandalagsins lýðræðisleg? Umburðarlyndið gerir gæfumun frjálshyggjumanna og samhyggju- manna. Samhyggjumenn skilja það ekki, að aðrir menn hafa aðrar skoðanir á„ fyrirmyndarskipulaginu en þeir. I stefnuskránni segir svo um hina „sósí- ölsku hreyfingu": „En þegar hún kemst svo langt að geta í verulegum mæli sett eigin sjónarmið og viðmiðunargildi i stað hinna borgaralegu verður hún líka að vera þess albúin að stiga skrefið til fylls og ná úr höndum borgarastéttar- innar helstu valdamiðstöðvum þjóð- félagsins. Með hverjum hætti þessu STEFNA ALÞÝÐUBANDALAGSINS kerfi sósialista en í markaðskerfi kapítalista: gjaldeyrisbrask, smygl, skattsvik og ívilnanir eru fylgikvillar ríkisihlutunar. Smygla menn vörum, ef tollar eru engir og innflutningur leyfi- legir á þeim? Braska þeir með gjaldeyri, ef hann er ekkí skammtaður, heldur seldur á sannvirði? A þetta ber að minna, þvi að mjög er rætt — en af litlu viti — um spillingu þessar vikurnar. Hatrið á hagnaðinum Hatrið, sem stéfnuskrárhöfundar Al- þýðubandalagsins leggja á allan hagnað, er allt að þvi sjúklegt. Ein ástæðan til þess er líklega sú, gð þeir trúa arðráns- kenningu Marx, önnur, að þeir eru haldnir öfund og vanmetakennd. Þeir segja um markaðskerfið: „Þar er riku- lega séð fyrir þeim þörfum einum sem einkaauðmagnið getur grætt á með fram- boði á markaðsvöru". Hvers vegna græða framleiðendur? Vegna þess að fólk kaupir vörur þeirra, hefur frelsi til þess^émarkaðskerfinu. Hagnaður er ekki ámælisverður, ef farið er að réttum keppnisreglum, heldur æskilegur. Geir Hallgrímsson forsætisráðherra komst svo að orði í ritgerð um stefnu Sjálf- stæðismanna í bókinni Kjósandanum, stjórnmálunum og valdinu: „Enda þótt gengið væri út frá meginásökun and- stæðinga séreignaskipulagsins á hendur þvi skipulagi sem staðreynd, þeirri, að einkaatvinnurekandinn hugsi fyrst og fremst um það að hagnast sem mest, en ekki hvað þjöðinni er fyrir beztu, þá verður ljóst við nánari athugun, að ein- mitt i þessu er fólginn leyndardómurinn um séreignaskipulagið sem hið virkasta og áhrifaríkasta hagkerfi, sem þekkzt hefur. Til þess að fullnægja hagnaðar- hvöt sinni verður atvinnurekandinn að inna af hendi eitthvert það starf, sem er þýðingarmikið frá sjónarmiði annarra og fullnægir þeirra þörfum. Ágóði hans er undir þvi tvennu kominn, hversu ódýrt honum tekst að framleiða vöru sína og hversu vel honum tekst að selja hana. Þannig verða það óskir og þarfir neytendanna eins og þær koma fram í kaupum þeirra á markaðnum, sem ráða úrslitum um það, hvað framleitt skuli. Um leið og einstaklingurinn sinnir þann- borgarastéttarinnar hefur hún jafnvel verið tilbúin að brjóta sínar eigin stjórn- málareglur og taka upp stjórnarháttu gerræðis og skefjalausrar kúgunar. Þessu hefur yfirleitt fylgt fasistisk hug- myndafræði þar sem ofbeldi og rétti hins sterka er sungið lof. Af þessu hefur mannkynið þurft að þola ólýsanlegar hörmungar". Þessi skýring er röng. Þjóðernissamhyggja var og er afkvæmi „venjulegrar“ samhyggju. Hún er þrautaráð samhyggjumanna, en ekki „borgarastéttarinnar". Hitler kallaði flokk sinn „þjóðernissamhyggjuflokk þýzkra verkamanna", hann kenndi sig við sósialisma. Mússólini, Laval, Doriot og Quisling voru allir „venjulegir“ sam- hyggjumenn, áður en þeir urðu þjóð- ernissamhyggjumenn. Er það söguleg tilviljun? Öðru nær. Hugsunarháttur „venjulegs" samhyggjumanns og þjóð- ernissamhyggjumanns er svipaður. Þeir hafna báðir einstaklingshyggju frjáls- Enn trúa AJþýðubanda- lagsmenn því, að Karl Marx hafi sagt lausnarorð- ið á nftjándu öldinni. nægir að vísa til „reynslu launafólks'*. Ég fann tvær röksemdír i stefnuskránni. Önnur er: „Félagsmálastefnu „vel- ferðarþjóðarfélagsins" eru augljós tak- mörk sett. Hún hróflar ekki við þeim sem „betur mega" í þjóðfélaginu heldur fæst við þá sem sjá sér ekki nokkurn veginn farborða ínnan ríkjandi markaðs- kérfis, svonefnda afskipta hópa (sjúka, fatlaða, aldraða)". Þeir finna með öðrum orðum að þvi, að ekki skuli tekið meira fé af þeim, sem „sekir" eru um einhver efni, eru jafnvel bjargálna, en gert er i farsældarríkjunum. Öfundin leynir sér ekki. Hin röksemdin er: „Engin haldbær rök eru fyrir þvi að félagslegar ráð- stafanir til að „bæta afkomu" almenn- ings hafi leitt til kjarajöfnunar milli þjóðarfélagsstétta". Þessi full.vrðing er sennilega rétt. En hvað hefur valdið óumdeilanlegri kjarabót almennings, ef ríkisafskiptin hafa ekki gert það? Sann- Menntamenn f Alþýðu- bandalaginu vara mjög við hættunni af Andrési Önd. markmiði verður náó er auðvitað ekki undir hreyfingunni einni komið, en hún getur unnið að þvi að það gerist friðsam- lega". Hreyfingin „getur unnið að“ frið- samlegri valdatöku sinní. Eru þessi orð ekki grunsamleg? Takmark Alþýðu- bandalagsins er „sósíölsk umsköpun": „1 sósiölskum búskap stýrir almannavaldið efnahagslifinu í því skyni að þörfum almennings sé fullnægt með jöfnuði og að lýðræðislegum hætti". Hvert er „al- mannavaldið“?hver er dómbærari um þarfir einstaklingsins en hann sjálfur? Þessum spurningum er ekki svarað í stefnuskránni. Það er að vonum, að lýð- ræðisrfki hafa hvergi rekið sameignarbú- skap. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins er í rauninni merkilegri fyrir það, sem látið er ósagt, en hitt, sem er sagt. Hvert er jarðbundið viðmið þeirra? Hagkerfi Júgóslavíu? Eða Sviþjóðar? Sennilega er það á því bilinu, þótt engin dæmi séu tekin til skýringar. En Milovan Djilas var fangelsaður í Júgóslavíu, Ingmar Bergman hrakinn frá Svíþjóð (þó að ég leggi rikin alls ekki áð jöfnu, Sviþjóð er þrátt fyrir allt réttarriki, en Júgóslavia lögregluríki). Nafn Ráðstjórnarrikjanna er ekki nefnt i stefnuskránni, engir lærdömar eru dregnir af tilrauninni til að reka sameignarbúskap í austri. Mat okkar á utanríkisstefnu þessa nálæga stórveldis hlýtur að ráða miklu um utan- ríkisstefnu okkar, en þó er ekki minnzt á Ráðstjórnarríkin í kaflanum um utan- ríkismál. Þau eru á auðum bletti á landa- bréfi stefnuskrárhöfunda Alþýðubanda- lagsins. Menntamenn í Alþýðubandalag- inu hafa fundið önnur verkefni en grein- ingu og gagnrýni hagkerfis og stjórn- kerfis Ráðstjórnarrikjanna. Þcir deila á síðum Þjóðviljans um það, hvort kynfær- in valdi einhverju um tilveru mannkyns- ins eða ekki, og vara mjög við hættunni af Andrési Önd, hinni alkunnu sögu- hetju barnablaða. Að öllu gamni þeirra (scm er óviljandi) slepptu er ekki hægt að taka Alþýðubandalagsmenn gilda sem lýðræðissinna, fyrr en þcir hafa gefið einhverjar skýringar á því, hvers vegna tilraunin mistókst i Ráðstjórnarríkjun- um, og gert reikningsskil við fortið sina sem ráðstjórnarvina. Steinn Steinarr og Halldór Laxness voru menn til þess. Eru Alþýðubandalagsmenn það ekki?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.