Morgunblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.02.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978 23 á árinu 1978 og er það talið samrýmast vel áætlunum um framleiðslugetu. Spáin fyrir árið 1978 var b.vggð á mati á þeirri kaup- máttaraukningu, sem að var stefnt með gildandi kjara- samningum, en þróun eftirspurnar og þjóðarútgjalda ræðst að afar miklu leyti af breytingum kaupgjalds og verðlags. Niðurstaðan af því mati var sú, að kjara- samningarnir stefndu að 8—9% rauntekjuaukningu á þessu ári, en vegna skattbreytinga var hins vegar gert ráð fyrir 6% neysluaukningu, einnig af því að búist er við að hækkun verðbótaþáttar vaxta muni auka spari- fjármyndun eitthvað á árinu 1978. Mergurinn málsins er sá, að á bakvið þessa kaupmáttaraukningu hefði búið að öllu óbreyttu meira en 50% kauphækkun frá árs- meðaltali 1977 til 1978 og um eða yfir 40% verðhækkun. Yfir allan vafa er hafið að af slíkri þróun verðlags og seinvirk eða hefðu í för með sér hættu á atvinnubresti. I frumvarpi þessu er því gert ráð fyrir, að verðbætur á laun verði takmarkaðar nokkuð, en hins vegar er gerðum kjarasamningum ekki raskað að öðru leyti. Hinir tekjulægstu verndaðir í 1. gr. frv. er lagt til að hamlað verði gegn víxl- hækkunum verðlags og launa með því að helminga þá hækkun verðbóta og verðbótaauka, sem greiðast eiga á þessu ári umfram verðbótavísitöluna sem tók gildi hinn 1. desember sl. I þessu felst að í stað þess að laun almennt hækki um 10% hinn 1. mars hækki þau um 5%. Við verðum Öbeinir skattar I fyrstu stefnuræðu minni sem forsætisráðherra hér á Alþingi haustið 1974, ræddi ég um vísitölugreiðslur á kaup; og sagði að viðurkennt væri að þær veittu laun- þegum nokkra tryggingu fyrir afkomu þeirra, og sköp- uðu meiri ró á vinnumarkaði en ella hefði orðið. A hinn bóginn hefðu þær oft á tíðum átt drjúgan þátt í að magna verðbólgu og þannig grafið undan heilbrigðum rekstri þjóðarbúsins og stefnt hagsmunum launþega sjálfra i voða. Siðan segir orðrétt: „Ber hér einkum þrennt til: í fyrsta lagi hafa miklar hækkanir grunn- kaups óhjákvæmilega leitt til verðhækkana, sem svo vegna áhrifa vísitölukerfisins hafa leitt til nýrra launa- • hækkana og ennfrekari verðhækkana. í öðru Jagi fela verðhækkanir á innfluttum vörum í sér skerðingu á raunverulegum lífskjörum þjóðarinnar og engar launa- hækkanir innanlands geta því bætt þær. Í þriðja lagi er ekki unnt að vega áhrif tekjuöflunar ríkissjóðs með óbeinum sköttum upp með launahækkunum ef sú aukning opinberrar þjönustu, framkvæmda eða félags- legrar aðstoðar sem stefnt er að á að geta átt sér stað. Ástæðulaust er einnig að stjórnvöld séu knúin til að afla fjár með beinum sköttum. sem hafa ekki áhrif á vísitöluna fremur en óbeinum sköttum er ganga inn í vísitöluna." Það er ótvíræður galli á núgildandi visitölukerfi, að breytingar á óbeinum sköttum, — öðrum en þeim, sem fólgnir eru í verði áfengis og tóbaks — valda breyting- um á kaupgreiðslum, en breytingar á beinum sköttum ekki. Hér er lagt til að frá og með 1. janúar 1979 skuli breytingar á óbeinum sköttum ekki valda breytingu á verðbótum. Rökin fyrir þessu eru vel kunn. í fyrsta lagi eru beinir skattar ekki meðtaldir í verðbótavísitölu, eins og að framan var getið. Það veldur því að val löggjafans milli beinna og óbeinna skatta er að þessu leyti nokkuð bundið, sem hlýtur að teljast óæskilegt. Í öðru lagi stendur ómæld opinber þjónusta á móti óbein- um sköttum, sem ekki er metin til kjarabóta og má þá minna þingmenn á s.k. tappagjald, sem rætt var hér fyrir jólin. i þriðja lagi geta stjórnvöld ekki með sama árangri og ella beitt breytingum á óbeinunt sköttum til hagstjórnar vegna þess, að þeir eru í grunni verðbóta- vísitölu. í frv. er gert ráð fyrir að Kauplagsnefnd meti hvaða skattar skuli teljast óbeinir í þessu sambandi. Ekki þ.vkir rétt að binda í lög með fullkominni upptalningu, hvaða skattar falli hér undir því að skatta- lög geta breyst og sker þá Kauplagsnefnd úr vafa- at riðum. Það þekkist í öðrum löndum að undanskilja alla skatta úr verðbótavísitölu, m.a. í Danmörku, en þar eru breytingar niðurgreióslna heldur ekki taldar með. Þetta atriði þarf að kanna sérstaklega. 1 frv. er í reynd mörkuð framtíðarstefna í þessu efni. Þessi tillaga er ekki beinlínis tengd stundarvanda þjóðarbúsins, en hugsuð til þess að bæta launaákvörðunarkerfið til fram- búðar. Geir Hallgrímsson, forsætisráöherra, flytur ræðu sína á Alþingi í gær um efnahaRs- ráðstafanir ríkisstjórnarinnar. — <>i.k..m Forsagan 1ÆTUR VERNDA AUNÞEGANA INNIÁ LÆGSTU LflUN launa heföi leitt svo margvíslegan vanda, ekki síst að því er varðar samkeppnisstöðu útflutningsatvinnuveg- anna og reyndar einnig á lánamarkaði og i opinberum fjármálum. Utlit var því fyrir rekstrartruflanir og þar með atvinnubrest. Afkoma fiskvinnslu — tekjur sjómanna Þessi vandi hefur raunar þegar birst í rekstrarstöðu sjávarútvegs nú um áramótin, en afkoma fiskvinnslu, einkum frystingar, söltunar og herslu, var þá lakari en verið hefur um árabil. Þessar greinar voru reknar meö talsverðum halla, jafnvel áður en fiskverð hækkaði um 1.3% frá áramótum. En sú hækkun var óhjákvæmileg til þess að tryggja sjómönnum eðlilegt tekjuhlutfall miðað við landverkafólk. Við þessum vanda varð að snúast um leið og þess væri freistað að hamla gegn verðbólgu á árinu. Genigsbreytingin. sem Seðlabanki íslands tilkynnti hinn 8’ þ.m. með samþykki rfkisstjórnarinnar, og frum- varp það um ráðstafanir vegna gengisbreytingarinnar, sem flutt var sama dag, þjónaði þeim tilgangi að afstýra rekstrarstöðvun fyrirtækja í helstu útflutningsatvinnu- vegunum og þar með atvinnuleysi. Jafnframt mun gengisbreytingin hamla gegn óhóflegri innflutningseft- irspurn, svo að til betra jafnvægis horfi í utanríkisvið- skiptum. Ráðstafanir þær, sem felast í þessu frumvarpi, eru til þess ætlaðar að hamla gegn verðbólgu og stuðla að betra jafnvægi í efnahagsmálum. Ef stefna á að því að ná tökum á verðbólguvextinúm, þegar á þessu ári, er sýnt, að ekki er um annað að ræða en að hamla gegn vfxlgangi verðlags og launa með því að takmarka nokkuð þær kauphækkanir, sem ráðgerðar eru með kjarasamningum, enda væru önnur úrræði mikils til of einfaldlega að játa, að með verðbótahækkun launa var stefnl í ógöngur, ef launin æddu upp eftir óbreyttum vísitölureglum. Ég veit, að allir sanngjarnír menn eru sammála mér um það, að glórulaust sé að hækka peningalaun um 10—15% á þriggja mánaða fresti. Tillagan í 1. gr. frumvarpsins er sett fram á þeim forsendum, að í raun sé vilji til þess að láta skynsemina ráða. An þess verður kapphlaup launa og verðlags ekki slævt. Ráðið sem rikisstjórnin leggur til að notað verði er einfalt og auðskilið, greiða skal helming hækkunar verðbóta og verðbótaauka af því sem framundan er. Þrátt fyrir helmingun verðbóta skv. 1. gr. frv. er þó tryggt með ákvæði um lágmarksverðbætur í 2. gr., að þessi frádráttur snerti lítið eða ekki hina tekjulægstu í hópi launþega. Hér eru einkum þeir hafðir í huga. sem tekjur hafa af reglulegri dagvinnu einni í lágum kaup- taxta. Ljóst er frá upphafi, að vandasamt verður að framkvæma þetta ákvæði, þar sem ekki er hægt að ákveða þennan bótarétt beint út frá kauptaxta heldur ræður einnig, hvort viðkomandi launþegi hefur fengið verðbætur á yfirvinnugreiðslur og/eða ákvæðis- eða álagsgreiðslur, sem samanlagt koma verðbótum til hans upp yfir hið tilgreinda mark. Um þetta efni þarf að setja sérstakar reglur, en hér er um mikið sanngirnis- mál að ræða og þessi fyrirhöfn því eðlileg. Launþegi með 100 þús. króna mánaðarlaun fær samkvæmt þessu 8.800 hækkun verðbóta 1. mars n.k. eða hið sama og annar launþegi með 176 þús. fær samkvæmt helminga- reglu frumvarpsins. Frumvarpið felur i sér þá stefnumörkun að í 3. gr„ þess er ákveðið að frá upphafi næsta árs skuli óbeinir skattar ekki hafa ahrif á verðbótavisitölu eða verðbóta- ákvæði kjarasamninga, hvorki til hækkunar né lækkun- ar launa. 1 sambandi við þær breytingar, sem ríkisstjórnin hefur nú lagt tíl að gerðar verði á verðbótareglum kjarasamninga, liggur beint við að huga að forsögu málsins, þ.e. kjarasamningum þeim, sém gerðir voru á s.l. sumri og hausti. Afskipti ríkisstjórnarinnar af kjara- samningum ASÍ ög vinnuveitenda miðuðust við, aó úrslit kjrasamninga yrðu innan þess þjóðhagslega svig- rúms sem fyrir hendi væri til að auka kaupmátt tekna almennings. Að öðrum kosti væri eytt þeim árangri i hjöðnun verðbólgunnar, sem náðst hafði og yfir vofði hætta á örum verðbólguvexti með vixlgangi verðlags og launa, sem stefndi afkomu atvinnuvega og þar með atvinnuöryggi í tvísýnu. Þessar aðvaranir ríkisstjórnar- innar voru hins vegar að engu hafðar. Minna má á, að eftir viðræður ríkisstjórnarinnar og fulltrúa samtaka launþega og vinnuveitenda gaf ríkisstjórnin út fréttatil- kynningu hinn 17. maí 1977, þar sern fram kom aö ríkisstjórnin hefði ákveðið að beita sér fyrir ýmsum ráðstöfunum á sviði efnahags- og kjaramála til þess að stuðla að lausn vinnudeilunnar, sem þá stóð milli ASÍ og vinnuveitenda. Þar kom m.a. fram eftirfarandi með leyfi hæstvirts forseta: „Ráðstafanir þessar munu m.a. fela í sér um 2—3% aukningu kaupmáttar ráðstöfunartekna almennings. Forsenda ráðstafananna er, að samkomulag náist milli deiluaðila unt launabreytingar, sem ekki stefna að meiri kaupmáttaraukningu milli áranna 1976 og 1977 en 6—7% í heild, og ámóta aukningu milli áranna 1977 og 1978, og horfi jafnframt til launajöfnunar". I þessum orðum fólst, að ríkisstjórnin teldi þjóðhags- legt svigrúm til þess að auka kaupmátt kauptaxta um 3—4 % hvort ár. Þegar sáttanefnd lagði fram umræðúgrundvöll til deiluaðila hinn 17. maí 1977, var eftir því leitað, hvort ríkisstjórnin teldi þær hugmyndir innan fyrrgreindra marka. Þessu svaraði ríkisstjórnin á eftirfarandi hátt, með leyfi hæstvirts forseta: „Rikisstjórnin telur, að umræðugrundvöllur sá, sem sáttanefndin hefur sett fram við deiluaðila, sé í aðal- atriðum innan þeirra marka, sem felst í yfirlýsingunni f.Vrir árið 1977, en telur þó ástæðu til að vara við því, að visitöluákvæðin í tillögu sáttanefndar fela I sér hættu á mögnun verðbölgu. Eins væri æskilegt að dreifa áfanga- hækkun launa yfir lengra tímabil á næsta ári." í svarinu fólst, að ríkisstjórnin teldi, að á árinu 1977 væru hugmyndirnar innan markanna, on að með þeim væri farið út á ystu nöf og verðbólguhættu boðið heim á árinu 1978, bæði með verðbótaákvæðunum og áfanga- hækkunum. Eins og kunnugt er fóru svo endanlegir samningar 'verulega fram úr umræðugrundvelli sáttanefndarinnar, bæði að þvi er varðar áfangahækkun og verðbóta- ákvæði. Þannig má telja, að þegar á árinu 1977 hafi kaupta\tar hækkað að kaupmætti um það sem orðað var Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.