Morgunblaðið - 11.02.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1978
27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, S. 31330.
Ofnasmiðjan
með lágu verðtilboðin.
Plötuofnar s/f, Smiðjuvegi
26, Kópavogi.
Keflavik
Til sölu m.a. góð 2ja herb.
íbúð. Stór bílskúr. Góð 3ja
herb. íbúð. Stór bilskúr.
Glæsileg ný 3ja herb. íbúð.
Mjög góð efri hæð i tvibýlis-
húsi allt sér. Bilskúr. Góð
stór efri hæð í tvibýlishúsi.
Góður staður. Bilskúr. Ein-
býlishús af ýmsum gerðum.
Eigna- og verðbréfasalan,
Hringbraut 90,
Keflavik, simi 92-3222.
Einhleyp
reglusöm kona
óskar eftir litilli íbúð eða her-
bergi. Þeir sem vildu sinna
þessu sendi tilboð til Mbl.
merkt: ,.X — 9943".
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6A á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Almenn samkoma i húsi
félaganna við Amtmannsstig
2B, sunnudagskvöld kl.
20.30. Dr. Ásgeir B. Ellerts-
son talar.
Allir velkomnir.
I
KFUfVI ~ KFUK
Árshátið
félgsins verður haldin að
Hótel Borg, laugardaginn
1 8. febrúar kl. 20. Eftir borð-
hald verða ýmis skemmti-
atriði, dansað verður til kl. 2.
Heiðursgestur félgsins verður
Simon Williams og frú
(Simon Williams er major
James Bellamy í sjónvars-
þættinum Húsbændur og
hjú). Aðgöngumiðar verða
seldir að Hótel Borg.
laugardaginn 11.
febrúar og sunnudag-
inn 12. febrúar, frá kl.
15 — 1 8 báða dagana.
Borðapantanir á sama stað
og sama tima.
Stjórn Anglia
Byrjendakennsla
verður haldin i Bláfjöllum á
vegum Ármanns kl.
12 —13.30. Einnig verður
byrjendakennsla í brautum
kl. 12 — 13.00.
Mæting við Skiðaskála Ár-
mannS.
Skiðadeild Ármanns.
Nýtt líf
Almenn samkoma í kvöld
Hamraborg 11. kl. 20. Sýnd
verður kvikmyndin af Billy
i Graham. Crusade
1974. Aðgangur ókeypis
Allir velkomnir.
Bænastaðurinn
Fálkagötu 10
Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Samkoma kl. 4.
Bænastund virka daga kl. 7
e.h.
T IVIS'I ARfE'RDiR
Sunnud. 1 2.2.
1. kl. 10.30 Gullfoss í
klakaböndum, Brúarhlöð og
viðar. Fararstj. Kristján M.
Baldursson. Verð 3 000: —
2. kl. 10.30 Ingólfs
fjall, gegnar brúnir og á
Inghól 551 m. Fararstj. Pétur
Sigurðsson. Verð 1 .800.—
3. kl. 13.00 Álftanes.
létt fjöruganga með hinum
margfróða fararstjóra Gisla
Sigurðssyni. Verð 1.000. —
fritt f. börn m. fullorðnum.
Farið frá B.S.Í. bensinsölu.
Munið árshátiðina 1 8. febr.
Útivist.
Skiðaferðir á Kolviðarhóls-
svæðið á vegum Skíðadeildar
IR og Vikings laugardaga og
sunnuaga. Lagt verður af
stað kl. 1 0 og kvöldæfingar-
ferðir verða þriðjudag og
fimmtudaga kl. 18.00. en
bill nr. 1 kl. 17.45. Við-
komustaðir eru alla daga eft-
irfarandi og i þessari röð:
Bill nr. 1
1. Garðabær: Brúarflöt.
2. Silfurtún. Gatnamót.
3. Kópavogur: Pósthúsið.
4. Kópavogur: Vörðufell.
5. Breiðholtskjör.
6. Arahólar.
7. Shell Breiðholti.
8. Réttarholtsskóli.
Bill nr. 2
1. Mýrarhúsaskóli.
2. Umferðarmiðstöðin.
3. Shell Miklubraut.
4. Laugalækjaskóli.
5. Sunnutorg.
6. Vogaver.
7. Nesti, Ártúnshöfða.
8. Árbæjarhverfi.
Kl. 14 laugardaga og kl.
1 3.30 sunnudaga verða ferð-
ir aðeins frá Umferðarmið-
stöðinni. Verð helgarferða kr.
700.00 en kvöldferða kr.
500.00 — . og 10 ferðakort
sem gilda i allar ferðir á kr.
5.000.
Skiðadeild ÍR og Vikings.
mm
ÍSUINOS
OIÐUGÓTU3
OS 1953J.
Sunnudagur12.
febrúar
1. ki. 11.00 Gönguferð
á Esju (909 m). Farar-
stjóri: Tryggvi Halldórsson.
Hafið göngubrodda með ykk-
ur. Verð kr. 1000 gr. v/bil-
inn.
2 ki. 13 00 Úlfarsfell
Fararstjóri: Hjálmar Guð-
mundsson. Verð kr 1000
gr. v/bílinn.
3. Ki. 13.00 Geldinga-
nesið létt ganga
Fararstjóri: Þorgeir Jóelsson.
Verð kr. 1000 fr. v/bilinn.
Farið frá Umferðamiðstöðinni
að austanverðu. Áætlun
1978 er komin út.
Vetrarferðin i Þórs-
mörk verður 18. —19.
febr. Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
Ferðafélag Islands.
SIMAR. 11798
raöauglýsingar
Innilegar þakkir fyrir gjafir, skeyti og alla
vináttu sem mér var sýnd á 70 ára
afmælinu hinn 26. janúar síðastliðinn.
Bjarni Guðmundsson
Túni.
raöauglýsingar —
Skákþing Kópavogs
hefst sunnudaginn 12. febrúar kl. 14.
Skráning þátttakenda kl. 13—-13.30.
Frekari upplýsingar í síma 41907 og
41751.
raöauglýsingar
húsnæöi óskast
Iðnaðarhúsnæði
Óskast til leigu, stærð 30 — 70 fm. fyrir
léttan iðnað. Upplýsingar í s. 75584 —
75529.
Minning:
Kristleifur Jóns-
son vegaverkstjóri
Þeim fer fækkandi frumherjun-
um, sem á fyrstu áratugum aldar-
innar vörðu kröftum sfnum og
þekkingu til að leggja akvegi um
landið okkar. Einn af öðrum fara
þeir til feðranna þessir harðgeru
menn, sem árum og áratugum
lifðu við það sem nútímamennirn-
ir mundu kalla mesta harðræði.
Einn þessara manna var Kristleif-
ur Jónsson, vegaverkstjóri frá
Höfða í Þverárhlíð í Borgarfirði.
Kristleifur var fæddur 18. nóv-
ember 1898. Foreldrar hans voru
þau hjónin María Elísabet Jóns-
dóttir og Jón Guðmundsson. Var
Kristleifur yngstur átta systkina,
sem öll eru nú látin.
Ungur að árum komst Kristleif-
ur í snertingu við vegalagningu.
Hann gerðist kúskur hjá Guðjóni
verkstjóra Bachmann í Þver-
brekkum f Stafholtstungum fyrir
tveggja króna dagkaup. Vega-
gerðin varð alla tíð síðan Iífsstarf
Kristleifs og starfaði hann að
þeim efnum í 56 ár óslitið. Starfið
var ekki neitt sældarbfauð. Atta
eða níu manns sváfu í flatsæng í
einu tjaldi með skrfnukostinn hjá
sér.
Alþingishátíðarárið 1930 gerð-
ist Kristleifur verkstjóri hjá
Vegagerð rfkisins og var hans
fyrsta verkefni vegarlagning við
Gilsmúla í A-Barðastrandarsýslu.
Þar átti að leggja veg utan í svö-
nefndu Slitri. Þar var fyrir hesta-
gata, víða ekki nema fet utan í
snarbrattri fjallshlíð.
Upp frá þessu vann Kristleifur
nær eingöngu með vegavinnu-
flokka sína á Vestfjörðunum.
Kristleifur var hæglætismaður og
vann sfn verk af rósemi, laus við
valdboð yfirmannsins. Er það mál
manna, sem unnu undir hans
stjórn að Kristleifur hafi verið
sérlega laginn verkstjóri og við að
leiðbeina hinum ungu, enda
komu víst margir baldnir strákar
heim aftur að lokinni sumarvinnu
í vegavinnunni,. ljúfir sem lömb.
Innan vegavinnuhópsins var þó
lif og fjör og þar sýndi sig að
Kristleifur var'hinn sanni félagi.
Þá var dugnaði hans og hörku
Framhald á bls. 31.
— ísraelar og
Egyptar...
Framhald af bls. 12
ný er ekki ýkja langt frá staður-
inn Yamit. Yamit var áður
egypzkt land. Sadat hefur því
nokkuð til síns máls þegar hann
hefur verið að lýsa þvf yfir að
ísraelar hafi ekki rétt til að
byggja þarna. Og þar sem við
viðurkennum að hann hefur að
sumu leyti rétt fyrir sér mætti
kannski spyrja af hverju við
höfum haldið þessu til streitu
en ekki hætt við að reisa land-
nemabyggðir þarna. Um aðeins
20 km spildu er að ræða. En
þarna ráða hernaðarlegir hags-
munir okkar. Strandlengjan frá
Port Said hefur verið sú leið
sem alltaf hefur verið farin,
þegar hefur verið ráðizt inn í
Palestínu. Því reistum við þess-
ar byggðir á svæðinu til að
treysta varnir okkar. Sadat
krefst þess að þær verði fjar-
lægðar. Þeir Gamassy og Weiz-
mann munu ræða þetta. Ef
lausn finnst á því er öllum
hindrunum rutt úr vegi og
friður verður saminn. Hvorki
meira né minna.
— En þá er Vesturbakkinn
eftir og hann virðist töluverður
tálmi og langt f land að um það
atriði náist samkomulag.
— Auðvitað gerðuð við okkur
grein fyrir því. Og við vitum
líka að Sadat hefði kannski kos-
ið að gera sérfriðarsamning við
Israela en hann getur það ekki.
Hann hefur verið kallaður öll-
um ónöfnum af öðrum Araba-
leiðtogum og hann vill ekki láta
herma það upp á sig kað hann
svíki Palestínumenn. Sadat
hafnaði tillögu Begins um
heimastjórn og sagði hana
annað nafn á hernámsstjórn.
Palestínumenn eru hin heilaga
kýr málsins. En ekki eru
Arabarnir þar sjálfum sér sam-
kvæmir frekar en í ýmsu öðru.
Þeir krefjast þess að sjálfstætt
Palestínuríki verði stofnað á
Vesturbnakkanum. Jórdanir
hertóku Vesturbakkann, sem
hafði tilheyrt Palestínu, í sjálf-
stæðisstríðinu 1948. 1 19 ár eða
þar til í Sex daga stríðinu var
Vesturbakkinn á valdi
Jórdaníu. Ekki töluðu þeir um
sjálfstætt Palestinuriki þar þá.
Og það þarf ekki annað en líta á
landakort til að gera sér grein
fyrir þeirri ógn sem slíkt ríki
væri. Inni í miðju ísraelsríki!
Slikt ríki gæti skorið Israel I
sundur i einni svipan. Israel
vill ekki og getur ekki sætt sig
við slíka lausn. Vill ekki vakna
einn góðan veðurdag undir
sovézkum eldflaugaoddum.
Þetta vita allir og hvorki
Bandarikjamenn, Egyptar né
ýmsar þeirra Arabaþjóða sem
hæst hafa líta á þetta sem hag-
stæða lausn. Arabaleiðtogarnir
nota Palestinumálið sem yfir-
varp, en heilindin eru dregin í
efa. Varðandi Vesturbakkann
mætti til dæmis hugsa sér að
einhverjar þær tillögur yrðu
samþykktar sem stefna að því
að íbúarnir fengju að taka þátt
í að ákveða framtíð sína. Verði
friður við Jórdan mætti svo
búast við að raunhæfir
samningar byrjuðu. Þvi að mál
Vesturbakkans heyrir að sjálf-
sögðu fyrst og fremst undir
Jórdaniu og Israel. Og ekki er
óeðlilegt að þessir íbúar fái að
greiða atkvæði um hvoru þeir
vilji fylgja Jórdaniu eða Israel.
— Hvar kemur svo Sýrland
inn í myndina?
— Það vita allir að Sýrlend-
ingar kyntu undir borgarastyrj-
öldinni i Libanon sem er hræði-
legur harmleikur. Fullveldi
Líbana er nú nafnið tómt. PLO-
menn hafa í því striði verið
notaðir miskunnarlaust sem
agn af hálfu Sýrlendinga. Ef
Sadat mistekst mun Assad Sýr-
landsforseti verða sá sem mest
fagnar, þvi að hann er persónu-
legur fjandmaður Sadats og
getur ekki sætt sig við það for-
ystusæti sem Sadat hefur með-
al Arabaþjóða þrátt fyrir
hvernig er i pottinn búið nú.
Sýrlendingar hafa nokkra sér-
stöðu meðal Araba. Þeir eru
grimmlyndir og stoltir og geysi-
legir þjóðernissinnar. Þá
dreymir um stórrikið Sýrland.
Þeir vilja að Jórdania, Palest-
ina sem var og Libanon séu
hluti Stór-Sýrlands. Þeir hafa
ekki fyrirgefið Frökkum enn að
taka Líbanon frá þeim og Bret-
um að taka af þeim Palestínu
og Jórdaniu. Það er athyglis-
vert staðreynd sem ég er ekki
viss um að fóik hafi almennt
gert sér grein fyrir að Sýrland
hefur aldrei viðurkennt Liban-
on. Fyrir því er einföld ástæða:
þeir telja að Líbanon sé hluti
Sýrlands og þurfi því ekki við-
urkenningar. Með þessu berja
þeir bara hausnum við stein og
horfast ekki i augu við stað-
reyndir. En það er eitt sem gæti
haldið aftur af Sýrlendingum
og það er ef ótti þeirra um
sovézk yfirráð yrði áþreifanleg-
ur. Assad Ieikur að vísu tveim-
ur skjöldum en hann myndi
aldrei tefla I þá tvisýnu að Sýr-
land lenti á áhrifasvæði Sovét-
ríkjanna.
Hvað sem öðru líður, sagði
Rivlin sendiherra að lokum, er
hyggilegt að menn séu ekki of
óþolinmóðir. Reyni að gera sér
grein fyrir umfangi málsins. En
það er ölllum ljóst sem koma
nálegt þessu máli að Egyptar og
Israelar eru komnir að vega-
mótum og aftur verður ekki
snúið.