Morgunblaðið - 11.02.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. FEBRUAR 1978
29
Húsa
EINS og ávallt þegar meta
á fasteignir þá er það
staðarval er miklu ræður.
Á þetta ekki síður við um
atvinnuhúsnæði en fbúðar-
húsnæði. í lauslegri athug-
un er Viðskiptasíðan hefur
framkvæmt þá kemur
fram að jarðhæðarhúsnæði
hefur mest gildi og síðan
má segja að verðið lækki er
ofar dregur. Ekki virðist
það vera almenn regla að
greitt sé fyrirfram heldur
er mest um mánaðarlegar
eftirá greiðslur að ræða.
Helstu mátsatriðin í
þessu sambandi er vísitölu-
binding leigufjárhæða eða
endurskoðundartímabil á
þeim upphæðum er samið
er um. Algengasta undan-
tekningin virðist hins
vegar vera sú að ef ekki sé
greitt fyrir með beinum
peningagreiðslum þá taki
leigutaki annað hvort á sig
skuldbindingar varðandi
innréttingar og/eða við-
hald fasteignarinnar. Aö
lokum er ekki úr vegi að
nefna hér nokkrar leigu-
upphæðir er komu fram i
fyrrgreindri könnun.
Skrifstofuhúsnæði i Ár-
múla er verðlagt á um 500
kr. pr. fm meðan skrif-
stofuhúsnæði í Austur-
stræti miðast við 800 kr. pr.
fm., og verzlunarhúsnæði
bæði þar og við Laugaveg
virðist vera á mun hærra
verði. Verð á Iðnaðarhús-
næði í t.d. Ártúnshöfða,
Kópavogi og Hafnarfirði
mun vera á milli 5—600 kr.
pr. fm og er þá miðað við
jarðhæð. 1 öllum tilfellun-
um er miðað við verðlag í
janúar 1978.
Áréttri
braut
STUNDUM er því haldið fram að
bílasala sé að verða æ ópersónu-
legri og því fylgi kuldalegt and-
rúmsloft. Eitt af þeim ráðum sem
beitt hefur verið til ráða bót hér á
er stofnun veitingasölu inn í sýn-
íngarsal bílasölunnar. Á bílasöl-
unni Braut hefur sú nýjung verið
tekin upp að selja veitingar þann-
ig að nú geta menn drukkið kaffið
sitt meðan kaup og sala bifreiðar
fer fram og hefur þessi nýbreytni
mælst vel fyrir að sögn forstöðu-
manna fyrirtækisins.
Mvndin hér til hliðar er tekin af
veitingasölunni hjá Bdasölunni
Braut.
Myndin er tekin hjá einu af spilafélögunum í borginni, sem ekki
fara miklar fréttir af.
Bridge
Umsjón: Arnór
Ragnarsson
Bridgefélag
Suðurnesja.
MEISTARAMÖTI Suðurnesja
lauk sl. fimmtudag með sigri
Alfreðs G. Alfreðssonar og
Einars Jónssonar, sem áttu
mjög góðan endasprett, meðan
helztu keppinautar þelrra, Logi
Þormóðsson og Jóhannes Sig-
urðsson, áttu fremur dapran
dag og urðu að láta sér nægja
annað sætið.
Röð efstu para:
Alfreð G. Alfreðsson
— EinarJónsson 159
Logi Þormóðsson
— Jóhannes Sigurðsson 105
Magnús Torfason
— Gísli Torfason 103
Sigurður Sigurbjörnsson
— Þórleif Magnúsdóttir 52
Gestur Auðunsson
— Högni Oddsson 51
I dag verður spilað við Sel-
fyssinga í Sjálfstæðishúsinu í
Njarðvíkum og hefst keppnin
klukkan 13. Er þetta árlegur
viðburður. I fyrra fóru leikar
þannig að Suðurnesjamenn
gjörsigruðu Selfyssinga —
unnu á öllum borðum nema
einu. Er trúlegt að Selfyssingar
hyggi á hefndir nú.
Næsta keppni Bridgefélags
Suðurnesja verður sveita-
keppni, væntanlega aðalsveita-
keppni félagsins og hefst hún á
fimmtudaginn kemur í Stapa
klukkan 20.
Bridgedeild
Breiðfirðinga-
félagsins
Þremur kvöldum af átta er
lokið í barometerkeppninni, en
alls taka 40 pör þátt í keppn-
inni.
Röð efstu para:
Asa Jóhannsdóttir
— Sigriður Pálsdóttir 355
Guðjón Kristjánsson
Framhald af bls. 29.
— Umhorf
Framhald af bls. 30
því í leikritinu að það sé réttlæt-
anlegt eru miklu veigameiri en
gagnrökin, þau eru gerð móður-
sýkisleg og fordómafull, þar er
ekki beitt réttri röksemdafærslu.
Vel getur verið að harður ihalds-
maður úti í bæ vilji ekki láta gefa
fyrsta barnabarn sitt dóttur ein-
hvers óforbetranlegs kommún-
ista En veltum vandanum fyrir
okkur á sjálfstæðan hátt. Er
barnið skuldbinding sem ekki
verður komist frá eða er ekkert
athugavert við að gefa barn fólki
sem ekki á barn fyrir og þráir að
eignast það? Hér duga hvorki
fordómar né móðursýki. Við
verðum. að hugsa um barnið,
hvað sé þvi fyrir bestu og ef ekki
eru skilyrði fyrir þvi að það fái
gott uppeldi og það er ekki vel-
komið i heiminn þá er eins gott
að láta það frá sér fara þvi að
mörg barnlaus hjón sækjast eftir
að ættleiða kornabörn
Hulda leyndi stjórnmálaskoð-
unum sinum fyrir föður sínum
fyrst eftir að hún kom heim
vegna þess að hún vissi að þær
voru i svo hróplegri andstöðu við
skoðanir hans. En Þórður gamli
komst að ýmsu þegar hann fór á
stúfana til að varna þvi að Svan-
dis gæfi barnið. Til að gera okk-
ur grein fyrir skoðunum Huldu
skulum við vitna i nokkur atriði
úr leikritinu og um leið er vert að
gefa orðfæri Vésteins gaum.
Hulda. Ég hefði átt að öskra upp
i eyrað á þér strax og ég kom:
Stalin var glæpon og Sovétríkin
eru ekki sósíalisk fremur en þetta
viðurstyggilega arðránsþjóðfélag
sem við lifum í hérna.
íslensku þjóðfélagi er jafnað
við alræðisþjóðfélag Ráðstjórnar-
ríkjanna. það er a.m.k. engu
betra. Það er harður dómur sem
ísland fær, eitt af fáum lýðræðis-
þjóðfélögum jarðar og mannrétt-
indi eru óvíða i veröldinni betur i
heiðri höfð en einmitt hér á
landi. Þó að frelsið hafi ýmsa
agnúa í för með sér þá er þó
betra að vera frjáls en fjötraður.
En við litum á frelsið sem sjálf-
sagðan hlut Ástandið er vissu-
lega slæmt á mörgum sviðum
hins íslenska þjóðfélags en ég
held samt að það þoli vel saman-
burð við aðrar þjóðir hvað lýð-
frelsi og velferð borgaranna
snertir. En að ísland sé jafnósósi-
aliskt og Ráðstjórnarrikin, um
það treysti ég mér ekki til að
dæma. Af þessu má ráða að
sósialismi sé nokkuð eftirsóknar-
verður þó að vandfundin sé hin
rétta framkvæmt hans i veröld-
inni ef það er þá nokkurs staðar
Hulda segir svo um Samein-
ingarflokk alþýðu: Ekkert nema
andskotans þjóðrembingur
blandaður saman við ómelta lyg-
ina að austan; Var það furða þó
Þórður yrði reiður! Vésteinn deil-
ir hart á rússakomma i Alþýðu-
bandalaginu enda segist hann
vera marxisti en ekki leninisti og
trúlega telur hann að hinn rétti
marxismi hafi hvergi komist tif
vegs og virðingar enn í dag Það
er staðreynd að enn i dag eru til
karlar og konur sem eru ná-
kvæmlega sömu skoðunar um
Sovétríkin og Þórður gamli
Aðalinntak leikritsins, boð-
skapur þess og það sem öll önn-
ur ádeila fléttast inn í er að fögur
orð séu ekki sama og athafnir.
Hulda: Þú (Þórður) varst einlæg-
ur baráttumaður fyrir frelsi þinn-
ar eigin stéttar en hérna heima
varstu lika smækkuð mynd
þessa eymdarþjóðfélags: íhald-
samur forstjóri. Þú þóttist elska
réttlætið og umburðarlyndið en
praktiseraðir hvorugt nema með
vörunum.
Vésteinn gagnrýnir þá sem
tala um frelsi og réttlæti en eru
svo i raunveruleikanum ekkert
nema þröngsýnir eiginhags-
munaseggir. íslenskt þjóðfélag
er spillt.á margan hátt og gefur
tilefni til gagnrýni en gagnrýni
Vésteins er ekki aðeins á stjórn-
völd, hún beinist einnig að hverj-
um einasta borgara Það er alls
staðar hægt að finna menn sem
tala um réttlæti og umburðar-
lyndi en nota svo hvorugt í verki
Hulda. Hvað þýðir að einblina á
roðann í austri ef maður sér ekki
einu sinni blámann i sjálfum sér
Við eigum að skoða okkur sjálf
fyrst áður en við gagnrýnum
aðra og kannski fyrst að setja sig
i þeirra spor.
Leikritið Stalín er ekki hér er
hnyttin ádeila, skemmtileg og
spennandi þvi að höfundur gefur
lesandanum sifellt nýjar upplýs-
ingar sem gera hönum. kleift að
lita á málin frá öðru sjónarhorni
Samtölin eru vönduð og hnit-
miðuð og greinilega unnin af
mikilli vandvirkni. Ádeilan er
mjög fjölbreytt. Það er drepið að
fjölda vandamála en umfjöllun
verður kannski full einhæf þar
sem allar persónur leikritsins eru
sósialistar, nema kannski ein, en
það spillir þó ekkert fyrir ágæti
verksins.
Ég hafði gagn og ánægju af að
lesa leikritið og sjá það siðan á
fjölunum.
Leikritið er kjörin lesning fyrir
alla áhugamenn um stjórnmál,
hugmyndafræði, nútimasögu.
heimilisflækjur og sálfræði Það
ætti engum að leiðast lesturinn,
svo mikið er vist
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS:
Yf irgengi miðað við
Kaupgengi prkr. 100- innlausnarverð Seðlabankans
1967 1 flokkur 2198 19 36 8%
1967 2 flokkur 2183 20 18 2%
1968 1 flokkur 1921 72 5.7%
1968 2. flokkur 1 790 85 4.1%
1969 1 flokkur 1336 08 4.3%
1970 1 flokkur 1228 39 36 5%
1970 2 flokkur 898 64 4.6%
1971 1 flokkur 847 47 36 0%
1972 - 1 flokkur 745 02 5,7%
1972 2. flokkur 632 20 36 0%
1973 1 flokkur A 488 30
1973 2. flokkur 451 38
1974 1 flokkur 313 49
1975 1 flokkur 256 30
1975 2. flokkur 195 58
1976 1 flokkur 185 88
1976 2 flokkur 1 50 94
1977 1 flokkur 140 19
1977 2 flokkur 1 1 7 43
1978 1 flokkur Nýtt útboð 100 00 — dagvextir
VEÐSKULDABRÉF: Kaupgengi pr kr 100 ^
1 ár Nafnvextir: 12% — 23% P a 75 00—80 00
2 ár Nafnvextir: 12% — 23% p a 64 00—70 00
3 ár Nafnvextir: 23% pa 63 00—64 00
x) miðað er við veð i auðseljanlegri fasteign
HLUTABRÉF:
Verslunarbanki íslands hf Sölutilboð óskast
Iðnaðarbanki islands hf Sölutilboð óskast
PjnRPEJTinGflRPÉIAG ÍJIflflDJ HP.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu /12 — R. (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími 20580. Opið frá kl 1 3.00 til 1 6.00 alla virka daga.
ANTWERPEN:
Goðafoss 14. feb.
Lagarfoss 1 5. feb.
Fjallfoss 20. feb.
Lagarfoss 27. feb.
Fjallfoss 6. marz.
ROTTERDAM:
Goðafoss 1 3. feb.
Úðafoss 1 6. feb.
Fjallfoss 2 1. feb.
Lagarfoss 28. feb.
Fjallfoss 7. marz.
FELIXSTOWE:
Mánafoss 14. feb.
Dettifoss 21. feb.
Mánafoss 28. feb.
Dettifoss 7. marz.
HAMBORG:
Mánafoss 1 6. feb.
Dettifoss 23. feb.
Mánafoss 2. marz
Dettifoss 9. marz.
PORTSMOUTH:
Brúarfoss 28. feb.
Bakkafoss 14. marz
Selfoss 2 1. marz.
GAUTABORG:
Laxfoss 1 3. feb.
Háifoss 20. feb.
Laxfoss 27. feb.
KAUPMANNAHÖFN:
Laxfoss 1 4. feb.
Háifoss 2 1. feb.
Laxfoss 28. feb.
HELSINGBORG:
Tungufoss 20. feb.
Urriðafoss 1. marz
MOSS:
Tungufoss 2 1. feb.
Urriðafoss 2. marz.
KRISTSANSAND:
Tungufoss 22. feb.
Urriðafoss 3. marz.
STAVANGER:
Tungufoss 23. feb.
rpj Urriðafoss 4. marz.
® TRONDHEIM:
[jjj Skeiðstoss 20. feb.
W GDYNIA/GDANSK:
(rafoss 1 1. feb.
Múlafoss 5. marz.
[3 VALKOM:
Fjallfoss 1 5. feb.
Múlafoss 3. marz.
RIGA:
Skógarfoss 28 feb
WESTON POINT:
Kljáfoss 14. feb.
Kljáfoss 28. feb.
Reglubundnar ferðir H
alla mánudaga frá
Reykjavik til ísafjarð-
ar og Akureyrar.
Vörumóttaka í A-skála!
á föstudögum.
ALLT MEÐ
EIMSKIP